Morgunblaðið - 11.11.1999, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 11.11.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 63 FÓLK í FRÉTTUM V Stutt I Tónlistarmaðurinn Chris Cornell hefur sólóferil Banvæn forvitni FANGAVÖRÐURINN Raul Zar- ate Diaz varð fórnarlamb eigin for- vitni þegar hann hrapaði í gegnum þakglugga í fangelsinu í Tapachula á suðurströnd Mexíkó, en hann hlaut bana af fallinu. Nú er það ekki á verksviði fangelsisvarða að klifra upp á þak en talið var að Diaz hefði verið að njósna um einn fangann sem hafði fengið eiginkonu sína í heimsókn í fangelsið. Reuters Alisa þurrkar tárin þegar til- kynnt var að hún missti titilinn. Missti titilinn UNGFRIJ Bosnía og Herzegovina, hin tvítuga hjúkrunarkona Alisa Sisic, missti titil fegurðardrottn- ingar eftir að dagblaðið Sarajevo Daily birti af henni nektarmyndir í síðustu viku. Ákvörðunin um að víkja Sisic af fegurðarstallinum var tekin á þriðjudaginn. A móti þjáningum dýra LJÓSMYNDARINN Mary McCartney fylgir í fótspor móður sinnar Lindu McCartney í afstöðu sinni til dýravemdunarmála. A dögunum hleypti hún af stokkunum veggspjaldaherferð í London þar sem barist er gegn notkun loðfelda. „Ég er mjög ánægð yfir því að feta í fótspor móður minnar,“ segir Mary um herferðina, en eins og flestir vita var Linda McCartney grænmetisæta og rak fyrirtæki sem seldi jurtarétti. „Loðfeldir, hvort sem það eru pelsar eða lín- ingar á jökkum eða töskum, eru áv- ísun á þjáningar dýra ... Ég skora á alla í Bretlandi og annars staðar í heiminum að sniðganga þessar vör- ur, núna og í framtíðinni," hafði Mary um málið að segja. Stelpurnar vinna úti NÆSTUM fjörutíu prósent tán- ingsstúlkna í Bandaríkjunum gera fastlega ráð fyrir að vinna fyrir heimilinu í framtíðinni meðan eig- inmenn þeirra eru heima og ala upp bömin. Þessar upplýsingar komu fram í viðhorfskönnun á vegum fyrirtækisins Roper Starch Worldwide. Hins vegar má segja að niðurstaðan sé sérkennileg í ljósi þess að táningar af báðum kyiyum töldu barnauppeldi vera kvennastarfl Kannski þessir heimavinnandi eiginmenn eigi að vera kvenlegri en gengur og ger- ist? í sæluvímu HLJÓMSVEITIN Soundgarden starfaði í þrettán ár með söngvar- ann Chris Cornell í broddi fylking- ar. Chris hefur nú hafið sólóferil og kom fyrsta plata hans, Euphor- ia Morning, út á dögunum, tveim- ur árum eftir að Soundgarden lagði upp laupana. Sælutilfinning að morgni „Það er erfitt að finna nafn á plötu sem passar við þá tónlist sem á henni er,“ segir Chris um nafn plötunnar. Orðið „euphoria" merkir sælutilfinning eða sælu- víma og kemur fyrir í nokkmm textum Coraells. „Mér fannst þessi tvö orð einfaldlega hljóma vel saman,“ útskýrir Chris, „þess vegna fékk platan þetta nafn.“ Nú þegar dagar Soundgarden era taldir og sólóferillinn tekinn við hefur ýmislegt breyst og löng tónleikaferðalög fimmmenning- anna úr sögunni. „Núna er ég að ferðast með öðrum tónlistarmönn- um sem spila undir hjá mér og það á eftir að koma í ljós hveraig það gengur,“ segir Chris. „Eg vona að það eigi eftir að verða gaman og ef það gengur eftir eigum við ef- laust eftir að vera lengi á ferða- lagi og fara víða. Það verður ný og öðravísi reynsla að ferðast sem sólótónlistarmaður. Tónleikarair eiga líka eftir að verða frábrugðn- ir tónleikum Soundgarden," full- yrðir Chris en tónlist hans er einn- ig talsvert ólík þeirri sem Soundgarden sendi frá sér. „Þegar maður er í hljómsveit áttar maður sig ekki alltaf til fulls á tónlistinni eða veit hver er ábyrgur fyrir því að hún hljómar eins og hún gerir,“ segir Chris. „En einn síns liðs getur maður fengið ólíka tónlistarmenn sér til aðstoðar og ræður alfarið hvemig tónlistin hljómar og hvemig mað- ur nálgast hana. í hljómsveit þarf maður að taka tillit til skoðana annarra og einnig að koma sínum eigin sjónarmiðum á framfæri. En þegar allt kemur til alls er það tónlistin sem skiptir máli og þá er ekki aðalatriðið hvort maður er í hljómsveit eða ekki.“ Hættá toppnum Soundgarden átti mikilli vel- gengni að fagna og segja má að hún hafi hætt á toppnum, öllum að óvörum. „Við hættum saman því ...“segir Chris hikandi, en heldur svo áfram „að hætta þarf ekki endi- lega að þýða að eitthvað hafi verið rifið í sundur. Við höfðum stjórn á öllu sem við vorum að gera og við vissum alveg hvað við vorum að fara út í þegar við ákváðum að hætta. Við vorum ekki að reyna að eyðileggja neitt heldur að vemda eitthvað sem við höfðum." Chris segir þá hafa kvatt sem vini og engin slagsmái eða leiðindi hafí þurft tii. „Á ákveðnum tímapunkti gerðum við okkur grein fyrir því að hljómsveitin átti ekki eftir að starfa að eilífu og þá fannst okkur best að hætta.“ Chris vill ekki úti- loka að þeir eigi eftir að koma saman á ný. „Það er mögulegt því okkur semur mjög vel. Ef sá tími kemur að við viijum allir koma saman aft- ur er aldrei að vita nema við gef- um út aðra plötu. En það myndi aldrei koma til greina að aðeins nokkrir okkar og nýir menn færu Eucerirí Fixoni peysa 3.990 Chris Coraell hefur hafið sólóferil. WWW.O-N-L-Y.COM að spila undir nafni Soundgarden, það verður aldrei." Róleg með sprettum Plata Chris er í rólegri kantin- um en þó eru inni á milli rokk- sprettir sem Chris er þekktastur fyrir. „Ég vildi ekki gera plötu sem innihéldi tónlist úr ýmsum áttum,“ segir Chris um nýju plöt- una. „Ég vildi heldur ekki líkjast einhveijum öðrum tónlistarmanni eða hallast að einhverri stefnu í tónlistinni. Þegar ég var að semja tónlist fyrir Soundgarden hugsaði ég um hvernig tónlist hentaði sveitinni en núna þarf ég aðeins að hugsa um hvað ég kann sjálfur að meta og hvað ég vil gera. Vandamáiið er að það er hægt að gera hvað sem er með tónlist og því mikilvægt að gæta þess að færast ekki of mikið í fang.“ -0-0-0- L-Y Einn á báti 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.