Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
Blódsöfnun
Krabbamein
Blóðþegum vestra fjölgar
um 1% á ári en blóðgjöf-
um fækkar jafnmikið.
Rólegheitin magna
vítahringinn og auka
þreytuna.
MORGUNBLAÐIÐ
A eóa B?
Persónugerðin hefur
áhrif á það hvaða geð-
sjúkdóm fólk fær.
Kynferði
Meiri líkur á stúlku ef
móðir verður fyrir
áfalli kringum getnað.
Blóðskortur nema
blóðgjöfum íjölg’i
HORFUR eru á að skortur verði á
blóði til blóðgjafa í Bandaríkjunum
á næsta ári ef ekki tekst að fá
Bandaríkjamenn til að gefa blóð í
auknum mæli. Blóðþegum þar
vestra fjölgar um 1% á ári hverju
en blóðgjöfum fækkar aftur á móti
jafnmikið á sama tímabili. Aætlað
er að á næsta ári muni safnast tæp-
lega 11,7 miiljónir eininga af blóði
en að spítalar í landinu muni þurfa
um 11,9 milljónir eininga.
„Blóðþörf sveiflast m.a. eftir árs-
tíðum og getur orðið mjög mikil
t.d. yfir ferðahelgi," segir dr.
Sveinn Guðmundsson forstöðu-
læknir Blóðbankans. „Grundvallar-
hlutverk blóðbanka er að eiga blóð
þegar þess er þörf. Þessi vandi,
blóðskortur og yfirvofandi blóð-
skortur þegar til framtíðar er litið,
er til staðar um allan heim og víða
hefur þurft að grípa til þess ráðs að
kaupa blóð frá nágrannaríkjum
þegar skorturinn hefur náð há-
marki.“
Árstíðabundnar
sveiflur
Ekki er að með öllu vitað hvers
vegna sífellt færri gefa blóð. Ein
ástæðan er þó rakin til þess að
ungt fólk hefur ekki sama skilning
á mikilvægi blóðgjafa og sú kyn-
slóð sem óx úr grasi á fyrstu árun-
um eftir heimsstyrjöldina síðari. I
sumum blóðbönkum vestra hefur
verið gripið til þess ráðs að færa
nemendum gjafir í þeirri von að
þeir komi og gefi blóð þegar þeir
ná 17 ára aldri.
Þá segja sérfræðingar að sífellt
verði erfiðara að fá fólk til að gefa
blóð, m.a. vegna tregðu atvinnu-
veitenda til að gefa starfsfólki sínu
frí svo það komist í blóðbanka. Og
ekki batnar ástandið þegar yfirvöld
þurfa að grípa til þess ráðs að
banna þeim, sem dvalist hafa á
Bretlandseyjum, að gefa blóð af
ótta við kúariðu. Talið er að vegna
bannsins verði blóðbankar í Banda-
ríkjunum af rösklega 280 þúsund
einingum blóðs á ári.
Að sögn Sveins gerir tímabund-
inn blóðskortur vart við sig á viss-
um árstíðum, svo sem á sumarleyf-
istíma, á haustin þegar skólar eru
að hefjast og þegar flensa er að
ganga. Þar á ofan fjölgar blóðþeg-
um eftir því sem þjóðin verður
eldri en blóðgjöfum fækkar. Hér á
landi mega þeir gefa blóð sem eru
frískir og á aldrinum 18-65 ára.
Samkennd að hverfa?
„Starfsmenn blóðbanka eru
frægir að endemum fyrir að hrópa
„úlfur,“ sýknt og heilagt og stund-
um er erfitt að taka þá alvarlega,"
hefur Los Angeles Times eftir
Arthur Caplan, formanni nefndar
sem bandarísk stjórnvöld hafa
komið á fót til að fjalla um öryggi
blóðs og blóðsöfnun. „En ef maður
lítur á þessar tölur sést að þetta er
alvarlegt mál.“
Caplan segir enn fremur að blóð-
skortur komi til með að valda ýms-
um vandræðum svo sem við með-
ferð krabbameins, erfitt getur
reynst að útvega blóðhluta og blóð-
afurðir fyi'ir mjög veikt fólk og
skurðaðgerðum sem ekki eru bráð-
ar gæti þurft að fresta.
„Það skelfir mig og ætti að
skelfa alla aðra, að á undanförnum
árum hafa komið upp þau tilvik að
ekki hefur verið til nóg af blóði í
réttum blóðflokki til að fram-
kvæma skurðaðgerð, sem er nauð-
synleg en má fresta," segir Harvey
G. Klein, yfirmaður hjá National
Institute of Health clinical center í
Bethesda í Bandaríkjunum, í sama
blaði.
Samkvæmt því sem segir í Los
Angeles Times spyrja sérfræðing-
ar sig nú hvort drenglyndi og sam-
kennd hafi minnkað meðal banda-
rísku þjóðarinnar og hvort óttinn
við blóðborna sjúkdóma komi í veg
fyrir að menn gefi blóð.
Sveinn segir að starfsfólk
Blóðbankans reyni að sinna
fræðslu- og kynningarstarfi en
fjárveitingar til þess séu naumar.
Ahugi er á að efla þennan þátt
starfseminnar og þá jafnvel með
sama hætti og aðrir bankar og
fjármálastofnanir gera til að afla
nýrra viðskiptavina og halda í þá
sem fyrir eru. „En slíkt kostar fé,“
segir Sveinn og bætir við: „Hins
vegar er það mikilvægara en flest
annað í okkar þjóðfélagi að eiga
nægilegan fjölda góðra blóðgjafa."
Morgunblaðið/Kristinn
Tæplega 9 þúsund einstaklingar gefa þær 15 þúsund einingar af blóði
sem safnað er í Blóðbankanum í Reykjavík á ári hveiju. Hér er það
Hafsteinn Hafsteinsson sem gefur blóð.
Er sumum hættara en öðrum?
GYLFI ÁSMUNPSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Er fólki með sérstak-
ar persónugerðir hættara en öðr-
um við að fá geðræn einkenni, svo
sem streitu, kvíða og þunglyndi?
Hvaða persónugerðum er hættast
við geðsjúkdómum?
Svar: Það fer ekki svo mikið eftir
persónugerð hvort fólk fær geð-
sjúkdóm eða ekki. Hins vegar hef-
ur persónugerðin mikil áhrif á það
hvaða geðsjúkdóm fólk fær eða
hvaða mynd geðræn vandamál
taka á sig.
Frá fornu fari hafa menn reynt
að flokka fólk eftir persónugerð
þess. Þekkt er flokkun gríska
læknisins Galens, sem kenndi
mismunandi persónugerðir við
vessa líkamans, blóð, slím, gult
gall og svart gall. Heimspeking-
urinn Immanúel Kant byggði á
þessum hugmyndum Fom-
Grikkja í bók sinni, Antropologie,
árið 1798 og skipti fólki í fjórar
persónugerðir, hinn léttlynda,
hinn þunglynda, hinn bráðlynda
og hinn dauflynda. Hver einstak-
lingur gæti aðeins fallið í einn
þessara flokka. í upphafi þessar-
ar aldar setti sálfræðingurinn
Wilhelm Wundt fram þá skoðun
að fólk gæti haft misjafnlega
mikið af þessum eiginleikum og
skipta mætti þeim eftir styrk og
hraða tilfinningalegra viðbragða.
Þetta mætti mæla og finna stöðu
einstaklingsins á þessum tveimur
víddum. Breski sálfræðingurinn
Hans Eysenck hefur sett fram
kenningar, sem byggjast á rann-
sóknum hans á innhverfu-út-
hverfu, tilfinninganæmi og harð-
lyndi. Um þetta má lesa nánar í
kafla eftir Júlíus K. Björnsson,
sálfræðing, í Sálfræðibókinni (Rv.
1993), bls. 479-485, m.a. um mun-
inn á útverfri og innhverfri per-
sónugerð.
Orka hins innhverfa beinist inn
á við. Hann hugsar og skipulegg-
ur og gruflar í sjálfum sér. Hann
hefur meiri tilhneigingu en hinn
úthverfi til að líða af hugsýki, t.d.
kvíða og þunglyndi, einkum ef til-
finninganæmi hans er hátt. Hinn
úthverfi er maður aðgerða og
Persónugerðir
orka hans beinist út á við. Hon-
um hættir til að gera hlutina án
þess að hugsa, þ.e. að rasa um
ráð fram, og hann hefur oft laka
stjórn á tilfinningum sínum.
Hann tekur hlutina lítt inn á sig
og er því síður hætt við kvíða og
þunglyndi en hinum innhverfa.
Þess í stað koma vandamál hans
oft niður á öðrum, þar eð hann
fær útrás gagnvart umhverfinu.
Honum er hættara við skapgerð-
artruflunum en hinum innhverfa,
einkum ef tilfinninganæmi og
harðlyndi mælist hátt. Hinar
víddirnar tvær í kenningu
Eysencks, tiifinninganæmi og
harðlyndi, segja því nánar til um
á hvem hátt hegðun þeirra og líð-
an er líkleg til að vera.
Rannsóknir hafa verið gerðar á
viðbrögðum manna við streitu og
hafa þær leitt í ljós tvær mann-
gerðir, A-manngerð og B-mann-
gerð. Lífsmáti A-gerðar einkenn-
ist af öfgafullri samkeppni, metn-
aði, árásargirni, hraða, óþolin-
mæði, ókyrrð, málæði, vöðva-
spennu í andlitsvöðvum og þeirri
tUfinningu að vera stöðugt undir
tíma- og ábyrgðarálagi. A-menn
reyna að gera of marga hluti á
stuttum tíma, og einnig láta þeir
smáatriði fara í taugarnar á sér.
Fræðimenn telja að A-manngerð-
in sé mjög útsett fyrir hjarta-
sjúkdóma. Rannsóknir sýna að A-
menn bregðast mjög ólíkt við
streituáreitum en rólegra fólk
sem flokkað hefur verið undir B-
manngerð.
Gerð var rannsókn á hópi nem-
enda, sem látnir voru leysa talna-
dæmi. Þeir nemendur sem töld-
ust til A-gerðar framleiddu 40
sinnum meira coretisol og fjórum
sinnum meira adrenalín heldur
en bekkjarfélagar þeirra, sem
flokkuðust í B-hóp. Blóðflæði til
vöðva A-nemenda var þrisvar
sinnum meira, þó svo að það væri
enginn munur á getu þeirra. A-
menn bregðast því alltaf við eins
og um aðsteðjandi hættu væri að
ræða.
Tíminn líður hraðar hjá A-fólki
en B-fólki. Tveimur hópum, annar
A-fólk og hinn B-fólk, var sagt að
lesa upphátt í eina mínútu. A-fólk-
ið hætti að lesa eftir 53 sekúndur
að meðaltali, en B-fólkið eftir 75
sekúndur. A-fólkinu fannst tíminn
líða hraðar og flýtti sér meira.
Hér hefur aðeins verið greint
frá rannsóknum og kenningum
um alþekktar persónugerðir og
hvernig þær kunna að bii’tast í
sjúkdómum eða geðrænum vand-
kvæðum. Miklar rannsóknir hafa
verið gerðar á persónuleika fólks
og eins og vænta má eru tilbrigði
persónugerðar fjölmörg og sam-
spilið á milli þeirra flókin og blæ-
brigðarík.
•Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn um það sem þcim liggur á
hjarta. Tekið er á móti spumingum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 (
síma 569 1100 og brófum eða símbréfum
mcrkt: Vikulok, Fax 5691222.