Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Líftæknifyrirtækin Genís og Kítín sameinast undir nafni Genís ehf, I samstarf við öflug- erlend fyrirtæki LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIN Genís ehf. og Kítín ehf. voru í gær sameinuð undir nafni Genís ehf. Hlutafé Genís ehf. verður við sameininguna aukið um 400 miHjónir króna og hefur hlutaféð þegar verið selt. Að því loknu verða aðaleigendur Genís ehf. Þor- móður rammi-Sæberg hf., Pharmaco hf., Samherji hf. og kanadíska fyrir- tækið Ocean Nutrition sem hvert um sig eiga 20% eignarhlut í fyrirtækinu en auk þess eiga FBA, finnska rann- sókna- og þróunarfyrirtækið Novas- so, Iðntæknistofnun o.fl. aðilar hlut í fyrirtækinu. Kítín ehf. tók fyrir ári í notkun eina fullkomnustu kítósanverksmiðju í heimi á Siglufirði. Verksmiðjan fram- leiðir kítósan, sem unnið er úr rækju- skel, en það er verðmæt afurð sem notuð er í matvælaiðnaði, í snyrtivör- ur og margt fleira. Verksmiðjan af- kastar allt að 500 tonnum af kítósani á ári og hefur rekstur hennar gengið vel að sögn Róberts Guðfinnssonar, stjómarformanns Þormóðs ramma- Sæbergs hf. Velta verksmiðjunnar er í dag um 200 milljónir króna en Rób- ert vonast til að hún verði orðin um 800-1.000 milljónir króna innan þriggja til fjögurra ára. Leigja framleiðsluleyfi Genís ehf. mun stunda rannsóknir á úrvinnslu kítósans og taka þátt í samstarfsverkefnum í kítósanrann- sóknum. Genís hf. hefur auk þess keypt 37% eignarhlut í finnska rann- sókna- og þróunarfyrirtækinu Nov- asso sem meðal annars hefur einka- leyfi á framleiðslu á novamic sem Genís mun leigja af fyrirtækinu. Nov- amic er smákristallað kítósan sem hefur mikla virkni sem fitubindandi efni. Það hentar til lækkunar á blóð- fitu og virkar eingöngu í meltingar- veginum. Róbert segir að rannsóknir hafi sýnt að novamic lækki kólesteról- innihald í blóði um allt að 15% í mán- aðarskammti. „Novamic er til á mark- aðnum en þá aðeins í kítósani. Novasso hefur hinsvegar þróað að- ferð til að vinna kítósanið enn frekar og þannig verður virkni þess mun meiri.“ Genís mun samhliða ft-amleiðslu á kítósani stunda rannsóknir og þróun á bragðefnum sem framleidd eru úr próteinum unnum úr rækjuskel. Bragðefnin eru unnin með ensímum og eru ódýr í framleiðslu. Genís ehf. hefur fram til þessa þróað bragðefni úr rækjuskel í húsakynnum sínum í Reykjavík. Markaðssetning á bragðefiium Róbert segir að markaðssetning á bragðefnunum sé nú farin að bera árangur og stækkandi markaður sé fyrir framleiðsluna. Hann segir að væntanlega verði sett upp afkasta- meiri verksmiðja tif framleiðslu á bragðefnum úr rækjuskel á Siglufirði. Ocean Nutrition er kanadískt ný- sköpunarfyrirtæki á sviði náttúru- fæðis en vinnur eingöngu vörur úr sjávarfangi. Fyrirtækið er einnig öfl- ugt í rannsóknum og þróun en hjá því eru 24 starfsmenn, þar af níu með doktorsmenntun. Fyrirtækið er að 70% hluta í eigu Clearwater sem er stærsta einkarekna sjávarútvegsfyr- irtæki Kanada og veltir um 17 mUlj- örðum íslenskra króna á ári. Þá á bandaríska markaðsfyririækið Am- way 30% hlut í Ocean Nutrition en það veltir um 5 niilljörðum doUara eða um 360 milljörðum íslenskra króna á ári. Hluti af vörum Genís ehf. verður framleiddur undir vörumerkinu Oce- an Essentials, en vörumeridð er í eigu Amway. Ocean Essentials-vörulínan er tengd sjávarafurðum og eru þegar framleiddar fimm vörutegundir undir vörumerkinu en áætlað er að bæta við tveimur vörutegundum á ári. Handteknir með stolið greiðslukort Sviku vörur út úr versl- unum TVEIR ungir menn voru hand- teknir á miðvikudag vegna greiðslukortasvika. Þeir fóru m.a. í verslanir með stolið greiðslukort og fengu út á það ýmsar vörur. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er eigandi korts- ins fæddur árið 1955, en ungu mennirnir árið 1981. Þrátt fyrir það gerði starfsfólk verslan- anna engar athugasemdir við úttektir tvímenninganna. Brýnt að skoða greiðslukortin Lögreglan vill enn sem fyrr benda starfsfólki verslana á að skoða greiðslukort fólks áður en þau eru tekin gild sem greiðslumiðill. Lögreglan segir það alltof algengt að það sé ekki gert, með tilheyrandi óþægind- um fyrir hlutaðeigandi. Svavar Guðnason fer fram á endur- upptöku Vatneyrarmálsins Segir Fiski- stofu hafa falsað gögn SVAVAR Guðnason, útgerðarmaður á Patreksfirði, hefur farið fram á endurupptöku á Vatneyrarmálinu svokallaða þar sem hann telur Fiski- stofu hafa dregið upp ranga mynd og lagt fram folsuð gögn eða rangfærð skjöl er vörðuðu aðalefni málsins. Vísar Svavar þannig til laga um með- ferð opinberra mála sem kveða á um endurupptöku dæmdra mála. Hann segist munu fara með málið fyrir mannréttindadómstóla virði Hæsti- réttur beiðni hans að vettugi. Svavar segir í beiðni sem hann hef- ur ritað ríkissaksóknara að grunnur málsóknar í Vatneyrarmálinu hljóti að hafa verið sá að skipstjóra og út- gerðarmanni var gefið að sök að hafa hafið veiðar án nokkurs aflamarks. Það sé hinsvegar ekki rétt. Vatneyr- in hafi haft skráð aflamark í þeim veiðiferðum sem til álita komu í dómi Hæstaréttar og því hafi veiðileyfis- svipting sú er beitt var 15. febrúar 1999 verið ólögmæt. Bendir Svavar á að hinn 16. febrúar hafi m.a. verið skráð 2.161 kíló af þorskaflamarki á Vatneyrinni, auk minni afla í öðrum tegundum. Því hafi engin forsenda verið fyrir sviptingu nema sögusagn- ir. Fiskistofa hafi því viljandi eða óviljandi dregið upp ranga mynd og lagt fram fölsuð eða rangfærð skjöl um aflamarksstöðu Vatneyrarinnar. Dómurinn í upplausn Svavar segir að dómur Hæstarétt- ar sé í upplausn með framkomu þess- ara gagna og verði í raun ógildur. „Ef Hæstiréttur telur að Fiskistofa hafi beitt okkur rangindum með því að leggja fram gögn, sem búin voru til einum mánuði og tíu dögum eftir að þessir atburðir gerðust, sé ég ekki annað en dómurinn sé í uppnámi. Þessi gögn hafa í raun alltaf verið til en af einhverri ástæðu sáu dómar- amir ekki ástæðu til að fjalla um þau á neinu stigi málsins.“ Svavar segist munu snúa sér til mannréttindadómstóla verði Hæsti- réttur ekki við kröfu hans um endur- upptöku. „Ef þessi beiðni mín verður hunsuð eða ekki tekin fyrir og við dæmdir til refsingar lítum við á það sem mannréttindabrot og vísum málinu til mannréttindadómstóls Evrópu," segir Svavar. Morgunblaðið/Golli 1 ' j.;, \ A A ’ftr f RHHL ö * Sg&JAj' w p M| Peysufatadagur Verslunarskólanema FJÓRÐA árs nemendur í Verslunarskóla Islands settu svip á borgina í gær þegar þeir héldu sinn ár- lega peysufatadag. Fögnuðu þeir því að reglulegu námi er lokið í vetur en prófin framundan. Gengu Verslunarskólanemarnir um miðbæinn, meðal ann- ars um Austurstræti og Ingólfstorg, piltarnir í kjól Fótum og stúlkurnar á íslenskum þjóðbúningi, fiest- ar upphlutsklæddar. Sérblöð í dag ■■ / / tmWflþib wm BIOBLAÐIÐ Á FÖSTUDÖGUIV Stórmót í stangarstökki á Bíldudai /C1 Langt úthald sundmanna í Sydney/Cl Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.