Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Ráðherra
skipar
nefndir
Morgunblaðið/Jim Smart
Formaðurinn Arnar Sigurmundsson til vinstri og fundarstjórinn Einar Jónatansson til hægri en á millli þeirra eru Finnbogi Jónsson, forstjóri IS,
Gunnar Örn Kristjánsson, forstjóri SIF, og Gunnar Svavarsson, forstjóri SH, sem fluttu erindi um samkeppnishæfni og markaðsstöðu sjávarafurða
frá Islandi við upphaf nýrrar aldar.
Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fískiðnaðarins
Mikill kraftur í útveginum
en víða eru blikur á lofti
ARNAR Sigurmundsson, formaður
Samtaka fískiðnaðarins, sagði á aðal-
fundi Samtakanna, sem var haldinn í
skíðaskálanum í Hveradölum í gær,
að þó nýjar mælingar Hafrann-
sóknastofnunar staðfestu að seiða-
vísitala þorsks hér við land væri sú
langhæsta frá því mælingar hófust
fyrir tæpum þremur áratugum og
gæfu tilefni til bjartsýni á aukinn
þorskafla á íslandsmiðum á næstu
árum, væri ástæða til að hafa þungar
áhyggjur af þróun efnahagsmála.
Einnig kom fram í skýrslu hans að
starfsemi kvótaþings væri spor aftur
á bak.
Arnar kom víða við í ræðu sinni,
rakti gang mála á Iiðnu ári og sagði
m.a. að stjórnun efnahagsmála skipti
verulegu máli fyrir útflutningsgrein-
ar og að innlendar verðlagsbreyting-
ar yrðu ekki meiri en í helstu við-
skipta- og samkeppnislöndum.
„Það hafa skipst á skin og skúrir í
rekstri fiskvinnslunnar á síðustu ár-
um,“ sagði hann. „Vaxandi þorskafli
ásamt háu afurðaverði hefur hjálpað
mikið í frystingu og söltun. En það
eru víða blikur á lofti. Aflasamdrátt-
ur í rækjuveiðum setur afkomu
rækjuvinnslunnar í mikinn vanda.
Eftir nokkurra ára góðæri og mikla
uppbyggingu í mjöl- og lýsisvinnslu
hefur slegið í bakseglið vegna verð-
þróunar á heimsmarkaði. Veiðar í
Smugunni eru ekki lengur sú búbót
sem þær voru áður og mikil hækkun
á innfluttum rússaþorski að undan-
fömu hefur kippt fótunum undan
rekstri nokkurra fiskvinnslufyrir-
tækja.“
Hann sagði að á innlendum vett-
vangi væri ástæða til þess að hafa
þungar áhyggjur af þróun efnahags-
mála. „Greinileg þensla er í nokkrum
atvinnugreinum, einkum á höfuð-
borgarsvæðinu, og mikill innflutn-
ingur orsakar mikinn viðskiptahalla.
Nú stefnir í 4-5% verðbólgu á þessu
ári, sem er rúmlega tvöfalt meira en
í okkar helstu viðskiptalöndum. Auk-
in þensla í þjóðfélaginu með tilheyr-
andi kostnaðarhækkunum hefur nei-
kvæð áhrif á samkeppnisstöðu út-
flutningsgreina og þann stöðugleika
sem treyst hefur afkomu atvinnu-
rekstrar og verið grundvöllur bættra
lífskjara hér á landi á síðustu árum.“
Kvótaþing mistök
Arnar sagði að þrátt fyrir þessar
blikur á lofti og misjafna afkomu fyr-
irtækja væri ekki að finna uppgjaf-
arhljóð í sjávarútvegi. Mörg fyrir-
tæki, jafnt stór og smá, hefðu verið
að aðlaga sig að breyttum aðstæðum
og reynt að tryggja hráefnisöflun
eftir bestu getu. Hann sagði mikil-
vægt að vinnufriður héldist og
áframhald yrði á bættum lífskjörum
sem byggðist á aukinni framleiðni og
bættri afkomu fyrirtækjanna.
„Islenskur sjávarútvegur er orðinn
mjög markaðsvæddur og hefur fyrir
löngu horfið frá miðstýringu fyrri ára.
Starfsemi Kvótaþings sem sett var á
fót af opinberum aðilum á síðasta ári
er spor aftur á bak og hindrar eðlileg
viðskipti fyrirtækja og truílar með
þeim hætti hráefnisöflun fiskvinnsl-
unnar. Sjávarútvegsráðherra hefur í
samræmi við bráðabirgðaákvæði laga
ákveðið að endurskoða lögin um
Kvótaþingið. Opinbert eftirlit með
skiptaverði er fyllilega tryggt með
starfsemi Verðlagsstofu skiptaverðs,
en starfsemi hennar hófst á svipuðum
tíma og Kvótaþingið."
