Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 79 Stutt Ævaforn matreiðslu- bók seld ►HEIMSINS elsta matreiðslubók seldist á uppboði í Swindon fyrir 10.000 pund á dögunum, að því er fram kemur í bresku dagblaði. Ritið var skrifað árið 1480 af ítölskum eðlisfræðingi að nafni Bartholomaeus Platina og hefur að geyma um 300 mataruppskrift- ir á latínu. Þar má til dæmis fínna upplýsingar um hvernig matreiða eigi „svínaafganga" og uppskrift að kannabísbrauði. „Hér er um merka söguheimild að ræða sem gefur innsýn í matreiðsluhætti á miðöldum. Kjötmeti virðist hafa verið uppistaða fæðunnar en fólk ekki meðvitað um mikilvægi trefja," sagði uppboðshaldarinn Dominic Winter. „Svo virðist sem grænmetisætur hafí verið vand- fundnar á 15. öld.“ Nvtt hlutverk 007 ►BRESKI leikarinn Roger Moore sem betur er þekktur sem James Bond hefur breytt um stfl. Ólíkt 007 sem hefur „leyfí til að myi’ða“ var markmiðið að þessu sinni mun göf- ugra því leikarinn tók nýverið þátt í söfnun fjár til stuðnings flóttabörn- um frá Kosovo. Talið er að um 240.000 manns séu nú í Makedóníu og þangað fór leikarinn kunni til þess að kanna aðstæður. Aðsókn í fangelsi ►ÓLÖGLEGUR innflyljandi í Hong Kong fór þess á leit við yfir- völd að hann fengi lengri fangels- isdóm en hann hafði verið dæmd- ur í. Afbrotamaðurinn sem er kín- verskur og heitir Chu Wai-choi var dæmdur í 18 mánaða fangelsi, en fór fram á tveggja ára vistun. Astæðan er sú að hægt er að þéna meira bak við lás og slá í Hong Kong heldur en á meginlandinu Kína, að sögn dagblaðs í Hong Kong. Þessi ólánsami fangi hafði ekki erindi sem erfiði og var gert að snúa til Kína að lokinni afplánun í einu fangelsa Hong Kong. Tækifærislausn ástarlífsins ►VERJUFRAMLEIÐANDI í Kol- umbíu hóf nýverið framleiðslu á „flík“ sem gerir áköfum elskendum kleift að hafa mök án þess að fara úr buxunum. Um er að ræða nærbræk- ur fyrir karlmenn með áfastri getn- aðarvörn. Flíkin hefur hlotið heitið „Panty Condom" og er líklega fyrsta sinnar tegundar. Þunn gúmmíhimna af gerðinni AT-10 er fest innan á bux- urnar og þjónar sama tilgangi og aðrar latex-gúmmíverjur. Hægt er að kaupa flíkina í svörtu eða hvítu og tvær gúmmíhimnur fylgja með til skiptanna. Að sögn uppfinninga- mannsins Max Abadi stefna fram- leiðendur að þvi að selja 50.000 ein- tök á þessu ári. Vill aldrei yfir- gefa búðina ►MOHAMED A1 Fayed, forsljóri Harrods-verslunarinnar í Lund- únum, er svo hrifinn af verslun- inni að hann ætlar aldrei að yfir- gefa hana. Hann hefúr ákveðið að prýða búðiná sem múinía í kistu eftir andiát sitt. Ekki eru það einu áform A1 Fayed um framhaidsiífið því hann hefur einnig hug á að láta klóna sig svo hann geti gert yfirvöldum skráveifu, en AI Fa- yed tapaði í mánuðinum löngu stríði sínu um að fá breskt vega- bréf. Ich bin ein Berliner“ HELSTU tíðindi vikunnar sem er að líða voru að sjálfsögðu al- þingiskosningarnar og þær um- ræður, sem hafa orðið í fjöl- miðlum síðar um væntanlega og sjálfsagða stjórnarmyndun. Til- vist flokka byggir öðrum þræði á því að ná nægu fylgi til að geta myndað ríkisstjórn. Það var því undarleg játning og bar ekki vitni pólitískum þroska, þegar einn fram- bjóðenda VG lýsti því í sjónvarpi fyrir kosningarn- ar, að nú væri tækifæri fyrir framsóknarmenn að hefna sín á flokknum fyrir að vera í samstarfi við sjálfstæðis- menn, með því að kjósa ekki flokkinn. Vinstri menn hafa löngum þóst eiga þau ítök í Framsókn, að hvenær sem þeir telja að þurfi að refsa henni fyrir stjórnarsamstarf leggjast vinstri menn í gömlu hvísling- arnar. Þetta er fyndið en ár- angursríkt, einkum þegar