Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 43
42 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18 SEPTEMBER 1999 43 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ALGERLEGA ÓVIÐUNANDI FRÉTTIR þess efnis að brottfall tvítyngdra unglinga, sem notið hafa aðstoðar nýbúafræðslu, úr framhalds- skólum hafi verið milli 90 og 100% seinustu ár eru alvar- legar. Eins og fram kom í frétt hér í blaðinu kunna þessi börn iðulega talmálið ágætlega en öðru máli gegnir um skólamálið í námsbókum og fyrir vikið ráða þau illa við bóklegar greinar. Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar hefur rúmlega 1.000 tvítyngd börn á skrá sem njóta aðstoðar í grunn- skólum á landinu öllu og er því um talsverðan hóp að ræða. Það ber ekki íslensku samfélagi og menntakerfi gott vitni ef ekki er hægt að standa betur en þetta að að- lögun þessa hóps barna hér á landi. Það er ótvíræður réttur þeirra að hljóta allan þann stuðning sem þau þurfa til þess að geta tekið fullan þátt í íslensku samfé- lagi en þar skiptir mestu að hafa gott vald á íslenskri tungu og tækifæri til menntunar. Sporna þarf við þessari þróun. „Við erum í raun að fórna þessum börnum eins og staðan er í dag,“ sagði Ingibjörg Hafstað, námstjóri nýbúafræðslu hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar, í samtali við Morg- unblaðið í vikunni. Þetta er hryggileg staðreynd og al- gerlega óviðunandi. Nútímaþjóðfélag verður að vera í stakk búið til þess að veita öllum þegnum sínum jöfn tækifæri. Haldi þessi þróun áfram má hins vegar ljóst vera að hér á landi mun myndast undirmálshópur sem ekki getur tekið fullan þátt í samfélaginu. Nýbúar hafa auðgað mjög íslenskt samfélag. Sú þekk- ing sem þeir færa íslensku samfélagi er dýrmæt, t.d. hvað varðar menningu, tungumál og þekkingu af öðrum toga. Þessa fjölbreytni ætti íslenskt samfélag að rækta. Til þess að svo megi verða þarf augsýnilega að huga betur að skólamálum nýbúa. FRIÐARGÆSLULIÐAR TIL A-TÍMOR STEFNT er að því að fyrstu sveitir alþjóðlegs friðar- gæsluliðs haldi til Austur-Tímor á sunnudaginn. Ástralir bera hitann og þungann af skipulagningu friðar- gæslunnar en einnig hafa margar aðrar þjóðir til viðbót- ar fallist á að leggja til herlið. Það verður ekki fögur sjón sem blasir við friðargæslu- liðinu. Undanfarna daga hafa borist stöðugar lýsingar af grimmdarverkum glæpasveita andsnúnum sjálfstæði landsins. Enginn vafí er talinn leika á því að Indónesíu- her hefur ekki einungis stutt við bakið á þessum glæpa- sveitum heldur jafnframt tekið beinan þátt í morðunum á Austur-Tímor. Höfuðstaðurinn Dili er rústir einar og í frásögn dansks blaðamanns, sem undanfarna daga hefur dvalist á eyjunni, kemur fram að öllu steini léttara hefur verið stolið úr híbýlum íbúa Austur-Tímor og fyrirtækjum í Dili. Hundruð þúsunda hafa verið hrakin til Vestur- Tímor, flúið til Ástralíu eða hafast við í fjöllum til að forðast drápssveitirnar. Enginn veit hversu margir hafa verið drepnir, en talið er að þúsundir liggi í valnum. Eini glæpur þessa fólks var að það hafði kosið sjálf- stæði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem Indónesíustjórn boð- aði til. B.J. Habibie, forseti Indónesíu, sagði er hann lét loks undan þrýstingi þess efnis, að Indónesíustjórn sam- þykkti komu friðargæsluliðs, að ekki væri hægt að bíða lengur. Nauðsynlegt væri að koma í veg fyrir frekari þjáningu fólks. