Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Tollkvótum úthlutað vegna innflutnings á ostum og kjöti
Engin spurn var
eftir svínakjötskvóta
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
úthlutaði nýlega tollkvótum til fyrir-
tækja sem gerðu tilboð í osta- og
kjötkvóta fyrir tímabilið janúar-júní
árið 2000. Tollkvóti felur í sér tiltekið
magn af vöru sem flutt er inn á lægri
tollum en gilda í tollskrá.
Að sögn Ólafs Friðrikssonar,
deildarstjóra hjá landbúnaðarráðu-
neytinu, sóttu mun fleiri um en und-
anfarin ár og tilboðin sem bárust
voru yfirleitt hærri en áður sem hann
segir vera í takt við aukna eftirspurn.
Að þessu sinni bárust ekki tilboð í
tollkvóta vegna innflutnings á svína-
kjöti. Ólafur segir ástæðuna vera
lækkandi verð á svínakjöti hérlendis
á undanförnum árum og segir að ís-
lenskir sínakjötsframleiðendur séu
orðnir fyllilega samkeppnisfærir við
erlenda framleiðendur.
Aukning á tilboðum
vegna unninna kjötvara
Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna
innflutnings á nautgripakjöti eða
35.000 kíló á meðalverðinu 18 krónur
á kíló. Það var fyrirtækið Dreifing
ehf. sem fékk stærstan hluta kvótans
eða 20.000 kíló.
Þá bárust fimm tilboð í innflutning
á alifuglum, samtals 35.100 kg á með-
alverðinu 31 krónur á kíló. Það var
einnig fyrirtækið Dreifing ehf. sem
fékk stærstan hluta af þessum kvóta
eða 17.100 kfló.
Þrjú tilboð bárust í innflutning á
öðru kjöti en það er hreindýrakjöt og
strútakjöt. Alls var um að ræða 3.200
kfló á meðalverðinu 167 krónur á
kfló.
Töluverð aukning er á tilboðum í
tollkvóta vegna innflutnings á unn-
um kjötvörum og alls bárust 13 tilboð
að þessu sinni í samtals 179.835 kfló.
Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækj-
um um innflutning á 39.600 kflóum á
meðalverðinu 236 krónur á kfló. Ólaf-
ur segir að eftirspumin hafi aukist
hraðar en stækkun kvótans. I upp-
hafi var kvótinn 52 tonn á ári en nú er
hann 79,2 tonn á ári. Á næsta ári
verður hann 86 tonn. Ólafur segir að
undir unnar kjötvörur falli ýmsar
unnar kjötvörur eins og t.d. svokall-
aðir „nuggets" kjúklingabitar, paté,
forsteikt kjöt, kryddað og tilbúnir
réttir. í þessum tollflokki var Dreif-
ing ehf. með stærstan hluta eða
18.500 kfló.
Ostakvótinn dreifist
meira en síðast
Að lokum bárust 10 tilboð í toll-
kvóta vegna innflutnings á ostum,
samtals 139.950 kfló. Tilboðum var
tekið frá fimm fyrirtækjum um inn-
flutning á 54.400 kílóum á meðal-
verðinu 179 krónur kflóið. Ólafur
bendir á að þetta sé töluverð breyt-
ing frá því tollkvóta á ostum var síð-
ast úthlutað. Þá fékk Baugur nánast
allan kvótann en dreifingin er meiri
núna þótt Osta- og smjörsalan hafi
fengið 34.000 kfló af honum.
Morgunblaðið/Sverrir
Mest var eftirspurnin eftir tollkvóta í flokknum unnar kjötvörur
Nýtt
Svið verkuð
með gömlu
aðferðinni
HAGKAUP hefur hafið sölu á
hreinsuðum sviðum frá KS á Sauðár-
króki. í fréttatilkynningu frá Hag-
kaupi kemur fram að sviðin séu frá-
brugðin að því leyti að þau eru
verkuð með „gömlu aðferðinni", en
hún fer þannig fram að kósangas er
notað við að svíða hausana og þeir
sviðnir í lengri tíma en með gasi og
súr. Sviðahausarnir eru á sérstöku
tilboðsverði eða 299 krónur kflóið.
