Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Teikning af lyrirhugaðri hótelbyggingu á Tálknafirði. Fyrir miðju
er aðalinngangurinn og til beggja hliða eru salir. Svefnálmur koma
síðan fyrir aftan og til beggja hliða og er gert ráð fyrir tveimur
„svítum", í hvorum enda.
Kynning’arfu ndur um
byggingu nýs hótels
á Tálknafirði
Ný íslensk kvikmynd
forsýnd í Ólafsvík
Táiknafirði - Nýverið var haldinn
kynningarfundur á Hópinu á
Tálknafirði, þar sem Gunnar Egils-
son veitingamaður kynnti hugmynd-
ir sínar um hótelbyggingu á Tálkna-
firði. Hann bauð jafnframt fyrir-
tækjum og einstaklingum að gerast
hluthafar í félagi sem áætlað er að
stofna um byggingu og rekstur hót-
els. Gunnar hefur látið teikna hótel-
byggingu og vinna viðskiptaáætlun
vegna væntanlegs hótelreksturs.
Fundarmenn sýndu málinu mik-
inn áhuga og spurðu margs. Það
kom fram í máli Gunnars, að hluta-
fjársöfnun væri hafin og stefnt er að
stofnun hlutafélags í lok september.
Þegar hafa borist hlutafjárloforð frá
fyrirtækjum og einstaklingum.
Gangi áætlanir eftir er þess vænst
að nýtt hótel opni í byrjun júní á
næsta ári.
Byggingar- og stofnkostnaður er
áætlaður u.þ.b. 160 milljónir, en fyr-
irliggjandi teikning gerir ráð fyrir
40 herberjum með fullkominni
hreinlætisaðstöðu. Nú þegar liggur
fyrir samningur milli Tálknafjarð-
arhrepps og Gunnars, um að
Tálknafjarðarhreppur láti væntan-
legu hóteli í té heitt vatn, og að fast-
eignagjöldum, gatnagerðargjöldum
og lóðarleigu verði breytt í hlutafé
fyrstu 8 árin.
Ólafsvík - Forsýning verður á nýrri
íslenskri kvikmynd í félagsheimilinu
á Klifi í Ólafsvík á morgun. Kvik-
myndin heitir „Ungfrúin góða og
húsið“ og er byggð á sögu Halldórs
Laxness.
Samkvæmt upplýsingum leik-
stjórans, Guðnýjar Halldórsdóttur,
dóttur skáldsins, þá eru ástæður
þessarar staðsetningar á forsýning-
unni þær að upptökur á myndinni
fóru fram síðastliðið haust í Flatey
á Breiðafirði, en þar var gerð úti-
leikmynd af þorpinu „Eyvík“.
Flöskuskeyti réð
sýningarstað
Þegar myndatökum lauk var sent
út flöskuskeyti þar sem fram kom
að myndin yrði sýnd þar sem það
kæmi að landi. Það gerðist fyrir síð-
ustu jól og var það Kjartan Jósefs-
son í Nýju-búð í Grundarfirði sem
það fann. Þar sem ekkert kvik-
myndahús er í Grundarfirði var
ákveðið að forsýningin skyldi fara
fram í Ólafsvík, en félagsheimilið á
Klifi í Ólafsvík mun væntanlega
vera eina kvikmyndahúsið við
Breiðafjörð.
Mikill áhugi er á þessu máli í
Ólafsvík, en að sögn leikstjórans
kemur myndin til landsins á laugar-
dag, og því fleiri en Ólsarar sem
bíða þessarar sýningar. Mikið ein-
valalið leikara, innlendra og er-
lendra, fer með helstu hlutverk í
myndinni. Tinna Gunnlaugsdóttir
leikur eldri systurina, en Ragnhild-
ur Gísladóttir fer með hlutverk
þeirrar yngri. Þá má nefna Rúrik
Haraldsson, Egil Ólafsson, Helga
Bjömsson og Helgu Brögu Jóns-
dóttur. Af erlendum leikurum með
stór hlutverk má nefna Reine
Brynolfsson, Agnetu Ekmanner,
Bjöm Floberg og Ghitu Nörby.
Fmmsýning verður í Reykjavík
innan skamms.
Fyrir nokkrum áratugum var rík
bíóhefð í Ólafsvík. Sú hefð var end-
urvakin sl. vor er Lionsklúbbur
Ólafsvíkur gaf sýningarvélar í fé-
lagsheimilið á Klifi. Sérfræðingur
klúbbsins í kvikmyndum, Ari
Bjamason tannlæknir, hefur annast
myndaval, en allar sýningarnar
fram til þessa hafa verið ágætlega
sóttar.
Forsýning myndarinnar „Ung-
frúin góða og húsið“ hefst kl. 20.
Síðasti sláttur aldar-
innar í Eyjum
Heyi rúllað
og pakkað í
fyrsta sinn
Vestmannaeyjum - Magnús Krist-
insson, útvegsbóndi í Eyjum, raddi
nýja slóð í heyskaparháttum Eyja-
bænda fyrir skömmu er hann fékk
verktaka af fastalandinu til að koma
til Eyja og rúllubinda og pakka
heyjum sínum.