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvort Indónesíuher reyni að hindra friðargæsluliðana í að sinna störfum sínum. Leiðtogar andstæðinga sjálf- stæðis hafa heitið því að halda baráttunni áfram og sagt að þeir hiki ekki við að drepa erlenda friðargæsluliða. Mikilvægt er að umheimurinn sýni staðfestu í sam- skiptum sínum við Indónesíu og leyfi ekki ráðandi öflum þar, hvort sem þau er að finna í ríkisstjórn landsins eða herafla, að komast upp með áframhaldandi ofbeldi. Það verður að tryggja öryggi íbúa Austur-Tímor og lýðræð- islega ákvörðun þeirra um sjálfstæði. Gilwell-skálinn við Úlfljótsvatn, þar hafa námskeið verið haldin frá upphafí Gilwell-þjálfunar á Islandi. Gilwell-skátar að loknu fyrsta námskeiðinu árið 1959. Gilwell-skátar sem sátu námskeið í sumar, á fertugasta af- mælisári Gilwell-þjálfunar á Islandi. Gilwell-skátaþjálfun á íslandi í 40 ár Fast að 700 skátar Skátastarfið er ævintýri hafa hlotið þjálfun / Skátar halda upp á það við Ulfljótsvatn í dag að Gilwell- -------------------------7---------7---------- skólinn hefur verið starfræktur á Islandi í 40 ár. I skólanum fer fram efsta stig foringjaþjálfunar innan skátahreyfingarinnar. Erla Skúladóttir fræddist um sögu og hugmyndafræði Gilwell- þjálfunarinnar í samtölum við Björgvin Magnússon, sem hefur stjórnað flestum námskeiðanna, og Sigurð Júlíus Grétarsson, núverandi skólastjóra Gilwell-skólans. SKÁTAHREYFINGIN byggist á hugmyndum um hópstarf barna eða unglinga oftast úti í nátt- úrunni eða í sterkum tengslum við hana. Orðið skáti er þýðing á enska orðinu scout, sem merkir njósnari, útsendari eða eftirlitsmaður. Upphaf- lega hugmyndin með skátastarfi gengur því út á það að börnum sé kennt að skoða heiminn, njóta náttúrunnar og vinna saman í samræmi við siðagildi sem eru sterkur þáttur í skátahugsjón- inni. I Gilwell-þjálfun lærir fólk það sem þarf til þess að taka forystu í þeim félagsskap sem skátahreyfingin er, að sögn Sigurðar Júlíusar Grétars- sonar skólastjóra Gilwell-skólans. Sigurður segir skátahreyfinguna vera hugsjónahreyfingu um uppeldi og fullorðnir og börn taki þátt í starfi hennar eftir ákveðnu kerfi. Skátafor- ingjar eru þjálfaðir í starfi í skáta- hreyfingunni, þeir elstu gangast undir Gilwell-foringjaþjálfun. Þjálfunin almennari hér en víða annars staðar Skipulag Gilwell-þjálfunarinnar hefur tekið nokkrum breytingum frá upphafi hennar hér á landi árið 1959. Þá var þjálfunin með sama hætti alls staðar í heiminum. Fyrir um 30 árum varð þjálfunin hins vegar á ábyrgð hvers lands. Að sögn Sigurðar er grunnhugmyndin að Gilwell-þjálfun- inni enn í megindráttum sú sama, að þjálfa foringja fyrir skátahreyfinguna. „Ólíkar hefðir hafa þróast við þjálfunina eftir löndum. Hér höfum við kerfi sem er tiltölulega líkt því sem áður var miðað við það sem er víða annars staðar,“ sagði Sigurður. Hann segir að í Gilwell-skólum víða um lönd geti menn hlotið þjálfun í sérhæfðum verkefnum; fjáröflun, dagskrárstjórn, kynningu á skáta- hreyfingunni og fleira í þeim dúr en hér sé þjálfunin almennari. Fólk er einnig heldur yngra þegar það hefur Gilwell-þjálfun hér á landi en annars staðar, að sögn Sigurðar. Hér er al- gengt að fólk sé um tvítugt þegar það kemur til þjálfunar. Sigurður segir mikinn áhuga á Gilwell-þjálfuninni innan skátahreyf- ingarinnar. Námskeið eru haldin einu sinni til tvisvar á ári. I ágúst er kennt