Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 58
 58 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 JOHANNA UNNUR ERLINGSON INDRIÐADÓTTIR + Jóhanna Unnur Erlingson Ind- riðadóttir fæddist í Reykjavík 3. októ- ber 1978. Hún lést á hjartadeild Land- spitaians 28. apríl síðastliðinn. Útför hennar fór fram frá Langholtskirkju 5. maí. Mér finnst skrítið að tvíburasystir mín sé dáin og það er söknuður í hjarta mínu, Sis. Þrátt fyrir söknuðinn í hjarta mínu þá get ég ekki annað en brosað þegar ég hugsa til þín og samverustunda okkar. Sis, hetjan mín, þú barðist vel og mik- ið og þú vannst. Eg er stolt að hafa átt þig að tvíburasystur vegna gleði þinnar og viljastyrks og ekki síst vegna þess að með þér gaþ ég spilað landsleik fyrir hönd íslands og það er þér að þakka, því þú fékkst mig til að byrja í knattspyrnu. Eg vildi það ekki í fyrstu en þú gafst ekki upp og fyrir það verð ég þér ætíð þakklát. Sis manstu haustið ‘94 þegar við báðar vorum valdar bestu leikmenn 2. fl. kv. í KR? Mér fannst það mikill heiður því þú varst mjög góður leikmaður og þegar við fórum fyrir hönd 2. fl. KR í vítaspyrnukeppni. Þú í marki og ég tók spyrnurnar. Þrátt fyrir að ég hafi ekki skorað úr öllum þá varðir þú spyrnur andstæðingsins og með samvinnu okkar unnum við tvíburamir úr KR. Ef ég var þreytt þá studdir þú mig og við stóðum ætíð saman þú og ég. Eg furðaði mig oft á því hvernig þú gast þetta allt, Sis, þú varst svo ótrúlega sterk og svo ánægð með tilveruna. Þegar ég hugsa til baka fyllist hjarta mitt gleði sem mun yfir- vinna söknuðinn. Þó svo að þú sért farin úr lifanda lífi þá verður þú hjá okkur og styð- ur. Allar minningarn- ar sem ég á um sam- verustundir okkar munum við rifja upp og hlæja að og ég hlakka til þess. Eg veit Sis að núna líður þér vel og það er mikil huggun. Með söknuði og gleði í hjarta mínu kveð ég þig og ég mun ætíð elska þig og dá. Drottinn vor, viltu styrkja Gísla, mömmu, pabba, Regínu systur og Nonna bróður í sorginni og hjálpa þeim í erfiðleikunum. Sis, það er erfitt að kveðja en það er hlutur af þessu og ég óska þess að ég geti kvatt þig nú svo þér líði betur. Ég elska þig Sis, þín tvíbura- systir Ólöf Sigríður. Mín kæra systir er dáin eftir erfiða baráttu við vondan sjúk- dóm. Ekki get ég í fáum orðum, svo vel sé, lýst þeim áhrifum sem systir mín hafði á mig. Því læt ég nokkra ljóðstafi duga. A meðan köld nóttin hvílir yfir þráir garðurinn yl sólarinnar. Fiskamir á fljótsbakkanum þrá að komast aftur út í vatnið. Vængbrotin dúfan þráir að fljúga aftur milli hárra greina. Ferðalangurinn á dimmri nóttu þráir aftur tunglskinið. En þúsund sinnum heitar þráði jörðin að þú yrðir aftur á hana fædd. (ÚrVængjaðurFaraó.) Elsku systir, það er sárt að hafa s G : .... FÉLAGSLÍF (/l H«illvf;igrirstig 1 • simi 561 4330 Laugardaginn 15. maí og sunnudag 16. maí Dagsferð sunnudaginn 16. maí. Frá BSÍ kl. 10.30. Fyrsta ferðin I sígildri fjallasyrpu Útivistar. Vegna þungatakmark- ana á vegum fellur niður ganga á Þríhyrning. Þess í stað verður gengið á Skálafell sunnan Hellis- heiðar. Fararstjóri Margrét Björnsdóttir. Verð 1500/1700 Næstu dagsferðir Mánudaginn 24. maí, annan í hvítasunnu. Mosfellsheiði — Lyklafell. Föstudaginn 28. maí kvöldganga Grindaskörð — Langahlíð — Vatnsskarð. Sunnudaginn 30. mai Bakaleiðin 2. áfangi, Brúarhlöð — Flúðir Spennandi ferðir um hvíta- sunnuna 21.