Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 60
jO FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hryðjuverk, óhróð-
ur og rógur?
HLOÐVER Krist-
jánsson, fyrrverandi
öryggisfulltrúi ísal fer
mikinn í MBL-grein
varðandi róg og óhróð-
ur í garð ísal fyrir
stuttu. Hann spyr
hvort það sé trúlegt að
"aíjTÍrtæki sem vanti
starfsfólk stundi
„terrorisma" gegn
því? Eins segir hann
að það hafi ekki tíðk-
ast að hlaupa í fjöl-
miðla þó eitthvað bjáti
á. Varðandi róginn og
óhróðurinn er best að
vísa honum til föður-
húsana.
Mikil umræða hefur farið fram
um fyrirtækið m.a. í Morgunblað-
inu og á Netinu. Ekki hef ég séð
minnsta vott af lygum og skora ég
þvi á Hlöðver að upplýsa hver hefur
logið einhverju um ísal í fjöl-
miðlum. Hafi það verið gert er það
fðvitað alvarlegt mál. Að það hafi
ki tíðkast að fara í fjölmiðla kall-
ast á góðri íslensku „meðvirkni".
Framkoma framkvæmdastjórnar
og stjórnenda Isal hefur verið með
því móti að ekki er hægt annað en
að nefna nokkur dæmi til að Hlöð-
ver rifji nú upp „gamla tíma“.
Hagræðingin
Ég var bæði trúnaðar-og örygg-
istrúnaðarmaður í hartnær 10 ár í
skautsmiðju. Þannig kynntist ég
stiórnendum ísal vegna ýmissa
■rnala sem upp komu. í samningum
lentum við æ ofan í æ í því að semja
um eitthvað sem ísal gerði síðan
ágreining um að loknum samning-
um. Það var t.d. samið um hagræð-
ingarábata vegna hagræðingar.
„Hagræðingin" átti sér stað en
engin ábati fékkst til starfsmanna
nema í tveimur minniháttar málum.
Starfsmenn voru hlunnfamir um
hundruð milljóna vegna þess að
samningurinn var „rangt orðaður"
og ísal ákvað að gera ágreining um
málið.
Mesta hagræðingin gekk út á að
fækka starfsmönnum án þess að
tæknilegar ástæður gæfu tilefni til.
Þ.e.a.s. starfsmenn bættu við sig
sinúningi og áttu síðan að fá hluta af
Taunum þeirra sem var fækkað.
Þegar fólk stendur í samningum
vita báðir aðilar hvað verið er að
semja um. Skrifað er undir og menn
takast í hendur þar sem sátt og
samlyndi stendur og fellur með
heiðarleika samningsaðila. Síðan þá
hafa starfsmenn ísal setið eftir með
vinnuálagið og margir
misstu vinnuna. Það
gleymist oft hvers
konar vinnustaður ísal
er í raun. Mengun,
hávaði, óhollt og
hættulegt vinnuum-
hverfi er staðreynd í
þessari verksmiðju.
Brottrekstur
Þar sem öryggisfull-
trúinn fyrrverandi lét
að því liggja að allir
brottreknir frá ísal
séu reknir þaðan
Jóhannes vegna óverðugleika
Gunnarsson langar mig að fara yfir
brottrekstur starfs-
manna í skautsmiðju sl. ár. Sérstak-
lega þar sem stíllinn hjá ísal er að
enginn fái að verja sig. Ekki verður
fjallað um þá sem hafa beinlínis
verið hraktir úr skautsmiðjunni eða
ráðnir „tímabundið" til fyrirtækis-
ins. Starfsmaður getur verið „tíma-
bundið ráðinn" í 4-5 ár hjá ísal.
Einn hafði unnið hjá Isal í u.þ.b.