í rúma viku við Úlfljótsvatn. Að því loknu vinna þátttakendur fyrir skáta- hreyfinguna og skila skriflegum verk- efnum. Stundum eru námskeið að auki haldin að vetrarlagi. Sigurður segir námskeiðin langoftast hafa verið haldin við Ulfljótsvatn og telji sumir skátar Úlfijótsvatn eina staðinn á Islandi sem vert sé að halda þau á. „Við reynum að hafa kennsluna á námskeiðinu þannig að hún sé í sam- ræmi við kennsluhug- myndir Baden Powell (stofnanda skátahreyf- ingarinna.r),“ sagði Sig- urður. Á Gilwell-nám- skeiðum er kennt með þeim hætti að þátttak- endur reyna hlutina en hlusta ekki aðeins á fyr- irlestra um þá. Þessa kennsluaðferð segir Sig- urður dæmi um það sem nútíminn sé alltaf að finna upp en hafi fundist í skátastarfi um langa hríð. Þetta segir hann eiga við um fleiri þætti skátastarfs. Við komu þátttakenda á Úlfljóts- vatn er ætlast til þess að þeir slökkvi á farsímum sínum. „Fólk einbeitir sér á staðnum og er ekki á þeytingi út um allt. Fólk er ekki að ráðstafa hlutum í fjarskiptum,“ sagði Sigurður. Frumkvæði er mikilvægt Á Gilwell-námskeiðunum er kennd framsögn, framkoma, fundarsköp, fíkniefnavarnir og skyndihjálp svo fátt eitt sé nefnt. Þar fer einnig fram mik- ið tjaldbúðastarf. Sigurður segir mikið félagslíf stundað á námskeiðunum, mikið sé um söng og aðra skemmtun. „Það er mikið sungið í skátum. Það er eitt sem mér sýnist vera að leggjast af í nútímasamfélagi, að venjulegt fólk geti sungið án þess að fara hjá sér. Þarna syngur hver með sínu nefi og við reynum að hafa dagskrá þar sem allir geta lagt eitthvað af mörkum. Það er mjög mikilvægt í skátastarfi að fólk taki frumkvæði, að því sé ekki stýrt og stjórnað endalaust heldur taki sjálft frumkvæði í því að skemmta sér, hafa ofan af fyrir sér og gera gagn. Við reynum að efla þennan anda,“ sagði Sigurður. Ríkur þáttur í kennslu á námskeið- inu er líka að kenna fólki að bera virð- ingu fyrir sjálfu sér og umhverfi sínu, að sögn Sigurðar. „Við reynum þannig að hafa snyrtilegt í kringum okkur án þess að það fari út í einhverja tauga- veiklun. Við reynum að kenna stfl og sjálfsaga, þannig að fólk viti hvaða umhverfi hæfir hvaða athöfn. Maður býr til umhverfi sem hentar tilefninu,“ sagði Sigurður. Þátttakendur greiða námskeiðs- gjald sem duga á fyrir mat, reipi og kertum, eins og Sigurður orðar það. Að lokinni dvölinni á Úlfljótsvatni tek- ur við sjálfboðavinna í skátahreyfing- unni um nokkurra mánaða skeið. Fólk tekur að sér foringjastörf eða einhver þjónustustörf fyrir skátahreyfinguna. Það geta til dæmis verið kynningar- störf og ýmislegt af þeim toga, að sögn Sigurðar. Þátttakendur skila svo dagbók um starfið. Sigurður segir þátttakendur á Gilwell-námskeiðum mynda mjög öfl- ugan kjarna sem efli skátahreyfing- una. Hann segir fólk þó líta Gilwell- þjálfunina ólíkum augum. Fyrir sum- um sé hún ákveðinn hápunktur í starf- inu, öðrum sé hún byrjunarreitur. Sigurður segir fjölmarga hafa lagt hönd á plóg við skipulagningu Gilwell- námskeiðanna á Islandi og skemmti- leg stemmning hafi skapast við starf- ið. Sigurður segir Björgvin Magnús- son bera höfuð og herðar yfir aðra sem að þjálfuninni hafa komið. Björg- vin sá um fyrstu námskeiðin sem hér voru haldin. Hann hélt til útlanda og öðlaðist þjálfun þar þegar Gilwell- starfið var staðlað og naut aðstoðar útlendinga á fyrstu námskeiðunum hérlendis. Björgvin hefur síðan stjórnað fjöldamörgum