Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ
68 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
'l----------------------------
HASKÓLABIÓ
HASKOLABIO
Hagatorgi, sími 530 1919
Wwwk
RásZ SV MBL Kvikmyndirjs
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Kl.4.30, 6.45, 9 og 11.15.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sýnd kl. 5 og 7.
FYfílR
990 PUNKTA
FefíOU i BÍÓ
.W__I3ai SU7mííMi '
NÝTT OG BETRA'^H
FmUlBIQ Alfabakka S, simi 5S7 8900 og 5S7 3905
FÓR BEINT Á TOPPINN í USA
$1.000.000 EACH
Sex einstaklingar eiga fjioguleika á að
eignast eina miiljón' dollaraiiver!...
...Það eina
sem þau þurfa -Cúfc '
að gera er ::
að iifa af
nóttina... PP. ._ *
!r
lCON
iiiIÍ
HAUNTED HJLL
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.B.i.t6.
á i V4I l ' M'l
Sýndkl. 5, 7, 9 og 11.05.
ATH. fríkort giídir ekki á pessa mynd
Sýnd kl. 6.50, 9 og
11.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 5, 6.50, 9 og 11.10. bi 12.
m_________
Sýnd kl. 5 og 7.
www.samfilm.is
Sýnd kl. 9.
Sýnd kl. 9 og 11.10.
Sýnd kl. 5. | (sl. tal. ■ ■ ■■LHlLi.lÁk K
Reuters
Anette Bening og' Kevin Spacey í American Beauty en hún var valin,
ásamt Toy Story 2, besta myndin á Golden Globe-verðlaunahátíðinni.
Golden Globe-verólaunin afhent
Fegurð, leikföng,
grín og alvara
j GOLDEN Globe-verðlaunin, sem
eru veitt fyrir kvikmyndir og sjón-
varpsefni, voru afhent í kvikmynda-
borginni Los Angeles síðast-
liðinn sunnudag og er það í
57. skipti sem verðlaunin
eru afhent. Vandamála-
fjölskyldur uppskáru
mest úr báðum flokk-
um. Kvikmyndin
„American Beauty“
var valin besta kvik-
myndin sem fellur ekki
undir flokk gaman- eða
söngvamynda. Með aðal-
hlutverkin í myndinni fara
Kevin Spacey og Annette Ben-
ing og fjailar hún um hjón
sem lifa í ástlausu hjónabandi
' og eiga dóttur sem hatar þau
heitt og innilega. Þegar eig-
inmaður-
inn tekur
máiin í sín-
ar hendur
breytist
vmislegt
hjá fjöl-
skyldunni.
„American
Beauty"
þótti fá
mesta sam-
"""’^keppni frá
myndunum
Kynnar á verð-
launahátíðinni
voru ekki af
verri endanum
og hór sést einn
þeirra, fyrir-
sætan Ciaudia
Schiffer, í sínu
finasta pússi.
,The Insider" og
spennumyndinni „The Talented
Mr. Ripley", en hún skaut þeim báð-
um ref fyrir rass og þykir nú afar
lildeg til stórræða á Oskar-
sverðlaunahátíðinni í mars. Tölvut-
eiknimyndin „Toy Story 2“ var val-
in besta gamanmyndin, en hún er
ein af aðsóknarmestu myndum vest-
anhafs á siðasta ári.
Allt um móður mína, kvikmynd
spænska leikstjórans Pedro
Almodovar, var valin besta erlenda
myndin. Eftir afhendinguna sagði
Almodovar að honum þætti vænt
um að myndin vekti allstaðar
sömu viðbrögðin. Hann sagði að
það væri sama hvar hún væri
sýnd, fólk gréti og skellti upp-
úr á sömu stöðum.
Flestu verðlaunin íyrir
sjónvarpsþætti fengu þætt-
irnir „The Soranos" og
„Sex in the City“.
Verðlaun fyrir besia leik
í dramatfskri kvikmynd
fékk Denzel Washington
fyrir túlkun sína á hnefa-
leikamanninum Rubin
Carter í myndinni „The
Hurricane“ og sagði
Washington við það tæki-
færi að „ástin væri sterk-
ari en hatrið“, en það
hefði einmitt verið boð-
skapur myndarinnar um
Carter, sem var ranglega
dæmdur fyrir þrjá morð
um miðjan sjöunda ára-
tuginn. Það var síðan
grínarinn Jim Carrey
sem hlaut verðlaunin
fyrir besta leik í
aðaihiutverki í
gamanmynd fyrir
túikun sína á Andy Kaufman í mynd
Milos Forman, „Man on the Moon“.
