Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 80
,80 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
S----------------------
MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi, sími 530 1919
HASKOLABIO
HASKOLABIO
kl.8.
10.30.
Sýnd kl, 5.20, 8
Frá leikstjóra
SHINE kemur
ein áleitnasta
ástarsaga
mynd allra
tíma
Sýnd kl.
■SWtelliftl ■MMKl'flEl
FYRIB
990 P'JNKTA
FERBU í BIÓ
NÝTTOGBETRA
SASA-I
Alfnbakka O, simi 087 8900 o<) 587 8905
„lOIIA gOH
:i Davtomch Eumii)
Tím Robbins
alvöm fjallahjal
Fr<t lcíksljóra Austin Powcrs 1 & 2 kcmur
spron<jhlícyilcf| cjrinmynd um litla bæinn
Mystcry i Alaska.
Aðalhlutvcrk Russel Crowc, scm var til-
ncfndur til Óskarsvcrðlauna á siðustu
Óskarsvcrðlaunahátið, Hank Azaria (Godzilla)
og Burt Rcynolds (Boogic Nights).
Mynd eftir Brian De Palma
Fremstu vísindamenn veraldar stigu a
plánetuna Mars... og hurfu. I\lú hefur
bjorgunarleiðangur verið sendur til að
komast að þvi hvað gerðist.
Fjöiskylilan er að stÍEkka
Sýnd með fslensku tali Id. 4 og 6.
Með ensku tali ki. 4,6,8 og 10.
mym
FRÁ SÖMU FRAMLEIÐENDUM
OG BIG DADDY
MAN
ON THE
MOON
Svnd
1010
kl. 3.45, 6, 8 og 10.20. ■mnca™.
Sýnd kl. 8.15 og 10.
ícheixe PFEIFFER
Prnti
SIORYofUS
www.samfilm.iswww.bio.is
íslendingur leikstýrir sænskri poppstjörnu inn á heimssviöið
Tóku upp MTV-
myndband í Prag
*
Islenska fyrirtækið Labrador sendi menn út af örkinni til Prag á
dögunum í þeim tilgangi að taka upp tónlistarmyndband fyrir
sænska poppstjörnu, Börkur Gunnarsson fylgdist með tökum og
*hitti ýmiss konar furðufugla auk íslenskra kvikmyndagerðarmanna.
BLAÐAMAÐUR er búinn að standa
í þónokkum tíma við hliðina á lúða-
legum pilti í íþróttagalia og fylgjast
með undirbúningi á næstu senu í
myndbandinu þegar Ragnar Braga-
son leikstjóri snýr sér allt í einu að
piltinum við hliðina á mér og kallar
hann inn í ljósadýrðina og blaðamað-
ur gerir sér grein fyrir því að dreng-
urinn sem hann ætlaði að biðja um að
skjótast eftir kaffi fyrir sig er sænska
poppstjaman sem þetta tíu milljón
króna myndband snýst um.
Martin er fræg poppstjarna í Sví-
þjóð en hefur ekki enn stigið skrefið
^jnn á heimssviðið. Útgáfufyrirtæki
‘hans, Universal, hefur ákveðið að
gera innrás inn á heimsmarkaðinn
með annarri plötu þessa sænska
poppgoðs. Það var reyndar búið að
gera poppmyndband við þetta lag
goðsins, sem heitir „0, o, o, je, je“, en
eins og Peter Hard hjá Universal
sagði, þá var það nógu gott fyrir Svía
en ætti ekki séns á heimsmarkaðnum.
Hugmynd frá íslandi best
Þeir fengu þess vegna nokkur fyr-
irtæki frá Danmörku, íslandi og
Bretlandi til að koma með hugmyndir
Hkð myndbandi við lagið, en eftir að
hugmynd Ragnars kom á borðið var
samkeppnin flautuð af.
„Hugmynd Ragnars var einfald-
lega of góð til að það þyrfti að halda
áíram að leita,“ segir Peter frá Uni-
versal. „Ekki var það heldur til að
eyðileggja fyrir að Ágúst Jakobsson
væri tökumaður, hann er einn sá besti
"í^heiminum í dag.“
Guðjón Hauksson, Ágúst Jakobsson og Ragnar Bragason við vinnu sína.
Þannig kom það til að hið nýstofn-
aða íslenska fyrirtæki Labrador fór
við fimmta mann til Prag á dögunum
og tók þar upp tónlistarmyndband.
„Eg held að það sé bara einsdæmi að
svona stór íslensk „pródúksjón“ sé al-
gjörlega fjármögnuð af erlendum að-
ilum,“ segir Guðjón Hauksson, fram-
kvæmdastjóri hjá Labrador. Hann
tekur ekki augun af skjánum þar sem
sést hvemig senan lítur út á meðan
hann svarar spumingum blaða-
manns. Þeir hafa nefnilega breytt
rústum gamallar prentsmiðju í leik-
hús og era að taka upp í ganginum
sem liggur inn á sviðið. Þar sem
gangurinn er frekar þröngur og yfir
120 manns vinna við upptökumar er
eðlilega frekar þröngt um manninn.
Inn á milli má sjá ýmiss konar furðu-
fugla sem leika aukahlutverk, eins og
klæðskiptinga, fatafellur, eldlista-
menn, fimleikafólk og tamningar-
menn ýmissa dýra.
Prag heillandi borg
En hvers vegna varð Prag fyrir
valinu? „Ragga langaði bara svo mik-
ið til Prag,“ segir Guðjón og glottir.
„Og það sér enginn eftir því að hafa
komið hingað. Samstarfið við Tékk-
ana er búið að vera frábært. Þú hefðir
átt að sjá aumingja fatafellumar í
gær. Þær stóðu úti í kuldanum á nær-
unum einum fata frá klukkan sjö um
morguninn og langt fram á kvöld án
Sænska poppstjarnan Martin ásamt slöngunni og temjara hennar.
Ljósmynd/Börkur Gunnarsson
Ragnar Bragason strýkur slöngunni.
þess að kvarta svo mikið sem einu
sinni. Það er á hreinu að við komum
hingað aftur. Ég er bara hræddastur
um að það verði erfitt að ná Ragga
aftur niður á jörðina. Það er svo mikil
stéttaskipting í bransanum hér, sem
þekkist ekki heima. Það er komið
fram við leikstjórann eins og hálfguð,
hann er með hjólhýsi út af fyrir sig
með klósetti, eldhúsi og öllu tilheyr-
andi. En hann verður að sætta sig við
að pissa í sama klósett og við hin þeg-
ar heim kemur.“
í því hrópar hálfguðinn: „Shoot-
ing!“ og gefur Ágústi merki um að
byrja tökur. Ágúst er sjálfur eins og
hálfur maður og hálf vél með „steady-
cam“-kvikmyndavélina í axlarhæð en
úr henni liggur stálrani niður í mittis-
beltið og snúrur falla niður með bak-
inu einsog hárlokkar.
Martin gengur öruggum skrefum í
átt að sviðinu með Ágúst á eftir sér. Á
móti honum koma niðurbrotnir eld-
listamenn og akróbatar. Samkvæmt
handritinu á Martin að vera að ganga
inn á svið í leikhúsi, en í salnum era
mjög erfiðir áhorfendur sem hafa
hrakið hvem listamanninn á fætur
öðmm af sviðinu. En þegar Martin
kemur slær hann í gegn.
Þar sem þetta lag er fyrsta skrefið
sem hann tekur inn á heimssviðið
vonast hann væntanlega til þess að
hann nái að heilla áhorfendur í þeim
sal jafn auðveldlega og þessa.