—24. maí. Hvítasunnuferð: Eiríksjökull, Langjökull, Strútur og Ok. Spennandi hvítasunnuferð. Fjall- göngur bæði léttar og erfiðar, skoðunarferðir og léttar göngur. Ferð fyrir alla. Fararstjóri Kristján Helgason Hvítasunnuferð í Bésa. Göng- uferðir, varðeldur og góð stemmning. Tilvalin fjölskyldu- ferð. Jeppaferð ■ Bása um hvíta- sunnu. Tilvalin æfing fyrir sum- arið. Boðið er upp á námskeið í vatnaakstri, göngu- ferðir o.fl. Sumar með Útivist. Á dagskrá sumarsins er fjöldi ferða. Upplýsingar og þátttökutil- kynningar á skrifstofu Útivistar. Á meðal ferða má nefna: Fimm- vörðuháls, Laugavegurinn, Horn- strandir, Sveinstindur — Eldgjá, skíðaferð yfir Vatnajökul, jeppa- ferðir o.fl. Fáið ferðaáætlun á skrifstofu Útivistar. Afgreiðslutími á skrifstofu er á milli kl. 10.00 og 17.00 út maí en 9.00—17.00 júni— september. Ferðir eru kynntar á heima- síðu: centrum.is/utivist. FERÐAFELAG # ÍSLANDS MÓRKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagsferð 16. maí kl. 10.30 Selvogsgata. Lokaáfangi sem enginn ætti að missa af. Um 6 klst. ganga. Brottför frá BSÍ, austanmegin, Mörkinni 6 og stansað v. kirkjug. Hafnarfirði. Verð 1.700 kr. Hálendið heillar. Vegna mik- illar aðsóknar verður auka- ferð 17.—24. ágúst. Ferða- kynning (myndasýning) á þriðjudkv. 18. maí kl. 20.30 í FÍ-salnum, Mörkinni 6. Dalvegi 24, 5æSS5öES Kópavogi. Almenn samkoma kl. 14.00. Ræðumaður Björg R. Pálsdóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Dilbert á Netinu ALLTAf= mbl.is GiTTH\SA£> IMÝT~i MINNINGAR þig ekki hjá okkur, en gott er að tuðran sé komin aftur í gagnið. Hvíl í friði. Þinn bróðir, Jón. Elsku hjartans Jóhanna mín. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farin. Ég á bágt með að trúa því, ég vil helst ekki trúa því. Mér finnst eins og þú sért á ferðalagi og komir aftur seinna. Þú þarft bara smá hvfld til að safna orku og byggja þig upp síðan kemurðu aftur - ég trúi því. Ég er sannfærð um það, elsku Jóhanna mín, að á þessu ferðalagi líður þér vel. Þar áttu eftir að geta gert allt sem þig langar til og hefur dreymt um. Þetta er draumaferða- lag líkt og Nangijala. Þú varst ein- stök manneskja og vinkona, Jó- hanna mín. Ég hef aldrei og mun lík- lega aldrei kynnast neinni líkri þér. Ég gleymi því aldrei þegar við kynntumst. Það var er ég byrjaði í handbolta; ég kunni ekki neitt, varla að kasta á markið, var algjör klunni. Einn daginn komst þú til mín eftir æfingu og ákvaðst að kenna mér smá grunnæfingar; kasta, grípa og stökkva upp. Mér gekk erfiðlega fyrst í stað, en þú hélst áfram þang- að til ég var búin að ná að kenna mér. Þú sagðir við mig: „Komdu bara klukkutíma fyrir næstu æfingu og þú getur æft þig meira og orðið betri.