námskeiða Gilwell-skólans. Sigurður segir áhuga og innsæi Björgvins í unglinga- og skátastarf alveg sérstakt. Auk Björgvins hafa stýrt námskeið- um Ólafiir Ásgeirsson, Ingólfur Ár- mannsson, Benjamín Axel Árnason, Anna Kristjánsdóttir, Víking Eiríks- son, Tryggvi Þorsteinsson, Helgi Ei- ríksson og Sigurður Júlíus Grétars- son, sem varð skólastjóri árið 1996. Sigurður nefnir sérstaklega þátt Helga Eiríkssonar í starfi Gilwell- skólans og er honum afar þakklátur. Helgi lést langt um aldur fram fyrir fáum árum. Sigurður segir að Helgi hafi verið vakinn og sofinn að hugsa um skátahreyfinguna og hann hafi látið sig Gilwell miklu skipta. Skátahreyfingin hefur mótað unglingastarf nútímans Skátahreyfingin varð til í byrjun aldarinnar í kjölfar útgáfu bókar Ba- den Powell sem bar nafnið Scouting for Boys. Hreyfingin óx því úr grasi á fyrri hluta aldarinnar. Hún var meira áberandi áður þegar dagskrá fyrir börn var tiltölulega fábreytt en Sigurður segir margt af því sem boðið er upp á í almennu unglinga- starfi í dag hafa á einhvern hátt orð- ið fyrir áhrifum eða mótast af því sem skátahreyfingin hefur staðið fyrir frá upphafi. „Nú eru menn til dæmis að finna upp drengskap í íþróttum, það er sérstakt átak um það og allt gott um það að segja. Þetta er fléttað inn í skátahugsjón- ina frá byrjun,“ sagði Sigurður. Sigurður Grétar Júlíusson skólastjóri Gilwell-skólans. BJÖRGVIN Magnússon gerðist skáti árið 1938 og hefur starfað með skáta- hreyfingunni síðan. Hann dvaldi í Gilwell Park í Englandi í tvígang árin 1948 og 1949 og gekkst undir Gilwell-for- ingjaþjálfun þar. Þá var þjálfuninni miðstýrt frá Englandi. Björgvin er þriðji íslenski Gilwell- skátinn. Sigurður Ágústsson og Frank Mikkelsen höfðu áður tekið Gflwell-próf í Dan- mörku. „Eg hef verið talsmaður Gilwell-skát- anna eins og heimaríkur hundur,“ sagði Björgvin í samtali við Morgunblaðið. Hann hefur verið viðloðandi starf Gilwell-skólans á Islandi frá stofnun hans og leiðbeinir enn á námskeiðum í skólanum. Árið 1959 stjórnaði Björgvin fyrsta Gilwell-námskeiðinu á Úlfljótsvatni. Það var fyrsta námskeiðið hér á landi sem uppfyllti kröfur um þjálfun Gilwell-skáta. Áður hafði verið reynt að fara af stað með Gilwell-námskeið í Þrastarlundi árið 1936 en það var ekki fullkomið námskeið, að sögn Björg- vins. Frá árinu 1959 hefur Björgvin stjórnað 22 námskeiðum í Gilwell- skólanum og verið leiðbeinandi á fjöl- mörgum að auki. Honum telst svo til að á sjöunda hundrað skáta hafi sótt námskeið í Gilwell-skólanum á Islandi og obbinn af þeim hefur verið á nám- skeiðum sem hann stjórnaði sjálfur. Björgvin stýrði öllum Gilwell-nám- skeiðunum sem haldin voru á Úlfljóts- vatni á árunum 1959 til 1973 og aftur frá 1989 til 1995. Flest Gilwell-námskeiðanna hér á landi hafa verið haldin í sama skálan- um og hýsti fyrsta námskeiðið. Gilwell-skátar hafa nú umráð yfir hon- um samkvæmt samningi við Úlfljóts- vatnsráð. Svæðið umhverfis skálann hefur nokkuð breyst frá því Gilwell- skólinn tók til starfa í honum, bygg- ingar hafa bæst við og aðstaðan þannig batnað. Hélt í titilinn Björgvin sagði frá því að ritari norsku skátahreyfingarinnar, Odd Hopp, var sendur hingað til að fylgjast með að allt færi rétt fram á fyrsta námskeiðinu við Úlfljótsvatn. „Ég segi nú stundum að hann hafði svo gaman af þessu fyrsta námskeiði að hann kom líka árið á eftir án þess að vera sendur af