Morgunblaðið - 28.04.2000, Page 38

Morgunblaðið - 28.04.2000, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Vorfantasía í Galleríi Fold ÞORSTEINN Helgason opnar málverkasýningu í baksalnum í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14 - 16, á morgun, laugardag, kl. 15. Sýninguna nefnir listamaður- inn Vorfantasía og er þetta hans önnur einkasýning, en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Þorsteinn Helgason er arki- tekt að mennt. Hann út- skrifaðist frá Arkitektaskólan- um í Kaupmannahöfn árið 1988. Þorsteinn stundaði mynd- listarnám við Myndlistarskól- ann í Reykjavík 1993 - 96 og var gestanemi í Myndlista- og handiðaskóla ísiands 1996 - 97. Þorsteinn rekur teiknistofuna Arcus í samvinnu við aðra. Sýn- ingunni lýkur 14. maí. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10- 18, laugardaga frá kl. 10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17 (mánu- daginn 1. maí frá kl. 14-17). Lokaö í dag vegna starfsmannaferöar S. Guðjónsson ehf. Auðbrekku 9-11 • 200 Kópavogur • Slmi 520 4500 Arngrímur í dansverkinu The FrozenOnes. Ljósmynd/Niklas Rydén Frosin augnablik ✓ A Leiklistardögum 2000, sem Riksteatern ásamt Teater og Dans i Norden mun standa fyrir dagana 11. til 14. maí, kemur dans- arinn Arngrímur Bjarnason fram í tveim sænskum sýningum; „Den osynliga mann- ens áterkomst“ á vegum Álvsborg-leikhúss- ins og í dansverki eftir Eva Ingemarsson „The Frozen Ones“, sem gagnrýnandi Dag- ens Nyheter kvað eitt athyglisverðasta sviðsverk vetrarins. Kristín Bjarnadóttir segir frá Arngrími og hátíðinni. ÞETTA er tólfta árið sem Riksteat- em heldur leiklistardaga í húsi sínu í Hallunda, skammt frá Stokkhólmi og þema ársins nefnist „gránsfall“. Það er orð með margslungna merk- ingu og vísun í nútímasamfélagsþró- un, segir í kynningu. „Mörk milli landa glata sífellt meira merkingu og ólíkar listgreinar nálgast hver aðra og blandast á óvænta vegu. Takmörk þess er sýna má á sviði eru þanin.“ Auk umræðufunda og sænskra sýninga verður boðið upp á nokkrar gestasýningar frá ná- grannalöndum, svo og frá Suður- Afríku, en þaðan koma 17 ungmenni með sýninguna „Isandlwane“, með hefðbundnum afrískum söngvum og dönsum sem og sögum úr hvunn- dagslífi ungra Suður-Afríkubúa eftir aðskilnaðarstefnuna. Aðrar gesta- sýningar koma frá Álandseyjum, Lettlandi, Finnlandi og Danmörku og frá Islandi kemur Hafnarfjarðar- leikhúsið, sem fyrir tveim árum vakti hrifningu á leiklistardögunum með „Himnaríki" Árna Ibsen. I ár verður sýningin „Salka ástarsaga" á fjölunum í Hallunda 11. og 12. maí kl. 19.30 báða dagana. Laugardag- inn 13. og sunnudaginn 14. maí gefst hinsvegar tækifæri til að sjá Am- grím Bjarnason og Janni L. Groenwold í „The Frozen Ones“ eft- ir Eva Ingemarsson. Heimspekilega eggjandi verk „The Frozen Ones“ er titill sem gæti vísað til frosinna augnablika, líkt og þau, sem finna má í myndaal- búmum, eða þau sem hafa bitið sig föst í minnið. Sýningin þróaðist á tilraunasvið- inu Atalande í Gautaborg og hefur verið kynnt sem heimildardanssýn- ing um tvo dansara; Janni frá Hol- landi og Amgrím frá íslandi. Einnig sem saga um konu og mann sem hittast í bakgarði einhverrar borgar í einhverju landi einhversstaðar. I sýningunni á sér stað sammni í fleiri en einni merkingu og unnið er út frá spumingum eins og: Hvemig er hægt að rjúfa nafnleysi (anonymit- et) dansarans á sviðinu? Og hvað gerist þegar manneskja hittir fyrir mynd sína og þegar dans lendir í samtali við kyrrmynd og mynd- band? Er hægt að nota kyrrmyndir og myndbönd til að styrkja hið pers- ónulega í tjáningunni? Og árangur- inn er „bæði fagurfræðilega og heimspekilega eggjandi verk“, skrif- aði Daniel Andersson í Dagens Ny- heter eftir frumsýninguna á Atal- ante fyrr í vetur. Hann kvað sýninguna tvímælalaust eitt athygl- isverðasta sviðsverk vetrarins (án þess að tilgreina hve langt væri leit- að!) og víst er að hún hlaut einnig margróma lof annarra gagnrýn- enda, m.a. fyrir einfaldleika og hug- myndaríkt myndmál. í Expressen hóf Margareta Sör- enson umsögn sína með eftirfarandi lýsingu: „Andlit á leið burt: upp yfir ennið, yfir hvirfilinn, niður hnakk- ann. Til að lenda augnabliki síðar í lófa dansarans og horfa þaðan.“ Hún hrósar nákvæmni dansaranna, svo og þátttöku þeirra í myndablönd- unni, sem verður „undursamleg svíta um tvo líkama, tvö líf. Fallegt og kemur á óvart þegar veruleiki og mynd verða óbrotin heild.“ Eva Ingemarsson hefur verið skapandi danshöfundur á sviði nú- tímadansins frá árinu 1978 og er einn aðaldrifkraftur tilraunasviðsins Atalante. Hún hefur áður vakið at- hygli með sérkennilegum og pers- ónulegum verkum, allt frá danstríói við Piazzolla-tangó og fjögurra stunda dansinnsetningu bak við va- selínsmurða glerplötu, til útisýning- ar fyrir 26 dansara á þökum og tum- um í skemmtigarðinum Liseberg, við undirleik sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar á Stravinsky. Við hlið sér í tilurð The Frozen Ones hafði hún m.a. tónlistarmanninn Niklas Rydén sem einnig á stóran þátt í fastri starfsemi tilraunasviðsins og sem áður hafði unnið við gerð heim- ildarmynda og kennir myndbanda- gerð og kvikmyndun við listaháskól- ann Valand. Janni L. Groenwold, dansarinn frá Hollandi er menntuð við Rotter- dam Dance Academy og kom til Sví- þjóðar árið 1993. Arngrímur Bjamason er - já skyldi hann vera jafn jslenskur og nafnið bendir til? „Ég veit það ekki, ég er bæði og - en ég er íslenskur ríkisborgari,“ svarar Amgrímur sem var aðeins tveggja ára þegar hann fluttist til Svíþjóðar með foreldrum sínum, Halldóm Gunnarsdóttur og Bjama Amgrímssyni sem fóra utan til náms fyrir rúmum þrjátíu áram og ílentust vegna starfa sinna. „Já, og ég mun aldrei gerast sænskur ríkisborgari nema því að- eins að ég geti haldið íslenska ríkis- borgararéttinum og verið þannig hvort tveggja," bætir hann við á tærastu íslensku, án þeirra beyging- artraflana sem stundum segja þá sögu að viðkomandi hafi ekki slitið öllum sínum skóm meðal íslensku- mælandi fólks. Leið Amgríms í dansinn lá upp- haflega í gegnum leikhúsið, frá leik- listarbraut Norræna lýðháskólans í Kungelv til Dell’Arte School of Physical Theatre í Kaliforníu. Eftir störf með ýmsum leikhópum og samstarf með dönsuram árið 1995 varð dansinn hans aðalstarf og hjá Eva Ingemarsson dansaði hann fyrst árið 1997. Það er því engin til- viljun að Arngrímur skuli hafa verið valinn annar af tveim dönsuram sýningarinnar The Frozen Ones. Aðspurður hvemig það sé að dansa á móti klassískt menntuðum dönsuram, eins og Janni L. Groenwold er að hluta til, svarar Arngrímur umsvifalaust að það sé gott, „ég læri af þeim, og þeir geta lært eitt og annað af mér“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.