á það er litið að Framsókn á heljar- mikinn gufuhertoga hjá R-list- anum, en í Reykjavík tapaði Framsókn 30% eins og ekkert væri. Ekki er annað vitað en Framsókn uni því að búa við flökkufylgi sitt. Bæði sjónvörpin gerðu sitt besta til að halda talningavöku fyrir áhorfendur. En íslendingar eru sérstakir á alla lund og róstusamt mun hafa verið í hús- um og á götum á kosninganótt. Þessi eina slysavarðstofukytra var yfirfull á kosninganótt og , nóttina á eftir. SilÓNVARP A Heyrst hefur að _ emn lækmr hafi LAUGARDEGI verið á vakt seinni nóttina. virðast hafa verið Einhverjii’ daprir eða þá ofsalega kátir, en sama hvort er. Hér er til siðs að gefa á lúðurinn í báðum tilfellum. Nú á að fara að breyta kvöld- fréttatíma Ríkisútvarpsins og er óhætt að telja það til bóta. Eitt- hvað er verið að bera við breytt- um vinnutíma. Alíta má að Ríkis- útvarpið sé stofnun, sem lúti ekki lögmálum verkalýðsheyfingar- innar eða annarra, einkum þegar komið er á daginn, að félags- menn sjálfir innan hennar varðar ekkert um samninga sem heild- arsamtökin gera. Annars verður að segja um sjónvarpsstöðvarnar tvær, ríkisrásina og Stöð 2, að út- sendingar á kosningafréttum voru snöggt um betur skipulagð- ar hjá Stöð 2 en ríkisrásinni. Þul- ir á báðum stöðvunum stóðu sig vel þegar út í slaginn var komið, en grafíkin var stórum skírari og betri á Stöð 2 og Sigmundur Ernir kom út sem vinningshafi þessa þreytandi nótt með skýran skjá og skýran koll. Var ekki eitthvað verið að tala um að selja Ríkisútvarpið? Það er varla heil- agra en ríldsbanki? Þegar kosningum var lokið var loks kominn tími til að halda áfram sýningum á þáttunum um Kalda stríðið. Þeir voru felldir niður tvisvar í röð á meðan á kosningaundirbúningnum stóð. Menn eru kurteisir á sjónvarp- inu og eru ekki að sýna geð- veikitakta kommúnista rétt á meðan fleyta á þeim inn á AI- þingi á bökum krata. I þetta sinn var saga Berlínarmúrsins sýnd, þar sem blasir við augum eitt einkenni á stjórnarfari al- þýðylýðveldis og sovétsins, en það er illmennskan. Þessi póli- tíska illmennska blasir hvar- vetna við augum, líka hér á landi. Fólki var ekki leyft að fara til ættingja sinna vestan við múrinn og það var skotið í bakið ef það reynti að hlaupa í gegn- um gaddavírinn. Og spurt er: til hvers? Það er ástæðulaust að gleyma þessu eða þeirri ill- mennsku yfirleitt, sem ráðið hefur ríkjum yfirleitt á tuttug- ustu öld og kennd var við smæ- lingja. Berlínarmúrinn var pólitískt glapræði hvernig sem á verknað- inn og afleiðingar hans var litið. Þátturinn um hann rifjaði enn einu sinni upp þau níðingsverk sem unnin voru í hugsjónaskyni. John Kennedy kom þama við sögu og hefði áreiðanlega orðið hættulegur einhverjum mann- kynsfrelsaranum í miðri kosn- ingabaráttu hefði þátturinn verið sýndur þá. Eftir allt alþjóða- byggjurausið stóð þessi fulltrúi mannréttinda á palli í Vestur- Berlín og sagði yfir lýðinn: „Ich bin ein Berliner" og talaði þar fjTÍr munn allra viti borinna manna. Indriði G. Þorsteinsson KVIKMYNDIR/Sambíóin sýna spennumyndina Belly með röppurunum Nas og DMX og söngkonunni T-Boz úr stúlknasveitinni TLC í aðalhlutverkum. Uppgjör í undirheim- um New York Frumsýning TOMMY (DMX) og Sincere (Nas) eru æskuvinir úr Qu- eens-hverfinu í New York. Uppvöxtur þeirra einkenndist af afbrotum og þegar þeir voru komnir á unglingsár vom þeir hátt skrifaðir í glæpaheimi borgarinnar og á góðri leið með að tengjast skipulagðri glæpastarfsemi borg- arinnar. Smám saman verður ljóst að Tommy og Sincere hafa ólíkar væntingar í lífinu og vinátta þeirra er í uppnámi. Hinn sautján ára Tommy