Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
FRÉTTIR
MÓRGUNBLAÐIÐ
Dímon hannar hugbúnað fyrir WAP-tækni í gsm-símum
Sex íslensk fyrirtæki hefja
WAP-þjónustu í vikunni
TOLVUFYRIRTÆKIÐ Dímon,
hugbúnaðarhús ehf., hefur sett á
markað hugbúnað til að flytja efni
af vefnum beint í svonefnda WAP-
síma. Hugbúnaðurinn kom á mark-
að í gær og nefnist hann WAP-
orizer. Gerir forritið fyrirtækjum
kleift að laga efni heimasíðna sinna
að WAP-tækninni með margfalt
skjótari hætti en lausnir sem fyrir
eru á markaðnum bjóða að sögn
Hjalta Þórarinssonar, talsmanns
Dímons. Sex íslensk fyrirtæki, sem
keyptu lausn Dímons í síðustu
viku, hefja þjónustu með þessari
tækni í vikunni og í næstu viku.
Hjalti segir að með þessum hug-
búnaði sé fyrirtækjum ódýrara og
auðveldara að bjóða upp á WAP-
þjónustu en hingað til hefur verið
unnt. WAP-símar bjóða upp á
þráðlaus samskipti við Netið. Hann
segir að búið sé að hanna lausn
sem nota má í þessu skyni og því
þurfi fyrirtækin ekki sjálf að leggja
í tímafreka og dýra forritunar-
vinnu. Sagði hann það geta tekið
nokkra mánuði undir venjulegum
kringumstæðum að færa vefsíður
yfir á WAP-form en WAPorizer
styttir þann tíma niður í nokkra
daga.
Flugleiðir taka hugbúnaðinn í
notkun í þessari viku og verða
fyrsta flugfélagið til að geta selt
fiugfarmiða með WAP. Dímon var í
samstarfi við veffyrirtækið Salt við
útfærslu Flugleiðasíðunnar. Þá
verður hægt að leita annarra upp-
lýsinga af vef Flugleiða.
WAP-símar eru að koma á mark-
að um þessar mundir og hafa bank-
ar og netmiðlar boðið ýmsa þjón-
ustu sem unnt er að fá gegnum
slíka síma. Hjalti segir að auk
Flugleiða hafi Islandssími ákveðið
að taka í notkun búnað frá Dímon
og unnið sé einnig að markaðssókn
erlendis. Viðræður standi yfir við
fulltrúa erlendra stórfyrirtækja
sem sýnt hafi búnaðinum áhuga og
kveðst Hjalti búast við að árangur
þeirra viðræðna komi í Ijós næstu
daga.
Þá nefndi Hjalti sem dæmi að
norræna flugfélagið SAS hefði til-
kynnt að það myndi geta boðið við-
skiptavinum að kaupa farmiða
gegnum gsm-síma í apríl en nú
væri ljóst að Flugleiðir myndu
bjóða þá þjónustu í þessari viku.
Dímon, hugbúnaðarfyrirtæki,
hefur aðsetur í Reykjavík og eru
starfsmenn fjórir við forritun.
Bfll mældist
á 189 kfló-
metra hraða
BÍLL mældist á 189 km hraða
á Reykjanesbraut, í Hafnar-
firði við Stálbræðsluna, um há-
degi á sunnudag. Lögregla náði
ekki bílnum vegna hraðans, en
honum er lýst sem rauðum
Volkswagen Golf sportbfl.
Lögreglan í Hafnarfirði segir
þennan akstur með því hraðara
sem þar hafi sést og bendir á að
akstur af þessu tagi sé hreinn
og klár glæpur. Með honum sé
ökumaður að stofna sjálfum sér
og öðrum í lífshættu og segir
lögreglan skelfilegt að vita til
þess að ökumenn skuli leyfa sér
að aka á slíkum hraða.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglu eru viðurlög við slík-
um hraðakstri allt að 6 mánaða
svipting ökuleyfis og 50.000 kr.
sekt.
Tölvufyrirtæki í eigu Sir Bob Geldof
auglýsir eftir íslenskum forriturum
Ætlar að
ráða eins
marga og
hægt er
BRESKA netfyrirtækið Deck-
chair.com auglýsti í Morgunblaðinu
í fyrradag eftir íslenskum tölvu-
forriturum til starfa en fyrirtækið
er staðsett í London. Annar aðai-
eigenda fyrirtækisins er írski
hljómlistarmaðurinn Sir Bob Gel-
dof, sem Elísabet Englandsdrottn-
ing aðlaði fyrir störf að mannúðar-
málum, og segir Geldof ástæðu þess
að fyrirtækið ákvað að auglýsa á
íslandi þá, að lítið framboð sé af
forriturum í Bretlandi, auk þess
sem stjórnendur þess liafi fengið
þær upplýsingar að á Islandi væri
að finna fjölda hæfra forritara.
