Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 27
ERLENT
Aðild Dana að Efnahags-
og myntsambandi Evrðpu
Taugatitringur
meðal stuðn-
ingsmanna EMU
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„KOMIÐ ykkur í vinnuna.“ Þetta
voru skilaboð Pouls Nyrups Rasmus-
sens forsastisráðherra nýlega til leið-
toga borgaralegu flokkanna. Forsæt-
isráðherra álítur þá ekki taka nógan
þátt í baráttunni fyrir danskri aðild
að Efnahags- og myntsambandi
Evrópu, EMU, fyrir þjóðaratkvæða-
greiðsluna 28. september.
Svar leiðtoganna er að það þjóni
ekki málstaðnum að stuðningsmenn
EMU-aðiIdar kýti sín á milli.
I vikunni lét Marianne Jelved,
efnahagsráðheri’a Dana, í ljós þá
skoðun í Berlingske Tidende að rétt-
ast væri að hætta þjóðaratkvæða-
greiðslum um einstök atriði Evrópu-
samstarfsins, því umræðan snerist
alltaf um eitthvað annað en málefnin.
Allt er þetta merki um vaxandi
taugatitring, því skoðanakannanir
sýna að mjótt er á mununum og ekki
marktækur munur. Síðast sýndi
skoðanakönnun Gallup að 46 prósent
studdu aðild en 44 prósent voru á
móti.
Já-vængurinn
íjársterkari
Þótt flokksforysta Venstre og
íhaldsflokkurinn styðji aðild eind-
regið er auðsætt að almennir flokks-
menn eru í meiri vafa en í fyrri at-
kvæðagreiðslum um Evrópu-
samstarfíð. Bæði Anders Fogh
Rasmussen, formaður Venstre, og
Bendt Bendtsen, formaður Ihalds-
flokksins, benda á að gagnrýni Ny-
rups á þeirra flokka sé síst til að bæta
andrúmsloftið.
Það vakti síðan ergelsi nei-vængs-
ins þegar Marianne Jelved lýsti því
yfir að ástæða væri til að hætta at-
kvæðagreiðslum, því nei-vængurinn
hefði dregið inn svo mörg málefni
ótengd EMU-aðild að kjósendur
yrðu ruglaðir í hvað verið værí að
kjósa um. Það væri til dæmis fárán-
legt að brydda upp á sjálfstæði og
velferðarmálum í samhengi við
EMU-aðild. Fyrir þessi ummæli sín
hefur Jelved hlotið gagnrýni fyrir að
vera að hóta kjósendum.
Smáflokkurinn á hægri vængnum,
Kristilegi þjóðarflokkm-inn, mun
taka þátt í baráttunni á nei-vængn-
um. Formaðurinn Jan Sjursen er á
móti aðild, en margir flokksmenn eru
fylgjandi henni. Flokkminn mun
leggja til baráttunnar um hundrað
þúsund danskar krónur eða um millj-
ón íslenskra króna.
Fjái-munirnir verða þó öllu meiri á
já-vængnum og þar munar um stuðn-
ing verkalýðsfélaga, þótt enn sé
óljóst hversu víðtækur hann verður.
CO-Metal, samtök verkalýðsfélaga
og atvinnurekenda í málmiðnaði, og
Dansk Industri munu í sameiningu
leggja fram 2,5 milljónir danskra
króna til að koma upp tengiliðum á
vinnustöðum er vinna í þágu EMU-
aðildar.
Landbúnaðarráðið mun verja um
hálfri milljón danskra króna í upp-
lýsinga- og fundaherferð. Evrópu-
hreyfingin, samtök áhugamanna um
ESB, hyggst safna 1-3 milljónum
danskra króna tO að kosta herferð
um landið, meðal annars að rúta á
vegum hreyfíngarinnar keyri um
landið síðustu sex vikur fyrir at-
kvæðagreiðsluna.
Féð sem mest munar um kemur
frá Jafnaðarmönnum, Venstre og
Ihaldsflokknum.
Jafnaðarmenn leggja 5 milljónir í
baráttu sína, Venstre 5,1 mOljón og
íhaldsflokkurinn hyggst verja á milli
3 og 6 mOljónum í herferðina. Hér er
því um að ræða um og yfir 20 milljón-
ir danskra króna, sem stuðnings-
menn aðildar sjá fram á að verja til
baráttu sinnar.
Skiptimynt á
nei-vængnum
Á móti þessu er það nánast skipti-
mynt, sem andstæðingar aðddar hafa
úr að moða. Sósíalíski þjóðarflokkur-
inn, Júnflireyfingin og Þjóðarhreyf-
ingin gegn ESB hyggjast hver um
sig verja um mflljón danskra króna í
herferðir. Þeir bjartsýnustu eru
Samtök hægrimanna í Evrópu þjóð-
anna, sem um þessar mundir hafa að-
eins tíu þúsund handbær í baráttuna,
en reikna með að fá milljónir þegar
baráttan hefst að ráði.
Nú um helgina heldur danska al-
þýðusambandið fund, þar sem ákveð-
ið verður hvort og hvernig samband-
ið beiti sér fyrir aðild og hversu mikið
fé verði lagt í baráttuna. Þó ljóst sé
að forysta alþýðusambandsins sé höll
undir EMU-aðild er ekki víst að þátt-
taka sambandsins í baráttunni verði
mjög afgerandi sökum andstöðu víða
í aðildarfélögunum. Jafnaðarmanna-
flokkurinn og þá Nyrup forsætisráð-
herra reiðir sig mjög á stuðning sam-
bandsins og lin svör og lítið framlag
þaðan yrðu mikið áfall fyrir hann.
Styttist í fær-
eysku olíuna?
