Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdó
Krosslaug í sumarskrúða.
Kristnitökuafmælið í Borgar-
fjarðarprófastsdæmi
Hátíðarguðsþj ón
usta við Kross-
laug í sumar
Athyglisvert unglingastarf
Samstarf kirkju,
skóla og félaga
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Unglingunum var m.a. kynnt notkun sigbeltis. Sigið var niður af svölum
Félagsheimilisins á Flúðum
Reykholt - Hátíðarguðsþjónustur,
tónleikar, fræðslufundir og málþing
um trúarbókmenntir miðalda eru
helstu dagskrárliðir í Borgarfjarð-
arprófastsdæmi á kristnitökuaf-
mæli. I sumar, nánar tiltekið þann
16. júlí, verður messað við Kross-
Iaug í Lundarreykjadal og þess
minnst er Vestlendingar riðu heim
af alþingi fyrir þúsund árum og
tóku skím í þessari Iaug.
Krosslaug liggur á landamærum
Brennu og Reykja, skammt frá
Englandsfossi, í hvarfi upp af veg-
inum. Engar merkingar vísa á laug-
ina en Þorbjöm Hlynur Ámason
prófastur segir að stefnt sé að því
að setja upp skilti fyrir sumarið.
Laugin er falleg í sumarbúningi og
er vatnið í henni um 40’C, en um-
hverfis hana er nú afgirtur gróður-
rreitur sem unninn var í samvinnu
Lundarreykjadalshrepps og pró-
fastsdæmisins fyrir nokkmm ámm.
Jón Böðvarsson, bóndi á Brennu
segir í samtali við blaðið að upp-
haflega hafi Ingimundur heitinn
Ásgeirsson, bóndi á Hæli, verið
hvatamaður að því að laugarinnar
yrði minnst í tengslum við kristni-
tökuár og umhverfi hennar byggt
upp. Veggir laugarinnar vom end-
urhlaðnir árið 1980 og er hún nú
friðlýst.
Hrunamannahreppi - í vetur fór
fram nokkuð sérstætt og athyglis-
vert unglingastarf hér í sveitinni á
vegum Hrana- og Stóra-Núps-
prestakalla auk björgunarsveitar-
innar Eyvindar, Rauða kross deildar
Amesinga og Flúðaskóla. Upphaf
þessa má rekja til stofnunar sér-
stakrar nefndar um bama og ung-
lingastarf í Hmnaprestakalli. Hlut-
verk hennar var að vinna með
sóknarpresti að mótun og skipulagi
slíks starfs. Það kom síðan í hlut séra
Eiríks Jóhannssonai- í Hmna að
móta starfið frekar í samstarfi við
séra Axel Amason í Stóra-Núps-
prestakalli.
„Við vomm strax sammála um að
reyna að búa til breiðan gmnn undir
þetta og hafa það nokkuð frábragðið
hinu hefðbundna æskuýðsstarfi
þjóðkirkjunnar," sagði Eiríkur í
spjalli við fréttaritara. „Eftir að hafa
skrifað öllum foreldmm sem eiga
unglinga í 8.-10. bekk Flúðaskóla,
var ákveðið að leita samstarfs við
nokkra aðila sem hefðu áhuga á að
gera eitthvað með kirkjunni fyrir
unglingana. Þetta fékk strax jákvæð-
an stuðning og var tekið af velvilja og
fómfýsi. Það leiddi til þess að ung-
lingunum var boðið upp á samvemr
þar sem reynt var að hafa kristilegan
undirtón að leiðarljósi, en byggja þó
einnig á útivera, kynningu á starf-
semi Rauða krossins, björgunar-
sveitanna og fleiri."
Leið til nokkurs þroska
í byrjun vetrar var efnt til kynn-
ingarkvölds þar sem unglingarnir
mættu ásamt foreldram og var þessu
verkefni vel tekið. Eiríkur segir að
meðal þess sem gert hefur verið er
að kynna unglingunum vélsleða, að
læra að útbúa sig í gönguferðir, síga
niður af svölum, farið var í ratleiki og
kennd notkun áttavita, einnig var
farið á Kjalames þar sem þátttak-
endur fóm í hlutverkaleik sem nefn-
ist Á flótta. Markmiðið með þessu er
að kenna unglingunum að vera meira
sjálfbjarga.
Um þriðjungur af nemendum
þessara þriggja beklqa Flúðaskóla
tók þátt í unglingastarfinu sem fór
fram á föstudögum, 10 sinnum í vet-
ur, nokkrar klukkustundir í senn eft-
ir hádegi þegar hefðbundnu skóla-
starfi vikunnar lauk.
Samvera-stundirnar hófust með þvi
að sungnir vom sálmar, kennd vora
messusvörin, lesið úr ritningunni og
spjallað um hvað er að vera kristinn
maður o.fl.
„Stór hópur þeirra sem sóttu þetta
er þeir unglingar sem era líka virkir í
öðra starfi, t.d. íþróttum, en ég hafði
vonast eftir að sjá fleiri sem ekki
stunda íþróttir, þar sem með þessu
var opnuð ný leið í félagsstarfi.
Gjarnan hefði ég líka viljað að for-
eldrar kæmu meira inn í þetta sam-
starf við kirkjuna. Um 20 unglingar
hafa tekið þátt í þessu verkefni okk-
ar. Ákveðið er að Ijúka því með ferð í
Helgaskála, sem er inni á afrétti,
gista yfir nótt og ganga síðan til
byggða meðfram hinum stórbrotnu
Laxárgljúfram, um 15 km leið,“ segir
séra Eiríkur Jóhannsson að lokum.
