Morgunblaðið - 25.01.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 35
Alþjóðadagur í
háskólanum
Morgunblaðið/Kristinn
Alþjóðadagar Háskólans verða í Odda og Lögbergi.
NÆSTKOMANDI fímmtudag, 27.
janúar, verður haldinn alþjóðadag-
ur við Háskóla íslands í ODDA
fyrir íslenska stúdenta sem huga á
nám erlendis eða taka þátt í stúd-
entaskiptaáætlunum eins og
ERASMUS, NORDPLUS og IS-
EP. Dagskráin byggist á þátttöku
erlendra skiptistúdenta sem
kynna tilhögun náms í eigin landi
og sitja fyrir svörum. Islenskir
stúdentar sem þegar hafa tekið
þátt í stúdentaskiptum halda stutt
erindi í Lögbergi 12—13 og í Odda í
stofu 201 frá 16-17.
Alþjóðaskrifstofa háskólastig-
sins, Landsskrifstofa Leonardó,
Fulbright stofnun, SÍNE og LÍN
dreifa kynningarefni. Alþjóðadeg-
inum lýkur með skemmtun fyrir
stúdenta í stúdentakjallaranum.
Að alþjóðadeginum standa Al-
þjóðaskrifstofa háskólastigsins,
Stúdentaráð Háskóla íslands, og
Landsskrifstofa Leonardó.
Inngangsorð flytja Karítas
Kvaran og Ragnhildur Zoega.
Reynslusögur af stúdentaskipt-
um verða fluttar í Lögbergi 101 frá
12-13:
Gunnlaugur P. Erlendsson lög-
fræði, Erasmus nemi í Löven
Belgíu, Sólrún Engilbertsdóttir
mannfræði, Nordplus nemi í
Kaupmannahöfn, Sigrún Kvaran
mannfræði, Erasmus nemi í Kaup-
mannahöfn, Nökkvi Pálmason
verkfræði, Leonardó starfsþjálfun
hjá Siemens Þýskalandi, Atli Már
Ingólfsson lögfræði, MAUI nemi í
Baylor Texas, Bandaríkin.
Reynslusögur af stúdentaskipt-
um verða fluttar í Odda 201 frá 16-
17:
Pálína Dögg Helgadóttir mann-
fræði, Erasmus nemi á Spáni, As-
dís Friðriksdóttir lyfjafræði,
Erasmus nemi á Spáni, Sigurbjörg
Sigurjónsdóttir lögfræði, Leo-
nardó starfsþjálfun í Luxemborg,
Anna Hjartardóttir stjórnmála-
fræði, ISEP nemi í Bandaríkjun-
um, Vala Ingimundardóttir við-
skiptafræði, ISEP nemi í
Bandaríkjunum, Gunnar M. Pet-
ersen, viðskiptafræði í Ástralíu og
Elva Gísladóttir, líffræði í Ástral-
íu.
Eftirtaldir aðilar verða með
kynningarborð:
Alþjóðaskrifstofa háskólastig-
sins, Fulbright stofnunin - Mennt-
astofnun Islands og Bandaríkj-
anna, Samband _ íslenskra
námsmanna erlendis SINE, Lána-
sjóður íslenskra námsmanna
Nám í Bandaríkjunum
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á laugardaginn verður op-
in námsmannaráðstefna haldin í
Lögbergi Háskóla Islands á morg-
un kl. 16-18:30. Hún er öllum opin,
en er einkum ætluð Hún er öllum
opin en er einkum ætluð stúdent-
um á háskólastigi sem hyggja á
framhaldsnám í Bandaríkjunum.
Nemar úr framhaldsskólum sem
áhuga hafa á háskólanámi utan Is-
lands eru einnig velkomnir^
Ráðstefnan er á vegum Islensk-
ameríska félagsins, Áiþjóðaskrif-
stofu háskólastigsins og Ful-
brightstofnunarinnar í tengslum
við ofangreinda Alþjóðadaga Há-
skóla íslands. Tilgangur ráðstefn-
unnar er að miðla hagnýtri reynslu
fólks sem stundað hefur nám í
Bandaríkjunum og starfar nú á
ýmsum sviðum íslensks atvinnu-
lífs. Meðal þeirra spurninga sem
fjallað verður um á ráðstefnunni
er hvaða augum atvinnulífið lítur
nám í Bandaríkjunum, hvernig
það nýtist, hvernig er að hefja nám
í Bandaríkjunum, hvað þarf að
hafa í huga við ákvarðanatöku og
hvar hægt er að leita upplýsinga.
