Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 1
211. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Alsír
99% samþykktu
friðaráætlunina
fagnaði niðurstöðunni en kvaðst ætla
að bíða eftir viðbrögðum hersins,
sem er mjög áhrifamikill og hefur
takmarkað völd fyrri forseta. „Styð-
ur herinn þann kost sem meirihlut-
inn valdi, þannig að allt verði gert til
binda enda á blóðsúthellingamar og
græða sárin?“ spurði Abdelkader
Hachani, leiðtogi FIS.
Samkvæmt friðaráætluninni,
sem var samþykkt í júní, lét Bou-
teflika leysa þúsundir liðsmanna
Islamska frelsishersins, skæruliða-
hreyfingar FIS, úr haldi. Hann lof-
aði ennfremur að veita fleiri upp-
reisnarmönnum sakaruppgjöf ef
friðaráætlunin yrði samþykkt í at-
kvæðagreiðslunni.
Bouteflika hefur einnig lofað að
grípa til róttækra aðgerða til að
bæta efnahag landsins, stemma
stigu við spillingu og draga úr at-
vinnuleysinu í landinu eftir þjóðar-
atkvæðið.
Átökin í Alsír hafa kostað 100.000
manns lífið og valdið mikium efna-
hagsþrengingum. Um 30% vinnu-
færra Alsírbúa eru án atvinnu.
friðarsræslusveita
Diii, Jakarta. Reuters, AP, AFP, *
Sparnaðaráform þýsku stjórnarinnar
Eichel hvetur til
málamiðlunar
Bcrlin. Reuters.
NOKKUR þúsund indónesískra
hermanna fóru frá Austur-Tímor í
gær vegna væntanlegrar komu al-
þjóðlegs friðargæsluliðs þangað. Að
sögn yfirmanna indónesíska herafl-
ans á eyjunni verða um 6.000 her-
menn eftir til að gæta öryggis íbú-
anna þangað til friðargæslusveitir á
vegum Sameinuðu þjóðanna ganga
þar á land.
Ljóst er að friðargæslusveitimar
geta ekki stigið á land á Austur-
Tímor í dag en stefnt var að því að
fyrstu liðsmenn þeirra yrðu þá
komnir til eyjunnar. Ekki er heldur
víst að það gerist á morgun og ekki
hefur verið greint frá því hvað veld-
ur töfinni.
Forsætisráðherra Ástralíu, John
Howard, varaði í gær yfirmenn
RUSSNESKIR rannsóknarlög-
reglumenn nafngreindu í gær höfuð-
paur hryðjuverkahóps sem er talinn
hafa gert mannskæðustu árásirnar í
hrinu sprengjutilræða í Rússlandi
síðasta hálfa mánuðinn. Tilræðin
hafa kostað hartnær 300 manns lífið.
Lögreglan sagði að foringi hópsins
væri Atsjímes Gotsjíjajev, 29 ára
Tsjetsjeni. Hann fæddist í sjálfstjóm-
arlýðveldinu Karatsjajevo-Tsjerkes-
skaja í Kákasusfjöllum og talið er að
hann sé í nánum tengslum við hreyf-
ingu heittrúaðra múslíma í Dagestan.
Lögreglan hefur lagt mikið kapp á
að hafa uppi á höfuðpaurnum, sem
er talinn hafa notað vegabréf manns
mdonesíska hersms við því að ef
gerð yrði árás á friðargæsluliðið
yrði henni svarað af fullri hörku.
Yfirmenn indónesíska hersins hétu
því aftur á móti að vinna með friðar-
gæsluliðinu.
Ástralar hafa lokað ræðismanns-
skrifstofum sínum víða í Indónesíu
og margir ástralskir íbúar landsins
hafa farið þaðan vegna erfiðleika í
samskiptum ríkjanna í kjölfar átak-
anna á Austur-Tímor. I Surabaya,
næststærstu borg Indónesíu, þurfti
að kalla út 200 manna lögreglulið til
að gæta byggingar þar sem sendi-
nefnd Ástralíustjómar var til húsa
vegna hótana um að kveikt yrði í
byggingunni.
Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
og Rauða krossins, sem komnir era
sem dó fyrir rúmu ári. Talið er að
Gotsjíjajev hafi leigt íbúðir 1 tveimur
fjölbýlishúsum í Moskvu, sem urðu
fyrir sprengjuárásum, ásamt Us-
beka, Denis Sajtakov, sem er sagður
hægri hönd hans.
Að sögn rússneskra fjölmiðla
stunduðu Gotsjíjajev og félagar hans
nám við íslamskan skóla í múslíma-
lýðveldinu Tatarstan og héldu til
Tsjetsjníu í fyrra. Þeir vora þar í
þjálfunarbúðum skæraliðaleiðtogans
Khattabs sem tók þátt í skærahem-
aðinum í Dagestan. Hópurinn fór frá
Tsjetsjníu viku áður en átökin í Dag-
estan hófust í ágúst.
Sprengjuárásimar vora þaul-
til Austur-Tímor, segjast hafa orðið
vitni að skemmdarverkum einkenn-
isklæddra manna í her Indónesiu
nálægt borginni Dare.