15 ár. Hann taldi sig eiga rétt á að
skreppa í kaffi í nokkrar mínútur
eftir gífurlega törn þar sem m.a.
annars er unnið með 1500°C bráðið
járn. Aðstoðarforstjóri afhenti hon-
um viðvörunarbréf með vel völdum
orðum yfir háttsemi hans. Nokkru
seinna, m.a. eftir kröftug mótmæli
trúnaðarmanna, var hann rekinn.
Annar hafði unnið hjá ísal í u.þ.b.
15 ár. Hann hafði flekklausan feril
og sagði ekki styggðaryrði um
nokkurn mann og vann sitt starf án
þess að nokkur þyrfti að skipta sér
af því. Það sem hann vann sér til
saka var að vera veikur yfir ein jól.
Það þykir grunsamlegt ef einhver
dirfist að veikjast yfir hátíðir. Það
fór „lengra“. Hann var rekinn
stuttu seinna.
Eftir næstum 20 ára starfsferil
var maður, sem m.a. er astmasjúk-
lingur, rekinn. Hann hafði stundum
verið frá vinnu vegna þessa. Þess
ber að geta að talið er að allt að 10%
þeirra sem hefja störf í kerskálum
fái astma. Hann var í meðhöndlun
hjá lungnasérfræðingi sem jafn-
framt er trúnaðarlæknir ísal. Hann
var strax eftir veikindin kallaður til
trúnaðarlæknisins sjálfs og beðinn
um að útskýra hvers vegna hann
hefði verið frá vinnu. Hann var rek-
inn stuttu seinna.
Mjög svo dugleg kona um fertugt
var einnig rekin. Hún vann sitt
starf óaðfinnanlega og kláraði sitt
með sóma og ríflega það. Hún lenti
tvisvar í því að hvolfa skautvögnum
Starfsnám
Þetta fólk fékk ekki einu
sinni að verja sig, segir
Jóhannes Gunnarsson,
hvað þá viðvönm fyrir-
fram eins og eðlilegt
mætti teljast.
með skautum fyrir kerskála. Vegna
aukinnar álframleiðslu þarf æ
stærri skaut.
Skautin stækka og stækka en
vagnarnir eru alltaf jafnstórir. í
hverri ferð þarf að draga yfir 15
tonn úr skautsmiðju í kerskála, á
traktor! Ég marg varaði stjórnend-
ur við að nota vagnana því þeir
væru of valtir og þeim hvolfdi
reglulega eftir að skautin stækk-
uðu. Aðstoðarforstjóri tjáði mér að
konunni hefði verið sagt upp vegna
„óvarkárni“.
Hjá ísal eru „hérumbil slys“
skráð. Þ.e. óhöpp sem valda ekki
slysum á fólki. Þetta flokkaðist und-
ir slíkt slys. Brottrekstur fyrir slíkt
óhapp hlýtur að fá þá sem eftir
verða til að hugsa sinn gang varð-
andi skráningu á slíkum óhöppum
ef það getur kostað þá vinnuna.
Sá síðasti í röðinni hafði unnið hjá
ísal í 22 ár. Duglegri mann er vart
hægt að finna. Hann stundaði sína
vinnu vel. Þegar verkstjóri og trún-
aðarmaður skautsmiðju, nefnilega
undirritaður, voru hættir störfum
setti starfsmaðurinn upp lista þar
sem hann óskaði eftir að menn
tækju þátt í að gefa trúnaðarmann-
inum kveðjugjöf. Næstu dagvakt á
eftir var það fyrsta verk deildar-
stjóra rafgreiningar að reka hann.
Trúnaðarmenn eru nefnilega ekki
góð sort af starfsmönnum í augum
framkvæmdastjórnar. Þessi starfs-
maður tapaði síðan máli gagnvart
ísal vegna þess að lögin leyfa at-
vinnurekendum að reka fólk til
vinstri og hægri án þess að nefna
ástæðu.
Stundum eiga uppsagnir rétt á
sér en í þessum tilvikum hefur
þetta saklausa fólk verið beitt órétti
af skapvondum stjórnendum enda
fær enginn fastráðingu hjá ísal
nema hann standi sig. Þetta fólk
fékk ekki einu sinni að verja sig,
hvað þá viðvörun fyrirfram eins og
eðlilegt mætti teljast.