Áhugi á námi í Bandaríkjunum
virðist fara vaxandi og núna í ár
stunda um 600 Islendingar nám í
Bandaríkjunum. Eru það fleiri ís-
lenskir námsmenn en í Danmörku
sem hingað til hefur verið vinsæl-
asta námsland íslendinga.
skólar/námskeið
ýmislegt
■ FULLORÐINSFRÆÐSLAN
SCHOOL OF ICELANDIC,
GERÐUBERGI 1, 3. hæð R.
Að hefjast: UNDIRBÚNINGSNÁM
FYRIR INNTÖKUPRÓF í ATVINNU-
FLUG í STÆ, EÐL.
Námskeið fyrir grunnskóla og SAM-
RÆMDU PRÓFIN í STÆ, DAN, ENS.
Námskeið og námsáfangar kl. 1830 eða
20: ENS I, n, n, ENS 102, DAN I, DAN
102, SPÆ 103, FRA 103, ÞÝS 103. Tölv-
ugrunnur: kl. 13—14.20. Námsaðstoð
fyrir framhaldsskóla f flestum greinum og
námskeið og námsaðstoð fyrir háskóla í
t.d. STÆ 1A, 1B, 1C, EÐL o.fl. Hrað-
námskeiðin "ICELANDIC" I og II:
fyrstu 4 og 6 vikna námskeiðin eftir jól
hefjast mán. 31. jan. kl. 9—11.45.
(Sxviku) eða 18.30-19.50 (3xviku).
Skráning s. 557 1155.
|nudd
■ www.nudd.is
_______myndmennt____________
■ Keramiknámskeið
í Gallerí Kóbolt
Námskeiðin hefjast í febniar.
Upplýsingar gefur Brita Berglund í símum
552 6080 og 562 4841.
tungumái
■ Þýskunámskeið Germaníu
eru nýhafin. Boðið er upp á byrjendahóp,
fjóra framhaldshópa og tvo talhópa.
Upplýsingar í símum 551 0705
(kl. 16.30-17.45, símsvari kl. 12.00-22.00)
og 894 4145. Enn er hægt að bæta við
nemendum í alla hópa.
Endurtekin vegna mikiilar eftirspurnar
Þekkingarstjórnun
Námskeiö haldið mánud. 21. og þriðjud.22. febrúar.
Þekkingarstjórnun eflir vinnustaöinn með því að varðveita
betur þekkingu sem verður til við dagleg störf. Á
námskeiðinu er farið yfir ieiðir til að efla og miðla þekkingu
á vinnustað. Nánari upplýsingar í síma 564 4688. Netfang:
skipulag@vortex.is
Minnum einnig á námskeiðin
Inngangur að skjalastjórnun
haldið 7. og 8. febrúar
Skjalastjórnun 2; skjöl í
gæðaumhverfi
haldið 14. og 15. febrúar
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
Menntaáætlun Sókratesar
SÓKRATES-menntaáætlun:
Minnt er á umsóknarfresti
SÓKRATES-verkefna sem er 1.
mars 2000.
Miðstýrð verkefni
COMENIUS
Samstarfsverkefni a.m.k.
þriggja stofnana frá ESB/EES-
löndum við að koma á fót endur-
menntunarnámskeiðum fyrir kenn-
ara.
Grundtvig - fullorðinsfræðsla -
samstarfsverkefni a.m.k. þriggja
stofnana frá ESB/EES-löndum.
Mínerva - opið nám og fjamám -
samstarfsverkefni a.m.k. þriggja
stofnana frá ESB/EES-löndum að
koma á opnu námi og fjarnámi.
Landsstýrð verkefni
COMENIUS (Lingua B) - end-
urmenntun tungumálakennara.
Styrkir eru veittir til að sækja end-
urmenntunarnámskeið í 2-4 vikur.
Gagnkvæmar
nemendaheim-
sóknir - sam-
starfsverkefni
tveggja skóla
frá ESB/EES-
löndum.
COMENIUS
(Lingua E) - nemendaskiptaverk-
efni, þar sem tveir skólar skiptast á
heimsóknum minnst 2 vikur a.m.k.