Gilwell Park,“ sagði Björgvin. Þegar miðstýring námskeiðanna frá Englandi var enn við lýði bar yfirmað- urinn í Gilwell Park titilinn Camp Chief, skammstafað CC. Þeir sem stjórnuðu Gilwell-námskeiðum í ein- stökum löndum höfðu hins vegar titil- inn Deputy Camp Chief, DCC. Þann titil bar Björgvin. Eftir að umsjón og skipulagning Gilwell-þjálfunarinnar var fengin skátahreyfingum í hverju landi um sig hélt Björgvin titlinum. „Kannski í hálfkæringi og gríni,“ sagði hann. Björgvin er enn kallaður DCC af mörgum og þykir vænt um titilinn. Þjálfunin hefur lítið breyst Björgvin segir Gilwell-þjálfunina ekki hafa breyst mikið á þeim 40 árum sem liðin eru frá upphafi hennar hér á landi. „Þessir siðir og venjur sem við komum á 1959 hafa eiginlega ekkert breyst,“ sagði Björgvin. Hann segir að þó fari ekki hjá því að það sem tekið er fyrir í kennslu á námskeiðunum hafi breyst. „Við höfum haldið í gamla siði og venjur en verið opin fyrir nýjungum og tekið þær upp í kennslunni," sagði hann. Á námskeiðunum eru myndaðir fimm flokkar sem hafa gengið undir sömu nöfnum frá upphafi Gilwell-þjálfunar á ís- landi. Flokkamir nefnast Uglur, Gaukar, Dúfur, Hrafnar og Spætur og hafa hver sinn lit. Hver flokkur nýtir sér lausan tíma sem gefst á nám- skeiðinu til að koma sér upp tjaldbúðum. Björg- vin segir dagskrána á námskeiðunum stífa. Kennsla í fræði- legum hluta fer til að mynda fram í um sex klukkustundir á dag. Björgvin telur að þrátt fyrir strembna dagskrá hafi tekist að varðveita ævintýrið sem hann segir að aldrei megi gleymast í skátastarfinu. Fólk verði að hafa gam- an af hlutunum, þess vegna sé til dæmis margt kennt með leik. Margt minnisstætt Björgvin segir margs að minnast af Gilwell-námskeiðunum sem haldin hafa verið. Meðal annars gesta sem heiðrað hafi skátana með nærveru sinni. „Á fimmtudögum höfum við alltaf boðið til okkar einhverjum fram- mámönnum sem hafa predikað í kirkj- unni á Úlfljótsvatni," sagði Björgvin. Þetta finnst Björgvin yfirleitt hafa tekist vel. _ Hann nefnir sérstaklega forsetana Ásgeir Ásgeirsson og Vig- dísi Finnbogadóttur. ,Ásgeir Ásgeirs- son, sem var menntaður guðfræðing- ur, hélt alveg stormandi predikun í kirkjunni og eins Vigdís Finnboga- dóttir,“ sagði Björgvin. Hann bendir á að forsetar Islands ern verndarar skátahreyfingarinnar. Björgvin sagði sögu af góðum nem- anda sem sat Gilwell-námskeið. Hann var með stýrimannspróf og hafði kennt notkun áttavita. Á Gilwell-nám- skeiðunum er farið í sólarhringsferð þar sem reynir meðal annars á rat- leikni þátttakenda. Þegar hópur stýri- mannsins fór í sína ferð skall á kaf- aldsbylur. Einhverra hluta vegna fór eitthvað úrskeiðis og loksins þegar hópurinn lét vita af sér kom í ljós að hann hafði misreiknað sig um 180 gráður. Björgvin segir að mikið grín hafi verið gert að stýrimanninum sem hafi annars verið frábær nemandi. Seinni árin heíúr Björgvin einkum kennt atriði er varða siði og venjur á Gilwell-námskeiðunum; fánaathöfn, bænir og fleira. Björgvin hefur líka stjórnað kvöldvökum á námskeiðunum og haft af því mikla ánægju. Hann seg- ist vera orðinn eins og karlinn í brúnni á kvöldvökunum, þær séu orðnar æði margar sem hann hafi stýrt. Gilwell-skátar koma saman til end- urfunda á hverju hausti. Þeir hittast á laugardegi eftir hádegi og rifja upp gamlar minningar. Á endurfundun- um er haldin helgistund og kvöld- vaka. Björgvin telur að