“ Þetta var einkennandi fyrir þig; þú vildir ávallt hjálpa öllum og gerðir allt sem þú varst beðin um með bros á vör. Þú varst ótrúleg; ég man þegar við vorum að safna peningum fyrir handboltann. Þú varst alltaf mætt fyrst, t.d. þegar við áttum að safna dósum. Þú varst svo dugleg og þú safnaðir svo mörgum, að það var fyrir allt liðið. Það var svo gaman að fylgjast með þér, alltaf svo mikið líf og fjör í kringum þig. Þú varst mjög ákveðin og metnaðargjöm. Það var alveg einstakt að spila með þér handbolta; þú hvattir mig og allt lið- ið óspart áfram, við gátum heyrt í þér allan leikinn, þú gafst ekki upp þótt við værum að tapa. Þetta keppnisskap hefur einkennt þig allt þitt líf. Þú vissir alltaf hvað þú vildir og gekk vel með það sem þú tókst þér fyrir hendur. íþróttir voru líf þitt og yndi. Þú hættir í handboltan- um og valdir fótboltann. Þar stóðstu þig ekki síður vel. Ég var alltaf svo stolt af að eiga þig fyrir vinkonu og kom oft til að horfa á ykkur systurn- ar í fótboltanum. Ég, þú og Olöf tví- burasystir þín vorum mjög sam- rýmdar. Þú og Olöf vomð alltaf góð- ar fyrirmyndir. Ég leit og geri enn svo upp til ykkar. A unglingsárum okkar kynntist þú yndislegum strák, honum Gísla. Þið vorað sem eitt; svo ástfangin að það geislaði af ykkur. Þú ert heppin, Jóhanna mín, að hafa eignast svona góðan kærasta. Hann hefur hjálpað þér í gegnum allt, stutt þig í veikind- um þínum sem þú hefur þurft að berjast við síðastliðin ár. Hann hefiir verið þér ómissandi augasteinn. Ég er þakklát honum. Það er erfitt að kveðja þig, ég veit varla hvað ég á að segja. Ég vil þakka þér fyrir allt. Ég veit stund- um ekki hvar ég væri hefði ég ekki haft þig. Þú varst mér svo góð. Þótt að þú værir orðin mjög slöpp þá varstu alltaf reiðubúin að hjálpa öll- um „Hvað þetta er ekkert mál,“ sagðir þú. Ég er hreykin af þér hvað þú stóðst þig vel í veikindum þínum, barðist fram á síðasta dag. Þetta ætla ég að hafa sem veganesti út í hinn harða heim. Ég ætla að hugsa til þín og reyna að taka þig til fyrir- myndar. Mér þótti svo vænt um þig og tómleikatilfinning fyllir hjarta mitt nú. Ég sakna þín. Láttu þér líða vel á þínu ferðalagi, hugsaðu vel um hana Mist litlu. Ég vil þakka guði fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fengið að njóta þess að vera með þér þessi átta ár. Ég bið Guð að styrkja fjölskyldu þína; Margréti, Indriða, Regínu, Nonna, Ólöfu og Gísla. Guð blessi þig og varðveiti þig, elsku Jóhanna mín. Þín æskuvinkona Sigríður Birna. Elsku Jóhanna frænka. Mig langar til að skrifa fáein kveðjuorð til þín sem ert farin frá okkur. Það var kominn tími á að skipta góðum leikmanni út, leik- manni sem hafði barist hetjulega en þurfti að fara að fá hvíldina sína. Þú varst óumræðilega stór, svo stór að oft sá ég ekki sjúkdóminn sem þú gekkst með. Við áttum erfitt með að skilja ákveðni þína og þann þrótt sem einkenndi þig og allt þitt líf, einnig þegar á leið og þú varst orðin veikari. Þú breiddir yfir veikindin með þeirri einurð, sem fylgir þeim sem ætlar sér að vinna. Þú varst alltaf svo tapsár, þú vildir sigra en enginn gerði sér grein fyrir að líf þitt myndi slokkna áður en sá sigur yrði í höfn. Sigur lífsins felst í því að gefa sig dauðanum á vald. Allt lífið er- um við að missa. Draumana