Fyrstu hjálpar-
sendingarnar berast
Flugvélar á vegum ríkisstjómar
Ástralíu vörpuðu í gær niður fyrstu
hjálparsendingunum ætluðum
flóttafólki sem hefst við i fjöllunum
umhverfis Dili. Flugvélarnar vörp-
uðu niður 20 tonnum af hrísgrjónum
og ábreiðum til flóttafólksins en vit-
að er að það dugir skammt til að lina
þjáningar þeirra 150 þúsund íbúa
eyjunnar sem talið er að séu þar í
felum.
■ Vígamenn stela/28
skipulagðar. Tilræðismennirnir not-
uðu fölsuð vegabréf, fluttu miklar
sprengjubirgðir til rússneskra borga
í sykurpokum og leigðu íbúðir í fjöl-
HANS Eichel, fjármálaráðherra
Þýskalands, skoraði í gær á stjóm-
arandstöðuna að leggja fram tillög-
ur sem gætu stuðlað að málamiðlun
í deilunni um sparnaðaráform hans.
Eichel sagði eftir þriggja daga
umræður á þinginu um sparnaðar-
áformin og framvarp stjórnarinnar
til fjárlaga næsta árs að stjómar-
andstaðan hefði ekki enn lagt fram
neinar raunhæfar tillögur. „Ég býð
ykkur að bera fram nýjar tillögur
eða leggja til breytingar á hug-
myndum okkar sem hægt væri að
býlishúsum til að koma þar fyrir
sprengjum.
■ Ýmsar samsæriskenningar/32
ræða af alvöra. Við höfum ekki
heyrt neitt af því tagi.“
Stjórnin stefnir að því að spara
30 milljarða marka, jafnvirði 1.100
milljarða króna, meðal annars með
því að setja þak á ellilífeyrisgreiðsl-
ur næstu tvö árin og lækka at-
vinnuleysisbætur. Neðri deild
þingsins vísaði tillögunum til nefnd-
ar sem fær mánuð til að ræða þær.
Wolfgang Schauble, leiðtogi
Kristilegra demókrata, sagði að
flokkur sinn myndi ekki hafna öll-
um tillögum stjómarinnar og væri
tilbúinn að styðja breytingar sem
væru „i rétta átt“.
Þarf stuðning
sfjómarandstæðinga
Stjóra Gerhards Schröders
kanslara hefur misst meirihluta
sinn í efri deild þingsins eftir
nokkra kosningaósigra á árinu og
getur því ekki knúið sparnaðartil-
lögurnar fram án stuðnings stjórn-
arandstæðinga. Tvennar kosningar
standa nú fyrir dyram - í Saxlandi
á morgun og Berlín 10. október -
og líklegt er að Kristilegir
demókratar styrki þá stöðu sína
frekar.
Eichel kvaðst vonast til þess að
Kristilegir demókratar yrðu sveigj-
anlegri eftir kosningarnar og þegar
tillögurnar verða teknar til annarr-
ar og þriðju umræðu á þinginu.
Önnur umræða hefst í byrjun nóv-
ember og stjórnin þarf að ná sam-
komulagi við stjórnarandstöðuna
áður en tillögumar verða bomar
undir atkvæði í síðasta sinn í efri
deildinni 26. nóvember.
Moskvu. AFP.
Hermdarverkin í Rússlandi
Höfuðpaurinn
nafngreindur
Reuters
Lögreglan í Moskvu er með mikinn öryggisviðbúnað vegna sprengju-
tilræðanna að undanförnu. Hópur manna er hér færður á lögreglustöð
til yfirheyrslu eftir leit að hugsanlegum tilræðismönnum á útimarkaði.
Reuters
Indónesískir námsmenn börðust við lögreglumenn í gær þegar þeir reyndu að ráðast inn í þinghúsið í
Jakarta til að mótmæla lagafrumvarpi sem þeir segja veita hemum of mikil völd. Um 1.700 námsmenn gengu
að þinghúsinu og grýttu 200 lögreglumenn sem vörðu bygginguna.
Þúsundir indónesískra hermanna fara frá Austur-Tímor
Seinkun á komu
Algeirsborg. Reuters.
FRIÐARÁÆTLUN Abdelaziz
Bouteflikas, forseta Alsírs, var
samþykkt með tæpum 99% at-
kvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu í
fyrradag, samkvæmt lokatölum
sem birtar voru í gær.
Abdelmalek Sellal, innanríkis-
ráðherra landsins, sagði að 85% at-
kvæðisbærra Alsírbúa hefðu greitt
atkvæði og 98,63% hefðu samþykkt
íriðaráætlunina. „Þjóðaratkvæðið
færir forsetanum öll þau völd sem
hann þarf til að gera ráðstafanir til
að framfylgja friðarstefnu sinni,“
sagði ráðherrann.
Bouteflika fagnaði niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar og sagði hana
sigur fyrir þá sem vildu koma á
friði í landinu. Hann naut mun
meiri stuðnings í þjóðaratkvæðinu
en í forsetakosningunum í aprfl
þegar hann var kjörinn með 74%
atkvæða. Stjómvöld vora þá sökuð
um að hafa hagrætt úrslitunum.
Viðbragða hersins beðið
Stærsta íslamska hreyfingin í Al-
sír, Islamska frelsisfylkingin (FIS),