Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 57 MINNINGAR I í | i 9 I I :;íi ;‘§ við ráðum svo litlu og þannig færði forsjónin mér ljúfan yfirmann og vinnufélaga er mál réðust þannig nokkrum árum seinna að ég tók að mér framkvæmdastjóm fískeldis- íyrirtækisins Hólalax hf. Hans var frumkvæðið en nafn Þorsteins As- grímssonar er órjúfanlega tengt stofnun og sögu þess fyrirtækis frá upphafi, lengst af sem stjómarfor- maður allt til dauðadags. Það var ekki bjart yfir fiskeldinu í lok níunda áratugarins en ekkert var fjær Þorsteini en að gefast upp fyrr en fullreynt væri. Ég hygg að fáir frumkvöðlar í greininni geti verið sáttari við verk sín en hann þegar bjarmar af nýrri öld. Margs er að minnast, veiðiferða og funda með viðskiptavinum og hluthöfum íyrirtækisins en Þorsteinn var ein- hver sá næmasti og gleggsti heili sem ég hef kynnst. Hann þurfti ekki að heyra neitt nema einu sinni. Stundum flaut kímin staka af munni, fullkomin í formi og hugsun, í tilefni góðs tækifæris enda hann af skáldum kominn. Nú er strengur hörpunnar slitinn allt of fljótt. Ailtaf mátti treysta meðfæddri dómgreind hanns og þess vegna kæmi mér það ekki á óvart þó hann verði skipaður til þess af Almættinu að taka á móti okkur hinum með góð ráð og leið- beiningar á ljóssins vegi þegar klukkan glymur hverjum og einum. Ég færi eftirlifandi eiginkonu hans og bömum og fjölskyldum þeiira samúðarkveðjur frá stjórn og starfsmönnum Hólalax hf. Missir okkar er mikill en mestur þó þeirra en minningin um góðan dreng og óeigingjamt dagsverk mun lifa. Pétur Brynjólfsson. Nú heilsar sumarið með geislum sólar en skugga ber á bjarta daga því að Doddi móðurbróðir minn er látinn aðeins 62ja ára að aldri. Hann hafði háð harðvítugt stríð við krabbamein um hálfs annars árs skeið en lotið í lægra haldi. Kona hans Ebba vék ekki frá honum dag og nótt og stóð sem klettur við hlið hans þar til yfir lauk. Böm þeirra, Lóa og Grímsi og fjölskylda, sinntu honum af mikilli ástúð og stóð öll fjölskyldan sterk saman í þessu erf- iða veikindastríði. Doddi sýndi mik- ið æðraleysi í veikindunum og sagði alltaf að sér liði vel og hélt sinni reisn til hinsta dags. Það var hans háttur og þannig hafði hann lifað líf- inu. Heimskt er heimaalið bam og með árunum hefur mér lærst sann- leiksgildi þessa máltækis og gert mér ljóst dýrmæti uppeldisins í æsku og miidlvægi þess að njóta samvista og reynslu eldri kynslóða. Ég dvaldist fimm sumur í Skaga- firði hjá Dodda og Ebbu frá sjö ára aldri og Varmaland var mér sem annað heimili. Þar bjuggu einnig foreldrar Ebbu, Anna og Sigurður, sem mér þótti afar vænt um og kall- aði ömmu og afa og jólakveðjumar frá þeim voru þannig undirritaðar af mikilli hlýju: Afi og amma á Landi, og oft var peningaseðli stungið með í umslagið til að gleðja litla stúlku. Á Varmalandi var gott að vera og gestkvæmt með afbrigðum. Systk- inabörn Dodda og Ebbu hafa flest verið þar í sveit og alltaf var líf og fjör á bænum og málin rædd af kappi. Lóa frænka var mín besta vinkona og Grímsi fékk okkur krakkana alltaf til að veltast um af hlátri. í minningunni man ég eftir að sitja og hlusta með andakt á það sem fullorðna fólkið ræddi á síð- kvöldum í eldhúsinu og var kveð- skapurinn sjaldan fjarri enda orðið í hávegum haft í þegar malbikinu sleppir. Doddi frændi var einstaklega vandaður maður, léttur og kátur í lund og stríðnislegt brosið var aldrei langt undan. Osjaldan manaði hann okkur krakkana í kapphlaup upp að gömlu fjárhúsum og við máttum hafa okkur öll við að halda í við hann og tókst sjaldnast. Það var helst að Lóa