Morgunblaðið - 25.01.2000, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 43
UMRÆÐAN
Barnahús - ein-
stakt úrræði
MIKIÐ hefur verið
ritað að undanförnu
um þá stöðu sem kom-
in er upp vegna nýt-
ingar á Barnahúsi
vegna meintra kyn-
ferðisafbrota gagnvart
börnum.
Með tilkomu Barna-
hússins voru hags-
munir barna og fjöl-
skyldna þeirra hafðir í
fyrirrúmi þegar tekið
var á jafn alvarlegu
máli og aðstæðum og
kynferðisleg misnotk-
un er.
Með tilkomu Barna-
hússins var rannsókn-
arferli í þessum málum einfaldað
mjög.
Þverfaglegt samstarf var haft að
leiðarljósi og stuðlað að því að allt
umhverfi væri börnum afar vinsa-
mlegt.
Aður en Barnahús kom til var
það ferli sem börn þurftu að ganga
í gegnum eitthvað á þessa leið: 1.
Lögreglan fékk málið, hún yfir-
heyrði barnið.
2. Barnaverndarnefnd og starfs-
menn könnuðu málið - ræddu við
barnið.
3. Dómarinn fékk málið - ræddi
við barnið.
4. Skoðun á sjúkrahúsi.
5. Reynt að finna meðferðarúr-
ræði við hæfi bæði fyrir foreldra
og barn.
Frá þessum gangi á milli Pon-
tíusar Pílatusar og Heródesar var
horfið, - til hagsbóta fyrir barnið -
þolandann í málinu og Barnahús
var stofnað.
Allir aðilar komu að málinu á
einum og sama staðnum, hvort sem
um var að ræða barnaverndar-
starfsmann, rannsóknarlögreglu,
dómara eða aðra sérfræðinga. Að-
stæður í Barnahúsi bjóða upp á
vinsamlegt og sérútbúið viðtalsher-
bergi þar sem rætt er við barnið,
en sérþjálfaður starfsmaður ræðir
við það, allir aðilar máls geta hlust-
að og beðið starfsmann að bæta við
spurningum, sé þörf á slíku.
Barnahús er nú fyrirmynd um
alla Evrópu og eitt fyrsta sinnar
tegundar í Evrópu. Hingað koma
margir sérfræðingar
til þess að kynna sér
málin og sérfræðingar
Barnaverndarstofu og
Barnahúss eru kallað-
ir utan til þess að
segja frá þessu fyrir-
komulagi og starfinu,
sem er til fyrirmynd-
ar að mínu mati.
Með þeim breyting-
um sem nú hafa verið
gerðar, eru fyrstu við-
töl við börnin tekin í
Héraðsdómi, og
hvernig skyldi börn-
um llða að ganga inn í
það stóra hús, í stað
venjulegs íbúðarhúss í
venjulegu íbúðarhverfi? Hættan
við þessar breytingar er auðvitað
sú að börn þurfi á nýjan leik að
ganga Heródesar/Pílatusar-göng-
una, sem getur ekki verið neinu
barni til góðs.
Mikið og gott samstarf hefur
verið milli Barnahúss og Barna-
spítala Hringsins og þeirra sérf-
ræðinga. Börn voru skoðuð í
Barnahús
Með tilkomu Barna-
hússins, segir Guðrún
Ögmundsdóttir, var
rannsóknarferli í kyn-
ferðisafbrotum gegn
börnum einfaldað mjög.
Barnahúsi, en verða nú skoðuð á
spítalanum eins og áður var. Því
spyr ég: Hvers vegna erum við að
taka mörg skref afturábak í stað
þess að leysa þetta mál með hags-
muni og aðstæður barna í huga?
Að mínu mati er þetta mál einungis
til þess að leysaá farsælan hátt
með hagsmuni barna í huga og ef
til þess þarf lagabreytingar, á Al-
þingi að gera þær.
Málið er ekki flóknara en svo.
IJöfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Guðrún
Ögmundsdóttir
Losnaðu við fituna
úr fæðunni!
Fat Binder er 100% náttúrulest faeðubótar-
efni sem bindur sis við fitu í meltinsarvesinum
os hindrar að líkaminn nýti sér hana. Fitan
sem þannig er bundin skilst út úr líkamanum
en meltist ekki og þú grennist.
20% afsláttur í öllum verslunum LyOu á meðan
kynningu stendur.
Cb LYFJA
Lágmúla, Reykjavík
Setbergi, Hafnarfirði
Hamraborg, Kópavogi
Grindavík
WBPltiCíass
jj) PHARMANOTRIENTS-
ÞREKRAUN EHF.