okkar, áætlanir, heilsuna, vonina, hvert annað. Alltaf þurfum við að láta af hendi eitthvað sem er okkur dýr- mætt. Nú þurfum við að sjá á eftir þér, elsku frænka, og það verður ekki auðvelt. Það reyndist okkur erfitt að horfa upp á þig í veikind- um þínum og vera ekki fær um að breyta gangi mála. Oft vorum við kvíðin en aldrei datt okkur í hug að svona stutt væri í endalokin. Þín von gæddi okkur lífi og þinn kjarkur efldi okkar von. Lífið heldur áfram en það verður ekki líf án þín, því í hjarta hverrar manneskju sem var svo lánsöm að hafa þekkt þig, býr nú örlítill geisli. Ljósið og minning þín, elsku Jó- hanna, sem barðist hetjulega við illvígan sjúkdóm og sigraði á þann hátt eina sem lífið bauð. Dauðinn eru dyr sem enginn ætti að hræðast að ganga í gegn- um. Hann kom sem líkn ungri stúlku. Nú hvflir þú í friði, elsku frænka. Guð gefi að það sé spilað- ur fótbolti á himnum. Þú ert nefni- lega búin að bíða svo lengi eftir að vera skipt inná og fá að halda leiknum áfram. I þetta sinn verður sigurinn þinn. Ég bið góðan Guð að styrkja unnusta þinn, foreldra, systkini og fjölskyldu alla. Við munum alltaf minnast þín. Jóhanna Kristín Jónsdóttir. Það var harmafregn sem okkur vinunum barst þegar okkur var tilkynnt um lát Jóhönnu. þó svo að hún hafi átt við erfið veikindi að striða síðustu ár þá bjuggumst við ekki við að svo fljótt mundi hún fara frá okkur. Það var í Menntaskólanum í Hamrahlíð sem við kynntumst henni, þegar hún og vinur okkar Gísli byrjuðu saman. Þá fór hún að koma með Gísla þegar við vinirnir hittumst og var mjög ánægjulegt að hafa þau á þeim stundum. Það var dýrmæt lífsreynsla að kynnast Jóhönnu, hún var full af lífsgleði og aldrei hitti maður á hana í slæmu skapi, hún tók veik- indum sínum með einstöku æðru- leysi. Minningin um hana mun lifa meðal okkar. Gísla og fjölskyldum þeirra beggja vottum við samúð okkar í sorg þeirra. Arnar þór Jensson og Björn G. Stefánsson. Þegar ég frétti andlát Jóhönnu Indriðadóttur brá mér, þótt mér hefði kannski ekki átt að bregða eftir þá baráttu sem Jóhanna hefur háð. Enn samt spyr maður um sanngirni. Af hveju fékk Jóhanna ekki tíma fyrir líffæraflutning, sem hefði getað gefið henni nýtt tæki- færi, en það átti Jóhanna svo sann- arlega skilið að fá eftir hina hetju- legu barráttu undanfarin ár. Ég varð þeirrar ánægju aðnjót- andi að kynnast Jóhönnu þegar ég starfaði í kvennanefnd KSI og Jó- hanna var valin markmaður í 16 og 20 ára landslið. Fljótlega vakti Jó- hanna athygli mína fyrir léttleika, dugnað og ósérhlífni. Þrátt fyrir að MORGUNBLAÐIÐ vekindi Jóhönnu væru byrjuð á þessum tíma sýndi Jóhanna meiri dugnað og áhuga en flestir aðrir leikmenn sýndu. Mér er minnis- stætt þegar 16 ára landsliðið var í Noregi. Norðmenn buðu til fjall- göngu fyrir leikmenn og farastjóra, kom ekki annað til greina hjá Jó- hönnu en að fara í þessa fjallgöngu þrátt fyrir að sumir aðrir leikmenn treystu sér ekki að taka þátt í henni. Lýsir þetta vel þeim dugnaði sem Jóhanna sýndi ætíð. Fyrir nokkram árum kynntist Jóhanna miklum sómapilti, Gísla Einarssyni. Athygli vakti hvað þau áttu vel saman og hvað mkil hlýja einkenndi