„Það virðist sem hver einasti
tölvuforritari í Bretlandi sé þegar í
fastri vinnu,“ segir Geldof í samtali
við Morgunblaðið. Hefur fyrirtæki
hans af þessum sökum ítrekað þurft
að leita út fyrir landsteinana vegna
starfsmannamála og t.d. ráðið for-
ritara frá Indlandi og Tékklandi.
Aukinheldur hafði verkefnastjóri
hjá fyrirtækinu, Islendingurinn
Valberg Lárusson, sagt Geldof og
meðeiganda hans, James Page, að
hann vissi af mörgum færum for-
riturum á Islandi.
Um þessar mundir starfa 32 hjá
Deckchair.com að sögn Geldofs, en
meiningin er að fjölga starfsmönn-
um upp í um 60 á næstu mánuðum.
„Við þurfum á íjölda nýrra starfs-
manna að halda,“ segir Geldof, „og
við ætlum að ráða eins marga for-
ritara og við getum náð í.“
Er gert ráð fyrir að þeir for-
ritarar, sem ráðnir verða hér á ísl-
andi, taki þátt í að þróa leitarvél
Deckchair.com, en fyrirtækið sér-
hæfir sig í því að afla ódýrra flugf-
armiða út um allan heirn íyrir við-
skiptavini sína á Netinu.
Hyggjast Geldof og félagar bjóða
upp á sambærileg launakjör og al-
mennt eru á boðstólum í Bretlandi í
þessum geira atvinnulífsins, en Ben
Pearson, framkvæmdastjóri hjá
Deckchair.com, vakti í samtali við
Morgunblaðið sérstaka athygli á
því að starfsmönnum Deckchair.-
com sé boðið að kaupa hlutabréf í
fyrirtækinu á hagstæðu gengi og
þannig eignast hlut í gróða ört
stækkandi fyrirtækis á vaxandi
markaði.
. j
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Pajero 2500
diesel, f. skrd. 06.02.1998,
4 d., beinskiptur, ekinn
43.000 km, ásett verð
1.990.000, skipti á ódýrari
Nánari upplýsingar
hjá Bílaþingi Heklu,
Opnunartlmi: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-I6
BÍLAÞINGáEKLU
Nvwc-r cíH í noiv<?viYi bíhm!
sími 569 5500.
Laugavegi 17-4.105 Reykjavfk. slmi 569-5500
vjv/vj Lil.'iUiiritj i-í • v/v/vj Lilptliirifj n-. • v/v/v/ Lllntiimrj Ui
Skíðasvæði lokuð und-
anfarnar tvær vikur
Morgunblaðið/RAX
Ekki er unnt að hafa lyftur í gangi í Bláfjölluin þar sem grjót stendur
víða upp úr í brekkunum. Ekki þyrfti þó nema þriggja til íjögurra tíma
snjókomu til að bæta úr þessu.
SKÍÐASVÆÐI landsins hafa vel-
flest verið lokuð undanfarnar tvær
vikur sökum snjóleysis en umsjón-
armenn svæðanna binda vonir við
að úr rætist á næstu dögum og
hægt verði að opna svæðin um eða
eftir næstu helgi. Misjafnt er
reyndar eftir landshlutum hversu
mikinn snjó þarf til að hægt verði
að opna skíðasvæðin og t.d. vantar
ekki nema herslumuninn syðra til
að hægt sé að opna skíðasvæði fyr-
ir almenningi.
Einmuna hlýindi á landinu und-
anfarna daga valda snjóleysinu og
var 13 stiga hiti á Akureyri og
hvassviðri þegar Morgunblaðið
ræddi við ívar Sigmundsson, for-
stöðumann skíðastaðanna þar í
gær.
Skíðasvæðin á Akureyri voru
opnuð 18. desember og sagði ívar
tímabilið hafa farið mjög vel af
stað, gott skíðafæri hefði verið í
um þrjár vikur en að fyrir um tíu
dögum hefði tekið að hlýna og allur
snjór horfið. Spáði ívar því að
snjóa þyrfti vel í um sólarhring áð-
ur en hægt yrði að opna skíðasvæð-
in.