Umhverfismál mikilvæg
Arnar benti á að umhverfismál
skiptu sífellt meira máli í rekstri
sjávarútvegsfyrirtækja og við sölu
afurðanna.
„í umhverfismálum og starfsemi
umhverfissamtaka geta jafnt falist
tækifæri og ógnanir fyrir íslenskan
sjávarútveg,“ sagði hann. ,Aukin
samkeppni á fjármálamarkaði og
vaxandi starfsemi áhættufjárfesting-
arsjóða hafa skapað fjTÍrtækjum
nýja möguleika. Rannsóknir og þró-
unarvinna skipta gríðarlega miklu
máli í sjávarútvégi. Nú þegar þessi
vinna flyst að nokkru út í fyrirtækin
með breytingum á starfsemi sölufyr-
irtækja skiptir miklu að hægt verði
að stunda vöruþróun í góðu sam-
starfi fyrirtækjanna og Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins, sem hefur
útibú í öllum landshlutum. Það er
mikill kraftur í íslenskum sjávarút-
vegi. Eitt gleggsta dæmið þar um er
samstarf fyrirtækja í sjávarútvegi og
íslenskra iðnfyrirtækja við þróun á
framleiðslu tengda sjávarútvegi, sem
var að finna á Sjávarútvegssýning-
unni í Kópavogi fyrr í þessum mán-
uði. Við íslendingar höfum sýnt öðr-
um þjóðum fram á að sjávarútvegur
getur staðið að miklu leyti undir af-
komu heillar þjóðar. Þá höfum við
einnig sýnt fram á að skynsamleg
nýting fiskistofna og fjölþætt fisk-
vinnsla og útgerð hefur verið sá drif-
kraftur sem ráðið hefur mestu um
framfarir og farsæld íslensku þjóð-
arinnar.
Við þessar aðstæður er því mjög
brýnt að íslenskum sjávarútvegi
verði sköpuð sem best almenn
rekstrarskilyrði og afskipti hins op-
inbera nái ekki að draga úr þeim
krafti og útsjónarsemi sem hefur
verið aðalsmerki sjávarútvegs hér á
landi."
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra sagði m.a. á aðalfundi
Samtaka fiskvinnslustöðva í gær
að hann vildi skoða stöðu fisk-
vinnslunnar í samvinnu við hags-
munaaðila, sjá hvar sóknarfærin
liggja á næstu öld og hafa stöðu-
mat og stefnumörkun greinarinnar
sjálfrar í upphafi næsta árs. Því
hefði hann ákveðið að skipa nefnd
undir forsæti Einars Kristins Guð-
finnssonar, alþingismanns og for-
manns sjávarútvegsnefndar Al-
þingis, til að skoða samkeppnis-
stöðu fiskvinnslunnar, hverra
kosta hún á völ og hvert hún stefn-
ir. Einnig hvernig megi ná enn
meiri virðisauka úr vinnslunni og
kortleggja ekki aðeins það sem rík-
ið ætti að gera til að marka henni
ramma, heldur einnig hvaða mál
ættu að vera á forræði samtaka og
hvað sé mál fyrirtækjanna sjálfra.
Því hefði hann sent beiðni til hags-
munasamtaka í sjávarútvegi um að
tilnefna menn í nefndina sem á að
skila skýrslu fyrir lok janúar árið
tvö þúsund.
I framhaldi af starfí þessarar
nefndar verður skipuð verkefnis-
stjórn sem á að hafa það hlutverk
að hrinda hugmyndum nefndarinn-
ar í framkvæmd. Hann sagðist vilja
styrkja þann þátt sem snýr að úr-
vinnslu sjávarafla í ráðuneytinu og
á nefndarstarfið einnig að stuðla að
því.
Arni sagði að gott hráefni hlyti
alltaf að vera grunnur að góðri
vöru. Þar þyrfti að huga að öllu
ferlinu, allt frá því að fiskurinn
væri veiddur þar til hann væri
kominn til vinnslu. Verði mistök á
þessu stigi yrði það afdrifaríkt
fyrir alla frekari vinnslu og í þessu
sambandi þyrfti að skoða sérstak-
lega hvernig ætti að tryggja góða
meðferð hráefnis þegar eftirspurn
væri meiri en framboð eins og nú.
Því hefði hann ákveðið að skipa
nefnd undir forsæti Brynjólfs
Sandholt, fyrrverandi yfirdýra-
læknis, og á nefndin að kanna
meðferð sjávarafla og ef þurfa
þykir koma með tillögur til úr-
bóta.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra
„Sóknarfærin
í landvinnslu“
SÓKNARFÆRI í fiskvinnslu virð-
ast um þessar mundir falla vel að
landvinnslu, að mati Árna M.