Magnús sem rekur hrossabú að
Lyngfelli í Eyjum sagði í samtali við
Morgunblaðið að mjög erfitt hafi
verið fyrir Eyjabændur að ná að
binda hey sitt í bagga í sumar, eins
og þeir væra vanir, þar sem fáir
þurrkdagar hefðu komið. Hann hafi
því ekki séð önnur ráð en að fá ein-
hvem til Eyja til að rúllubinda fyrir
sig það sem hann átti eftir að ná í
hús af heyjum. Guðbjöm Ingvars-
son, verktaki á Hellu, hafi tekið
verkið að sér og flutti hann tæki sín
og tól til Eyja og rúllaði og pakkaði
inn heyinu sem síðan var flutt að
hesthúsi Magnúsar.
Magnús sagði að þetta væri í
fyrsta sinn í sögunni sem hey væri
rúllubundið og pakkað í Eyjum og
væri þetta því sannkölluð bylting í
búskaparháttum í aldarlok. Sagði
Magnús að sláttur sinn nú hefði
verið síðasti sláttur ársins hjá Eyja-
bændum og því síðasti sláttur aldar-
innar í Eyjum og hefði farið vel á
því að nýjasta tækni héldi innreið
sína í Eyjabúskapinn áður en ný öld
gengi í garð. „Það var ekki hægt
annað en að taka síðasta slátt aldar-
innar með stæl og rúlla heyinu og
pakka í fyrsta sinn á öldinni í Eyj-
um,“ sagði Magnús Kristinsson út-
vegsbóndi og var afar ánægður með
lokasláttinn.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Magnús Kristinsson, útvegs-
bóndi í Eyjum, fylgist með nýrri
tækni við heyskapinn hjá sér.
Í||P? v*» *'» w [ i f , “ ■’l F i m
k *• JH ■fe/# *
'MshP • '-fi IjPBk ■ . u JL fi | / ■ i 1
Frá afhendingu tækjanna til Sjúkrahúss Húsavíkur.
Morgunblaðið/Silli
Endurbætur og gjafir til
Sjúkrahúss Húsavíkur
Húsavík - Miklar endurbætur
hafa verið gerðar í sumar á hús-
næði sjúkradeildar og fæðingar-
deildar heilbrigðisstofnunarinnar
á Húsavík sem hafa verið lokaðar
um tíma í sumar vegna endurbót-
anna en voru formlega opnaðar á
ný í síðustu viku. Á siðasta ári
voru samskonar endurbætur
gerðar á öldrunardeildinni á 3.
hæð.
Öll vinnuaðstaða hefúr verið
endurnýjuð og bætt, snyrtingum
fjölgað, búin til einbýli og
vaktherbergi. Baðherbergi fæð-
ingardeildarinnar hefur verið
endurnýjað og þar komið fyrir
baðkari sem sérhannað er fyrir
konur sem eru að fæða.
Við þetta tækifæri bárust
stofnuninni tvær veglegar gjafir
en sú hefð hefur skapast að
Styrktarfélag Sjúkrahúss Þing-
eyinga fylgist með því hvar brýn-
asta þörfin fyrir ný tæki er
hverju sinni og leiðbeinir gefend-
um um kaupin og gerast þeir þá
styrktaraðilar gjafarinnar.
Svala Hermannsdóttir, formað-
ur styrktarfélagsins, afhenti
tvær gjafir við þetta tækifæri,
þjartarafsjá, mjög dýrt og vand-
að tæki sem fjármagnað var að
hluta til af deild Rauða kross
Húsavíkur og nágrennis og raf-
knúið sjúkrarúm, Ijármagnað af
Kvenfélagi Aðaldæla.
Dagbjört Þyrí Þorvaldsdóttir,
hjúkrunarforsljóri, skýrði nota-
gildi þessarar gjafa og Friðfinn-
ur Hermannsson, framkvæmda-
sljóri, þakkaði gjafirnar og sagði
að þó stofnunin væri talin vera
vel búin tækjum væri alltaf hægt
að betrumbæta og mikilsvert
væri að finna þann hlýhug til
stofnunarinnar sem fælist í þess-
um gjöfum.
Unnið að endurbót-
um á Tryggvaskála
Selfossi - Unnið er að endurbótum á
Tryggvaskála við Ölfusárbrú á Sel-
fossi. Endurbætur á húsinu hófust í
fyrra með því að þakið var tekið upp
og endurbætt. Nú er unnið við að
taka upp vesturgaíl hússins sem
veit að Ölfusárbrú en einnig verður
á þessu hausti unnið við suðurhlið-
ina. Skipt er um timburklæðning-
una undir bárajáminu og fúi fjar-
lægður úr stoðum. Allt tréverk er
læst saman að hætti fyrri tíma.
Settir verða nýir gluggar og hurðir í
húsið, allt unnið í anda þess sem
var.
Þegar bárajárnið var rifið af vest-
urgaflinum komu í ljós dyr sem þar
vora áður. Um þær gengu við-
skiptavinir sem áttu erindi við Póst
og síma og Landsbankann á fyrstu
tímum hússins. I hurðargatið verða
settar nýjar dyr og síðan verða
veggimir klæddir með bárajámi.
Þeir sem vinna við endurbætur á
Tryggvaskála eru bræðumir Gísli
og Guðmundur Kristjánssynir frá
Eyrarbakka. Þeir eru vanir endur-
byggingu gamalla húsa, eru ný-
komnir frá endurbyggingu á Borg í
Grímsnesi og þeir unnu m.a. við
endurnýjun Hússins á Eyrarbakka
og eru miklir áhugamenn um end-
urbyggingu gamalla húsa á Eyrar-
bakka sem og annarstaðar.
HaöspHHBÍfö [mtKi
ísfflnfui ! |J|
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Unnið við endurbætur á vesturgafli Tryggvaskála sem smám saman
verður færður í fyrra horf.