Áskorun
Ég skora á alla þingmenn en þó
sérstaklega þingmann Reykjaness,
Gunnar Birgisson, sem einnig er í
stjórn ísal, að koma í veg fyrir geð-
þóttauppsagnir og mannorðssvipt-
ingu starfsfólks, algjörlega að
ástæðulausu, með því að vinna að
því að „samþykkt Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar nr. 158, um
uppsögn starfs af hálfu atvinnurek-
enda“ taki gildi. Að hún skuli ekki
hafa tekið gildi er íslensku þjóðfé-
lagi til háborinnar skammar.
Höfundur er verkamaður í skauts-
miðju bjá ÍSAL og var í starfsnáms-
nefnd til að koma á starfsnámi bjá ís-
aI.
25 prósent hækkun
á skólagj öldum
NÝVERIÐ barst
nemendum Háskólans í
Reykjavík skeyti frá
rektor, Guðfinnu S.
Bjamadóttur, sem bar
miður spennandi frétt-
ir. Skólagjöld skyldu
hækkuð um 25% á einu
bretti, úr tæplega
55.000 kr. í 69.000 kr.
frá og með haustönn
2000. Ekki hafa þessar
fréttir farið hátt í þjóð-
félaginu í dag, enda ef-
laust margt áhugaverð-
ara sem fangar athygli
fréttamanna heldur en
raunir háskólanema.
Hversvegna?
Ástæður fyrir þessari hækkun eru
gefnar upp í bréfi rektors. Orðrétt
segir: ,Aukinni starfsemi fylgir ýmis
viðbótarkostnaður, vegna viðbótar-
kostnaðar og almennrar launaþróun-
ar í landinu var ákveðið á fundi há-
skólaráðs í febrúar að skólagjöld fyrir
næsta ár yrðu hækkuð í 69 þ.kr. á
önn.“ Hér er athyglisvert að minnst
sé á almenna launaþróun í landinu.
Þann 13. apríl tilkynntu Verka-
mannasamband íslands, Landssam-
band iðnverkafólks og Samtaka at-
vinnulífsins nýjan samning sem felur
í sér 3,9-8,9% hækkun launa. Sérstak-
Jón Arnar
Guðmundsson
lega var tekið fram að
ekki sé hægt að hækka
laun eins og krafist var,
en samninganefndir
hefðu náð saman í þess-
um tölum. Ein ástæða
fyrir því hlýtur að vera
að nú þarf að spoma við
vaxandi þenslu og verð-
bólgu í þjóðfélaginu.
Þvi hlýtur það að vera
umhugsunarvert þegar
Háskólinn í Reykjavík,
sem meðal annars
kennir þjóðhagfræði og
kenndi sig við viðskipti,
ákveður að hækka
skólagjöld sín um 25%!
REGNFATNAÐUR A
R N
VERSLANIR
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425
FAXAFENI 12 SÍMI 588 6600
HIR hefur margt að bjóða...
Ef við beram saman Háskólann í
Reykjavík og Háskóla íslands verður
að segjast að HIR ber af á mörgum
sviðum. Skólahúsið er nýtt og býr að
tölvubúnaði af bestu gerð. Innan
skólans era kennarar í nánum tengsl-
um við atvinnulífið, þannig að nem-
endur njóta reynslu þeirra. Ég var
meðal nemanda á fyrsta ári Við-
skiptaháskólans í Reykjavík og verð
að kallast heppinn, því að það ár vora
einungis fyrsti árgangur í viðskipta-
deild pg tveir árgangar í tölvunar-
deild. í ár bættist við einn árgangur í
tölvu- sem og viðskiptadeild og á
næsta ári verður í fyrsta sinn kennt
þriðja ár viðskiptadeildar. Því er ljóst
að nemendafjöldi við HIR fer vaxandi
á hveiju ári og er svo komið að skóla-
húsið er í raun sprangið á öðru ári.