þegar flest hafi verið á endurfundum hafi hist um 140 manns. í dag verða endur- fundirnir haldnir í stóru tjaldi þar sem búist er við miklu fjölmenni í til- efni 40 ára afmælisins. Samkoman hefst klukkan fimm með helgistund. Að henni lokinni verður grillað og haldin kvöldvaka. Dagskránni lýkur svo með skátakaffi þegar nálgast tekur miðnætti. Björgvin Magnússon Norræn ráðstefna um fæðingar- og nýburalækningar Ný aðferð við leit á litningagöllum s A næsta ári verður líklega farið að bjóða öllum barnshafandi konum hér á laridi upp á nýja tegund ómskoð- unar sem getur gefið ábendingu um litn- ingagalla í fóstrum. Lík- ur eru á að með þessari aðferð gangi betur að fínna þessa galla en með núverandi aðferð. STEFNT er að því að bjóða barnshafandi konum nýja tegund ómskoðunar sem getur gefið ábendingar um litningagalla í fóstrum. Nýja aðferð- in mun líklega leiða til þess að litn- ingagallar verði greindir í um tveimur þriðju þeirra fóstra sem þá bera en með núverandi aðferðum eru þeir aðeins greindir í um þriðj- ungi þeirra. Frá árinu 1986 hefur öllum verð- andi mæðrum á Islandi verið boðin ómskoðun í kringum 18. viku með- göngu og er ísland þriðja landið sem tók upp reglubundna ómskoð- un fyrir allar barnshafandi konur. Þessi ómskoðun greinir ekki litn- ingagalla en hún getur þó greint ýmislega annars konar galla. Litn- ingagalla í fóstrum hefur hingað til verið leitað með legvatnsástungu og litningarannsókn. Slík legvatnsá- stunga hefur verið í boði fyrir konur sem eru 35 ára eða eldri og konur í ákveðnum áhættuhópi, til dæmis þær sem eiga barn fyrir sem ber litningagalla eða þær sem koma úr fjölskyldum þar sem ákveðna erfða- galla er að finna. Þetta fyrirkomulag hefur haft það í för með sér að verðandi mæð- ur sem eru yngri en 35 ára hafi al- mennt ekki getað farið í neina rann- sókn á því hvort fóstur þeirra beri litningagalla, en með nýrri aðferð sem kynnt var á norrænni ráðstefnu fæðingar- og nýburalækna er líklegt að breyting verði þar á. Ný tegund ómskoðunar Reynir Tómas Geirsson, forstöðu- læknir á kvennadeild Landspítal- ans, segir að á ráðstefnunni hafi meðal annars verið ræddar rann- sóknir á ómskoðun með nýrri tækni sem gerð er í kringum 12. viku með- göngu. Þessi aðferð gerir kleift að fá vísbendingu um litningagalla í fóstrum fyrr en áður var hægt og með betri árangri. „Þessi skoðun byggist á því að þykktin á mjúkvefjunum á hnakka fóstursins er mæld og getur hún gefið vísbendingu um litningagalla, sérstaklega ef við sjáum eitthvað annað að fóstrinu," segir Reynir. „Ef fóstrið ber litningagalla eru ákveðnir arfberar til staðar sem hafa áhrif á mjúkvefina í líkaman- um og valda því að vefirnir á hnakka fóstursins drekka í sig vökva og þykkna. Einnig geta þeir valdið þrengslum í hjartanu þegar það er að myndast og þetta á líka sinn þátt í myndun bjúgs á hnakka fóstursins sem greina má með óm- skoðun á þessum ákveðna tíma meðgöngunnar." Hann segir að auk þess sé upp- lýsingum um aldur móðurinnar og Fæðingar- og nýburalæknar af öllum Norðurlöndunum sitja ráðstefnuna. ýmsa áhættuþætti hjá henni bætt við þær upplýsingar sem fáist úr ómskoðuninni á fóstrinu og þetta sé svo tengt saman með ákveðnu tölvuforriti og þannig fáist mat á því hvort líklegt sé að fóstrið sé með litn- ingagalla. Því sé nauð- synlegt að þeir sem framkvæmi skoðunina hafi ákveðna þjálfun að baki. „Þó að tæknin og tækin