Þórshöfn. Morgunblaðið.
HUGSANLEGA er farið að styttast
í færeyskt olíuævintýri en svo mikl-
ar líkur þykja á olíufundi á færeyska
landgrunninu, að eitt af stærstu olíu-
fyrirtækjum í heimi, BP-Amoco,
hefur ákveðið að hefja þar leit.
BP-Amoco hefur sett upp útibú
eða skrifstofu í Færeyjum en 17. maí
nk. lýkur fyrstu útboðshrinunni,
þ.e.a.s., að þá verður ljóst hvaða ol-
íufélög hafa boðið í leit á svæði, sem
er um 14.000 ferkílómetrar og er
fyrir austan og suðaustan Færeyjar.
Eyðun Elttpr, sem fer með olíu-
málin í landsstjórninni, segir, að
mestar líkur séu á, að olía finnist á
þessu svæði en þar hafa farið fram
miklar jarðfræðirannsóknir. Er það
milli Færeyja og Hjaltlands en inn-
an bresku lögsögunnar hefur fundist
mikil olía.
Reiknað er með, að búið verði að
afgreiða útboðið eða umsóknirnar í
september í haust og leit að olíu gæti
þá hafist á næsta ári. Verða fyrir-
tækin að greiða ákveðið gjald fyrir
leitina og ræðst það af stærð leitar-
svæðisins. Þá vill landsstjórnin einn-
ig, að einhverjir Færeyingar taki
þátt í starfi olíufélaganna í því skyni
að afla sér reynslu með framtíðina í
huga.
Landsstjórnin mun meta umsókn-
ir fyrirtækjanna m.a. með tálliti til
hugsanlegs hagnaðar alls samfélags-
ins og þar virðist BP-Amoco vera
með á nótunum. Það hefur t.d. leigt
flugvél frá færeyska flugfélaginu
Atlantic Airways við ýmis tækifæri
og yfir færeyska útibúinu er Hjarn-
ar Djurhuss, Færeyingur, sem var í
mörg ár háttsettur hjá Shell.
Námstefna á Hótel Loftleiðum 12. maí kl. 9:00 - 11:00:
STÖRF STJÓRNARMANNA
- Hlutverk, skyldur, ábyrgð
Sti&ytiiimiétag
■ Mmés
Hvert er hlutverk stjórnarmanna? Er þeirra eina hlutverk að ráða og
reka framkvæmdastjórann? Hvernig geta stjórnir haft áhrif til aukins
árangurs? Má draga stjórnarmenn til ábyrgðar ef illa fer? Hver er
siðferðileg skylda stjórnarmanna?
Fyrirlesarar:
• Frosti Bergsson, forstjóri Opinna kerfa hf.
• Páll Skúlason, lögmaður
• Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Eimskipafélags íslands hf.
• Dr. Bjarki Brynjarsson, framkvæmdastjóri
Námstefnugjald: Almennt verð kr. 12.900, SFÍ verð kr. 9.900.
Innifalin í námstefnugjaldi er bók Páls Skúlasonar, Hugvekja, handbók
fyrir stjórnarmenn og framkvæmdastjóra í félögum.
Skráning: C 533 4567 - stjornun@stjornun.is
Samtals: 104.970,
A4 mynlesarafiötur.
600x1200 pát upplausn.
19200 pát hugbúnaðar
|e bm. upplausn.
36 bita litadýpt.
Myndvinnsiu-og
textainnlesturforrit
fylgja.
AÐEIIUS 75
PAKKAR!
Myndlesari 1.990,-
Prentari 2.990,-
Tölvurisi 99.990,-
3 bls á min í sv.
1 bls á min f lit.
2 blekhylki.
Kodak PhotoRet
HP 610 Ijósmynda-
prentari. Notar Kodak PhotoRet prenttæknina.
Líttu við f næstu búð og sjáðu útprentani úr þessum frábæra prentara.
Flft* * coMPursiö'
i*su>Am:
Beint á nctið á topp hraða. Þú ert ekki i neinum
vandræðum með að skila af þér skóla-
verkefnunum þvi Word 2000, vinsælasta
rítvinnsla i heimi, fylgir með. Fujitsu Siemens
tölvurisinn stendur
svo sannarlega f fTT~r2 ' 4 •
undirnafni!
•Windows98SE » -
• MicrosoftWord
2000 m
‘Fráæbært tilboð
sem gildir meðan
birgðir endast. Láttu
drauminn rætast og
fáðu bæði prentara
og myndlesar á
gjafverði þegar þú
kaupir Fujitsu
Siemens 466 MHz
tölvurisa!
> 17" vandaður skjár
> Intel Celeron 466Mhz
• 64MB innra minni
• 8,4 GB harður diskur
• 40 hraða geisladrif
> Intel skjákort á móðurborði
> 64 radda hljóðkort
> 56K innbyggt mótald
> Margmiðlunarlyklaborð,
• Vönduð mús með hjóli
• Fujitsu hátalarar með
tengi fyrir heyrnatól
IMOKIA5110 með BT framhlið!
LÆKKAÐ
VERP
Nú bjóðum við 100 stk af vinsælasta síma
á fslandi á lægra verði með BT framhlið.
2990
Pyngdt170jgfömm:,
Biðtimi’nllt aðl270 klst
Táltimi!allt'aði5:klst:
150 númer i simaskrá'.,
SMS skil.iboö, »
. . . TAI 11
numerabirtirog klukka: TAll2^S^«K!?
'30 Simhringingar.\ Simkórtið kostar kr. l'.999£dg
• 3 ÍnnbyggdÍrJeÍkÍrA J.grcitt fyrir það aukaleg
. : .rií'-.
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020
BT Kringlunni - S: 550-4499 • BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500