Kalk fyrir beinin!
OApótekp SmáVetorfii • Apóteki' Spðnginni
Apftifijýj Krineiofíii! * Apóifiki* SmHovegi
Apðteki> Su'urstrðnrt • Apóteki' bufeiii
Apöteki* Hagkeup Skeífunni
Apótoki- Hsgkéup Akiireyri
Hftfnarfjsnai Apófek
Cheez-it
Crackers
CHEEZ-IT snakk er nýtt á íslenska
markaðnum. Á boðstólum eru fimm
mismunandi tegundir, allt undir
Cheez-it vörumerkinu.
Þessar tegundir eru Cheez-it Big
397g, Cheez-it Nacho 425g, Cheez-it
White Cheddar 283g, Cheez-it Hot &
Spicy 283g og Cheez-it Party Mix
283g.
www.creatine.is
Ljósmyndir á
myndgeisladisk
H JÁ Hans Petersen er nú í boði að
fá myndir sínar settar á geisladisk
þegar komið er með filmu í framköll-
un. Þegar komið er með filmu í fram-
köllun á Kodak Royal pappír er hægt
að fá 24 myndir settar á mynd-
geisladisk.
Hver diskur hefur að geyma forrit
til að skoða myndimar, færa yfir í
önnur forrit, senda beint sem tölvu-
póst, prenta út, laga liti og lýsingu,
útbúa myndaalbúm o.fl. Disknum
fylgir einnig skjáhvflir og möguleiki
til skjámyndasýningar, segir í frétta-
tilkynningu.
Hver mynd er vistuð í 5 mismun-
andi upplausnum, sem henta ýmist
til þess að senda myndir í.tölvupósti,
setja myndir á Netið eða prenta út
mynd á heimilisprentara. Stærsta
skráin er 5 Mb og er því hægt að
prenta út mynd í 10x15 cm í fullum
gæðum.
uöovanoiga?
Hofuöverkur ?
BlOflex seeulmeóferð hefur slegið í
ræða seguípynnur í 5 stærðum sem
húðvænum plástri.
Dæmi þar sem BlOflex
segulþynnan hefur sýnt
frabær áhrif
egn á íslandi. Um er að
r eru á líkamann með
riiHirm
Ég hef kvalist af höfúðverk
og vöðvabólgu í hnakka í
mörg ár, reynt flest sem í
boði er án árangurs.
Ótrúlegt en satt að tvær
segulþynnur geti breytt
öllu. Mæli svo sannarlega
með þeim.
Kristjana Kristjánsdóttir, nemi
Höfuðverkur
• Hnakki
• Axlir
• Tennisolnbogi
• Bakverkir
• Liðaverkir
• Þursabit
• Hné
• Æðahnútar
• Ökklar
Segulþynnurnar eru fáanlegar
í flestum lyfjaverslunum,
Heilsuhúsinu, Yggdrasil og
Græna Torginu - Blómavali
ítarlegar íslenskar leiðbeiningar
ií á
Upplýsingasími er 588 2334
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Nýkaups.
Umfjöllun um Nýkaup í
bandarísku tímariti
Endurhönnun í
takt við breyttar
neysluvenjur
AUKIN samkeppni og þarfir
neytandans hafa orðið til þess að
smásalar á flestum sviðum versl-
unar hafa í auknum mæli ráðist í
útlitsbreytingar verslana sinna,
hvort sem er í stórum keðjum
matvöruverslana, vöruhúsum eða
sérvöruverslunum.