10 nemendur í hóp og vinna sam-
eiginlega að verkefni.
COMENIUS
Samstarfsverkefni a.m.k.
þriggja skóla á leik-, grunn- og
framhaldsskólastigi frá jafnmörg-
um ESB/EES-löndum.
COMENIUS (Lingua C) - að-
stoðarkennsla.
Skólar geta sótt um að fá er-
lendan aðstoðarkennara fyrir
skólaárið 1999/2000. íslenskir
grunn- og framhaldsskólai' sækja
um að fá aðstoðarkennara frá e-u
ESB-landi. Umsóknarfrestur
rennur út 15. febrúar.
Alþjóðaskrifstofa háskólastigs-
ins minnir á alþjóðadag'kynningu á
stúdentaskiptum fimmtudaginn 27.
janúar í Odda frá kl. 12-17. Erlend-
ir skiptistúdentar taka þátt í kynn-
ingunni auk þess sem íslenskir
stúdentar segja frá reynslu sinni.
Nánari upplýsingar og aðstoð við
umsóknir sími: 525 4311 ask@hi.is,
Nýtt efni á bókasafni
Nýtt efni á bókasafni Euro Info
Centre:
1. Euro Info Centre netið -
Evrópa styður við lítil og meðalstór
fyrirtæki.
2. Best Business Web Sites -
October 1999
3. Eurostat Yearbook - A statist-
ical eye on Europe. Data 1987-
1997.
Nánari upplýsingar í síma 511
4000 eða netfang: www.icetrade.is
Nýjar bækur
KENNSLUBÓKIN Tólf sporin,
andlegt ferðalag er komin út. Út-
gefandi er Vinir í bata á Islandi.
Þýðing er eftir Margréti Eggerts-
dóttur.
Bókin er sjálfshjálparbók sem
byggist á kenningunni um sporin
12 sem AA-samtökin hafa notað.
Markmiðið er að fólk með „skadd-
aðar tilfinningar“ noti hana eða
þeir sem eru að leita sér hjálpar
til að ná tökum á lífi sínu. Bókin er
ætluð sem handbók fyrir þá sem
eiga í erfiðleikum með að fóta sig í
tilverunni og lifa lífinu í gleði og
fullri gnægð eins og þeir eru
skapaðir til.
Höfundar bókarinnar nálgast
batann eftir viðurkenndum tólf-
sporaaðferðum en þeir hafa líka
skilning á andlegu hliðinni og
kristnum rótum tólf-sporanna og
þeir viðurkenna Jesú Krist sem
sinn æðri mátt.
Efnið er fyrst og fremst ætlað
fullorðnum sem í uppvexti sínum
hafa orðið fyrir neikvæðum áhrif-
um af umhverfi sem hvorki var
uppbyggjandi né nærandi.
Bókin er skipulögð sem vinnu-
bók. Hún er með markvisst upp-
byggðar spurningar og fólk fetar
sig eftir tólf sporunum sem þekkt
eru hjá AA-samtökunum. Oft eru
myndaðir hópar sem kallaðir eru
fjölskylduhópar. Þar verður oft
trúnaður og traust, umhyggja og
kærleikur. I þessu umhverfi lærir
fólk að takast á við vankanta sína,
það sem aflaga hefur farið í lífinu
og vinna sig hægt og rólega út úr
því. Bókin er í raun markviss
kennslubók til enduruppbygging-
ar einstaklingsins.
Tólf sporin
„Vinir í bata á íslandi eru lítill
hópur fólks sem fékk þessa bók í
hendur og sá að hún var gott
verkfæri til þess að hjálpa þeim
mörgu, sem eiga í erfiðleikum
með að fóta sig í tilverunni og lifa
lífinu í gleði og fullri gnægð eins
og Guð hefur skapað okkur til,“
segir í inngangi.
SKIPULAG & SKJÖLehf
SKJALASTJÓRNUN - ÞEKKINGARSTJÓRNUN
Alfa Kristjánsdóttir og Sigmar Þormar
Hamraborg 1 - 200 Kópavogi - Sími 5644688 - Fax 5644689
skipulag@vortex.is
Les allar tegundir greiöslukorta
sem notuö eru á íslandi.
Er meö lesara fyrir
snjallkort og segulrandarkort.
Hraövirkur hljóðlátur prentari.