Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 1 3
FRÉTTIR
Hannes Hólmsteinn Gissurarson heldur fyrirlestra
í háskólum í Hong Kong og Japan
Sveitarfélög fjalla um opinber
verkefni í fjarvinnslu
Mikill áhugi á íslenska
fiskveiðikerfínu í Asíu
Hannes Hólmsteinn Gissurarson flutti fyrirlestur í Hong Kong Univers-
ity um eignarréttindi út frá hagfræðilegu og siðferðilegu sjónarhorni.
EIGNARÉTTINDI út frá hag-
frasðilegu og siðfræðilegu sjónar-
horni, með sérstöku tilliti til fiskim-
iða, voru viðfangsefni Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar, prófes-
sors við Háskóla íslands, í fyrirlestri
sem hann flutti á þriðjudag í Hong
Kong University. Þetta var þriðji
fyrirlesturinn í fyrirlestraferð hans
um Asíu, en í síðustu viku talaði
hann í Chiba Háskóla nálægt Tokýó
í Japan og í Tokyo University of
Fisheries.
Hannes Hólmsteinn segir í sam-
tali við Morgunblaðið að bæði í Hong
Kong og Japan sé mikill áhugi á ís-
lenska fiskveiðikerfinu og margir
hafi látið í Ijós áhuga á því að í Asíu
yrði haldin alþjóðleg ráðstefna um
fiskveiðar þar sem íslenskir fræði-
menn miðluðu af reynslu íslendinga.
Umíjöllun um frelsi og eignar-
rétt með tilliti til fískimiða
í fyrirlestri sínum í Hong Kong
University sagði Hannes Hólm-
steinn meðal annars að ofveiði væri
að sumu leyti eins og mengun og að
orsakir hennar væru hinar sömu og
mengunar, enginn ættiþað sem væri
nýtt og ofnýtti það þess vegna. Hann
sagði kvóta bera svip af eignarétt-
indum, en yfirvöld á íslandi hefðu
ekki viljað viðurkenna hann sem
slík, sem gerði öryggi handhafanna
minna en æskilegt væri og framtíð-
aráætlanir erfiðari. Aðalatriði máls-
ins væri þó að íslendingar hefðu,
ólíkt öðrum fiskveiðiþjóðum, náð
sæmilegum tökum á nýtingu fiskist-
ofnanna, sem sæist ef til vill best á
því að á Islandi væri aðalvandinn
ekki talinn tap sjávarútvegsfyrir-
tækja, heldur gróði þeirra.
í fyrirlestrinum í Chiba háskóla
fjallaði Hannes Hólmsteinn um
frelsi og eignarétt með tilliti til fisk-
imiða og lýsti því hvernig kvótakerf-
inu var komið á til að stilla sókninni í
hóf eftir að fiskveiðilögsaga Islands
var færð út. Hann benti á að kerfið
væri umdeilt og vísaði í því sambandi
í dóma Hæstaréttar í svonefndum
Valdimars- og Vatneyrarmálum.
í Tokyo University of Fisheries
lýsti hann íslenska fiskveiðistjómar-
kerfínu, hvernig kvóta væri úthlut-
að, hvemig viðskiptummeð hann og
eftirliti með veiðum væri háttað.
Hann sagði að hagsmunir útgerðar
og þjóðar færu saman því gott ást-
and fiskistofna og lágur kostnaður
við veiðar væru hagsmunir útgerð-
armanna, þar sem þeir væru hand-
hafar hluta í heildarafla hvers árs.
Skapa má fjölda
starfa á lands-
byggðinni
SAMRAÐSFUNDUR fulltrúa sveit-
arfélaga og íslenskrar miðlunar,
sem var haldinn í Reykjavík fyrir
nokkru, hefur fulla trú á að skapa
megi umtalsverðan fjölda starfa á
landsbyggðinni með því að flytja op-
inber verkefni til fjarvinnslustöðva.
Fram kemur í yfirlýsingu frá fundin-
um að fagnað er stefnumótun hins
opinbera á þessu sviði og áhuga
stjórnmálamanna á flutningi verk-
efna í fjarvinnslu en telur að alltof
hægt gangi að koma áformum
stjórnvaldaíverk.
„Þó lýsir fundurinn yfir ánægju
sinni með það verk sem nú er unnið á
þessu sviði undir forystu iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytisins. Fundar-
menn eru einhuga um að þrýsta á
stjórnvöld um að flutningi opinberra
starfa til landsbyggðarinnar verði
hraðað mjög.“
Til fundarins var boðað af hálfu
Stöðvarhrepps til að ræða verkefn-
astöðu í fjarvinnslu víðsvegar um
landið og með hvaða hætti þau sveit-
arfélög, sem hagsmuna eiga að gæta,
geti þrýst á stjórnvöld vegna flutn-
ings opinberra verkefna í Qarvinnslu
á landsbyggðinni. Fulltrúar sveitar-
félaganna sem hlut eiga að máli hafa
ekki áður fundað sameiginlega en
stefnt er að því að halda fleiri slíka
samráðsfundi þegar við á.
Til fundarins voru boðaðir full-
trúar eftirfarandi sveitarfélaga:
Stöðvarhrepps, Fjarðabyggðar,
Vopnafjarðar, Raufarhafnar, Hrís-
eyjar, Olafsfjarðar, Blönduóss, ísa-
fjarðarbæjar, Bolungarvíkur, Vest-
urbyggðar og Grundarfjarðar.
Bjartsýni um uppbyggingu
fjarvinnslustöðva
Fulltrúar allra ofangreindra sveit-
arfélaga taka undir niðurstöðu fund-
arins og lýsa áhuga á þátttöku í sam-
starfi aðilanna. Hið sama gerir
fulltrúi Kaldrananeshrepps.
Fundarmenn voru sammála um að
ástæða væri til bjartsýni um upp-
byggingu fjarvinnslustöðva á lands-
byggðinni þótt enn sem komið er
hafi gengið alltof hægt að flytja opin-
ber verkefni til slíkra stöðva. Fund-
armenn fögnuðu því frumkvæði sem
Skráningarstofan hf. sýndi með því
að semja við íslenska miðlun um að
veita upplýsingar úr ökutækjaskrá
frá samskiptaveri fyrirtækisins á
Raufarhöfn.
„Fordæmisgildi samningsins er
mikilvægt og fyrir liggur að unnt er
að vinna fjölmörg verkefni af þessu
tagi með hagkvæmum hætti í fjar-
vinnslustöðvum á landsbyggðinni.
Þannig má auka fjölbreytni í at-
vinnulífi á landsbyggðinni, styrkja
stöðu byggðanna og hamla gegn
þeim þjóðflutningum sem nú eiga sér
stað frá landsbyggðinni til höfuð-
borgarsvæðisins."
Mazda Premacy er sannkallaöurfjölskyidubíll. Vib hönnun
hans var kappkostað vib aö tryggja ítrasta öryggi, bestu
þægindi, nægilegt rými og fjölbreytta notkunarmöguleika.
Nú kostar Premacy aðeins kr. 1.749.000
Komdu og kynntu þér hann nánar! Opib laugardaga 12-16
,
Skúlagötu 59, síml 540 5400 www.raesir.ls
ísafjðrður: Bllatangi ehf. Akureyri: BSA hf. Egilsstaðir: BHasatan Fell Selfoss: Betri bilasaian Vestmannaeyjar: Bifreiöaverkstæði Muggs Akranes: Biiás Keflavik: Btiasala Keflavikur Hornafjórður: Vélsmiðja Hornafjarðar