Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BUGL, Stuðlar og SÁÁ hefja samstarf í málefnum barna og ungmenna
Markmiðið að tryggja skjól-
stæðingum örugga þjónustu
Morgunblaðið/Kristinn
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Páll Pétursson félags-
málaráðherra staðfestu þjónustusamning milli Landspítala -háskóla-
sjúkrahúss, Barnaverndarstofu og SÁÁ í gær.
GERÐUR hef'ur verið þjónustu-
samningur milli Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss, Barnaverndarstofu og
sjúkrastofnana SÁA sem miðar að því
að tryggja bömum og unglingum
með geðraskanir, vímuefnavanda og
hegðunartruflanir eins góða, slqóta
og örugga þjónustu og frekast er
kostur. Með samningnum skuldbinda
samningsaðilar sig m.a. til að vinna
sameiginlega að þessu markmiði með
nánu samstarfi sín á milli, m.a. með
reglubundnum samráðsfundum yfir-
manna viðkomandi stofnana, eigi
sjaldnar en á þriggja mánaða fresti
og með starfsemi fagteymis sem m.a.
fjalli um málefni einstakra bama og
unglinga og önnur þau úrlausnarefni
sem eru til þess fallin að mæta þörf-
um skjólstæðinga samningsaðila.
I samningnum felast m.a. þau
nýmæli að á bama- og unglingageð-
deild Landspítalans (BUGL) verða
opnuð tvö ný bráðapláss fyrir ungl-
inga í bráðaástandi vegna geðraskana
og ennfremur verður BUGL skuld-
bundið til að veita Stuðlum sem og
öðmm meðferðarheimilum á vegum
Bamavemdarstofu reglulega þjón-
ustu sérfræðings í barna- og ungl-
ingageðlækningum sem og þjónustu
hjúkrunarfræðings. Þá ber BUGL
samkvæmt samningnum að veita
unglingadeild SÁÁ sérfræðiráðgjöf í
geðlækningum sem nemur hálfu
stöðugildi og ennfremim að veita
Bamavemdarstofu og SÁÁ bakvakt-
arþjónustu sérfræðings allan sólar-
hringinn, alla daga vikunnar. Samn-
ingurinn tekur gildi hinn 1. júní nk. og
þýðir að fjárframlög úr ríkissjóði til
geðheilbrigðisþjónustu við böm og
unglinga aukast um rúmar 40 milljón-
ir króna á ári en vegna ýmiss konar
stofnkostnaðar svo sem breytinga á
húsnæði og þjálfunar og fræðslu
starfsfólks er gert ráð fyrir því að
rúmar 52,5 milljónir króna fari í þetta
verkefni í ár.
Samningurinn var kynntur á blaða-
mannafundi í gær og sagði Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Bamavemd-
arstofu, m.a. við það tækifæri að um
tímamótasamning væri að ræða. „Það
merkilegasta í honum er sú áhersla
sem lögð er á samhæfingu og sam-
starf þessara ólíku aðila,“ sagði hann
og bætti við að allir bæm þeir mikla
ábyrgð á meðferð bama og ung-
menna sem eiga við geðraskanir,
hegðunarvanda og vímuefnavanda að
stríða. „Auðvitað hefur átt sér stað
samstarf milli þessara aðila fram að
þessu en með samningnum er því
samstarfi markaður ákveðinn farveg-
ur sem ég er ekki í nokkmm vafa um
að muni skila sér í markvissari með-
ferð, betri nýtingu fjármuna og mun
betri þjónustu fyrir böm og ungl-
inga.“
Ráðherrar staðfesta
samninginn
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra og Páll Pétursson félags-
málaráðherra staðfestu samninginn á
blaðamannafundinum í gær og sögðu
eins og Bragi að um tímamótasamn-
ing væri að ræða. „Þetta er stórt og
merkilegt skref sem hér hefur verið
tekið," sagði félagsmálaráðhema og
benti á að það hefði lengi verið gagn-
rýnt hve lítil samhæfing hefði verið
milli þeirra aðila sem kæmu að með-
ferð og greiningu barna og ungmenna
í umræddum hópi. Með samningnum
hefði hins vegar tekist afar gott sam-
komulag um samstarf þessara aðila.
Heilbrigðisráðherra tók í sama
streng og ítrekaði þakkir til þeirra
sem að samningu hans hefðu komið.
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlækn-
ir á BUGL, lýsti eins og aðrir yfir
mikilli ánægju með samninginn ekki
síst vegna þess að hingað til hefði
ákveðin tortryggni ííkt milli þeirra
meðferðaraðila sem að honum kæmu,
þ.e. skort hefði á að gagnkvæmt
traust hefði ávallt verið til staðar. Það
hefði að sjálfsögðu ekki gagnast böm-
unum, unglingunum og fjölskyldum
þeirra. Ólafur lagði þó áherslu á að
þrátt fyrir ágæti samningsins leysti
hann ekld allan vanda sem við væri að
etja í þessum geira. Benti hann m.a. á
í því sambandi að enn vantaði „fram-
haldsmeðferðarúrræði" iyrir ungl-
inga á unglingadeild BUGL. „Við er-
um mjög ánægð með þennan samning
en hann leysir ekki allan vanda.“
Enn á gjör-
gæsludeild
eftir bflslys
LÍÐAN fimmtán ára piltsins sem
slasaðist alvarlega þegar ekið var á
hann á bílastæði við Sólheima 23 á
þriðjudagskvöld er enn óbreytt frá
því hann var lagður inn á gjörgæslu-
deild eftir slysið. Hann hlaut and-
litsáverka í slysinu og er haldið sof-
andi í öndunarvél.
