Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Landsbanki íslands spáir allt að 0,5% vaxtahækkun Vaxtamunur nauðsyn- legur til að viðhalda styrk krónunnar Landsteinar International, Landsteinar Svenska og Dansk Systempartner sameinast Aforma að fara á alþjoðlegan hluta- bréfamarkað LANDSBANKINN spáir því að stýrivextir verði hækkaðir hér á landi á næsta ársijórðungi um 0,25-0,50%. í nýrri ársfjórðungsskýrslu bank- ans og Landsbréfa kemur fram að ástæðuna megi rekja til þess að vextir fari almennt hækkandi í okkar helstu viðskiptalöndum og því sé fyrirsjáan- legt að vaxtamunur fari minnkandi á næstunni. Vaxtamunurinn sé nauð- synlegur til að viðhalda styrk krón- unnar og auðvelda fjármögnun við- skiptahallans en erlent lánsfé hefur streymt til landsins vegna hagstæðs vaxtamunar. Á fundi í gær þar sem ársfjórð- ungsskýrslan var kynnt kom fram í máli Amars Jónssonar, sérfræðings í gjaldeyrisviðskiptum á viðskiptastofu Landsbankans, að í Ijósi þess hve háir vextir eru orðnir hér á landi og þeirr- ar staðreyndar að raungengi krón- unnar hefur hækkað verulega á síð- ustu misserum sé vert að spyrja þeirrar spumingar hvort engin tak- mörk séu fyrir styrkingu krónunnar. Útlit fyrir að verðbólgan sé enn vanmetin „Raungengi krónunnar hefur hækkað vegna hækkunar á verðbólgu og dregur hátt raungengi smám sam- an úr samkeppnishæfni íslensks iðn- aðar, útflutningur dregst saman, inn- flutningur eykst og viðskiptahalli heldur áfram að aukast. Vonir standa til að verðbólga fari lækkandi þegar líða tekur á árið, þegar áhrif síðustu vaxtahækkana og styrking krónunn- ar taki að skila sér. Síðustu verð- bólgutölur gefa hins vegar ekki tilefni til mikillar bjartsýni og virðist því hækkun verðbólgunnar enn vera van- metin. Sé það raunin mun raungengi krónunnar halda áfram að hækka með þeim afleiðingum að enn kreppir að innlendum atvinnurekstri. Raung- engi krónunnar getur ekki hækkað endalaust án þess að innlend fyrir- tæki sem selja afurðir á erlendan markað annaðhvort leggi upp laup- ana eða færi starfsemi sína á hag- kvæmara myntsvæði, en það hefur eitt fyrirtæki þegar gert. Útflutnings- fyrirtæki verða því að bregðast við hækkandi gengi með aukinni hag- ræðingu í rekstri - að öðram kosti heldur afkoma þeirra áfram að versna. Á hitt ber að líta að fjár- magnsliðir hafa haldið uppi hagnaði fjölmargra útflutningsfyrirtækja vegna mikilfar skuldsetningar í er- lendri mynt.“ Fómir f ærðar til að viðhalda háu gengi í ársfjórðungsskýrslunni kemur fram að á endanum snúist gengi krón- unnar um tiltrú markaðsaðila (inn- lendra og erlendra) á gengisstefn- unni. „Ekki er að sjá að tiltrú á gengi krónunnar hafi minnkað. Þvert á móti virðast margir vera á þeirri skoðun að gengið geti haldið áfram að styrkjast. Það er einnig skýrt markmið Seðla- bankans að halda gengi krónunnar háu, þrátt fyrir þær fómir sem færð- ar era í formi versnandi samkeppnis- stöðu og auldns viðskiptahalla.