Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna um netsjúkrahús var fjölsótt á Grand hótel í gær. Morgunblaðið/Kristinn
Sjúklingar strikamerktir
og lyfseðlar rafrænir
Ráðstefna á vegum Nýherja um upplýs-
ingatækni á heilbrigðissviði var haldin í
gær. Þar kom fram m.a. að unnt yrði að
draga úr kostnaði við rekstur Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri um 51 milljón kr.
á ári með því að innleiða strikamerkingar.
Jesper Bredese Torben Linér Jeff Schou
JESPER Bredesen er danskur
skurðlæknir sem hefur undanfarin ár
starfað hjá IBM við innleiðingu raf-
rænna sjúkraskráningakerfa og er
jafnframt ráðgjafl á heilbrigðissviði í
Danmörku og Svíþjóð. Bredesen hef-
ur undanfarin sjö ár unnið að þróun
rafrænna sjúkraskráa á vegum
Healthcare Nordie, sem er stofnun
innan Evrópusambandsins. Hann
segir að þróun þessara mála sé lengst
komin í Svíþjóð og mun lengra en í
Danmörku, Noregi og íslandi.
Um 40% sjúkraskráa á sænskum
sjúkrahúsum ena raíræn. „Margir
heimilislæknar era með rafrænar
sjúkraskrár inni á sinni tölvu, t.a.m.
næstum 90% heimilislækna í Dan-
mörku. En á sjúkrahúsunum, þar
sem virkileg þörf er fyrir slíka tækni,
þekkist hún varla, annars staðar en í
Svíþjóð. Með rafrænum sjúkraskrám
fylgil• sjúkrasagan sjúklingnum
hvert sem er. Upplýsingarnar eru
geymdar á einum stað en birtist á
mörgum stöðum og stöðugt er verið
að bæta við sjúkraskrána á mismun-
andi stöðum. Það eru margir kostir
við rafrænar sjúkraskrár en mitt
starf felst í því að þróa þessa aðferð
og innleiða hana á sjúkrahúsunum.
Eg reyni að leiða starfsmönnum
sjúkrahúsanna, læknunum og hjúkr-
unarfólki, fyrir sjónir hvemig tæknin
getur nýst þeim,“ segir Bredesen.
Hann segir að hægt sé að aðlaga
rafrænar sjúkraskrár þörfum hvers
sjúkrahúss fyrir sig, t.a.m. aðgang að
upplýsingunum. Bredesen sagði í er-
indi sínu frá reynslu sinni sem læknis
af innleiðingu rafrænna sjúkraskráa
á sjúkrahúsunum í Svíþjóð og Dan-
mörku.
„Ég held að þörf sé á rafrænum
sjúkraskrám á öllum norrænum
sjúkrahúsum, þar sem meðferðar-
stigið er almennt mjög hátt. Kerfið
getur bætt meðferðina enn frekar.
Sjúklingamir geta fengið betri þjón-
ustu og hægt er að draga úr mistök-
um,“ segir Bredesen.
Hann nefnir sem dæmi um hætt-
una á mistökum við skráningu í hefð-
bundnar sjúkraskrár að þegar sjúkl-
ingi er gefið lyf er það fyrst skráð í
sjúkraskrána af lækni, hjúkrunar-
fræðingur les sjúkraskrána og skráir
hjá sér það lyf sem á að gefa sjúkling-
num og að lokum fær þriðji heilbrigð-
isstarfsmaðurinn það verkefni að
gefa sjúklingnum lyfið. Með rafrænni
sjúkraskrá hafa þessir þrír aðilar all-
ir aðgang að sömu gögnunum. Einnig
hangi uppiýsingar um viðkomandi
sjúkling betur saman í rafrænni
sjúkraskrá en hefðbundinni.
Hann segir að öryggi rafrænna
sjúkraskráa sé einnig meira en hefð-
bundinna sjúkraskráa því því sem
þar er skráð er ekki hægt að breyta.
Hann segir að mikilvægasti kostur
rafrænna sjúkraskráa sé aukin gæði
og framleiðni heilbrigðisstarfsmanna
og meiri samfella í meðferð sjúklinga.