Mathiesen, sjávarútvegsráðherra.
Þetta kom fram í ávarpi hans á aðal-
fundi Samtaka fiskvinnslustöðva,
sem haldinn var í gær. Ráðherrann
benti meðal annars á að á síðasta ári
óx landvinnsla meira en sjóvinnsla í
fyrsta skipti frá því að sjófrysting
hófst. Sagði ráðherrann Islendinga
flytja út hreina náttúruafurð og hafa
einbeitt sér að því að þróa hana sem
slíka. „Vinnslan hér á landi felst
fremur í fjölbreyttum pakkningum
og niðurskurði á hreinum fiski án
hjálpar og aukaefna, en háu vinnslu-
stigi, til dæmis fullbúinna samsettra
rétta. Fiskvinnsla hefur þó verið að
færast á hærra vinnslustig og ætla
má að svo verði enn frekar á næstu
árum í frekari þróun vöru sem svar-
ar kröfunni um þægindavöru," sagði
hann.
Ráðherrann vék meðal annars
máli sínu að auknum áhuga neyt-
enda á innihaldi og uppruna mat-
væla. Sagði hann að upplýsinga- og
tölvutæknin gerði mögulegt að skrá
aflann með þeim hætti að kaupandi
gæti fengið upplýsingar um veiði-
stað, hitastig sjávar, hlutfall snefil-
efna á viðkomandi veiðistað, átuinni-
hald og fleira. „Framtíðarspámenn
segja að vald neytenda muni aukast
og þeir í auknum mæli segja hvernig
þeir vilja að framleiðsluferli vörunn-
ar sé allt frá grunni, með því hvað
þeir kaupa. Hugtakið er hinn póli-
tíski neytandi. Hugmyndir um rétt
neytenda og neytendavernd sem
bundin er í nákvæmar reglugerðir
eru neytendum hér á landi ekki sér-
staklega tamar. Ástæðan er vafalítið
smæð markaðarins og nálægð fram-
leiðenda og kaupenda. Fiskvinnslan
er líkast til sú grein hér á landi sem
einna lengst er komin á þeirri braut
að svara slíkum kröfum því hún
vinnur í alþjóðlegu umhverfi að
þessu leyti. Eitt svar við auknum
kröfum neytenda um uppruna,
vinnsluferli og heilnæmi vörunnar er
að mínu dómi lipurt upplýsingaflæði
því við höfum góða sögu að segja um
náttúrulega heilnæma vöru. Að
þessu er unnið víða, m.a. á vegum
ráðuneytisins með gerð upplýsinga-
veitu.“
Sífellt fleira erlent starfsfólk
Ennfremur sagði Árni að samfara
stórfelldum tækniframförum sem
orðið hafi í vinnslu sjávarafurða og
Morgunblaðið/Jim Smart
Svanur Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur, Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, og Finnur Geirs-
son, formaður Samtaka atvinnuh'fsins, á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva, sem haldinn var í gær.
öllu sem henni tengist hafi orðið
breytingar í vinnslunni, bæði hvað
varðar fjölda starfsmanna og starfs-
tíma. Erfiðlega hafi gengið að manna
landvinnsluna og hafi þurft að ráða
fleira erlent starfsfólk til fiskvinnslu-
starfa í ár en dæmi eru um til þessa.
„Ef þetta er vísbending um að fisk-
vinnsla í landi muni framvegis
byggjast að æ stæiri hluta á erlendu
vinnuafli þurfum við að gera okkur
grein fyrir því og bregðast við á
mörgum sviðum þjóðlífsins. Ef þetta
er vísbending um að vægi sjávarút-
vegs muni minnka, eins og varð um
landbúnaðinn með aukinni sam-
keppni og tæknivæðingu, þurfum við
líka að gera okkur grein fyrir þeim
möguleika.
Markmið sjávanitvegsstefnunnar
er að ná hámarksafrakstri út úr
fiskistofnunum á íslandsmiðum til
lengri tíma. Fiskveiðarnar þurfa því
að vera ábyrgar og með fiskveiði-
stjórnunarkerfinu hefur tekist að
auka hagræðingu í sjávarútvegi
þjóðfélaginu til hagsbóta. Hluti af
því hefur verið sameining fyrirtækja,
sem ekki virðist sjá fyrir endann á.
Að mínu mati er það íbrsenda vöru-
þróunar að fyrirtæki hafi bolmagn til
að ráða til sín menntað fólk sem nýt-
ist við vöruþróun og fylgist með
þeim breytingum og kröfum sem
verða á mörkuðum okkar erlendis,“
sagði Árni.