“ Að sögn Amars virðist fátt geta ógnað gengi krónunnar til skamms og meðallangs tíma. Til langs tíma er lík- legt að leiðrétting verði til veikingar ef fram heldur sem horflr. Er full- komlega eðlilegt að krónan hækki í góðæri en lækki þegar halla fer und- an fæti. Viðskipahallinn stenst ekki til lengdar þó svo að gjaldeyriskreppa sé ekki í augsýn. Krónunni gefin fimm ár í mesta lagi Að sögn Amars er krónan orðin til vandræða við stjóm peninga- og gengismála og það sé til vandræða að vera með sjálfstæða mynt í jafnlitlu hagkerfl. „Um 60% af útflutningi okk- ar fara inn á evrasvæðið og það er mín skoðun að það sé ekki spuming um hvort evran verður tekin upp hér heldur hvenær það verður gert. Ég slæ því fram hér að það geti gerst inn- an fimm ára. Auðvitað er þetta póli- tísk spuming en ég held að það væri skynsamlegt tO lengdar. Við greiðum gríðarlega hátt verð í formi hárra vaxta og viðskiptakostnaðar fyrir að vera með sjálfstæða mynt,“ sagði Amar Jónsson við kynningu á ár- sfjórðungsskýrslu Landsbankans og Landsbréfa í gær. LANDSTEINAR International hf., Landsteinar Svenska AB og danska hugbúnaðarfyrirtækið Dansk Syst- empartner A/S hafa undirritað vilja- yfirlýsingu um samruna þessara þriggja félaga. Með samrananum er ætlunin að mynda öflugt, alþjóðlegt sölufyrirtæki á viðskiptalausnum f Evrópu sem mun bjóða viðskiptavin- um sínum lausnir í Navision Financials og Concorde/Axapta. Að sögn Aðalsteins Valdimarsson- ar, framkvæmdastjóra Landsteina, munu allir núverandi starfsmenn Landsteina halda starfi sínu, en fyr- ir liggur að sameinað fyrirtæki muni ráða fleiri til viðbótar. Eftir samrun- ann verða starfsmenn þess um 440 talsins og er samanlögð velta fyrir- tækisins á þessu ári áætluð 4,3 millj- arðar íslenskra króna. Sameinað fé- lag mun starfa undir heitinu Landsteinar SystemPartner og munu höfuðstöðvar fyrirtækisins verða í Kaupmannahöfn. Útibú og samstarf saðilar víða um heiminn Aðalsteinn segir að Dansk Syst- empartner hafi áður verið í sam- starfi við Landsteina. „Landsteinar International hafa frá upphafi sér- hæft sig í hugbúnaðarlausnum byggðum á Navision Financials og er fyrirtækið leiðandi í þróun og sölu á slíkum lausnum í Evrópu. Dansk Systempartner er á hinn bóginn sér- hæft þróunar- og sölufyrirtæki á lausnum frá Damgaard í Danmörku og er félagið einn af þremur stærstu söluaðilum á Concorde/Axapta hug- búnaði í Evrópu. Landsteinar Syst- emPartner mun því verða fremsta fyrirtæki Evrópu á sviði sölu, þjón- ustu og þróunar á þessum tveimur hugbúnaðarkerfum," segir Aðal- steinn. Hann kveðst búast við því að samraninn gangi endanlega í gegn í lok maí eða um miðjan júnímánuð. Landsteinar SystemPamter reka útibú í Danmörku, Svíþjóð, á íslandi, í Finnlandi, Bretlandi, á Jersey, í Þýskalandi og Litháen auk þess sem fyrirtækið er með net samstarfsaðila víða um heim. Sameinað fyrirtækið er með ýmsa möguleika til frekari vaxtar í skoðun og er áformað að það fari á alþjóðlegan hlutabréfamarkað á síðasta ársfjórðungi þessa árs. Stjórnarformaður hins nýja félags verður Leif Almstedt frá sænska fjárfestingarfélaginu Ledstiernan AB en framkvæmdastjóri verður Peter Sander Larsen, sem gegnir nú sömu stöðu hjá Dansk System- partner A/S. Aðalsteinn Valdimars- son mun verða aðstoðarfram- kvæmdastjóri. Helstu eigendur hins nýja félags eru Peter Sander Lar- sen, Ledstiernan og íslenski