Veiðidagar í
Hlíðarvatni
STANGAVEIÐIFÉLAGIÐ
Árblik í Þorlákshöfn fékk sl.
sumar tvær stangir í Hlíðar-
vatni í Selvogi til útleigu fyrir
félagsmenn sína og aðra
áhugasama. Var veiðin með
ágætum. í sumar hefur félagið
aftur fengið veiðileyfi í vatninu
og er almenn sala á þeim nú
hafin.
í fréttatilkynningu segir:
„Hlíðarvatn er eitt gjöfulasta
veiðivatn á Suðurlandi og
rómað fyrir náttúrafegurð.
Umhverfi allt er fallegt og til-
valið fyrir fjölskyldufólk að
dvelja við veiðar og útivist á
þessum friðsæla stað.
Nýtt veiðihús í eigu Stanga-
veiðifélagsins Árbliks í Þor-
lákshöfn er við vatnið. Aðstaða
við það hefur verið bætt nú í
vor og er hún með ágætum.“
Jarðhiti í Austur-
Skaftafellssýslu
Höfn - Heitt vatn hefur fundist á
nokkrum stöðum í Austur-Skafta-
fellssýslu og spyija menn sig nú
hvort það sé í nógu miklu magni, eða
nógu heitt, til nýtingar. Á Hala í
Suðursveit hefur þégar verið ráðist í
framkvæmdir, boraðar hafa verið 11
holur sem lofa góðu um framahaldið.
Einkum era menn þar á bæ
bjartsýnir á að geta virkjað heitt
vatn til húshitunar innan fárra ára.
í kjölfar þessa hafa vaknað spurn-
ingar um hvort heitt vatn sé að finna
í næsta nágrenni þéttbýlisins við
Hornafjörð, vatn, sem ef til vill væri
hægt að nota til upphitunar.
Að sögn Alberts Eymundssonar,
bæjarstjóra Hornafjarðar, hafa til-
raunaborholur verið boraðar á
nokkram stöðum í sýslunni og hefðu
þær gefið góð fyrirheit um að heitt
vatn kynni að vera þar að finna í
nýtanlegu magni.
Þeir staðir sem um raeðir era
Skaftafell og Freysnes í Öræfum,
Reynivellir og Hali í Suðursveit og
Hoffell í Nesjum, en vegna nálægð-
ar við þéttbýlið er Hoffell sá staður
sem menn horfa einkum til.
Einnig segir Albert að Horna-
fjörður hefði lent dálítið útundan í
styrkveitingum til heitavatnsrann-
sókna, þar sem aðstæður hér væra
ekki allar á hinn besta veg.
Jafnframt sagðist hann vita um
áhuga iðnaðarráðherra á því að
halda áfram að veita fé í að rannsaka
hvort heitt vatn væri að finna á köld-
um svæðum. Þannig að ekki sé útséð
um ennþá, hvert framhaldið verður.
Sæheimar á
Blönduósi
Hvala- og
selaskoð-
unarferðir
í sumar
Blönduósi - Hópur manna á
Blönduósi hefur stofnað hlutafélag-
ið Sæheima um rekstur á skemmt-
isiglingabáti sem gerður verður út
frá Blönduósi.
Báturinn, sem er keyptur frá ísa-
firði, getur tekið fimmtán manns
og er ætlunin að bjóða upp á hvala-
og selaskoðunarferðir í sumar jafn-
framt því sem hægt er að bjóða upp
á sjóstangaveiði, sagði Hans Vil-
berg Guðmundsson einn af hluthöf-
unum. Hans Vilberg gat þess einnig
að möguleikar á notkun bátsins ein-
skorðuðust ekki bara við það sem
áður er upptalið. Ferðir á Strandir
verða án vafa í boði og töfrar Húna-
fióans eru óendanlegir þannig að
verkefnin ættu að vera næg. Hans
Vilberg sagði að fyrsta rekstrarár-
ið yrði fyrst og fremst kynning og
það væri ætlun þeirra sem að
rekstrinum standa að láta ferða-
áætlanir standast sem allra best.
Þessi Sómabátur sem Blönduós-
ingar hafa nú eignast mun bera
nafnið Kópur en HU hvað, er ekki
ljóst á þessari stundu.
Gunnarsdóttir og Svanborg Frostadóttir vígðu nýja píanó-
ið í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Hópur nemenda í harmonikuleik kom fram á fjáröfiunartónleikunum.
Félagsheimilið á Blönduósi
Nýtt píanó
tekið í notkun
Blönduósi - Harmonikuunnendur í
Húnavatnssýslu (HUH) stóðu fyrir
tónlistarveislu laugardaginn fyrir
páska og var tilefnið að afla fjár til
kaupa á nýju píanói í Félagsheimilið
á Blönduósi. Um tuttugu tónlistar-
atriði vora flutt og fjöldi hún-
vetnskra tónlistarmanna kom fram.
Þórir Jóhannsson, fremstur með-
al jafningja í HUH, afhenti Gesti
Þórarinssyni, formanni stjórnar fé-
lagsheimilisins, píanóið formlega til
eignar. Linda Björk Gunnarsdóttir
og Svanborg Frostadóttir vígðu síð-
an píanóið með því að leika fjórhent
á það. Fjöldi gesta var á fjáröflunar-
hátíðinni og var gerður góður róm-
ur að frammistöðu tónlistarmanna.