Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
GÓLFEFNABÚÐIN
Míkið urval
fallegra flísa
Borgartiín 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
Greining FBA á rekstri olíufyrirtækjanna þriggja á fyrrí árshelmingi
Aukin áhersla á virðis-
auka til hluthafa
? doga
skiptiréttuf
Góður hagnaður var af
samanlögðum rekstri
olíufyrirtækj anna
þriggja, Skeljungs, 01-
íuverslunar Islands og
Olíufélagsins, fyrstu sex
mánuði ársins. A tíma-
bilinu var hagnaður af
reglulegri starfsemi fyr-
irtækjanna fyrir skatta
899 milljónir króna, en
á sama tímabili í fyrra
var hagnaðurinn 401
milljón króna. I nýjustu
mánaðarskýrslu Fjár-
festingarbanka atvinnu-
lífsins kemur fram að
miklar fjárfestingar í ol-
íudreifingu á síðasta ári
séu augljóslega að skila
sér á þessu ári, auk
þess sem stöðugleiki í
efnahagsmálum og góð
aflabrögð skipti miklu
máh í þessu sambandi.
í SKÝRSLU Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, þar sem fjallað er um
uppgjör fyrirtækja eftir atvinnu-
greinum, kemur fram að heildarvelta
olíufyrirtækjanna var 13.332 milljón-
ir króna á fystu sex mánuðum ársins
en var á sama tímabili í fyrra 12.738
milljónir króna og er það um 4,7%
aukning milli ára. 011 þrjú olíufyrir-
tækin juku veltu sína á milli ára og
var aukningin hjá Olíuverslun ís-
lands og Skeljungi aðallega í sölu
flugvélaeldsneytis, bifreiðaeldsneyt-
is og eldsneytis til stómotenda. Hjá
Olíufélaginu var söluaukning í öðrum
vörum en olíuvörum.
Rekstrargjöld olíufyrirtækjanna í
heild voru 12.114 milljónir króna á
fyrstu sex mánuðum ársins en voru á
til útlartda
-auövelt dð mund
SÍMINN
www.simi.is
Nútíma
innheimtuaðferðir
intrum justitia
I N K A S S O
V__________________________
J
Helstu tölur úr
reikningum olíu-
fyrirtækjanna
Qssd)
OLÍUFÉLAGIÐ
Breyting frá
Hlutf. af 6 man. up
06/99 tekjum 1991
SKEUUNGUR
OLIS
Breyting frá Breyting frá
Hlutf. af 6 man. uppgj. Hiutf. af 6 man. ur"!
06/99 tekjum 1998 06/99 tekjum 199*
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 5.151 4.675 2% 0% 4.395 3.951 7% 1% 3.787 3.488 6% 3%
Hagnaður fyrir afskriftir 475 9,2% 25% 444 10,1% 116% 299 7,9% 59%
Afskriftir 139 2,7% 11% 153 3,5% 9% 66 1,7% -11%
Hagnaður fyrir fjármagnsliði 337 6,5% 32% 291 6,6% 348% 233 6,2% 106%
Fjármagnsliðir 47 0,9% 1339% -2 0,0% 95% -7 -0,2% -160%
Hagn. af reglul. starfsemi f. skatta 384 7,5% 53% 289 6,6% 1056% 226 6,0% 81%
Tekju- og eignarskattur 143 59% 89 709% 71 100%
Hagn. af regl. starfsemi eftir skatta 241 4,7% 50% 200 4,6% 1329% 155 4,1% 73%
Aðrar tekjur og gjöld -7 11 8
Hagnaður 234 4,5% 45% 211 4,8% 109% 163 4,3% 31%
Veltufé frá rekstri 486 9,4% 37% 425 9,7% 20% 209 5,5% 37%
Fastafjármunir 8.192 -1% 4.847 4% 3.846 19%
Veltufjármunir 3.894 18% 2.616 18% 3.041 8%
Eignir samtais 12.086 4% 7.463 9% 6.886 14%
Eigið fé 5.370 44,4% 5% 3.264 43,7% 11% 2.664 38,7% 13%
Langt.skuidir og tekjusk.skuldb. 3.075 -9% 2.259 -12% 2.190 44%
Skammtímaskuldir 3.170 31% 1.940 41% 2.032 -6%
Skuidir samtals 6.245 8% 4.199 7% 4.222 15%
Skuldir og eigið fé 12.086 4% 7.463 9% 6.886 14%
Veltufjárhlutfall 1,2 1,4 1,5
Markaösvirði (m.kr.) 8.988 4.560 4.596
Gengi 9,2 6,0 6,9
Ávöxtun frá áramótum 36% 51% 39%
V/H síðustu 12 mán. 19,2 13,0 14,3
sama tíma í fyrra 11.965 milljónir og
er þetta aukning um 1,2% á milli ára.