hug- búnaðarsjóðurinn. -------H-l---------- Skipaður for- stjóri Lána- sýslu ríkisins Fjármálaráð- herra hefur skip- að Þórð Jónasson rekstrarhagfræð- ing forstjóra Lánasýslu ríkis- ins frá 1. maí næstkomandi. Hann tekur við starfinu af Pétri Kristinssyni sem skipaður var tímabundið í embættið. Þórður er viðskiptafræðingur frá Háskóla íslands og með meistara- próf í rekstrarhagfræði frá Edin- borgarháskóla. Hann hefur starfað hjá Lánasýslu ríkisins frá 1992 að frátöldum tíma við nám erlendis. Þórður er kvæntur Kolbrúnu Krist- jánsdóttur og eiga þau eitt bam. Danskt-íslenskt verslunarráð stofnað Á stofnfundi dansk-íslenska verslunarráðs- ins í gömlu dönsku kauphöllinni í Höfn var evran reifuð og vitnað í Andrés önd eins og Sigrún Davíðsdóttir heyrði. „TILGANGUR ráða af þessu tagi er að skapa vettvang til að efla við- skiptatengsl landanna," sagði Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri dansk-íslenska verslunarráðsins, í samtali við Morgunblaðið í gær, en Guðjón er jafnframt aðstoðarfram- kvæmdastjóri Verslunarráðs Islands. Dansk-íslenska verslunarráðið var stofnað í gær í húsakynnum gömlu kauphallarinnar dönsku steinsnar frá þinghúsinu að viðstaddri Marianne Jelved efnahagsráðherra Dana og Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Að loknu ávarpi Helga Ágústssonar sendiherra flutti Jelved ávarp, þar sem hún ræddi danska aðild að Efna- hags- og myntsambandi Evrópu, EMU, en um þá aðild greiða Danir at- kvæði 28. september. Geir H. Haarde hélt erindi um íslensk efnahagsmál fyrir fundarmönnum, sem vora bæði úr dönsku og íslensku viðskiptalífi. Síðan var lýst kjöri ráðsmanna, en formaður hins nýstofnaða ráðs er Ás- mundur Stefánsson bankastjóri ís- landsbanka. Dansk-íslenska verslunarráðið er sjöunda ráðið af þessu tagi, sem stofnað er. Fyrir eru íslensk-erlend verslunarráð í Bandaríkjunum, Bret- landi, Frakklandi, á Spáni, í Svíþjóð og Þýskalandi. Eins og önnur hlið- stæð verslunarráð, sem þegar era til mun ráðið að sögn Guðjóns standa fyrir fundum í báðum löndunum um viðskiptatengd efni og stuðla að gagn- kvæmum heimsóknum viðskipta- sendinefnda. „Ráðið verður auk þess almennur vettvangur til að taka fyrir ýmis mál er varða viðskiptalífið, til dæmis skattamál og aðstæður fyrir- tækjarekstrar í báðum löndunum," sagði Guðjón. I þessu augnamiði mun ráðið gefa út fréttabréf og vera með heimasíðu, sem fyrst um sinn mun liggja undir vefsíðu Verslunarráðsins, www.chamber.is. Það vakti reyndar undran ýmissa viðstaddra að verslun- arráð af þessu tagi skuli ekki hafa verið stofnað fyrir löngu sökum náins sambands landanna. Helgi Ágústsson hafði reyndar fundið ljósmyndir í Jónshúsi frá fundi dansk-íslensks verslunarráðs 1925 og svo frá fimmtíu ára afmælisfagnaði 1942, svo ráðið hefur verið til en líklega lognast út af við lýðveldisstofnunina, þar til það er endurreist nú. í ávarpi sínu gat Ásmundur Stef- ánsson sér þess til að kannski hefðu íslendingar fengið nóg af danskri ein- okunarverslun á sínum tíma og því ekki haft áhuga á verslunarráði fyrr en nú. Af góðri mætingu mátti þó marka að stofnunin væri orðin tíma- bærogvelþað. Þeir sem sitja í hinu nýstofnaða ráði era auk