séu að sjálfsögðu mjög mikilvæg er þjálf- un og kunnátta þeirra sem starfa við þau það sem skiptir meginmáli sem og leikni í því að vinna við þess- ar rannsóknir." Legvatnsástungum fækkað 12% verðandi mæðra eru eldri en 35 ára og hjá þeim verður til um þriðjungur þeirra fóstra sem bera litningagalla. Um tveir þriðju þess- ara fóstra verða til hjá mæðrum yngri en 35 ára en þær fara almennt ekki í legvatnsástungu. Hingað til hefur því aðeins um þriðjungur þeirra fóstra sem bera litningagalla verið greindur. En með nýju aðferðinni verður öllum verðandi mæðrum boðið upp á skoðun með tilliti til litningagalla. Nákvæmnin er þó ekki sú sama og í legvatnsástungunni því ekki nema um 70% þeirra fóstra sem bera litn- ingagalla greinast með nýju aðferð- inni. Ef skoðunin bendir til að litn- ingagalli sé til staðar er henni svo fylgt eftir með legvatnsástungu eða fylgjusýnistöku til að ganga úr skugga um hvers konar galla um er að ræða. Reynir segir að nýja aðferðin hafi þann kost í för með sér að nú verði hægt að greina tvo þriðju af þeim fóstrum sem bera litningagalla í stað þriðjungs áður. Með þessari aðferð verði legvatnsástungum einnig fækkað því konum eldri en 35 ára verði boðið upp á að nota hana í stað legvatnsástungu. Jákvætt sé að fækka legvatnsástungum því ástungan sjálf valdi fósturláti í 1% tilvika. Reynt verður að byrja á nýju ómskoðuninni hér á næsta ári Notkun þessarar aðferðar er haf- in í einhverjum mæli á Norðurlönd- um og í Bretlandi og segir Reynir að reynt verði að taka hana upp hér á landi á næsta ári. Hann segir að til standi að bæta aðstöðu og tækjakost kvennadeild- ar Landspítalans. Von sé á nýrri ómsjá sem sé gjöf ríkisins í tilefni 50 ára afmælis kvenna- deildarinnar. Einnig verði mæðraskoðunin bráðum flutt yfir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og þannig fáist rými fyrir nýja ómdeild og fullnægjandi aðstaða fyrir þessar skoðanir. Hann á einnig von á því að innan tíðar verði hægt að framkvæma þessa nýju skoðun á Akureyri því þar séu fyrir hendi góð ómskoðunartæki. „Ómskoðun er einnig framkvæmd á fleiri stöð- um á landinu og í framtíðinni kem- ur til greina að beita fjarlækning- um til að aðstoða lækna víðar um landið við að beita þessari nýju að- ferð.“ Ábyrgðin er foreldranna „Ef litningagalli finnst er hægt að bjóða verðandi foreldrum meira og betra eftirlit, eða, samkvæmt ís- lenskum lögum, bjóða þeim að láta framkalla fósturlát,“ segir Reynir. Hann segir að reynslan á Landspít- alanum sé sú að flestar konur hér á Islandi sem gangi með fóstur sem greinist með alvarlegan litn- ingagalla velji það að fara í fóstur- eyðingu og reyni svo á ný að eignast heilbrigt barn. Reynir segir að það sé alltaf erfitt að eiga við þær aðstæður sem upp koma þegar eitthvað finnst að fóstrinu. Verðandi for- eldrum sé gerð grein fyrir því áð- ur en þeir fari í skoðunina að eitt- hvað geti fundist að og það sé mik- ilvægt að þeir viti hvað felist í skoðuninni áður en hún sé fram- kvæmd. „Fagfólkið ráðleggur fot eldrunum og það er okkar hluG' verk að veita þeim allar þær upp- lýsingar sem við getum. Ef eitt- hvað finnst að segjum við væntan- legum foreldrum hvaða þýðingu það hafi og hvað sé hægt að gera. En á endanum liggur ábyrgðin hjá foreldrunum og það eru þeir sem taka ákvörðun um hvert framhakt ið verður.“ Reynir Tómas Geirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.