Slíkt kerfi hafi einnig í för með sér
beinan fjárhagslegan sparnað. Hann
nefnir dæmi um að framleiðni á til-
teknum spítala í Danmörku hafi auk-
ist um 4% vegna innleiðingar raf-
rænna sjúkraskráa. Kerfið færi
einnig sjúklingunum meira öryggi,
starfsmönnum betra vinnuumhverfi
og auki framleiðni, eins og fyrr segir.
Bredesen dregur ekki dul á það að
talsverður kostnaður er fólginn í upp-
setningu rafrænnar sjúkraskrár á
spítölunum en reynsla hans er sú að
aukin framleiðni borgi hann fljótt
upp.
Netsjúkrahús
Torben Linér hefur yfir 20 ára
reynslu við ráðgjöf og tækniþjónustu
áupplýsingatæknisviði. Hann starfar
hjá IBM við ráðgjöf og samskipti við
heilbrigðis- og lyfjageirann í Dan-
mörku. Hann fjallaði í sínum fyrir-
lestri um það hvemig sjúkrahús og
samstarfsaðilar geta unnið með
tækni netviðskipta á heilbrigðissviði.
Hann segir að enn sem komið er sé
þetta fremui' hugmynd en lausn þótt í
raun sé ekkert því til fyrirstöðu
tæknilega að hrinda slíku sjúkrahúsi
í framkvæmd.
Hann segir að spítalarnir séu í
raun nauðbeygðir til að beina sjónum
að aukinni netvæðingu og þjónustu í
gegnum Netið. Þeir hafi á vissan hátt
setið eftir í hraðri þróun upplýsinga-
tækninnar og innan þeirra séu mörg
ónýtt tækifæri. Öli tækni og tækni-
lausnir séu nú þegar fyrir hendi og
málið sé í raun í höndum stjómvalda í
hverju landi fyrir sig. Linér nefnir að
aðgengi að Netinu aukist stöðugt og
t.a.m. um 70% íslendinga hafi aðgang
að því. Fylgi opinberar sjúki-ahús-
stofnanir þróuninni á þessu sviði gæti
það, að mati Linér, leitt til þess að
markaðsöflin tækju að hluta til yfir
hlutverk sjúkrahúsanna. Hann segir
að með auknum aðgangi almennings
að Netinu hafi sprottið upp íyrirbæri
eins og netlæknar og allir geti keypt
lyf í gegnum Netið. Sjúklingar muni
leita upplýsinga um mein sitt á Net-
inu og afla sér upplýsinga um viðeig-
andi lyfjameðferð áður en þeir leita
til læknis. Með þessa vitneskju í far-
teskinu leiti þeir til lækna og mæli
þeir síðan með annarri og e.t.v. dýrari
lyfjameðferð geti svo farið að sjúkl-
ingar fari sínar eigin leiðir í skjóli
ráðgjafar frá markaðsfyrirtækjum á
Netinu. „En hvers vegna em ekki tii
opinberir netlæknar sem nýta sér
sérþekkinguna sem er til innan
sjúkrahúsanna til að mæta framboði
mai'kaðsaflanna?" spyr Linér.
Hann kveðst sjá fyrir sér net-
sjúkrahúsið m.a. á þann hátt að for-
eldrar veikra bama geti nýtt sér það
til að leita upplýsinga um hvað skuli
taka til bragðs í stað þess að panta
tíma hjá lækni og eyða dýrmætum
tíma hans. Einnig ættu foreldrar að
geta sótt aðra þjónustu tii netsjúkra-
hússins og t.d. sýnt veiku barni sínu
hvaða meðferð eða aðgerð bíði þess
og upplýst það um ferlið sem bíður
þess og dregið úr kvíða. Hann sér
fyrir sér að sjúkrahúsin verði farin að
nýta sér þessa tækni í auknum mæli
innan þriggja til fimm ára. Linér seg-
ir að dönsk stjómvöld hafi sett fram
heilbrigðisstefnu þar sem sjónum er
einmitt beint að upplýsingatækninni
og netviðskiptum í því skyni að befr-
umbæta allt ferli innan sjúkrahús-
anna. Einnig hafi fjármunum verið
varið til þessara mála þar í landi.