I heild jókst framlegð í olíugeiranum
úr 6,1% á fyrstu sex mánuðum ársins
1998 í 9,1% á fyrstu sex mánuðum
þessa árs, eða um tæp 57%. Öll þrjú
olíufyrirtækin á íslenska markaðin-
um sýndu framlegðaraukningu á
fyrstu sex mánuðum ársins.
Mestur bati í framlegð
hjá Skeljungi
Mestur var batinn í framlegð hjá
Skeljungi en þar var aukninginn á
milli ára um 116% og var framlegð
10,1% á fystu sex mánuðum ársins.
Framlegð hjá Olíufélaginu á fyrstu
sex mánuðum ársins var 9,2% og hjá
Olíuverslun íslands á sama tíma
7,9%. í greiningu FBA segir að
greinilegt sé að Skeljungsmönnum
hafi tekist vel í hagræðingar- og að-
haldsaðgerðum það sem af er árinu,
en sala hjá Skeljungi jókst um 7%
milli ára, eða úr 4.126 milljónum
króna í 4.395 milljónir á þessu tíma-
bili á meðan kostnaður jókst ein-
göngu um 1%. Þá segir að þessi fram-
legðaraukning hjá Skeljungi sé einnig
athyglisverð í ljósi þess að þeir séu
ekki aðilar að Olíudreifingu ehf., sam-
eiginlegu dreifingarfélagi Olíufélags-
ins og Olíuverslunar íslands.
Afskriftir jukust um 5,1% og eru
358 milljónir króna fyrri helming
ársins 1999 en voru 340 milljónir
króna á sama tíma 1998. Fjár-
magnsliðir voru jákvæðir um 38
milljónir króna fyrstu sex mánuði
ársins en voru neikvæðir um 32
milljónir króna í fyrra. Þetta er um
70 milljóna króna bati, en í greiningu
FBA segir að hafa verði í huga að
fyrstu sex mánuði ársins var tekju-
fært hjá olíufyrirtækjunum þremur
verðbreytingarfærslur upp á tæpar
105 milljónir króna. Skatthlutfall er
nær óbreytt milli ára, um 34% í
heild, og óreglulegir liðir lækka tals-
vert, eða úr 122 milljónum króna á
síðasta ári í 12 milljónir króna.
Hagnaður olíudreifingar á fyrstu
sex mánuðum ársins jókst um rúman
helming, eða um 57,3%, miðað við
sama tíma í fyrra. Heildai'hagnaður
olíufyrirtækjanna þriggja var á
þessu tímabili 608 milljónir króna en
var 387 milljónir króna á sama tíma-
bili í fyrra. Afkomubati var hjá öllum
olíufyrirtækjunum þremur, en þó
mestur hjá Skeljungi hf. þar sem 211
milljóna kiúna hagnaður var fyrstu
sex mánuði ársins en í fyrra var
hagnaðurinn 101 milljón króna, og er
þetta um 109% hækkun á milli ára.
Hagnaður Olíufélagsins var 234
milljónir króna, sem er 45% bæting
frá 1998, og hagnaður Olíuverslunar
íslands var 163 milljónir króna, sem
er 37% bæting frá 1998.
