Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 25. JAN ÚAR 2000 19
Ragnar og Ásgeir
eingöngu með Volvo
RAGNAR og Ásgeir ehf., vöniflutn-
ingafyrirtækið í Grundarfirði, fékk
nýlega afhentan fyrsta Volvo-vöru-
bíl ársins hjá Brimborg. Er það
dráttarbíll af gerðinni FH 16 en FH
bílarnir hafa hlotið viðurkenning-
una vörubíll ársins 2000. Fyrirtækið
fær annan FH 16-bíl í næstu viku
og verður þá alls með 11 vörubíla í
rekstri, alla af Volvo-gerð.
Ragnar Haraldsson, sem rekið
hefur flutningaþjónustu um árabil,
segir, að þegar nýi bíllinn hafi bæst
við flotann verði fyi-irtækið með
átta FH-vörubíla, sem eru stórir
dráttarbílar, og síðan þrjá minni
bíla í flotanum. Þá verða þrír nýir
frystivagnar teknir í notkun á næst-
unni, 13,60 m langir, og er hægt að
opna 8 m gátt á hliðum þeirra. Segir
Ragnar vagnana bæði vera viðbót
og endurnýjun. Fyrirtækið flytur
einkum fisk milli kaupenda og selj-
enda víðs vegar um landið og segir
hann miklar sveiflur í þeim flutn-
ingum.
Reglur komnar út í öfgar
„Einn daginn erum við að flytja
40 tonn en þann næsta erum við
beðnir að flytja 140 tonn og þá er
eins gott að eiga nægan bflakost
með frystivögnum," segir Ragnar
og honum fmnst ný vinnutímatil-
skipun sem nær til bílstjóra hefta
mjög starfið í fyrirtæki sínu. „Það
má enginn vinna neitt lengur og
þessar reglur eru komnar í algjörar
öfgar með þröngum hvíldartímaá-
kvæðum og öðru. I vetrarferðunum
getum við þurft að bíða vegna um-
ferðartafa, ófærðar og veðurs og
þegar vinnutíminn er orðinn langur
verður allt í einu að hætta,“ segir
Ragnar og nefnir að ekki sé þá
leyfilegt að komast á áfangastað.
Hann nefnir einnig að dráttarbíl-
arnir séu búnir góðri svefnaðstöðu
og því geti bflstjórar hvflst þegar
ferðir gerast langar. „Þessar reglur
Morgunblaðið/ Sigurður Jónsson
Olil Amble
íþrótta-
maður
Arborgar
Selfossi - Olil Amble var kjörin
íþróttamaður Árborgar fyrir
árið 1999. Tilnefningin er á veg-
um íþrótta- og tómstunda-
nefndar Árborgar og fór fram á
sérstökum hátíðarfundi. A
þessum fundi eru einnig veittar
viðurkenningar til þeirra sem
hljóta tilnefningu til kjörsins og
styrkveitingar ráðsins afhent-
ar.
Olil Amble keppir í hesta-
íþróttum og náði mjög góðum
árangri á síðastliðnu ári, varð
meðal annars heimsmeistari í
fjórgangi. Það var Kiistján
Einarsson forseti bæjarstjórn-
ar sem afhenti Olil veglegan
grip til varðveislu.
Á myndinni eru Kristján
Einarsson forseti bæjarstjórn-
ar, Olil Ambel og Sigmundur
Stefánsson umsjónarmaður
íþróttamála Árborgar.
eru mjög takmarkandi fyrir starf-
semi eins og við rekum og við höfum
orðið að bregðast við með því að
fjöjga bflstjórum."
I niðurstöðu dómnefndar um
vörubíl ársins segir að Volvo FH sé
öruggur bíll og hagkvæmur í
rekstri og er hann talinn í farar-
broddi meðal vörubfla. Alls hafa
selst um 150 þúsund slíkir bflar frá
því framleiðslan hófst árið 1993. Þá
er Volvo talinn vera hagkvæmasti
vörubfll í Evrópu samkvæmt niður-
stöðum vörubílatímarita í Evrópu.
Alls tóku bflar frá átta framleiðend-
um þátt í prófun þar sem vörubflum
var ekið frá Antwerpen í Belgíu til
Mílanó á Italíu, um 1.800 km vega-
lengd. Mæld var eldsneytisnotkun,
hraði og þyngd og fékk Volvo FH 12
flest stig fyrir hagkvæma eldsneyt-
isnotkun svo og flest heildarstig.
Fulltrúar Brimborgar afhenda Ragnari og Ásgeiri ehf. tíunda Volvo
vörubílinn, dráttarbíl af gerðinni FH16. Frá vinstri Jóhann Jóhannsson,
Ragnar Haraldsson, Egill Jóhannsson og Ásgeir Ragnarsson.
Nýr stciður fyrir
notaða bíia