Strikamerki á sjúklingana
Jeff Schou er framkvæmdastjóri
hjá Symbol Technologies í Banda-
ríkjunum. Hann ber ábyrgð á sam-
skiptum og samstarfi við fyrirtæki og
stofnanir á heilbrigðissviði. Hann
fjallaði um hvemig notkun strika-
merkja á sjúkrahúsum, handtölva og
þráðlausra neta getur aukið hag-
kvæmni starfseminnar og bætt ör-
yggi og þjónustu við sjúklinga. Hann
segir að tækni Symbol auki fram-
leiðni starfsfólks og dragi úr mistök-
um. Kerfið leiði til þess að læknar
geti skoðað fleiri sjúklinga á hverjum
degi þar sem kerfið dragi verulega úr
allri skriffinnsku. Sömuleiðis geti
hjúkmnarfræðingar varið meiri tíma
með sjúklingunum því í stað þess að
þurfa að fara af vettvangi til að skrá
inn upplýsingar um sjúklinga geri
þeir það við sjúkrabeðinn með hand-
tölvu eða fartölvu. Tölvumar ná þráð-
lausu sambandi við gagnagrunn
sjúkrahússins og hægt er að gefa út
lyfseðla, stýra lyfjagjöf og bæta inn
upplýsingum um sjúklinginn í sjúkra-
skrá.
Sehou segir að fyrirtæki sitt hafi
um 80% markaðshlutdeild í heimin-
um fyrir strikamerkjaskanna en sú
tækni er einmitt stór hluti af tækni-
lausn þess fyrir sjúkrahúsin. Hann
segir að strikamerki bindi saman
upplýsingar á pappír og heim raf-
rænna upplýsinga. Með því að tengja
margvísleg gögn í gagnagmnni
sjúkrahússins við strikamerki á úln-
lið sjúklings sé hægt að koma í veg
fyrir margvísleg mistök. Aðgangur
að sjúkraskrá er auðveldaður til
muna og bii-tast þær á handtölvu við-
komandi starfsmanns sé beðið um
þær. Mörg hundmð sjúkrahús víðs
vegar um heim nýta sér nú strika-
merkingar á sjúklingum til að auka
framleiðni sinna starfsmanna. Schou
segir að helstu kostirnir séu einmitt
aukin framleiðni.
Með handtölvunni hefur læknirinn
jafnframt aðgang að öllum upplýs-
ingum um lyf og lyfjameðferðir,
virkni lyfja, lyfjaskammta og auka-
verkanir. A handtölvunni birtast
þessar upplýsingar sem læknir þyrfti
annars að leita uppi í bókum með ær-
inni fyrirhöfn og tímaeyðslu. Jafn-
framt getur læknirinn með handtölv-
unni sent lyfseðilinn rafrænt í þá
lyfjabúð sem best hentar sjúkling-
num að sækja lyfin. Schou segir að
þekkt sé að margir læknar hafi
slæma rithönd og það auki hættuna á
mistökum. Menn hafi reitt sig á að
lyfjafræðingar leiðrétti villur í lyf-
seðlum en þeir geti ekki séð hvort
mistök hafi verið gerð þegar kveðið
er á um t.d. 5 mg lyfjaskammt í stað
1,5 mg. Schou segir að slík mistök
geti einmitt verið afdrifarík. Með því
að fylia út lyfseðilinn rafrænt sé
dregið úr hættu á villum af þessu
tagi.
Schou kom vel undirbúinn hingað
til lands og hafði gert athugun á út-
gáfu lyfseðla hér á landi. Hann segir
að íslenskir læknar gefi út um 2,5
milljónir lyfseðla á ári og rannsóknir
Symbol Technologies sýni fram á að
villur af einhverju tagi sé að finna í
15% allra lyfseðla. Þar sé ekki um að
ræða alvarlegar villur í öllum tilvik-
um en þær leiði hugsanlega tii minni
árangurs af lyfjagjöf eða nýrrar
lyfjameðferðar. Mildll kostnaður sé
samfara þessu.