Veltufé frá rekstri jókst um tæp
30% og var 1.120 milljónir króna
samanlagt hjá öllum olíufyrirtækjun-
um. Breyting í veltufé hjá Olíufélag-
inu og Ölíuverslun íslands var um
37% á fyrstu sex mánuðum ársins
frá sama tímabili í fyrra, en breyt-
ingin hjá Skeljungi var nokkru
lægri, eða um 20%. Veltufjárhlutfall-
ið er að meðaltali 1,4 hjá olíufyrir-
tækjunum miðað við efnahag 30. júní
á þessu ári.
Þegar litið er á efnahagsreikning
olíufyrirtækjanna hefur orðið tæp-
lega 8% aukning í eignum. Heildar-
eignir samkvæmt efnahagsreikningi
eru 26.435 milljónir króna fyrstu sex
mánuðina, en voru 24.510 milljónir á
sama tímabili í fyrra. Hjá Skeljungi
og Olíufélaginu vaxa veltufjármunir
um 18% á milli tímabila. Breytingin í
veltufé hjá Olíuverslun íslands á
sama tímabili var um 8%. Fastafjár-
munir aukast mest hjá Olíuverslun
íslands, en á árinu hafa nýjar höfuð-
stöðvar fyrir félagið verið í byggingu
við Sundagarða í Reykjavík, auk þess
sem unnið hefur verið að byggingu
nýn-ar þjónustustöðvar í Kópavogi.
I greiningu FBA segir að ef gert sé
ráð fyrir að hagnaður verði sá sami á
seinni helmingi ársins og meðaltal
eigin fjár sé notað, þá sé arðsemi eig-
infjár á ársgrundvelli hjá olíufyrir-
tækjunum þremur í heild um 11,2%
samanborið við 8,6% fyrir allt árið í
fyrra. Þegar skoðuð eru einstök fyrir-
tæki og notaðar sömu forsendur þá er
arðsemin hjá Skeljungi best, eða um
13,6%, en hún var 7,8% allt árið í
fyrra. Hjá Olíuverslun íslands er arð-
semin 13% en var 11,3% árið 1998, og
hjá Oh'uverslun Islands um 9%, en
var 7,7% allt árið í fyrra. Eiginfjár-
hlutfall í heild var 42,7% og hefur lítið
breyst á milli ára, en það var um
42,2% fyrir árið 1998.
Markaðsvirðið 6% af mark-
aðsvirði fyrirtækja á VÞI
í skýrslu FBA kemur fram að
markaðsvirði olíufyrirtækjanna í
heild sé 18.145 milljónir króna sem
sé um 6% af markaðsvirði allra fyrir-
tækja sem skráð eru á Verðbréfa-
þingi íslands. Um áramót var mark-
aðsvirði ohufyrirtækjanna í heild
13.081 milljón króna, þannig að
ávöxtun hlutabréfa fyrirtækjanna í
heild hefur verið um 38,7% frá ára-
mótum ef einungis er tekið mið af
breytingum á markaðsverði.
„Rekstur olíufyrirtækjanna í heild
hefur gengið framar vonum á fyrri
helmingi ársins og ef stöðugleikinn í
efnahagslífinu helst og engar óvænt-
ar breytingar eiga sér stað þá búast
félögin við að afkoma verði viðunandi
á seinni helmingi ársins. Líklega hef-
ur engin atvinnugreinavísitala sýnt
jafn óvænta hækkun á markaði og
vísitala olíudreifmgar. Fjárfestar
þurftu löngum að sæta lítilli arðsemi
olíufyrirtækjanna og ávöxtun félag-
anna á markaði var slök. Breytinga
virðist gæta í rekstri fyrirtækjanna
þar sem aukin áhersla er á virðis-
auka til hluthafa. Ef horft er á hrein-
an rekstur fyrirtækjanna þriggja þá
virðist vera mest svigrúm til frekari
hækkunar hjá Skeljungi og svipuðu
máli gildir um Olíuverslun íslands.
Olíufélagið bætti einnig stöðu sína á
fyrstu sex mánuðum ársins og fjár-
festar hljóta að binda vonir við að
áframhaldandi bati eigi sér stað á
seinni helmingi þessa árs,“ segir í
skýrslu Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins.