Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Byggða-
samlag
stofnað um
vatnsveitu
Morgunblaðið/Golli
Einar Andri Þörsson, Auður Yr Guðjónsdóttir og Pétur Daði Heimisson eru ósátt við nýjan leikskóla í Alfatúni.
Krakkar safna undir-
skriftum gegn leikskóla
Sveitarfélög sunnan Rvk,
GARÐABÆR, Hafnarfjörð-
ur, Kópavogur og Bessa-
staðahreppur hafa orðið
ásátt um drög að stofnsamn-
ingi fyrir sameiginlega
vatnsveitu sveitarfélaganna.
Gert er ráð f'yrir að stofn-
að verði byggðasamlag um
reksturinn. Byggðasamlagið
annist útvegun neysluvatns
frá vatnsbóli, væntanlega
vatnsbóli Hafnfirðinga í
Kaldárbotnum, og miðlun
vatnsins að dreifikerfi sveit-
arfélaganna, en þau muni
áfram reka dreifikerfí eigin
vatnsveitna.
Guðjón Friðriksson, bæj-
arritari í Garðabæ, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
þetta mál væri búið að vera
lengi í umræðunni innan
sveitarfélaganna.
Vatnsveitumálum sveitar-
félaganna fjögurra er þannig
háttað nú að Kópavogur
dreifir, með eigin kerfi,
vatni, sem keypt er af Orku-
veitu Reykjavíkur, Garða-
bær rekur eigin veitu og sel-
ur Bessastaðahreppi vatn.
Hafnarfjörður rekur eigin
veitu og er í nokkurri lykilað-
stöðu í samstarfinu, að sögn
Guðjóns, vegna gæða vatns-
bóls bæjarins við Kaldár-
botna.
Gert er ráð fyrir að megin-
lindir byggðasamlagsins
verði þar til að byrja með og
höfuðstöðvar byggðasam-
lagsins verði í Hafnarfirði.
Guðjón sagði að vatnsból
Garðbæinga við Vífilsstaða-
vatn stæði bæði nálægt
byggð og hesthúsahverfi og
eins orkaði staðsetningin tví-
mælis vegna mikillar um-
ferðar manna og dýra um
útivistarsvæðið í grenndinni.
Bæjarstjórn hefði um skeið
talið nauðsyn að huga að
framtíðarfyrirkomulagi
vatnsveitu bæjarins.
Nýja byggðasamlagið mun
dreifa vatni til dreifikerfis
sveitarfélaganna og greitt
verður fyrir með vatnsgjaldi
sem sveitarfélögin inn-
heimta.
Stofnfé byggðasamlagsins
er 50 m.kr. en í stofnsamn-
ingnum segir að þörf fyrir
aukningu sé fyrirsjáanleg.
Stofnaðilarnir hafa skuld-
bundið sig til að auka fram-
lagið í allt að 200 milljónir.
Framlagið er greitt í hlutfalli
við íbúafjölda 1. desember
1998 og skiptist hlutfallslega
þannig að Bessastaðahrepp-
ur gi-eiðir 2,9%, Garðabær
16%, Hafnarfjörður 37,7% og
Kópavogur 43,4%. Aukningin
verður greidd í hlutfalli við
íbúatölu 1. des. 1999.
Kópavogur
ÞRIR 11 ára krakkar, sem
búa í grennd við nýjan leik-
skóla sem á að reisa við Álfa-
tún, hafa efnt til undir-
skriftasöfnunar í hverfinu
sínu til að mótmæla áform-
unum.
Þremenningarnir, Auður
Yr Guðjónsdóttir,Einar
Andri Þórsson og Pétur Daði
Heimisson, Iitu inn á rit-
stjórn Morgunblaðsins á
föstudag með undirskriftar-
listann sinn þar sem er að
finna um 20 nöfn. Krakkarn-
ir segja hins vegar að á bak
við listann standi mun fleiri,
því sumir sem skrifuðu undir
hafi sagst gera það fyrir
hönd allra í húsinu.
