Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 63
Staðardagskrá 21 og
verktakavinna við
skógræktarverkefni
UMHVERFIS-
BRAUT hefur verið
starfandi við Garð-
yrkjuskóla ríkisins síð-
an 1988.
Gagngerðar breyt-
ingar hafa nú verið
gerðar á umhverfis-
braut skólans og í
tengslum við hana
stofnuð skógræktar-
braut. Er bóklega
námið sameiginlegt
fyrstu þrjár annimar
en á fjórðu og síðustu
önn eru síðan kennd
sérfög hvorrar brautar
um sig. Hér er um
starfsréttindanám að
ræða og er það sem slíkt lánshæft
hjá LÍN samkvæmt 20 ára regl-
unni. Náhari upplýsingar um al-
menna uppbyggingu náms við
Garðyrkjuskólann er að finna á
heimasíðu skólans:/ reykir.is.
í sameiginlegri bóklegri kennslu
beggja brauta er lögð áhersla á
vistfræði, náttúruumönnun og nátt-
úruauðlindir. Er í vistfræðinni lögð
áhersla á að nemendur öðlist þekk-
ingu á uppbyggingu vistkerfa,
helstu vistfræðilegu vandamálum
íslands og hvaða vistfræðilegu for-
sendur þurfa að vera til staðar til
þess að breyta megi auðn í frjósamt
land. í náttúruumönnun er áherslan
á umgengni við landið út frá því
sem það þolir án þess að gengið sé
nærri því. Að námi loknu er ætlast
til að nemendur kunni skil á helstu
þáttum í skipulagningu sumar-
dvalastaða, þ.m.t. tjaldsvæði og
önnur útivistarsvæði, ásamt göngu-
stígagerð. Einnig felur kennsla í
náttúruumönnun í sér að nemendur
geti að námi loknu verið færir um
að meta ástand lands (landlæsi)
ekki síst beitarsvæða
og þekki til helstu úr-
ræða við landgræðslu.
í þessu námi er lögð
áhersla á að nemendur
öðlist þekkingu á
helstu forsendum
sjálfbærrar þróunar
ekki síst með það í
huga að náttúruauð-
lindir jarðarinnar eru
bankainnstæða hennar
og að ekki má rýra
höfuðstólinn.
A fjórðu önn bók-
lega námsins er öll
áhersla lögð á sértæka
kennslu hvorrar
brautar fyrir sig. Þeir
nemendur sem valið hafa verknám
umhverfisbrautar sem undirbúning
öðlast nú færni og þekkingu á sviði
umhverfistækni, einkum í helstu ör-
verustarfsemi í niðurbrotsferlum
lífrænna auðlinda ásamt hringrás-
um helstu næringar- og stoðefna í
endurvinnslu þeirra. Einnig er lögð
mikil áhersla á að nemandinn öðlist
þekkingu á lögum, reglum, hugtök-
um og verklagi við framkvæmd
Staðardagskrár 21 þannig að þeir
sem útskrifast af þessari braut geti
bæði stýrt og tekið þátt í því mikla
starfi Staðardagskrár 21 sem nú er
víðast að fara í gang hjá sveitar-
félögunum. Einnig munu þessir
nemendur geta stýrt moltugerð og
meðferð lífrænna auðlinda sem sí-
fellt verður mikilvægari ekki síst
hjá sveitarfélögum. Þessir nemend-
ur munu einnig kunna skil á upp-
byggingu og viðhaldi útivistar-
svæða, ekki síst þeirra sem tilheyra
„grænu treflunum" sem flest bæj-
ar- og sveitarfélög hafa skipulagt.
Þeir nemendur sem valið hafa
verknám skógræktarbrautar sem
Nám
Gagngerðar breytingar
hafa nú verið gerðar á
umhverfísbraut Garð-
yrkjuskólans, segir
Steinunn Kristjáns-
dóttir, og í tengslum við
hana stofnuð skóg-
ræktarbraut.
undirbúning öðlast nú færni og
þekkingu á sviði skógræktar þannig
að þeir kunni að námi loknu skil á
helstu þáttum sem lúta að verkleg-
um framkvæmdum í skógrækt,
verkstjórn og jarðvinnslu og áburð-
argjöf. Þessir nemendur öðlast
þjálfun í því að túlka skógræktar-
áætlanir og fylgja því verklagi sem
ætlast er til við framkvæmd þeirra.
Vegna landshlutabundinna skóg-
ræktarverkefna sem nú fer fjölg-
andi, verður þessi þekking æ eftir-
sóttari og opnar leið fyrir margs
konar verktakavinnu í sambandi við
skógrækt. Einnig læra nemendur á
þessari braut að þekkja þær plöntu-
tegundir sem nýttar eru til skóg-
ræktar. Þeir læra lífmælingu trjáa
ásamt grisjun og leiðum til nýtingar
þess viðar sem til fellur við grisjun
og lokavinnslu. Má geta þess að
verið er að skoða möguleika á því að
nokkur hluti þessa verknáms geti
farið fram við skógtækniskóla á
Norðurlöndum.
Höfundur er fagdeildarstjóri
skógræktar- og umhverfisbrautar.