er foringi hverfisins, flaggar ríkidæmi sínu og lætur sig aldrei vanta þai' sem spennan ræð- ur ríkjum. Kvensemi hans er orð- lögð og hann heldur stíft fram hjá kærastu sinni Kishu (Tarah Hicks). Andstætt Tommy er Sincere mun minna gefinn fyrir sýndar- mennsku. Hörkutól að upplagi en kann þó að meta aðra hluti í lífinu eins og bókalestur. Hann kemst smám saman að því að fjölskylda hans skiptir hann mestu máli í líf- inu. Eiginkona hans, Tionne (T- Boz), er óhress með samskipti hans við Tommy því hún gerir sér grein fyrir að annaðhvort mun Sincere lenda bak við lás og slá eða verða eiturlyfjunum að bráð. Þegar Tommy fréttir af nýju efni sem getur aukið áhrif eitui’lyfja og er orðið vinsælt í undirheimum Evrópu sér hann tækifæri til að verða forríkur á stuttum tíma. Þá þarf Sincere að gera upp hug sinn og ákveða hvort hann verður með eða ekki. Belly er fyrsta mynd leikstjór- ans Hype Williams, en hann skrif- aði einnig handritið. Williams er þekktur fyrir tónlistarmyndbönd sín og hefur unnið með stærstu stjörnunum í heimi rappsins og hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín. Williams er sjálfur borinn og bamfæddur í Queens og þekkir TOMMY er leikinn af DMX. NASIR Jones í Sincere. lilutverki því sögusvið myndarinnar betur en nokkur annar. Rappstjarnan Earl Simmons eða DMX skaust fyi’st upp á vinsældahimininn árið 1996 en fyrsta plata hans, „It’s Dark and Hell is Hot“ fór í efsta sæti Billboard listans og seldist í yfir milljón eintökum fyrstu vikuna. Hann er frá New York eins og Williams og rapparinn Nas. Sá síð- astnefndi þykir hafa algjöra sér- stöðu í rappinu og hefur hlotið afar lofsamlega dóma. Nasir Jones ólst upp í stærstu fátækrahúsasam- steypu New York borgar í Queens- bridge og faðir hans var þekktur djasstónlistarmaður. Nas þykir í textum sínum draga upp raunsanna mynd af lífi svartra í fá- tækrahverfunum án þess að lof- syngja veröld ofbeldis og eitur- lyfja. Hann hefur gefið út þrjár plötur, „Illmatic“, „It Was Writt- en“ og nú síðast „I Am“. Eins og sjá má af leikaravalinu spilar tónlistin stórt hlutverk í Belly en myndinni hefur verið lýst sem nútímalegri New York-útgáfu af kvikmyndinni Scarface sem skartaði A1 Pacino í aðalhlutverki og lýsti veldi eiturlyfjabaróns á Miami. MYNDBÖND Vandi ástarinnar Skuggamyndir (Portraits Chinois)_ kvikmyndategund ★★% Leikstjórn: Martine Dugowson. Aðalhlutverk: Helena Bonham Carter og Romane Bohringer. 106 mín. Háskólabíó, apríl 1999. Aldurstakmark: 12 ár. HÉR segir frá vinahópi sem starfar að fatahönnun og kvik- myndagerð í París. Astin er megin- ■mim viðfangsefni myndarinnar og leitin að lífsföru- nauti í brennid- epli. Leikarahóp- urinn er fjölþjóð- legur, fínn og, að því er virðist, vel frönskumælandi. Handritið er gott. Mikil áhersla er lögð á samtöl og per- sónusköpun á meðan sagan er laus- ari í reipunum. Frásögnin er víða sjálfhverf þar sem myndin fjallar um fólk á kafi í kvikmyndagerð og mörg tækifæri til naflaskoðunar koma upp. Raunsæislegu yfirborði er vel við haldið og reynt að setja fram sem eðlilegastar svipmyndir af nokkuð hversdagslegu lífi venju- legs fólks. Persónur eru margar og myndin kallar á vakandi athygli áhorfandans allan tímann. „Portraits Chinois" er ágæt skemmtun og þægileg tilbreyting frá bandarísku síbyljunni. Guðmundur Ásgeirsson H ARMONIKUBALL verður í kvöld í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima. Dansinn hefst kl. 22.00. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi. Söngvari er Ragnheiður Hauksdóttir. ALLIR VELKOMNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.