frænka hefði roð við honum. I fjósinu hafði Ebba völdin og á meðan kýmar voru mjólkaðar nutum við börnin fróðleiks hennar og lærðum þar ófá ljóðin. Á morgn- ana fór hún yfir nýtt kvæði með okkur sem við þuldum yfir í hugan- um á daginn og kunnum að kvöldi. Þegar til Reykjavíkur var komið að hausti vom Skólaljóðin leikur einn því að ekkert bam fór frá Varma- landi án mikils fróðleiks í fartesk- inu. Doddi var góður hagyrðingur og þegar merkisviðburðir vom í fjöl- skyldunni orti hann iðulega ljóð. Mér er minnisstætt þegar Óli frændi, bróðir Dodda, varð fertugur og Doddi kom í bæinn í veisluna sem haldin var heima hjá mér og mömmu. Þá dró hann úr pússi sínu nokkur blöð og hafði yfir langa drápu sem hann hafði samið um lífs- hlaup Óla við mikinn fögnuð við- staddra. Kímnin var þar í hávegum höfð eins og svo oft áður enda Doddi alltaf hrókur alls fagnaðar þar sem hann kom. Samferðamenn frænda míns urðu þess fljótt áskynja hverja mann- kosti hann hafði að geyma og hann naut mikils trausts innan sveitar og utan og vom falin margvísleg trún- aðarstörf í héraðinu. I mínum huga var Doddi hin sanna föðurímynd sem mér þótti einstaklega vænt um og veitti mér þann styrk sem ég þarfnaðist svo mjög sem bam, sem fór að heiman í fyrsta sinn. Fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Frændi minn var skírður eftir skáldinu Þorsteini Erlingssyni og hafði Ólöf amma mín ráðið nafngift- inni en Ijóð hans voru henni einkar kær. Mig langar að vitna í eitt ljóða skáldsins og gera orð hans að mín- um: Ég man það sem barn, að ég margsinnis lá og mændi út í þegjandi geiminn, og enn get ég verið að spyija og spá, hvar sporin mín liggi um heiminn. En hvar sem þau verða, mun hugurinn minn við hlið þína margsinnis standa, og vel getur verið í síðasta sinn ég so&i við faðm þinn í anda. Ég votta Ebbu, Lóu, Anne og Grímsa og afadrengjunum Dodda og Steina og öðmm aðstandendum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Þorsteins Erlings Ás- grímssonar. Dóra Ósk Halldórsdóttir. Ævi hðin furðu fljótt, feigðar sniðinn hjúpur. Autt er sviðið, orðið hljótt allt er Mður djúpur. (ÁK) Frændi minn, Þorsteinn Ás- grímsson á Varmalandi, hefur lokið ævidegi sínum. Hann fékk ekki að njóta ævikvölds í þessum heimi. Ástvinir hans og samferðamenn sjá á eftir honum með söknuði. Dagur- inn hans var starfsdagur, miklar annir við fundi, margháttuð félags- störf og ferðalög, sem allt bættist við bústörfin heima á Varmalandi. Það er fagurt á Varmalandi. Þau hjónin, Þorsteinn og Ingibjörg, al- úðleg og góð heim að sækja. Bú- skapur þeirra var snyrtilegur, af- urðir búsins góðar og snyrti- mennskan hvarvetna sýnileg. I þvi sem öðm voru þau hjónin samhent. Þegar þau svo brugðu búi eftir að heilsu Þorsteins tók að hraka vildu þau fyrir sitt leyti tryggja sveit sinni dugandi bændur að Varma- landi og seldu jörðina ungum efnis- hjónum. I eðli Þorsteins var sterkur vilji til þess að leysa hvers manns vanda. Mörgu fékk hann líka áork- að. Hann kaus sér félagsstörfin og lagði sífellt af mörkum til þess að efla hag héraðsins og samfélags síns. Vafalaust hlóðust á hann fleiri verkefni en honum þótti hæfilegt en öll vom störfin unnin af vandvirkni og samviskusemi. Lagði hann stundum nótt við dag á annasömum tímum til þess að Ijúka verkunum. Þorsteinn átti létt með að laða fólk til samstarfs þar sem léttleiki hans og notaleg kímnin gátu gert félags- störfin skemmtilegri og auðveldað lausn og úrlausn mála. Hins vegar var svo áhugi hans á íslenskum fræðum, kveðskap og Ijóðum, sög- um og sögnum. Hefði hann gefið sér tíma til þá