Tuttugu og fjögurra ára gömul
kona, sem var nær drakknun eftir að
bifreið sem hún var farþegi í, valt út í
Hólmsá 16. apríl, liggur einnig ennþá
á gjörgæsludeildinni. Líðan hennar
er óbreytt og er henni haldið sofandi
í öndunarvél.
----------------
Hald lagt
á fíkniefni
LÖGREGLAN í Kópavogi lagði
hald á um 40 grömm af fíkniefninu
maríúana síðdegis á miðvikudag-
Efnið fannst við leit á ökumanni
bifreiðar sem stöðvuð var við hefð-
bundið eftirlit í bænum.
Ökumaðurinn var handtekinn og
færður til yfirheyrslu og sleppt að
því loknu. Málið telst upplýst og
verðui? tekið til áframhaldandi
meðferðar hjá ákæruvaldi. Maður-
inn er á þrítugsaldri og hefur áður
komiðíyið sögu lögreglunnar vegna
fíknieœa- og auðgunarbrota. Á
miðvikudag lagði lögreglan í Kópa-
vogi einnig hald á um 115 grömm
af hassi, tæp 2 grömm af amfeta-
míni og 2 e-töflur eftir leit á heim-
ili karlmanns á fertugsaldri í
Kópavogi. Maðurinn var handtek-
inn en sleppt að loknum yfir-
heyrslum, enda telst málið upplýst
eins og hið fyrra.
Haraldur greip til
Argostækis í sam-
bandsleysinu
HARALDUR Örn Ólafsson
pólfari var símasambandslaus í
gær vegna bilunar sem kom upp
í Iridium-kerfinu. Hann
greip þá til Argos-
senditækis síns og tjáði
þannig bakvarðasveit
sinni að allt væri með
felldu með kóðanum 00
sem merkir „All OK“.
Haraldur gekk um 16
km á ferð sinni á mið-
vikudag og er því kom-
inn 527 km áleiðis á
pólinn og á um 240 km
ófarna.
Ólafur Örn Haraldsson, faðir
Haraldar, taldi í gær ekki ólík-
eftir
legt að Haraldur teldi að lokun
Iridium-kerfisins, vegna gjald-
þrots fyrirtækisins, væri loksins
komin til framkvæmda.
Bilun í jarðstöð
í Róm
Bilunin, sem átti ræt-
ur að rekja til jarð-
stöðvar i Rómaborg,
var þó skammvinn og
lauk viðgerð seinni part
dags í gær. Beið bak-
varðasveitin því spennt
heima eftir því að Haraldur
prófaði símann aftur og léti frá
sér heyra klukkan eitt í nótt
eins og hann er vanur.
THE TIMES ATLAS OF THE WORLD
Kortabókin frá Times hefur alltaf verið í sér-
flokki og þessi útgáfa af Times Atlas - í tilefni
aldamótanna - er í einu orði sagt stórkostleg
sem vísar þér veginn um allar álfur heims.
Webstcr’s Encydopcdic
Unabridged Dictionaiy
VVchslcr's
Lncvdgiiedic
Unáhi'iogea
Didionárv
Philip's Concise
World Atlas
Erlendar bækur
daglega
2.495
kr.
_w Kyniiimlssoii
Austurstræti 5111130* Kringiunni 533 1130 • Hafnarfirði 555 0045
Sálumessa Nínu
Bjarkar Arnadóttur
SÁLUMESSA fyrir Nínu Björk Árnadóttur var sung-
in í Landakotskirkju í gær. Prestur var sr. Hjalti
Þorkelsson, ávarp flutti sr. Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup, einsöngvarar vora Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir og Sigurður Skagfjörð. Einleik á fiðlu lék Laufey
Sigurðardóttir, organisti var Úlrik Ólafsson og karl-
araddir úr Hljómkórnum sungu. Kistuna í og úr kirkju
báru Jón Proppé, Hrafn Jökulsson, Sigrún Hjaltested,
Elísabet Jökulsdóttir, Sveinn Einarsson og Þorsteinn
frá Hamri.
Hlaut Rosen-
stiel-verðlaunin
GÍSLI Pálsson, prófessor við Há-
skóla íslands og forstöðumaður
Mannfræðistofnunar HÍ, hlaut um
miðjan mánuðinn verðlaun Rosen-
stiel-hafrannsóknarstofnunarinnar
við Miami-háskóla í hafvísindum
en viðurkenning þessi er veitt ár-
lega einum einstaklingi fyrir
framúrskarandi árangur á sviði
hafrannsókna.
Verðlaunin voru veitt í fyrsta
sinn árið 1971 og er Gísli Pálsson
því 24. verðlaunahafinn. Voru
verðlaunin að þessu sinni veitt fyr-
ir mikilsvert framlag á alþjóða-
vettvangi til rannsókna á stefnu-
mótun í sjávarútvegi.
Gísli Pálsson tók við verðlaunun-
um við formlega athöfn í Miami
hinn 18. þessa mánaðar úr hendi
Charles Cobb, fyrrverandi sendi-
herra Bandaríkjanna á íslandi, en
Cobb er formaður skólanefndar
Miami-háskóla í Bandaríkjunum.
Gísli Pálsson, prófessor við HÍ,
tekur við viðurkenningunni úr
hendi Charles Cobb, formanns
skólanefndar Miami-háskóla.