Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 29
LISTIR
Leikhópurinn Perlan á gdðri stundu. Morgunblaðið/Kristinn
Leikhópurinn Perlan
fær fastan samastað í Iðnó
LEIKHÓPURINN Perlan hefur fengið sama-
stað fyrir sýningar sínar í Iðnó. Mun leikhóp-
urinn sýna þar reglulega í framtíðinni. Meðal
gesta á sýningum hópsins á þessu ári verður
Björk Guðmundsdóttir söngkona.
Að sögn Önnu Maríu Bogadóttur, kynning-
arfulltrúa Iðnó, eru sýningar hópsins kær-
komin viðbót við ijölbreytta starfsemi hússins.
„Með sýningum Perlunnar í Iðnó gefst al-
menningi kostur á að sjá einlæga og hrífandi
Ieiktúlkun Perluleikara og um leið verða lista-
mennirnir sýnilegri í þjóðfélaginu."
Leikhópurinn Perlan er skipaður fullorðnu
þroskaheftu fólki sem hefur það að markmiði
að sýna opinberlega.
Hópurinn kom fyrst fram árið 1982 og hef-
ur margoft sýnt í sjónvarpi, á ráðstefnum, hjá
félögum og félagasamtökum, styrktarskemmt-
unum og listahátíðum. Einnig hefur hópurinn
farið í Qölmargar leikferðir til útlanda.
„Perluleikarar hafa hvarvetna vakið athygli
fyrir einlægan hrífandi og fallegan leik og má
segja að þau hafi með sérstæðri listsköpun
sinni bætt við nýjum lit í litróf listanna," segir
Anna María. Sigríður Eyþórsdóttir, leikkona
og kennari, er umsjónarmaður Perlunnar og
listrænn leiðbeinandi. Björk Guðmundsdóttir
er verndari Perlunnar.
Sýningar Perlunnar í Iðnó í ár verða í maí
og desember og eru þær hluti af dagskrá
Reykjavíkur, menningarborgar Evrópu árið
2000. Kallast sýningin, sem samanstendur af
þremur verkum, Þrjár perlur. Sigríður Ey-
þórsdóttir leikstýrir öllum verkunum og tón-
Iistarmenn og búningahönnuðir taka þátt í
þeim.
Boðið til
evrópskr-
artón-
iistar-
hátíðar
TÓNLISTARHÁTÍÐIN
EUROPAMUSICALE 2000
verður haldin í Tékklandi,
Ungverjalandi, Póllandi og í
ellefu þorpum í Bæjaralandi
dagana 18. júní - 31. júlí næst-
komandi.
Hátíðin, sem nú er haldin í
annað skipti, var fyrst haldin í
Munchen 1993, en þá kynntu
rúmlega þrjátíu evrópskar sin-
fóníuhljómsveitir tónlistarhefð
landa sinna.
Áhersla á fjölbreytileika
kammertónlistar
í ár verður lögð áhersla á
fjölbreytileika evrópskrar
kammertónlistar sem, að því er
segir í fréttatilkynningu EUR-
OPAMUSICALE, er talin hafa
haft mikil áhrif á tónlistarþró-
un. Þá verður einnig lögð sér-
stök áhersla á tónlist 20. aldar-
innar.
Fjöldi einleikara, hljóðfæra-
sveita og kóra mun koma fram
á hátíðinni að þessu sinni og
kynna, líkt og áður, tónlist síns
lands.
Verkefnisstjóri EUROPA-
MUSICALE 2000 er prófessor
Siegfried Mauser, tónlistar-
fræðingur og píanóleikari frá
Þýskalandi.
Trúnaðarmannaráðstefna BSRB
verður haldin á Grand Hótel Reykjavík
31. janúar nk. kl. 10.00-17.00.
Munið að skrá ykkur á ráðstefnuna t
á skrifstofum félaganna.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
Sími: 562-9233
Netfang: strv@bsrb.is
STARFSMANNAFELAG
RÍKISSTOFNANA
Starfsmannafélag ríkisstofnana
Sími: 562-9644
Netfang: sfr@bsrb.is