FEILSMÚIA 24, SlMI: 553 5000
Úr dagbók lögreglunnar
Hraðakstur, óhöpp
og innbrot
21. til 24. janúar
BLÍÐSKAPARVEÐUR var f
Reykjavík um helgina og voru marg-
ir á ferli í miðbænum að næturlagi.
Ekki úrðu mikil vandræði en þó bar
nokkuð á innbrotum, umferðarlaga-
brotum og óhöppum, einnig var til-
kynnt um tvær líkamsárásir.
Aðfaranótt laugardags var fremur
liflegt yfirbragð í miðborginni án
teljandi vandræða. Ekki var sér-
staklega margt fólk á ferð en umferð
talsverð. Eitt ungmenni var fært í
athvarf. Biðraðir voru við marga
skemmtistaði milli kl. þrjú og hálf-
fimm og kl. fimm var enn röð við tvo
staði. Tilkynnt var um minniháttar
líkamsárás og tvær rúður brotnar.
72 teknir við of hraðan akstur
Ellefu ökumenn voru grunaðir um
ölvun við akstur um helgina og 72
stöðvaðir við of hraðan akstur. 21
hafði ekki ökuskírteini meðferðis og
22 notuðu ekki bílbelti við akstur. A
laugardagsmorgun tilkynnti vegfar-
andi að mikil hálka væri á Gullinbrú
og að nokkrir ökumenn hefðu misst
stjóm á bifreiðum sínum, án þess þó
að tjón hlytist af. Ökumaður missti
stjórn á bifreið sinni á Suðurlands-
vegi við Geitháls á laugardagsmorg-
un er hann tók fram úr öðrum bíl,
bifreið hans valt. Ökumaður fann til
eymsla í höfði og farþegi fékk áverka
á höfuð og var fiuttur á slysadeild.
Þeir voru báðir með öryggisbelti.
Tilkynnt var um slagsmál milli
unglinga í vesturborginni aðfaranótt
sunnudags. Er á vettvang var komið
lá maður í götunni meðvitundarlítill
eftir barsmíðar. Árásarmenn vom
farnir en sá slasaði fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið. Sömu nótt
var maður sleginn með flösku í and-
lit í Hafnarstræti. Hann var fluttur á
slysadeild, hugsanlega nefbrotinn og
með lausar tennur.
A föstudag var tilkynnt að brotist
hefði verið inn í vinnuskúra í Vatns-
mýri og stolið talsverðu af verkfær-
um. Þá var tilkynnt um innbrot í
skóla í austurborginni þar sem ýms-
um tækjum var stolið. Einnig var til-
kynnt að farið hefði verið inn í þrjú
fyrirtæki í Vesturbænum þar sem
ýmsum tækjum og tékkheftum var
stolið. Aðfaranótt föstudags var til-
kynnt að farið hefði verið inn í íbúð í
kjallara í vesturbæ þar sem fatnaði,
matvöru og fleim var stolið. Á laug-
ardagsmorgun var tilkynnt að farið
hefði verið inn um glugga í fyrirtæki
í vesturborginni þar sem tölvubún-
aði og hljómtækjum var stolið.
Maður laumaðist inn í eldhús veit-
ingastaðar í miðborginni og stal tals-
verðum peningum úr fötum starfs-
manna á laugardag. Á sunnu
dagsmorgun var tilkynnt að járn-
hurð hefði verið tekin af hjömm í
fyrirtæki í austurborginni og pen-
ingum stolið.
Maður fór í sjóinn við Sæbraut að-
faranótt sunnudags. Lögregla náði
manninum sem hafði verið að rífast
við unnustu sína. Um morguninn var
tilkynnt um mann sem kvaðst ætla
stökkva í sjóinn við Miðbakka. Lög-
regla kom að áður en hann stökk.
Gleraugnasalan,
Laugavegi 65.
VÖRN FYRIR AUGUN
Gleraugu fyrir unga fólkið
afsláttur
Z5-56%
Veggfóður & borðar \
S ~ 820,^
Rósettur Er skrautlistar
19% afsláttur
Fiberstrígi Voxdúkar
19% afsláttur 19% afsláttur
Lrttu Inn, við tökum vel á mótí þér.
Grensásvegi 18 • Símí 581 2444.
Opið: MánudagatilfóstudagafráW.9-18. Laugardaga frá
kl 10-16 & sunnudaga fra kl. 11-15 (málningardeild).
JOJO •
tilboð!
12 KJUKLINGABITAR
STÓR SKAMMTUR AF
FRÖNSKUM KARTÖFLUM
PEPSI 2L
KjUKLINGAR 1 SERFLOKKl FRA KFC
HAFNARFIRÐt • REYKJAVÍK • SELFOSSI