Innritunargjöld við HI era hins-
vegar 24.000 kr. á ári á meðan HÍR
fer fram á 110.000 kr. í skólagjöld og
ætlar að hækka í 138.000 kr. á ári.
Rök sem rektor hefur gefið nemend-
um kalla á nánari skýringar og er
vonandi að rektor sjái sér fært að
svara þessari grein. Mikil umræða
spannst í kringum áætlaða hækkun
skólagjalda við HÍ og sameinuðust
nemendur HÍ til að mótmæla. Nem-
andafjöldi HÍR er vissulega minni en
við HI en það þýðir ekki að við mun-
um ekki láta heyra í okkur.
íslendingar og hækkanir
íslendingar hafa hinsvegar þann
leiða ávana að láta ekki heyra í sér
þegar eitthvað fer úrskeiðis í þjóðfé-
laginu. Við mætum bensínhækkun-
um, matarhækkunum og hækkun
símakostnaðar með slíku fálæti að
halda mætti að þessar hækkanir ættu
sér stað í öðra landi. Ef til vill er þetta
afleiðing þess að búa á lítilli eyju í
Norður-Atlantshafinu þar sem veð-
ráttan og landslagið krefst þess af
íbúunum að þeir sýni æðraleysi í öll-
um sínum gjörðum og sætti sig við
Gjöld
Það hlýtur að vera ljóst,
segir Jón Arnar Guð-
mundsson, að nú er
kominn tími til að láta
heyra í sér.
orðinn hlut. Þegar bensín hækkaði í
Frakklandi fyrir tveim árum tóku
vörabílstjórar sig saman og lokuðu
landamærum Frakklands og Spánar
til að láta óánægju sína í ljós. Ekki er
ég að leggja slíkar aðgerðir fram sem
okkar eina kost en það hlýtur að vera
ljóst að nú er kominn tími til að draga
djúpt andann og láta heyra í sér.
-
Nám með atvinnu
Hækkunin snertir sérstaklega
nemendur sem ætla sér að taka
þriðja ár sitt á fjórum önnum. Ég hef
verið að velta framtíð minni fyrir mér
ogvil gjarnan taka þátt í atvinnulífinu
og klára mitt nám með vinnu. Hins-
vegar fer HÍR fram á sömu skóla-
gjöld óháð því hversu marga áfanga
þú tekur. Ég hafði ætlað mér að taka
3 áfanga á önn næstu 4 annir og klára
þannig BS-gráðu í tölvufræði vor
2002. Fyrir það þai-f ég að greiða
HÍR 69.000 kr. á önn eða samtals
276.000 kr. Þá væri ég búinn að
greiða 386.000 kr. í skólagjöld eða
svipað og nemendur HÍ greiða á
fimmtán árum! Nemendur við HÍR
hljóta að krefjast þess að skólinn taki
tillit til þeirra nemenda sem era í
hlutanámi og bjóði upp á önnur kjör
en þessi.
Skólinn er
fyrir nemendur
Mér er minnisstætt þegar ég
heyrði Guðfinnu halda ræðu á fyrsta
skóladegi HÍR. Framundan vora
bjartir tímar og miklar kröfur yrðu
settar á nemendur. Ekki myndu allir
klára námið en það var von rektors að
nemendur myndu byggja á náminu
það sem eftir væri. Sérstaklega situr í
mér þegai- rektor talaði um mikilvægi
nemenda fyrir skólann. Skólinn væri
ekkert án nemenda og í þessum skóla
skyldi setja nemendur í fyrsta sæti,
líkt og markaðurinn ætti að setja
neytendur í fyrsta sæti, enda ætti
skólinn í harðri samkeppni við aðra
skóla á háskólastigi. Ekki finnst mér
að Háskólinn í Reykjavík standi við
þessi mætu orð í dag.
Höfundur er nemandi við Háskólann
{ Keykjavík.