Schou lagði mat á hugsanlegan
spamað sem Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri gæti náð fram með því að
innleiða tæknilausnir Symbol
Technologies. Schou segir að niður-
staðan sé sú að sjúkrahúsið geti spar-
að 51 milljón króna á ári með því að
strikamerkja sjúklinga og lyf og færa
sjúkraskrár inn í kerfið. Miðað við
sjúkrahús með 200 rúmum er kostn-
aðurinn við kaup á kerfi Symbol
Technologies gróflega áætlað nálægt
100 þúsund bandaríkjadollurum.
Dæmdur
í 4 mánaða
fangelsi og
3 milljóna
sekt fyrir
skattsvik
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt framkvæmdastjóra og
stjórnarformann fyrirtækis sem rak
tækja- og vélaleigu, námavinnslu og
útgerð þungavinnuvéla, í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið
gegn lögum um virðisaukaskatt.
Akærði var einnig dæmdur til
greiðslu þriggja milljóna króna sekt-
ar.
Vegna þess hversu langt var um
liðið frá því að brotið var framið, án
þess að ákærða væri gefin sök á hve
mikill dráttur varð á rannsókn máls-
ins, var fullnustu refsingarinnar
frestað um þrjú ár.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra ákærði manninn fyrir að van-
telja virðisaukaskattskylda veltu, út-
skatt og innskatt félagsins á
virðisaukaskýrslum og koma sér
með því undan því að standa Sýslu-
manninum í Hafnarfirði skil á hluta
af þeim skilaskylda virðisaukaskatti
sem innheimtur hafði verið í nafni
einkahlutafélagsins á árinu 1995 og
að láta undir höfuð leggjast að skila
hluta af skilaskyldum virðisauka-
skatti samkvæmt innsendum virðis-
aukaskattsskýrslum.
Vanskil talin nema rúmum
6,8 milljónum króna
Vanskil vegna framangreindra
brota voru talin nema rúmum 6,8
milljónum króna. Hluta refsikröfu
ákæruvaldsins vegna vangoldins
virðisaukaskatts að fjárhæð rúmar.
4,3 milljónir var vísað frá dómi.
Akært var einungis vegna hluta árs-
ins 1995, janúar til október, en við
rannsókn málsins kom í ljós að fyrir-
tækið hafði ekki skilað skattframtöl-
um fyrir 1994 og 1995 og 1989-1991.
Akærða var gert að greiða sektina
innan fjögurra vikna, ellegar komi
3ja mánaða fangelsi í hennar stað.
Jafnframt var hann dæmdur til að
borga hluta sakarkostnaðar að með-
töldum málsvarnarlaunum Sigurðar
Sigurjónssonar hæstaréttarlög-
manns og verjanda síns.
Helgi Magnús Gunnarsson, lög-
lærður fulltrúi hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra, flutti málið
af hálfu ákæruvaldsins. Guðmundur
L. Jóhannesson héraðsdómari
dæmdi í málinu.
-----------------
Boðaðri
vinnustöðvun
hjá Flugleið-
um aflýst
SAMNINGANEFNDIR Flug-
virkjafélags íslands og Samtaka
atvinnulífsins undirrituðu nýjan
kjarasamning vegna flugvirkja hjá
Flugleiðum hf. í húsakynnum rík-
issáttasemjara skömmu eftir mið-
nætti í gær. Jafnframt var boðaðri
vinnustöðvun flugvirkja aflýst.
Samningurinn kemur í stað fyrri
samnings sem var felldur í at-
kvæðagreiðslu meðal flugvirkja.
I fréttatilkynningu frá ríkis-
sáttasemjara segir að í nýja samn-
ingnum sé tekið nánar á nokkrum
ágreiningsatriðum viðsemjenda en
launatölur séu óbreyttar.
Emil Þ. Eyjólfsson, formaður
samninganefndar flugvirkja, vildi
ekki greina frá innihaldi sam-
komulagsins að svo stöddu þar
sem ekki var búið að kynna samn-
inginn fyrir félagsmönnum Flug-
virkjafélagsins í gær en það verð-
ur gert á fundi sem haldinn verður
í dag. I framhaldi af því verða svo
greidd atkvæði um samninginn.