Svipaða sögu er að segja af
skíðafæri á ísafirði og Seyðisfirði.
Kristinn Lyngpió, umsjónarmaður
skíðasvæða á ísafirði, sagði skíða-
tímabilið reyndar hafa farið vel af
stað og að enn væri nægur snjó í
fjöllum fyrir gönguskíðamenn.
Er stefnt að því að halda bikar-
mót í göngu um næstu helgi en til
að opna skíðasvæðin almennt þarf
hins vegar góða snjókomu í sólar-
hring eða meira, að sögn Kristins.
I heildina var hann þó bjartsýnn á
framhaldið og sagði að aldrei hefðu
selst eins mörg árskort í skíðalyft-
ur og nú í vetur.
A Seyðisfirði hefur nánast ekk-
ert verið hægt að hafa skíðasvæði
opin í vetur og sagði Gunnþór
Jónsson, umsjónarmaður skíða-
svæða, að allur snjór hefði horfið
fyrir um viku. Menn vonuðust þó
til að úr rættist innan tíðar.
Þorsteinn Hjaltason, fólkvan-
gsvörður á Bláfjallasvæðinu og
umsjónarmaður skíðasvæða á höf-
uðborgarsvæðinu, sagði ástandið
hins vegar ekki svo slæmt hjá sér.
Reyndar væri lygilega mikill snjór
á svæðinu og giskaði Þorsteinn á
að ekki þyrfti að snjóa nema í um
fjórar klukkustundir til að allt
kæmist á fulla ferð að nýju.
Engu að síður hefur lítið verið
opið á skíðasvæðum á höfuðborgar-
svæðinu undanfarnar tvær vikur
og viðurkenndi Þorsteinn að þetta
ylli tekjutapi fyrir rekstraraðila
skíðasvæðanna en það væri á hinn
bóginn ekkert óvenjulegt að í jan-
úar væri skíðafæri rysjótt.
Sagði Þorsteinn að útlitið væri
annars þokkalegt, Veðurstofan
spáði slyddu á miðvikudag og að
það þýddi oftast snjó á Bláfjalla-
svæðinu. Því væru góðar líkur á að
skíðasvæði yrðu opin um helgina.
• •
Skipstjóri togarans sem kviknaði í undan Ondverðarnesi
Rétt viðbrögð urðu til bjargar
„VIÐ vorum á siglingu niður á
Flæmingjagrunn og ætluðum að
koma við í Reykjavík,“ segir Viðar
Benediktsson skipstjóri á togaranum
Orvari frá Skagaströnd sem kviknaði
í um 10 sjómflur undan Öndverðar-
nesi á laugardagskvöld.
„Þá kviknaði í rafli í rými ijósavél-
ar á millidekki. Við þetta sló rafmagn
út og mikill reykur barst á svip-
stundu um allt skipið. Vélstjóramir
fóru þá með reykköfunarbúnað niður
í rýmið og lokuðu því.“
Viðar segir að reynt hafi verið að
slökkva eldinn með sjálfvirkum
slökkvibúnaði auk þess sem fimm
slökkvitæki hefðu verið tæmd. „Þetta
dugði til að minnka eldinn mikið en
það kraumaði enn í glæðum.“
Stuttu eftir að eldurinn kom upp
slokknaði á aðalvél skipsins. „Menn
voru hræddir um að eldurinn brytist
út um allt skip. Það er alvarlegt þeg-
ar kviknar f úti á sjó og aldrei að vita
hvað gerist, en þama urðu rétt við-
brögð til bjargar."
Viðar segir að skipið hafi verið á
reki í um klukkustund áður en tókst
að koma vélinni í gang á ný. 20 manns
vom um borð í togaranum. Engan
sakaði en allir vom í viðbragðsstöðu
og meðal þess sem skipverjar gerðu á
siglingunni til Reykjavíkur var að
dæla sjó á dekkið til að kæla það.
Skipið kom til Reykjavíkur ldukkan
hálfþrjú aðfaranótt sunnudags og þá
slökkti Slökkvilið Reykjavíkur í
glæðunum. Tæknideild og rannsókn-
ardeild Lögreglunnar í Reykjavík
rannsaka nú upptök eldsins. Skipið
er í viðgerð og þarf meðal annars að
skipta um rafal og raflagnir. Viðar
segist vona að skipið verði komið í lag
í lok vikunnar og þá verði ferðinni á
Flæmingjagmnn haldið áfram. Hann
segir ekki Ijóst hversu mikið tjónið er
en býst við að það nemi einhveijum
milljónum.