lægi efalaust eftir hann dýrmætt framlag á sviði Ijóða og sagna. Slíkra stunda minnist ég með miklu þakklæti hvort sem var á fundum, á heimilum okkar eða á kaupfélagsplaninu. Mannlífið er straumur samskipta og ólíkt er það það nú skemmtilegra þegar góður vilji og manngæska er auðsær af fasi og framgöngu. Þannig var Þor- steinn og minningin um góðan dreng göfgar og gleður. Ævi er lið- in, sviðið er autt, en djúpur friður allt um kring. Guð blessi eiginkonuna, Ingi- björgu, bömin, Ólöfu og Ásgrím, og fjölskyldur þeirra og ástvini alla. Hjálmar Jónsson. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, úttararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 + Móðurbróðir minn, ÓLAFUR ÞÓRÐARSON frá Eilífsdal, lést á dvalarheimilinu Ási fimmtudaginn 13. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur Bjarnason. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, LÁRUS GARÐAR LONG, Túngötu 17, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 13. maí. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Hermannsdóttir. GUÐBJÖRG SVANDÍS JÓHANNESDÓTTIR + Guðbjörg Svan- dís var fædd í Vatnsdal í Patreks- firði hinn 29. júní 1922. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 24. apríl síð- astliðinn. Útför Guðbjargar Svan- dísar fór fram frá Eyrarbakkakirkju 7. maí. Þú Guð sem stýrir stjama her ogstjómarveröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Elsku amma, mig langar að skrifa nokkur orð til að þakka þér, allt já allt frá því ég man fyrst eftir mér, alltaf varstu þú til staðar tilbúin að þjálpa og gera allt íyrir mig til að mér liði sem best. Þú kenndir mér margt og þá fyrst og fremst að vera sáttur við hlutina eins og þeir era, og það ætla ég líka að reyna að gera. Þú hefur alla tíð hugsað fyrst og fremst um aðra, ég man vel eftir því á Patreksfirði, þá hugsaðir þú líka um langafa og langömmu ásamt því að vera í fullri vinnu með og verða að ganga langa leið til vinnu og frá, svo oft var vinnudagurinn langur hjá þér, amma mín. Ég spurði þig einu sinni hvort ég gæti gert eitthvað fyrir þig og þá svaraðir þú: Var ég að kvarta? En þú kvartaðir aldrei, þú gerðir aldrei neinar kröfur fyrir þig. Þú varst alltaf mikið góð við öll börn og gafst þér tíma fyrir þau. Hildur Rós fékk líka að njóta gæða þinna þvi alltaf varstu tilbúin að lesa fyrir hana. Elsku amma, það væri svo mikið og margt sem ég gæti skrifað en þú veist það allt. Þú veist líka hvernig mér líður núna og að ég á alltaf eftir að sakna þín. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku amma mín, Guð blessi minningu þína og hafðu hjartans þökk fyrir allt og allt. Þinn Ingi. Skilafrestur minningargreina EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. f mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN JÚLÍUS GUÐMUNDSSON, frá Brekku í Dýrafirði, skipasmíðameistari, Stykkishólmi, lést á St. Franciskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi miðvikudaginn 12. maí. Auður Júlfusdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KRISTMUNDSSON, Skipholti, lést á heimili sínu þriðjudaginn 11. maí. Jarðsett verður frá Hruna í dag, laugardaginn 15. maí, kl. 14.00. Kristrún Jónsdóttir, börn, tengdabörn, afabörn og langafabarn. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför, sem fram fór 11. maí í kyrrþey að ósk hins látna, PÁLS ÁRNASONAR, Sóltúni 6, Keflavfk. Guð blessi ykkur. Dóróthea Friðriksdóttir, Edith María Meadows, Dóróthea Jónsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn hins látna. Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.