Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 78
MORGUNBLAÐIÐ
78 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
Fasteignir á Netinu
I östudags- og
I a ii ga rd agsk völ d
beinl frá SUÁNI -
FAUI. SOMI KS
og hljóinsveit
( irétars Orvars og
Siggu Beinteins.
Sunn udagskvöld
skemmtir
hljómsveitin Sín
til kl. 3.
FÓLK í FRÉTTUM
Mynd ársins, tekin af Claus Bjem Larsen, Danmörku, Berlinske Tldende
Sýning World Press Photo á bestu fréttaljósmyndum ársins 1999
stendur yfir í Kringlunni frá 28. apríl til 10. maí.
Samhliða sýningunni heldur Morgunblaðið sýningu á völdum
fréttaljósmyndum blaðsins frá síðasta ári.
HmFfmm Kri*q 6u
m |[m/iiiiiii s
CsJ\
IKR
Aðgangur kr. 600.
á góörk stund
ERLENDAR
Oddný Þóra Logadóttir,
þrettán ára, fjallar um Aquar-
ius, nýjustu plötu dönsku
hljómsveitarinnar Aqua.
★ ★■/2
Lena
T'V J * 1 • k * • e' l>erla i geiniskel.
Danstonlist 1 geimnum
MUNA ekki allir
eftir Barbí-
laginu? Nú er
kominn nýr diskur
með hljómsveitinni
sem spilaði það lag,
Aqua, en í henni eru
Spren Rasted, Réné
Dif, Lene Grawford
Nystrpm (söngkonan)
og Claus Norreen.
Eg get nú ekki sagt
að þessi nýi diskur
hljómsveitarinnar sé
mikið öðruvísi en fyrri
diskur hennar, „Aqu-
arium“, (sem Barbie-
Girl er á). Það koma þó
einstaka lög sem eru
ólík, en langflest lögin
eru eiginlega alveg
eins! Að minnsta kosti takturinn og
hvernig þau syngja, maður ruglar
lögunum mjög mikið saman, alla-
vega þegar maður hlustar á lögin í
fyrsta skipti, en samt er ekki hægt
é§) mbl.is
6/7TOK4Ö ÍSÍÝTT
Meðlimir Aqua sveima úti 1 geimnum.
að segja að undirspilið sé líkt. Disk-
urinn er mjög hressandi og mjög
gaman að hlusta á hann í heildina
en „Aquarius" inniheldur 12 lög.
Utan á hulstrinu eru þau í geim-
fari, sennilega á leið út í geim, en
undirspilið og textinn í nokkrum
laganna hljómar einmitt eins og þau
séu að syngja úti í geimnum svo
þetta passar allt vel saman.
Skemmtilegustu lögin finnst mér
vera „Cartoon Heros“, „An Apple a
Day“, „Back From Mars“ og „Ar-
ound the World“.
„Cartoon Heroes“ er fjörugt lag;
það sem mér finnst flottast í þvi er
hvernig söngkonan beitir röddinni
og viðlagið er líka mjög skemmti-
legt. „An Apple a Day“ er með
flottu undirspili og viðlagi. Þetta
lag er ekta danslag en sama má
segja um öll hin lögin á disknum.
„Back From Mars“ er mjög fjörugt
lag með skemmtilegu og frumlegu
undirspili, það er svo flott hvernig
hún syngur annað slagið hátt uppi í
þessu lagi. „Around the World“ er
íþróttir á Netinu
<§> mbl.is
_ALL.TAf= EITTH\SAG tJÝTT
með góðum takti, frábæru undir-
spili og bakröddum. Þetta lag kem-
ur manni í gott skap á stundinni!
En eins og á flestum öðrum disk-
um finnast innan um leiðinleg lög
og leiðinlegustu lögin finnst mér
vera „Freaky Friday“ og „Goodbye
To the Circus“.
„Freaky Friday" er fjörugt lag
en mér finnst undirspilið leiðinlegt
og lagið er mjög langdregið, ætlar
engan enda að taka. „Goodby To
the Circus" er meðalfjörugt lag og
það er svo leiðinlegt hvernig þau
syngja; svo er viðlagið heldur ekki
skemmtilegt.
Eina lagið af disknum sem ég
hafðiheyrt áður en ég fékk hann er
„Cartoon Heroes" og mér finnst
það langskemmtilegasta lagið. Ég
held að það sé ekki út af því að ég
hef heyrt það miklu oftar en hin
lögin, það er bara einfaldlega vand-
aðra en hin lögin á disknum.
í heildina er þetta alveg ágætur
diskur, en lögin eru alveg eins, og ef
manni finnst eitt lag á honum
skemmtilegt finnst manni þau eig-
inlega öll skemmtileg. Það sem mér
finnst helst vera að er að maður fær
mjög fljótt leiða á lögunum, því þau
eru svo lík, og hvernig þau syngja
alveg eins í öllum lögunum, reyna
lítið að gera eitthvað nýtt og öðru-
vísi.
Aðdáendur Aqua ættu að kíkja á
heimasíðuna http://www.aqua.dk/
en þar er hægt að finna ýmislegt
um hljómsveitina og kaupa alls
kyns dót með myndum á.