Vaxandi þörf neytandans fyrir
þægindi hefur leitt til þess að
áhersla er nú lögð á opnar og að-
gengilegar einingar og er mat-
vörutegundum blandað meira
saman í uppröðun en áður. Stór-
markaðir hafa margir hverjir ráð-
ist í algjöra endurhönnun tfl þess
að gefa tilbúnum matvælum, heit-
um sem köldum, aukið rými í
versluninni í takt við breytingu á
neysluvenjum fólks.
Frá þessu er sagt í bandaríska
tímaritinu Retail Operations &
Constructions, og þessu til stuðn-
ings er m.a. tekið dæmi um breyting-
arnar á Nýkaupsverslununum í
Reykjavík.
Tekið tillit til breytinga
á neysluvenjum
Finnur Amason, framkvæmda-
stjóri Nýkaups, segir að með endur-
hönnun Nýkaupsbúðanna hafi verið
tekið tillit til þeirrar þróunar sem
hefur orðið í neysluvenjum á mat og
þar með sé verið að fylgja eftir þróun
matvöruverslana í Bandaríkjunum
og í nágrannalöndunum þar sem
aukin áhersla er lögð á skyndibita og
hálftilbúinn mat. „Á sama tíma eru
neytendur orðnir meðvitaðri um
gæðaþætti og ferskleika matvæla og
sinnum við þeim þáttum t.a.m. með
þeirri áherslu sem við leggjum á
ferskt grænmeti, auk þess að vera
með bakarí inni í búðinni," segir
Finnur.
Hann segir að hluti af þessari þró-
un sé að auðvelda viðskiptavininum
að versla og jafnvel að búa til n.k.
lausnir á því hvað hann ætlar sér að
versla. „Viðskiptavinir vilja vera
fljótir að versla og hægt er að létta
þeim það með því að gefa þeim hug-
myndir, t.a.m. með því að raða upp
hlið við hlið mjólk og morgunkorni,
Fixturíng with a fresh uision
From departmení storcs to supermarkets, retaðers wani
pcrmanent fixtures vrith functkm, flcdbitity and styie
pasta og pastasósum eða salati, ólív-
um og dressingu, líkt og hefur reynst
mjög vinsælt hjá okkur.“
Alþjóðleg matargerð
sífellt vinsælli
Hann bendir jafnframt á að al-
þjóðleg matargerð eigi sífellt meir
upp á pallborðið hjá íslendingum
sem fleirum. „Sérstaklega hefur ind-
versk, kínversk, ítölsk og mexíkósk
matargerð notið mikilla vinsælda og
höfum við lagt töluverða áherslu á
hráefni til þessarar matargerðar og
þá sérstaklega í Nýkaupi í Kringl-
unni.“
Hann segir að í þeini búð sé jafn-
vel gengið skrefi lengra í átt til þess
að bjóða viðskiptavinum upp á til-
búinn mat því inni í búðinni séu kaffi-
hús, pizzugerð og smurbrauðsstofa.
Hönnuðirnir sem endurskipulögðu
Nýkaupsverslanirnar eru banda-
rískir og hafa að sögn Finns hlotið
viðurkenningu fyrir störf sín víða um
heim. Hann segir þá afar ánægða
með niðurstöðurnar. Aðspurður seg-
ist hann almennt fá jákvæð viðbrögð
frá viðskiptavinum varðandi breyt-
ingar þótt það taki að sjálfsögðu
tíma fyrir fólk að læra á búðina að
nýju eftir breytingar.
leiðbeinandi
MARKm/ð/i/n ehf.
námskeið til árangurs
*Þú getur gert, átt eða verið það sem þú vilt
Frábær námskeið í sjálfsrækt og markmidaselningu
■ ■ ^ JK r m m^ m Brian Tracy m
Naðu arangri og Phoemx
Kynningarfundur á Hótel Loftleiðum haldinn miðvikudaginn 26. janúar kl. 20
Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 27. janúar kl. 18
www.markmidlun.is s.896 5407
markmidlun@markmidlun.is MARKmöw Upplýs. og skráning