þeirra samband. Gísli veitti Jóhönnu einstaka hlýju og væntumþykju í veikindum hennar. Fjölskyldu, ættingjum og vinum Jóhönnu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Atli Þórsson. Einhverra hluta vegna þá býst maður við eilífu lífi og að ekkert komi fyrir mann eða ástvini sína, það eru bara hinir sem verða fyrir áföllum á lífsleiðinni. En þannig virkar lífið ekki og að komast að því á svo sáran hátt er hræðilegt. Þú varst svo sterk alltaf og lést aldrei neitt á sjá og aldrei heyrði maður þig kvarta. Hvar þú fékkst allan þennan styrk veit ég ekki. Svo ertu tekin frá okkur á svo skyndilegan hátt. Ég man þegar Gísli talaði fyrst um þig. Ég hafði ekki hugmynd um hver þú varst. Þegar ég svo fór í MH líka þá kynntumst við allvel. Það var aldrei talið að við myndum nokkum tíma geta verið vinkonur, svo ólíkar voram við. En við sönnuð- um að það var rangt. í fjögur ár fékk ég að njóta svo margs sem þú gafst af þér, en gaf svo lítið til baka. Þú varst alltaf betri en ég, hjálpaðir mér í skólanum, ráðlagðir mér svo margt, reyndir að draga mig inn í þinn heim fótboltans, sem reyndar tókst mjög takmarkað en við fund- um svo heilmargt sameiginlegt. Ég minnist þess þegar við sátum uppi í rúmi heima hjá þér og horfðum á U2 á tónleikum aftur og aftur og aftur. Það var svo gaman. Okkur langaði báðar að fara einhvemtíma á tónleika með þeim. Það var líka svo margt annað sem þú ætlaðir að gera, þú varst búin að plana fram- tíðina og þar var fótboltinn auðvitað til staðar. Þig dreymdi um þá stund sem þú gætir farið að æfa aftur. Keppnisskapið var svo ráðandi hjá þér. Ég hélt aldrei að þetta myndi enda svona, þú áttir að fara í aðgerð og koma svo til baka hraust og heil- brigð eins og ekkert hefði í skorist, en raunveraleikinn er sá að enginn áttaði sig á því hvemig raunveru- lega var ástatt fyrir þér, þar á með- al ég sjálf því þú barst þig alltaf svo vel. En þegar ég hugsa til baka þá sé ég þig alltaf fyrir mér brosandi og hlæjandi, við eigum ekkert nema góðar minningar saman. En of fáar. Það var svo margt sem við ætluðum að gera en náðum aldrei. Ég sé svo eftir að hafa ekki gefið þér meiri tíma, að hafa ekki farið oftar til þín, það þarf ég að eiga við sjálfa mig núna. Það eina sem ég get sagt er fyrirgefðu. Þú verður alltaf í hjarta mínu og ég mun ávallt minnast allra góðu stundanna sem við áttum sam- an. Nú þegar baráttu þinni er lokið veit ég að þér líður betur en ég mun samt aldrei verða sátt við að þú haf- ir verið tekin frá okkur. Það var sagt við mig um daginn að þau sem skína skærasta Ijósinu, dofna fyrst og deyja og mér finnst það svo við- eigandi því allir gátu séð hvað þú ljómaðir þrátt fyrir veikindin. Elsku Jóa, ég vona að þú hvflir í friði en þér mun ég aldrei gleyma. Takk fyr- ir allt það sem þú hefur gefið mér. Elsku Gísli, ég samhryggist þér og vona að Guð fylgi þér í sorg þinni. Fjölskyldu Jóhönnu sendi ég einnig samúðarkveðjur því ykkar missir er mikill. Sigrún. • Fleiri minningargreinar um Jóhönnu Unni Erlingson Indriðadóttur bíða birtingar og munu birtast i blaðinu næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.