Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 5£
Nýju fotin
keisarans
INNAN tíðar verð-
ur stofnaður flokkur
upp úr því bandalagi
A-flokka, Kvennalista,
Þjóðvaka og einhverra
óskilgreindra óháðra,
sem buðu fram undir
nafni Samfylkingar í
síðustu kosningum.
Fylkingin sú hefur
átt afskaplega bágt
allt undanfarið ár eftir
að ljóst var að nýju
klæðin hins sameigin-
lega framboðs voru
engu merkari en nýju
fötin keisarans í sögu
H.C. Andersens. Nú
setja menn traust sitt
á að formleg flokksstofnun með
lúðraþyt og söng hressi upp á ím-
yndina.
Kannski verður þeim að ósk sinni.
Brauð og leikar hafa alltaf gefist
vel, en aldrei þó til langframa.
um framhaldið? Væri
ekki ómaksins vert að
gera svolitla úttekt á
stefnumálunum,
greina hvaðan þau eru
komin og hvað þar er
nýtt að finna, ef það er
eitthvað? Og væri ekki
ómaksins vert að
spyrja svolítið út í að-
ferðir við stofnun hins
nýjaflokks?
Hreppaflutningar
að vori?
Aðferðafræðin virð-
ist svo gjörsamlega á
reiki að fáir vita hvern-
ig standa á að verki og
raunar virðist eiga að fara ýmsar
leiðir til að tryggja sæmilega stærð
flokksins. A.m.k. fer tvennum sög-
Stjórnmál
Kristín
Halldórsdóttir
Nýr Alþýðuflokkur
Enn er flokkurinn kenndur við
Samfylkingu, en öðru hverju skýtur
þó upp kollinum umræða um nýtt
heiti og þá helst Jafnaðarflokkur
eða Jafnaðarmannaflokkur.
Eðlilegast virðist þó að taka ein-
faldlega aftur upp nafnið Alþýðu-
flokkur, því það er nákvæmlega það
sem hinn „nýi“ flokkur er. Hann er
gamall grautur í nýrri skál. Þeir
sem sjá eitthvað annað láta gamla
draumsýn villa um fyrir sér.
Tveir kratar fara nú um landið og
halda fundi og segjast vera í sam-
keppni um formennsku í nýja Al-
þýðuflokknum. Fjölmiðlar hafa ekki
getað sagt neinar bitastæðar fréttir
af fundum þeirra. Þar kemur ekkert
fram sem ekki hefur áður verið sagt
þótt a.m.k. annar kratanna segist
vera að fylla upp í eyðurnar í stefnu
Samfylkingarinnar, sem gerðu hon-
um svo erfitt fyrir í kosningabarátt-
unni fyrir ári. Tíðindin ei-u helst þau
að nú þorir hann að viðra fullum
hálsi gömul baráttumál Alþýðu-
flokksins fyrir aðild að Evrópusam-
bandinu og sölu veiðileyfa í sjávar-
útvegi. Hafa menn heyrt eitthvað
annað fréttnæmt? Hvert er eigin-
lega nýjabrumið?
Gagnrýnislaus umfjöllun
Athyglisvert er hvað fjölmiðlar
eru að mestu áhugalitlir um það
sem aðstandendur Samfylkingar
segja merkustu pólitísku tíðindi um
aldamót, sem er augljóslega afgreitt
sem innihaldslaus kokhreysti. Þeir
hafa talað heldur máttleysislega við
formannsefnin og síðan varla sög-
una meir, ef frá er talin gagnrýnis-
laus umfjöllun Dags sem getur ekki
leynt tilhlökkun sinni og von um
betri daga hjá sínum eftirlætis
flokki.
Þetta áhugaleysi fjölmiðla jaðrar
við brigð á upplýsingaskyldu. Væri
ekki ómaksins vert að bera saman
hvað sagt var í aðdraganda Sam-
fylkingar og það sem nú er verið að
gera? Væri ekki ómaksins vert að
rifja upp fyrri svardaga leiðtoga í
þeim flokkum og samtökum sem
mynduðu Samfylkinguna þess efnis
að hér yrði farið að öllu með gát,
ekki væri ætlunin að leggja niður
flokkana, heldur gera tilraun með
sameiginlegt framboð og láta
reynslu næstu fjögurra ára skera úr
Athyglisvert er, segir
Kristín Halldórsdóttir,
hvað fjölmiðlar eru að
mestu áhugalitlir um
það sem aðstandendur
Samfylkingar segja
merkustu pólitísku tíð-
indi um aldamót.
um af gangi mála hjá konum sem
enn eru skráðar í Kvennalistann,
þar sem sumar eru sannfærðar um
að þær verði sjálfkrafa stofnfélagar,
en aðrar telja sig hafa sönnun þess
að þær geti verið áfram í Kvenna-
listanum þótt þær vilji ekki fyrir
nokkurn mun eiga aðild að Samfylk-
ingunni. Spurningin er hvor túlkun-
in er rétt og hvort eins sé staðið að
hjá öllum eða hvort mismunandi
reglur gilda eftir því hvort um er að
ræða Kvennalistann, Þjóðvaka eða
A- flokkana? Er það rétt að ætlunin
sé að leggja nýja flokknum til félaga
í slumpum með því að einstök félög
og hópar geti gerst' stofnendur
hans? A að beita sömu aðferðum og
við myndun hins fræga miðlæga
gagnagrunns á heilbrigðissviði, þar
sem upplýst samþykki er látið lönd
og leið og þeir verða með sem ekki
lýsa því sérstaklega yfir að þeir vilji
ekki vera með? Er sem sagt ekki
ætlunin að hver og einn gerist félagi
sem einstaklingur og af innri þörf
og vilja, heldur eigi á hættu að verða
fluttur hreppaflutningum eins og
niðursetningar fyrr á árum? Hvað
sem öllu líður er augljóst að með
stofnun hins nýja flokks verður
grundvellinum kippt undan sér-
stöku starfi viðkomandi flokka
hvers um sig, þótt upphaflega væri
ítrekað fullyrt að þeir yrðu til og
hefðu hlutverk eftir sem áður.
Margir létu blekkjast af slíku tali
eða létu a.m.k.
yfir sig ganga í nafni einhverrar
samstöðu eða tryggðar við sinn
gamla flokk. Nú kunna það að verða
örlög sumra að verða dregnir óafvit-
andi inn í krataflokkinn, sem stofn-
aður verður innan nokkurra daga.
Höfundur er fv. þingkona.
Hippatískan í algleymingi hjá okkur ■
Gallaefni, skrautbönd og perlubönd.
VIRKA
Mörkin 3, sími 568 7477.
Opið
Mánud.-föstud. kl. 10-18,
laugard. kl. 10-16.
Hugsaðu um hj artað
ÞRÁTT fyrir að
talsvert hafi unnist í
baráttunni við hjarta-
og æðasjúkdóma eru
þeir enn aðaldánaror-
sök á vesturlöndum í
dag. Því helgar land-
læknisembættið apríl-
mánuð umræðu um
hjarta- og æðasjúk-
dóma. Vekja þarf al-
menning til umhugs-
unar um kransæða-
sjúkdóm og áhættu-
þætti hans þannig að
hver og einn geti hug-
að að forvörnum í
tíma, því betra er
heilt en vel gróið.
Áhættuþættir
Helstu áhættuþætti kransæða-
sjúkdóms má flokka í tvennt. Ann-
ars vegar þá sem við getum haft
áhrif á og hina sem við ráðum ekki
við.
Áhættuþættir sem við getum
breytt
Reykingar
Hár blóðþrýstingur
Hátt kólesteról
Offita
Hreyfingarleysi
Streita
Mikil áfengisneysla
Áhættuþættir sem við getum
ekki breytt
Kyn
Erfðir
Aldur
Allir ættu að huga að þessum
áhættuþáttum í tíma og temja sér
frá barnæsku reglubundna hreyf-
ingu ásamt hollri fjölbreyttri fæðu.
Blóðþrýsting og kólesteról er
rétt að mæla reglulega eftir fer-
tugt, fyrsta meðferð er oftast al-
menn ráð varðandi mataræði og
hreyfingu.
Offita og hreyfingarleysi eru
mikilvægir áhættuþættir og hafa
ekki bara sjálfstæð áhrif á þróun
sjúkdómsins heldur einnig skaðleg
áhrif á aðra áhættuþætti og magna
þá upp. Offitu og hreyfingarleysi
fylgir oft hækkaður blóðþrýstingur
og kólesteról ásamt aukinni hættu
á fullorðinssykursýki. Við mat á
offitu má miða við líkamsþyngdar-
stuðul (BMI) sem
reiknaður er út frá
hæð og þyngd (kg/
m2). Þumalfingurs-
regla er að sá sem er
1,8 m á hæð ætti ekki
að vera þyngri en 80
kg og sá sem er 1,7 m
á hæð væri í kjör-
þyngd ef hann væri
um 70 kg. Annað við-
mið er mittismál. Ef
víðasta ummál kviðar
um mitti er yfir 94 cm
hjá körlum og yfir 80
cm hjá konum telst
viðkomandi í áhættu.
Reykingar eru sá
áhættuþáttur sem
mikilvægast er að taka á. Auk
æðakölkunar valda reykingar van-
heilsu á annan hátt eins og lungna-
Hjartasjúkdómar
Vekja þarf almenning til
umhugsunar um krans-
æðasjúkdóm og áhættu-
þætti hans, segir Emil
L. Sigurðsson, þannig
að hver og einn geti
hugað að forvörnum í
tíma.
sjúkdómum og krabbameinum.
Það er engin leið ódýrari og betri í
forvörnum en reykleysi.