Af hverju eru þau á móti
leikskólabyggingunni?
„Það er brekka efst við
götuna. Þar er mjög góð
skíðabrekka og átti að búa til
skíðalyftur,“ segjaþau.
„Þetta er besta skíða-
brekkan í nágrenninu, hún
er alveg geðveik.
Efst í götunni á að koma
hringtorg og brjáluð umferð.
Það er mikil umferð núna,
fólk sem á að mæta í vinnuna
klukkan átta á morgnana
þarf að leggja af stað
klukkutima fyrr. Umferðin á
eftir að verða miklu meiri.
Við viljum ekki fá leikskól-
ann þarna, allir krakkarnir
eru á móti þessu. Meira að
segja fólkið niðri í Grundum
er líka á móti þessu.
Allir krakkarnir eru reiðir
yfir þessu og við höfum talað
um að setjast í brekkuna og
leyfa þeim ekki að gera
neitt.“ En það eru biðlistar
eftir leikskólaplássum. Þarf
ekki leikskóla þarna fyrir
litlu börnin? „Það er leikskóli
rétt hjá og það hætta fullt af
krökkum þar í vor og byija í
skólanum. Þá verður fullt af
plássum."
Þremenningarnir ætla að
halda áfram að safna undir-
skriftum næstu daga en
tjáðu blaðamanni að þau
væru að hugsa um að af-
henda svo bæjarstjóranum
undirskriftarlistana.
KR hættir rekstri
Rauða ljónsins
Seltjarnarnes
NÝIR aðilar tóku við rekstri
Rauða ljónsins við Eiðistorg
sl. föstudag. Það er fyrirtæk-
ið Traustar veitingar sem
leigt hefur reksturinn af KR-
Sport til nokkurra ára. Að
fyrirtækinu standa þeir
Trausti Víglundsson, Hörður
Traustason og Asgeir Víg-
lundsson. Að sögn Trausta
verða einhverjar nýjar
áherslur í rekstrinum. Sal á
efri hæð verður breytt, bæði
nafni og útliti, og segir
Trausti að þar verði lögð
áhersla á brúðkaup, ferming-
arveislur, afmæli og stærri
veislur, sem verið hafa sér-
grein hans til margra ára.
Þeir félagar eru allir KR-ing-
ar og þeim leist mjög vel á
þetta nýja verkefni.
Morgunblaðið/Golli
Frá undirritun samningsins um rekstur á Rauða ljóninu.
Frá vinstri talið eru þeir Björgólfur Guðmundsson, for-
maður KR, Hjörtur Nielsen frá KR-Sport, Trausti Víg-
lundsson, Hörður Traustason og Ásgeir Víglundsson.
Gatnaframkvæmdir
í Flugumýri
Mosfellsbær
í IÐNAÐARHVERFINU við
Flugumýri í Mosfellsbæ eru
að hefjast gatnaframkvæmd-
ir, en þar er verið að bæta við
nýjum botnlanga með sex lóð-
um. Lóðirnar eru 2.000 til
3.000 fermetrar að stærð og
hafa allar verið seldar undir
iðnaðar- og verktakastarf-
semi.
Tryggvi Jónsson, bæjar-
verkfræðingur í Mosfellsbæ,
segir að níu tilboð hafi borist í
útboði vegna gatnafram-
kvæmdanna.
Tilboðin voru á bilinu 11 til
19 milJjónir króna. Lægsta til-
boðið kom frá fyrirtækinu
Mottói ehf. og var gengið til
samninga við það.
I verkefninu felast jarð-
vegsskipti fyiTr götur og lagn-
ing lagna og er áætlað að
framkvæmdum ljúki 15. júní.