formannsins þau Sverrir Sverrisson, Tryggvi Jónsson, Kristín Guðmundsdóttir, Gunnlaugur M. Sig- mundsson, Ársæll Harðarson, Peer Norgaard, Soren Langvad og Mads Elming. Tvísýnt um niðurstöður evru- þjóðaratkvæðagreiðslu Marianne Jelved gerði fundar- mönnum grein fyrir afstöðu sinni gagnvart EMU-aðild. Hún sagði það áhyggjuefni að eftir að skoðanakann- anir hefðu sýnt tryggan meirihluta fyrir aðild síðan sumarið 1998 þá hefði skipt um eftir að ákveðið var hvenær atkvæðagreiðslan yrði og ekki væri lengur tryggur meirihluti fyrir aðild. Skýringin væri kannski sú að nú þeg- ar stefndi í að menn þyrftu að gera upp hug sinn sækti efinn á menn. Jelved lagði áherslu á að danska stjórnin hefði fylgt fastgengisstefnu síðan 1982 og hún hefði skilað góðum árangri. Efnahagsstaðan væri nú góð og í raun svo góð að erfitt væri að nota efnahagsástæður sem röksemd- ir fyrir danskri aðild. „Já en gengur okkur ekki nógu vel?“ væri spuming, sem hún heyrði æ ofan í æ. Því mætti segja að stjóminni hefndist nú fyrir góðan árangur sinn í efnahagsmálum. Málið væri þó að í sínum huga skipti öllu að Danir yi-ðu með þar sem ráð- unum væri ráðið, þó hinn ytri rammi breyttist lítið. Danir hefðu fylgt þýska seðlabankanum og fylgdu nú evrópska seðlabankanum. „Staðurinn þar sem ráðunum er ráðið er enn sá sami, en ákvarðan- imar hafa flust úr einu húsi í Frank- furt í annað,“ sagði Jelved. Þótt hún vildi ekki vera með dómsdagsspár um hvað gerðist ef aðild yrði hafnað þá væri aðildin trygging fyrir stöðug- leika. Aðspurð sagði hún að dönsk aðild gagnaðist íslendingum að því leyti að dansk efnahagslíf yrði enn traustara en áður og það mundi gagnast við- skiptalandi eins og íslandi. Geir H. Haarde hafði ekki síður góða mynd að draga upp af íslensku efnahagslífi en Jelved. Áður en hann fór út í efnahagssálmana nefndi hann bókmenntatengslin við Dani, sem birst hefðu í lestri tímarita eins og Hjemmet, Familie joumalen og ann- arra blaða. Sjálfur hefði hann og fé- lagar hans lesið Andrés önd, auðvitað bara á dönsku á þeim tíma og þar hefðu verið mörg gullkomin. Eitt þeirra mætti heimfæra upp á efna- hagslíf nútímans, því Andrés hefði eitt sinn sagt: „Nú era orðin svo mörg svör, að bráðum verða ekki til nógu margar spumingar.“ Verðtrygging kemur útlendingum spánskt fyrir sjónir Þegar kom að efnahagsmálunum nefndi Geir að þótt íslendingar væru ekki með í Evrópusammbandinu, ESB, þá fylgdust þeir grannt með, enda væra ekki síður gerðar kröfur til íslendinga en meðlimslandanna að fylgja ábyrgðarfullri efnahagsstefnu. Ein af þeim spumingum, sem bomar vora upp við ráðherrann var hvort ekki stæði til að afnema verðtrygg- ingu lána nú þegar verðbólgan væri í böndum. Geir sagði það ekki vera, skýrði forsendur hennar en hún skipti heldur ekki máli þegar verð- bólgan væri í lágmarld. Að baki spumingarinnar liggur að íslending- ar reka sig oft á að útlendingar, sem kynna sér íslenskt efnahagslíf skilja ekki verðtrygginguna og hræðast hana, meðal annars af því þeir álíta að fyrst svona trygging sé til hljóti það að stafa af því að menn búist við að verðbólgan fari aftur af stað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.