Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 71
FRÉTTIR
Góður árangur
íslenzkra dans-
ara í Blackpool
Blackpool. Morgunblaðið.
DANSHÁTIÐ barna og unglinga í
Blackpool er ein virtasta og sterk-
asta danskeppni sem haldin er í
heiminum í dag. Þessi keppni hefur
verið haldin árlega í hartnær 40 ár
og hafa íslendingar getið sér gott
orð í þessari keppni hin síðari ár.
Keppnin hófst mánudaginn 24.
apríl sl. og var þá keppt í tveimur
flokkum og keppti yngri flokkurinn
í jive. Eins og skemmst er að minn-
ast sigruðu Þorleifur Einarsson og
Ásta Bjarnadóttir glæsilega í þeirri
keppni. Flokkur 12-15 ára keppti í
vínarvalsi og komust Grétar Ali
Khan og Jóhanna Berta Bernburg í
12 para undanúrslit í þeim flokki.
Á þriðjudeginum keppti flokkur
11 ára og yngri í sígildum sam-
kvæmisdönsum. Næstum 70 pör
voru skráð til leiks, þar af níu pör
frá íslandi, og fóru sjö þeirra áfram
í aðra umferð. Þrjú þeirra fóru í 24
para undanúrslit, og verður þetta að
teljast afskaplega góður árangur í
svo sterkri keppni.
Boðið var upp á keppni fyrir 12-
13 ára unglinga og var keppt í cha,
cha, cha og rúmbu. Tæplega 70 pör
voru skráð til leiks, þar af fjögur frá
íslandi. Öll íslenzku pörin fóru
áfram í aðra umferð og Sigurður
Ragnar Arnarsson og Sandra Esp-
ersen komust í 24 para undanúrslit,
en þar við sat.
Keppendur í flokki 12-15 ára
kepptu í samba, alls voru 170 pör
skráð til leiks og þar af átta frá Isl-
andi. Fimm þeirra fóru áfram í aðra
umferð og eitt í þá þriðju en lengra
komust Islendingar ekki að þessu
sinni, samt sem áður er þetta nokk-
uð góður árangur. Þess má geta hér
að íslenzkum pörum var boðin þátt-
taka í liðakeppni milli sex landa sem
var bæði hörð og spennandi og fóru
gestgjafarnir, Bretar, með verð-
skuldaðan sigur af hólmi.
Á miðvikudaginn kepptu yngstu
keppendurnir í pasodoble, sem fyrr
voru 70 pör skráð til leiks í þessum
flokki og íslenzku pörin níu komust
öll áfram í aðra umferð. í 25 para
úrslit komust Björn Ingi Pálsson og
Þorlákur Þór Guðmundsson og
Thelma Arngrímsdóttir.
Ásta Björg Magnúsdóttir, Bjöm
Einar Björnsson og Herdís Helga
Arnalds, Baldur Kári Eyjólfsson og
Erna Halldórsdóttir og Þorleifur
Einarsson og Ásta Bjarnadóttir.
Þau síðastnefndu gerðu sér lítið fyr-
ir og komust alla leið í úrslit og end-
uðu í 3. sæti, eins og sagði í Morg-
unblaðinu í gær.
Davíð Már Steinarsson og Sunn-
eva Sirrý Ólafsdóttir.
Flokkur 12-15 ára keppti i sígild-
um samkvæmisdönsum með miklum
glæsibrag, um 160 pör voru skráð til
leiks, þar af átta frá Islandi. Fjögur
þeirra komust áfram í aðra umferð
eftir harða og mikla baráttu, en að-
eins eitt par komst í þriðju umferð.
íslendingarnir dönsuðu þó mjög vel,
en mótherjarnir voru ótrúlega
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
Friðrik Árnason og Sandra Júlía
Bernburg.
sterkir og góðir dansarar.
Það er létt yfir íslenzka hópnum
hér í Blackpool og menn ánægðir
með árangur íslenzku keppendanna.
Þegar þetta er skrifað eru enn eftir
þrír dagar af þessari miklu danshá-
tíð, sem lýkur á laugardaginn. Is-
lenzki hópurinn flýgur svo heim aft-
ur aðfaranótt 1. maí.
Söfnuðu
650.000 kr.
til styrkt-
arSKB
BRIAN Tracy, Vegsauki og Hard
Rock Café á Islandi afhentu Styrkt-
arfélagi krabbameinssjúkra barna
650.000 kr. styrktarframlag sem
söfnuðust á dögunum þegar Vegsa-
uki og Hard Rock Café buðu aðdá-
endum Brians Tracys í hádegisverð
á Hard Rock Café á 10.000 kr. á
mann sem rann óskert til samtak-
anna.
Myndin var tekin í Borgar-
leikhúsinu þegar Þorsteini Ólafs-
syni, framkvæmdastjóra SKB, var
afhent ávísunin en auk Þorsteins
eru Einar Bárðarson, framkvæmda-
stjóri Hard Rock Café, og Brian
Tracy., fyrirlesari og fræðimaður á
sviði slgórnunar, sölu og árangurs.
Styrkir lausir
til umsóknar
REYKJAVÍKURBORG gerðist
aðili að samstarfssjóði á síðasta ári
sem höfuðborgir Grænlands og
Færeyja, Nuuk og Þórshöfn, höfðu
stofnað með sér 1985. Þetta var
ákveðið á fundi borgarstjóra þess-
ara bæja, sem haldinn var í
Reykjavík í júní sl.
Til þessa hefur sjóðurinn veitt
styrki til ýmissa gagnkvæmra
heimsókna og menningarsam-
skipta milli Nuuk, Reykjavíkur og
Þórshafnar.
Sjóðurinn hefur þann tilgang að
efla kynni og samskipti milli bæj-
anna og íbúa þeirra og veitir
styrki til verkefna og viðburða sem
hafa það að markmiði, t.d. á sviði
menningar, fræðslu eða íþrótta.
Styrkir af þessu tagi eru nú í
fyrsta sinn auglýstir hér á landi.
Umsóknir skal senda Samstarfs-
sjóði Nuuk-Reykjavíkur-Tórshavn,
b-t. Jóns Björnssonar, Ráðhúsi
Reykjavíkur, fyrir 26. maí nk.
Umsækjendur þurfa að lýsa fyr-
irhuguðu verkefni ítarlega með
eigin orðum, þ. á m. kostnaði og
fyrirkomulagi. Verkefnið verður að
tengjast tilgangi sjóðsins og æski-
legast er að það tengi alla bæina
þrjá. Hver bæjanna þriggja leggur
jafna upphæð til sjóðsins árlega,
u.þ.b. 600 þúsund kr. hver, en auk
þess á sjóðurinn nokkra peninga-
eign.
Morgunblaðið/Golli
Rætt um Hinn
guðdómlega
gleðileik
KRISTJAN Árnason, prófessor við
Háskóla íslands, heldur í kvöld,
föstudaginn 28. aprfl, kl. 20.30 fyrir-
lestur á vegum Stofnunar Dante Al-
ighieri í Smára, salarkynnum Söng-
skóla Reykjavíkur v/Veghúsastíg 7.
Mun hann gefa hinu heimsfræga
bókmenntaafreki, Dante Alighieri;
Hinum guðdómlega gamanleik, La
Divina Comedia, greinargóð skil og
fjalla um verkið bæði í máli og mynd-
um.
Kristján mun njóta liðsstyrks
leikarans og upplesarans Hjalta
Rögnvaldssonar, sem mun lesa upp
úr íslenskri þýðingu borgfírska
skáldsins og bóndans, Guðmundar
Böðvarssonar. Allir eru velkomnir.
LEIÐRÉTT
Gauksstaðaskipið
Gauksstaðaskipið var rangnefnt
Gautstaðaskipið í myndatexta með
grein Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar um bókina Vikings. The North
Atlantic Saga í blaðinu í gær.
Leiðréttist það hér með.
Hátíðardagskrá
í Þjóðleikhúsi
í frásögn af hátíðardagskrá í
Þjóðleikhúsinu á skírdag féllu nið-
ur nöfn tveggja fyrrverandi þjóð-
leikhússtjóra; þeirra Sveins Ein-
arssonar og Gísla Alfreðssonar.
Sveinn færði Þjóðleikhúsinu að
gjöf tvo minningarskildi í minn-
ingu leikaranna Bríetar Héðins-
dóttur og Helga Skúlasonar og
Gísli flutti Þjóðjeikhúsinu kveðjur
Leiklistarskóla íslands.
Vorsýning
áhugamanna
um tréskurð
HIN árlega vorsýning Félags
áhugamanna um tréskurð er haldin í
safnaðarheimili Háteigskirkju laug-
ardaginn 29. og sunnudaginn 30.
aprfl kl. 13-17. Yfirskrift sýningar-
innar að þessu sinni er landnám/
kristni. Heiðursgestur sýningarinn-
ar er Helgi Angantýsson mynd-
skurðarmeistari.
Allt áhugafólk um handverk vel-
komið. Aðgangur ókeypis.
Innlausnarverð árgreiðslumiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 2. maí 2000 er 4. fasti gjalddagi árgreiðslumiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1995.
Gegn framvísun árgreiðslumiða nr. 4 verður frá og með 2. maí nk. greitt sem hér segir:
Árgreiðslumiði að nafnverði: 50.000 kr. = 56.749,00
100.000 kr. = 113.498,00
1.000.000 kr. = 1.134.979,90
Ofangreind fjárhæð er afborgun af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
1. október 1995 til 2. maí 2000 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á vísitölu neysluverðs.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð árgreiðslumiða
breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn árgreiðslumiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 2. maí 2000.
Reykjavík, 28. apríl 2000
SEÐLABANKIÍSLANDS