Endurskipulagning í bifreiðarekstri lögreglunnar
Þjónustustöð sett upp
í húsi V egagerðarinnar
Reykjavík
BÍLAMIÐSTÖÐ ríkislög-
reglustjórans og Lögreglan í
Reykjavík hafa tekið á leigu
húsnæði í eigu Vegagerðar
ríkisins í Borgartúni 5 þar
sem áður var starfrækt véla-
verkstæði Vegagerðarinnar.
Þar mun fara fram skoðun
lögreglubifreiða og almenn
umsýsla en ekki verður um
að ræða viðgerðarverkstæði
eins og það sem starfrækt
hefur verið fram til þessa við
Bíldshöfða á vegum Lög-
reglunnar í Reykjavík
Búist er við að starfsemi í
Borgartúni 5 hefjist eftir
næstu mánaðamót en Vega-
gerðin hefur sótt um hjá
byggingafulltrúa Reykjavík-
urborgar að fá að gera breyt-
ingar á húsnæðinu vegna
væntanlegrar starfsemi. M.a.
þarf að bæta við dyrum á
húsnæðinu og innrétta skrif-
stofuaðstöðu er uppfylli kröf-
ur um brunavarnir og fleira.
Leigusamningur til
þriggja ára
Húsnæðið er 300 fermetr-
ar að flatarmáli og skiptist
jafnt á milli bílamiðstöðvar
ríkislögreglustjórans og
Lögreglunnar í Reykjavík
sem og kostnaður vegna leig-
unnar.
I húsnæðinu verður m.a.
sjálfvirk þvottastöð sem ætl-
að er þjóna lögregluumdæm-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Leigusamningur lög-
reglunnar og Vegagerðar-
innar tók gildi um síðustu
áramót og gildir til ársins
2003.
Starfsemi þjónustustöðv-
arinnar er liður í endurskipu-
lagningu bifreiðareksturs
ríkislögreglustjórans sem er
skáður eigandi allra lög-
reglubifreiða í landinu, um
150 talsins, en endurskipu-
lagningin miðar m.a. að því
að breyta háum viðgerðar-
kostnaði á gömlum lögreglu-
bifreiðum í endurnýjunar-
kostnað. Þannig er áætlað að
með endurnýjunarátaki því,
sem stendur nú yfir hjá ríkis-
lögreglustjóranum, takist að
koma meðalaldri lögreglu-
bifreiða niður fyrir fimm ár á
næsta ári og endurnýja bif-
reiðirnar þaðan í frá mun ör-
ar en hingað til hefur verið
gert. Meðalaldur ökutækja
lögreglunnar nú er um níu ár
að bifhjólum meðtöldum.
Á síðasta ári voru endur-
nýjaðar 29 lögreglubifreiðir
en til samanburðar hafa að
meðaltali verið endurnýjaðar
12 bifreiðir undanfarin ár. Á
þessu ári er enn gert ráð fyr-
ir mikilli endurnýjun bifreiða
og reiknað með svigrúmi til
að endurnýja 35 bifreiðir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Bætt aðgengi að
lögreglustöðinni
Austurbær
AÐGENGI fatlaðra er nú að
taka stakkaskiptum við lög-
reglustöðina við Hverfisgötu.
Búið er að steypa brautir að
dyrum hússins að báðum inn-
göngum. Til hefur staðið í
nokkum tíma að lagfæra
tröppur hússins og var ákveð-
ið að gera aðgengi íyrir fatl-
aða um leið. I framhaldinu
verða tröppur hússins brotn-
ar upp og steyptar að nýju. Þá
verður settur hiti undir tröpp-
ur og brautir. Við aðrar dyrn-
ar er mikill bogi á brautinni,
sem stafar af því að ákveðin
viðmið eru til samkvæmt
reglum um leyfilegan halla á
slíkum brautum. Til þess að
hallinn yrði ekki of mikill varð
að setja brautina í stóran
boga.
Framkvæmdin mun nú
bæta aðgengi þeirra sem
sækja í lögreglustöðina, en
þangað þurfa margir að sækja
um vegabréf og ökuskírteini
og leita eftir ýmsu öðru.