Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Arney tók niðri í
Sandgerðishöfn
BÁTURINN Arney KE 50 tók
niðri í innsiglingunni við Sandgerði
klukkan hálf tvö aðfaranótt mánu-
dags og sat hann fastur þar í um
tvær og hálfa klukkustund. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Keflavík er ekki vitað
hvað olli óhappinu, en báturinn
losnaði af sjálfsdáðum um fjögur-
leytið, þegar flæða tók að.
Engan sakaði og segir lögreglan
að ekki hafi verið talið að hætta
væri á ferðum.
Farið var með Arney inn að
Sandgerði þegar hún losnaði og við
skoðun komu ekki í ljós neinar al-
varlegar skemmdir. Þó munu ein-
hverjar dældir hafa myndast á
botni bátsins og var farið með hann
til Njarðvíkur til viðgerðar.
Morgunblaðið/Einar Jónsson
Unnið að viðgerð eftir vestanrok á eyðibýlinu Leiti, Suðursveit. Ingi-
mar, Gunnhildur og Björgvin munda hamrana.
Sögufrægt fjárhús
skemmdist
Suðursveit - Vestan hvassviðri
gekk yfir Suðursveit 15. janúar
sl. sem og víða á landinu. Þótti þá
gömlu fjárhúsunum á Leitunum á
Jaðri sem þjónusta sín væri orðin
nógu löng og brotnuðu og sliguð-
ust ofan í hlaðna tóftina ásamt
hlöðu áfastri.
Engin skepna var þar innan
dyra sem betur fer.
Fjárhús þessi áttu sér merki-
lega sögu. Þau voru reist um
1929 og þóttu þá stærstu útihús í
sveitinni. Voru þau viðuð úr upp-
sláttartimbri frá Sóleyjargötu 7 í
Reykjavík sem þá var nýbyggt af
þeim svilum Helga H. Eirikssyni
og Sigfúsi M. Johnsen. Sendu þeir
mági sínum, sr. Jóni Péturssyni á
Kálfafellsstað, timbrið austur.
Morgunblaðið/Bjarni Gíslason
Frá hinu nýja íþróttahúsi á Stöðvarfirði.
Nýtt íþróttahiís
á Stöðvarfírði
Stöðvarfirði - Nýtt og glæsilegt
íþróttahús var tekið í notkun á
Stöðvarfirði laugardaginn 15. jan-
úar. Með tilkomu þess verður mikil
breyting á aðstöðu íbúa Stöðvar-
fjarðar til íþróttaiðkunar en fram
að þessu hafði leikfimikennsla far-
ið fram í samkomuhúsi staðarins
við mjög svo ófullkomnar aðstæð-
ur.
Fyrsta skóflustungan
tekin 24. janúar 1999
Ákvörðun um byggingu íþrótta-
hússins var tekin í október 1998 og
var fyrsta skóflustungan að nýja
húsinu tekin 24. janúar 1999.
Bygging hússins hófst nokkrum
vikum síðar. Burðarvirki hússins
eru límtréssperrur klæddar með
yleiningum frá Límtré hf. á Flúð-
um. Gólfefnið í íþróttasalnum er ís-
lensk framleiðsla, parketgólf fram-
leitt af fyrirtækinu Aldini hf. á
Húsavík og er þetta í fyrsta skipti
sem parket framleitt hér á landi er
notað í gólf í íþróttahúsi.
Verktaki að byggingu hússins
var Ævar Armannsson, húsasmíða-
meistari á Stöðvarfirði.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Brík BA 2 í sinni fyrstu siglingu, áleiðis frá ísafirði til heimahafnar á Bíldudal, um helgina.
30 tonna stálskip bæt-
ist í flota Bflddælinga
NÝR bátur bættist við fiskveiðiflot-
ann á Bíldudal um helgina, þegar
Brík BA 2 sigldi til heimahafnar.
Báturinn er 30 tonna stálskip og er
smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni á
ísafirði. Guðlaugur H. Þórðarson,
útgerðarmaður og skipstjóri báts-
ins, segir að siglingin frá Isafirði til
Bíldudals hafi gengið vel, enda veð-
ur með eindæmum gott á laugar-
daginn.
Hann segir að Brík hafi komið ág-
ætlega út og sér lítist vel á það sem
menn séu búnir að sjá og kynnast. í
framhaldinu verður haldið til veiða,
en báturinn hefur um 300 þorsk-
ígildiskvóta á rækju og bolfisk.
Lína, snurvoð, rækja
„Maður væri nú ekki að þessu ef
maður hefði ekki kvóta. Ég er að
fara á línu til að byrja með, þá á
snurvoð og síðan rækju. Það gengur
svona fyrir sig, árið.“
í áhöfn skipsins verða þrír á línu
og fjórir á snurvoðinni. Vertíðin er
nú í fullum gangi og mikil veiði hjá
mönnum, að sögn Guðlaugs. „Það
pTlír^SwiJpl!
íj h:~- 'viíWkl
- ,v .
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Guðlaugur H. Þórðarson, útgerðarmaður og skipstjóri, ásamt Hörpu
dóttur sinni. Nýi báturinn, Brík BA 2, í baksýn.
virðist nægur fiskur í sjónum, það verið eftir áramót. Það hefur
a.m.k. eins og er, og þannig hefur verið mjög gott hérna.“
Birkir íþróttamaður Vestmannaeyja
BIRKIR Kristinsson hefur verið út-
nefndur íþróttamaður Vestmanna-
eyja fyrir árið 1999. Þessi útnefning
er nú orðin sérstök athöfn í Vest-
mannaeyjum en ekki hluti af ársþingi
ÍBV á hverju ári.
Þetta var í 22. sinn sem þessi út-
nefning fer fram. Fyrir valinu nú
varð Birkir Kristinsson, markvörður
knattspymuliðs ÍBV og íslenska
landsliðsins. Birkir, sem er Eyja-
maður, var að leika sitt fyrsta ár fyrir
meistaraflokk ÍBV. Birkir á langan
og glæsilegan feril að baki og er vel
að titlinum kominn, enda að leika eitt
sitt allra besta tímabil og var einn af
burðarásum landsliðsins í knatt-
spyrnu sem átti góðu gengi að fagna
síðasta ár, segir í fréttatilkynningu.
Einnig völdu aðildarfélögin innan
ÍBV hvert sinn mann. Frá vinstri:
Daði Guðjónsson, sund, Guðni Davíð
Stefánsson, Ægi, Ólöf Elíasdóttir,
heiðruð fyrir iðkun íþrótta og störf
að íþróttamálum í Vestmannaeyjum,
Anna Björg Sigurbjömsdóttir, fim-
leikar, Birkir Kristinsson, knatt-
spyma, íþróttamaður Vestmanna-
eyja, Karl Haraldsson, golf, Ái'ni Óli
Olafsson, frjálsar (bróðir Árna Óla,
Guðjón Ólafsson, tók við viðurkenn-
ingunni), Kári Hrafnkelsson, KFS,
knattspyrna, Amsteinn Ingi Jóhann-
esson, IV, körfubolti (Borgþór Páls-
son tók við viðurkenningu fyrir hönd
Amsteins).