Hreyfingarleysi og gildi hreyf-
ingar í forvörnum hefur verið
rannsakað mikið og niðurstöðurn-
ar sýna að hreyfingarleysi er sjálf-
stæður áhættuþáttur hjarta- og
æðasjúkdóma. Með aukinni tækni
og velmegun höfum við dregið úr
daglegri hreyfingu. Fólk notar bif-
reiðar til að komast leiðar sínar,
situr meira við tölvur og sjónvarp.
Hlutfall neyslu og notkunar á hita-
einingum er því óhagstætt. Ekki
þarf maraþonhlaup til, heldur
skiptir öll dagleg hreyfing máli.
Hana má auka með að ganga eða
hjóla til vinnu, nota ekki lyftur og
síðan að temja sér reglubundna
hreyfingu s.s. sund og göngu 3-4
sinnum í viku, hálftíma í senn.
Mataræði er einnig lykilatriði í
forvörnum. Draga þarf úr neyslu í
feimeiti og auka hlut grænmetis
og ávaxta. Allir ættu að borða
minnst fimm skammta af græn-
meti, ávöxtum eða kartöflum á
dag. Þessu er unnt að ná með því
að fá sér ávöxt eða ávaxtasafa að
morgni, grænmetissalat með há-
degismatnum, ávöxt síðdegis o^.
kartöflur og grænmeti með kvöld-
matnum.
Einkenni
Helstu einkenni kransæðasjúk-
dóms eni verkur, þrýstingur, sviði
eða önnur einkenni fyrir brjósti
sem koma helst við áreynslu.
Verkurinn getur leitt upp í háls og
út í vinstri handlegg. Einkennin
eru ekki alltaf augljós og því er
rétt að ráðfæra sig við lækni til
frekari greiningar.
Staðan í dag
Rannsóknir Hjartaverndar sýna
að lækkun á tíðni kransæðasjúk-
dóma má skýra með lækkun á
tíðni háþrýstings og fituminlR;
fæðu. Með þvi að taka á ofan-
nefndum áhættuþáttum er unnt að
fyrirbyggja sjúkdóminn og draga
verulega úr afleiðingum hans hjá
þeim sem þegar hafa fengið hann.
Hver og einn verður að bera
ábyrgð á heilsu sinni, að áhættu-
þættir séu greindir og viðeigandi
ráðstafanir gerðar. Með einföldum
lífsstflsbreytingum er unnt að
draga úr vægi flestra áhættuþátt-
anna en í sumum tilfellum þarf
líka að beita lyfjameðferð t.d.
háum blóðþrýsting og kólesteróli.
Markmið hvers og eins ætti að
vera að hreyfa sig reglulega, velja
holla og fjölbreytta fæðu með
áherslu á grænmeti og ávexti, al-
gert tóbaksbindindi og láta fylgj-
ast með blóðþrýstingi og kólester-
óli. Á þann hátt hugsum við vel um
hjartað.
Höfundur eryfirlæknir á Heilsu-
gæslustöðinni Sólvangi, Hafnarfirði.
Emil L.
Sigurðsson
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
auglýsir arsfund 2000
Fundardagur: Laugardagurinn 29. apríl 2000.
Fundarstaður: Skáli, Hótel Sögu (2. hæð).
Fundartími: Kl. 15.00
Dagskrá:
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjómar.
3. Gerð grein fyrir ársreikningum.
4. Tryggingafræðileg úttekt.
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins.
6. Reglugerðarbreytingar.
7. Ákvörðun um laun stjórnar.
8. Kosning tveggja stjórnarmanna og tveggja til vara.
9. Önnur mál.
Upplýsingar um rekstur og stöðu sjóðsins:
• Heildareign til greiðslu lífeyris var í árslok kr. 2.847 millj. og hafði aukist um 32,4% á árinu.
• Hrein raunávöxtun (eftir verðbólgu og kostnað) var 22,1 %
• Heildarávöxtun (eftir kostnað) var 29,0%.
• Sjóðurinn á 5,2% umfram heildarskuldbindingar og batnaði staðan um 8% frá fyrra ári.
• Sjóðurinn á 25,9% umfram áfallnar skuldbindingar.
• Rétthafar í séreignardeild fengu 29% ávöxtun á sinn spamað. Fjöldi rétthafa í séreignardeild samsvarar 40% af
greiðendum í sameignardeild.
• Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sl. 5 ár er 12,6%
• Lífeyrisgreiðslur voru alls kr. 54,8 milljónir eða 44,5% af innborguðum iðgjöldum.
Skipting greiðslna var þannig:
• Ellilífeyrir 73,3%
• Makalífeyrir 17,2%
• Örorkulífeyrir 8,9%
__________________« Barnalífeyrir____0,6%____________________________________________________________
Bæði sjóðfélagar (þeir sem greiða eða hafa greitt í sameignardeild) og rétthafar
(þeir sem greiða í séreignardeild) eiga rétt til fundarsetu.