Carrey, sem rnargir höfðu veðjað á
að fengi Óskarsverðlaun í fyrra fyr-
ir túlkun sína á sjénvarpshetjunni
Truman, fór því heim með önnur
Globe-verðlaunin sín í röð.
Tom Cruise sest her asamt leikkonunni Char-
lize Theron, en Cruise hlaut verðlaun fyrir
besta leik karlmanns 1' aukahlutverki.
Söng- og leikkonan
Courtney Love mætti í
glæsilegum kvöldkjól,
en hún var ein þeirra
sem kynnti verðlauna-
hafa á hátíðinni.
Það héldu margir að Haley Joel
Osment myndi fara heim með
styttu 1' farteskinu fyrir leik sinn
í Sjötta skilningarvitinu.
Verðlaunin fyrir besta leik leik-
kvenna í aðalhlutverki fengu þær
Hilary Swank fyrir frammistöðu
sína í hlutverki hins sannsögulega
Brandon Teena í „Boy’s Don’t Cry“
og breska gamanleikkonan Janet
McTeer fyrir Ieik sinn í myndinni
„Tumbleweeds“, en þau verðlaun
þóttu koma talsvert á óvart, en í
sama flokki voru þær Julianne
Moore („An Ideal Husband“) og Jul-
ia Roberts („Notting Hill“) m.a. og
eru þær báðar mun þekktari vest-
anhafs en McTeer, þó hún hafi ný-
lega unnið þekktustu leiklistar-
Jim Carrey með verðlaun sem
hann fékk sem besti karlleikari í
aðalhiutverki í gamanmynd.
verðlaun Broadway, Tony-verð-
launin, fyrir túlkun sína á Néru í
Brúðuheimili Ibsens.
Tom Cruise hlaut verðlaun fyrir
besta leik í aukahlutverki fyrir hlut-
verk sitt í „Magnolias”, en í sama
flokki var litli drengurinn Haley
Joel Osment, sem margir höfðu
spáð vinningi fyrir leik sinn í Sjötta
skilningarvitinu. Angelina Jolie fór
heim með verðlaunin fyrir besta
leik kvenna í aukahlutverki fyrir
hlutverk sitt í „Girl, Interrupted",
en þar fór hún með sigurorð af leik-
konum á borð við Cameron Diaz og
Catherine Keener (báðar fyrir hlut,-
verk í „Being John Malkovich") og
Chloe Sevigny fyrir hlutverk sitt í
„Boys Don’t Cry“, en Sevigny hafði
þótt afai- sigurstrangleg fyrirfram.
Golden Globe-verðlaunin eru
veitt af samtökum erlendra frétt-
aritara í Holly wood og þykja þau
oft gefa vísbendingu um hverjir
hreppa Óskarsverðlaunahnossið í
mars og þykir verðlaunaspekúlönt-
un þar vestra afar lfldegt að Jim
Carrey fái Óskarinn fyrir besta leik
eftir tvo mánuði. Einnig telja sömu
fræðingar að myndin „ American
Beauty“ sé Ifldeg til að vinna Óska-
rinn fyrir bestu mynd, en það vakti
Spænski lcikstjóriim Pedro
Almaldovar og leikkonan Penel-
ope Cruz fóru með verðiaun.
Hilary Swank fékk verðlaun
fyrir leik sinn í myndinni
„Boys Don’t Cry“.
Denzel Washington var aisæll
með verðlaunastyttuna sína.
þó athygli á hátíðinni að myndimar
„Being John Malkovich" og „Man
on the Moon“ skyldu ekki vinna til
verðlaunaen margir spá þeim vel-
gengni á Óskarsverðlaunahátíðinni.
I fyrra hlaut Gwyneth Paltrow
Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í
Ástföngnum Shakespeare eftir að
hafa hlotið Globe-verðlaunin fyrir
sama hlutverk, en aðrir vinnings-
hafar á Golden Globe-hátíðinni í
fyrra komust ekki á verðlaunapalia
á Óskarsverðlaunahátfðinni þannig
að allt getur gerst. Tilnefningar til
Óskarsverðlaunanna verða til-
kynntar 15. febrúar næstkomandi.