Steinunn
Krisljánsdtíttir
dndverk og
evðapjónusta
Sýning i
Lnugardalshöllinni
28. april til 1. mai
Glæsilegt úrval
af handverksmunum
allstaðar að af landinu.
Gestir frá Færeyjum og Grænlandi.
Farðu í fríið á íslandi!
Ferðaþjónustan kynnir spennandi
möguleika á ferðum innanlands
Það verðtír kátt
í Höllinni
Slysavarnadeild kvenna
í Reykjavík 70 ára 2000
í DAG eru liðin 70 ár
frá stofnun Slysa-
varnadeildar kvenna í
Reykjavík. Það mun ■
hafa verið fyrir til-
stuðlan Jóns E. Berg-
sveinssonar, þáverandi
starfsmanns _ Slysa-
varnafélags íslands,
sem kom að máli við
konur um að þær stuðl-
uðu að aukinni þátt-
töku kvenna í slysa-
varnamálum. Það var
mikill vilji og samhug-
ur um stofnun deildar-
innar, því konum
fannst þær ekki geta
setið hjá og haldið að
sér höndum þegar um væri að ræða
öryggi sjómanna og úrræði þeim til
handa.
Kvennadeild Slysavarnafélags ís-
lands í Reykjavík, eins og deildin
nefndist í fyrstu, hefur látið flest
slysavarnamál til sín taka og yrði of
langt mál að telja upp ótal verkefni
sem hún hefur stutt með framlög-
’ um; þó má nefna hennar stóra þátt í
að reisa skipbrotsmannaskýli víðs-
vegar um landið, söfnun fjár fyrir
fyrstu björgunarskútu félagsins og
fjárframlag til kaupa á sjúkrabifreið
fyrir Slysavarnafélag Islands. Þá
hefur deildin um árabil staðið að
baki björgunarsveit Ingólfs.
Mér finnst að öll íslenska þjóðin
J megi vera stolt af því að til voru kon-
ur sem höfðu kjark til að byrja að
starfa á þessu sviði. Það er léttara
! fyrir þær sem á eftir ganga þegar
gatan hefur verið rudd.
Ekki var útlitið
glæsilegt um þær
mundir sem Reykja-
víkurdeildin var stofn-
uð. Bilið milli öryggis-
leysis og öryggis hefur
verið brúað á því tíma-
bili sem liðið er og bet-
ur en nokkurn gat
dreymt um þá. Tuttug-
asta öldin var öld hrað-
ans og er ekki hægt að
neita því að orðið hafa
stórstígar framfarir og
afköst aukist af þeim
sökum og eru slysa-
varnir sem betur fer
engin undantekning
þar á. íslenska þjóðin hefur sótt lífs-
björg sína í skaut hafsins út á fiski-
miðin. Hún á veglegan kaupskipa-
flota sem siglir um heimsins höf og
góðan fiskiskipaflota sem dregur að
mikinn auð. Á seinustu öld var aðal-
vinna slysavarnakvenna fólgin í fjár-
öflun, merkjasölu og kökubakstri,
og er kannski hægt að segja að
yngri konur hafi jafnvel flúið deild-
ina af þessum orsökum.
Það þarf að breyta áherslum
deildarinnar að einhverju leyti, gera
starfið nútímalegra og fá konur til
að sækja í deildina. Nú á nýrri öld
horfum við fram á veginn; við þurf-
um að fá konur inn í deildina hvar
sem er á Reykjavíkursvæðinu. Því
verður ekki neitað að við höfum
áhyggjur af framþróun á svæðinu
þar sem Reykjavík þenst út og eru
aðstæður hér í borginni öðruvísi en
Tímamót
Það þarf að breyta
áherslum deildarinnar
að einhverju leyti, segir
Birna Björnsdóttir,
gera starfíð nútímalegra
og fá konur til að sækja í
deildina.
t.d. í litlum plássum úti á landi.
Það þyrfti að skipta deildinni og
stofna fleiri, t.d í samvinnu við hags-
muna-, foreldra- og hverfafélög. Á
öllum tímum og hverjum stað eru
verkefni næg og margþætt ef að er
gáð. Það er einlæg ósk mín að hver
einasta kona í Reykjavík gerist
meðlimur í deildinni okkar og starfi
með okkur eða styrki með greiðslu
félagsgjalda.
Slysavarnadeild kvenna í Reykja-
vík hefur í gegnum árin mætt skiln-
ingi borgarbúa, fyrirtækja og ein-
staklinga sem hafa verið reiðubúnir
að leggja okkur lið í ýmsum málum
þegar til þeirra hefur verið leitað.
Þetta er því kærkomið tækifæri
til að koma á framfæri þakklæti til
Reykvíkinga og annarra velunnara
fyrir veittan stuðning á liðnum ár-
um.
Höfundur er formaður Slysavarna-
deildar kvenna í Reykjavfk
Birna
Björnsdtíttir
28. april til 1. mai!
Opnunartímar:
28. aprilfrá 14 til 18
29. april »it 1 mai frá lOtii 18
SÖLUSÝNENG
'9