Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 28.04.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 67. HESTAR Er Sigurð- ur kominn með arf- taka Kringlu? HARÐARMENN hafa um árabil haldið töltkeppni á laugardag fyrir páska og á því var engin undantekn- ing nú. Mót þessi hafa verið með ýmsum brag eftir árstíð, allt frá því að vera haldin á kafi í snjó þar sem ryðja hefur þurft völlinn. Nú jaðraði hinsvegar við að vera vorstemmning því snjórinn var að sjálfsögðu löngu horfinn og veðrið bjart og fagurt þótt kuldinn tæki völdin um leið og sól fór að lækka á lofti. Keppt var bæði í meistara- og 1. flokki og náði einn keppenda, Sig- urður Sigurðarson sem nú mætti til leiks með hryssuna Fífu frá Brún, góðum einkunnum og virðist hryss- an vel líkleg til að geta fyllt skarð Kringlu frá Kringlumýri sem Sig- urður gerði garðinn frægan á fyrir um tveimur árum. í forkeppni fengu þau 7,60 en lækkuðu heldur í úrslit- um, voru þá með 7,43. Fyrir utan að vinna frækna sigra má gera ráð fyr- ir að Sigurður stefni á að ná einkunn yfir 8,0 á árinu sem virðist alls ekki fráleitt miðað við frammistöðu þeirra á þessu vormóti. En ekki voru allar tölur háar sem sáust á lofti og voru þrír dómarar mótsins ekki alltaf á sama máli um hver launin skyldu vera. Sérstak- lega bar á ósamræmi þegar lakari sýningarnar áttu hlut að máli. Mun- aði í sumum tilvika allt að tveimur heilum sem er orðinn mikill mein- ingarmunur. En mótið fór vel fram stutt og snarpt og því lokið á skikk- anlegum tíma. Úrslit urðu annars sem hér segir: Börn 1. Bjöm Ástmarsson, Fáki, á Kraka frá Mosfellsbæ, 6,00/6,48 2. Linda R. Pétursdóttir, Herði, á Val frá Ólafsvík, 5,97/6,17 3. Rósa B. Þorvaldsdóttir, Sörla, á Árvakri frá Sandhóli, 4,93/5,99 4. Hreiðar Hauksson, Herði, á Kulda frá Grímsstöðum, 5,00/5,83 5. Halldóra S. Guðlaugsdóttir, Herði, á Glóbjörtu frá Hólakoti, 5,13/5,36 Unglingar 1. Elva B. Margeirgsdóttir, Mána, á Svarti frá Sólheimatungu, 5,23/ 6,68 2. Kristján Magnússon, Herði, á Reyni frá Reykjavík,5,03/6,12 3. Eva Benediktsdóttir ,Herði, á Krumma, Hörður, 4,77/6,11 4. Ingibjörg Einarsdóttir, Herði, á Tinna frá Þorláksstöðum, 5,00/5,85 5. Jana K. Knútsdóttir, Herði, á Baldri frá Dísastöðum, 3,53/4,75 Ungmenni 1. Gunnar Ö. Einarsson, Mána, á Halifax frá Breiðabólstað, 6,03/6,48 2. Magnea R. Axelsdóttir, Herði, á Jarpi frá Mosfellsbæ, 5,73/6,18 3. Rakel Róbertsdóttir, Geysi, á Djákna frá Brímsstöðum, 5,50/6,05 4. íben K. Möller, Herði, á Hauki frá Akureyri, 4,47/5,81 1. flokkur 1. Garðar Hreinsson, Herði, á Frey frá Snjallsteinshöfða, 6,30/6,66 2. Gunnhildur Sveinbjarnardóttir, Fáki, á Kjarna frá Ási 1,6,00/6,57 3. Björn Ólafsson, Herði, á Fróða frá Njúki, 6,07/6,56 4. Þorvarður Friðbjörnsson, Herði, á Hersi frá Útverki, 6,07/6,53 5. Ásta B. Benendiktsdóttir, Herði, á Grána frá Gröf, 6,33/6,51 6. Róbert G. Einarsson, Geysi, á Gormi frá Grímsstöðum, 6,10/6,48 Meistaraflokkur 1. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Fífu frá Brún, 7,60/7,43 2. Hallgrímur Birkisson, Geysi, á Guðna frá Heiðarbrún, 6,20/7,19 3. Gunnhildur Sveinbjarnardóttir- .Fáki, á Náttfara frá Kópareykjum, 6,50/6,78 4. Arna Rúnarsdóttir, Fáki, á Nánös frá Jaðri, 6,23/6,58 5. Páll Viktorsson, Herði, á Úða frá Halldórsstöðum, 6,23/6,33 Reglugerð um skóla- reglur í grunnskólum MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út endurskoðaða reglu- gerð um skólareglur í grunnskól- um. Vinna við endurskoðunina fór aðallega fram í vinnuhópi með full- trúum frá menntamálaráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambandi íslands, Skóla- stjórafélagi íslands, Heimili og skóla og umboðsmanni barna. Drög að reglugerðinni voru til skoðunar á sérstöku málþingi sem menntamálaráðuneytið hélt í des- ember á síðastliðnu ári um skóla- reglur og aga í grunnskólum. End- urskoðunin var sett í þennan farveg til að tryggja sátt um reglugerðina og skipan mála á þessu mikilvæga sviði í stjórnsýslu skóla. Að loknu málþingi og starfi vinnuhóps hefur ráðuneytið unnið að endanlegri út- gáfu reglugerðarinnar að höfðu samráði við hagsmunaaðila. I reglugerðinni er kveðið á um að hver skóli skuli setja sér skólaregl- ur og skýrt kemur fram hvernig skólar eiga að standa að gerð skóla- reglna í einstökum skólum, hvaða atriði eigi að koma fram í skólaregl- um og hvernig standa eigi að kynn- ingu á þeim. I reglugerðinni um skólareglur er einnig kveðið á um hvaða máls- meðferð skuli viðhöfð og hvaða úr- ræða skólar megi grípa til vegna hegðunar nemenda og tilgreint hve- nær gæta þurfi ákvæða stjórnsýslu- laga við beitingu viðurlaga. Til- greint er með hvaða hætti skólar skuli hafa samstarf við foreldra vegna hegðunar nemenda og með hvaða hætti skólar skuli vinna að þessum málum í samvinnu við sér- fræðiþjónustu skóla og viðkomandi skólanefndir. Reglugerðin verður á næstunni m.a. send öllum grunnskólum, sveitarstjórnum, skólanefndum, skólaskrifstofum og foreldraráðum og tekur hún þegar gildi. Bent er á heimasíðu ráðuneytis- ins, www.mrn.stjr.is þar sem eru ýmsar upplýsingar um skólareglur og aga, m.a. niðurstöður málþings, ýmsir úrskurðir ráðuneytisins á þessu sviði og þar er einnig hægt að nálgast sjálfa reglugerðina. Skátar gefa út bókina Græni bak- pokinn SKÁTAR hafa gefíð út bdkina Græni bakpokinn sem er handbók um náttúruskoðun og umhverfis- mál. Bókin er gefin út af skáta- hreyfingunni til að auðvelda og efla umhverfisfræðslu í skátastarfi. Ekki er ætlunin að notkun bókar- innar takmarkist við skátahreyf- inguna og hafa skátar því fært hverjum grunnskóla á íslandi eitt eintak af bókinni að gjöf. Verkefni bókarinnar koma úr ýmsum áttum en flest eiga þau upp- runa sinn í skátabókum sem gefnar hafa verið út í ýmsum löndum. Það má því segja að bókin byggi á viss- an hátt á sameiginlegum arfi skát- Á myndinni er Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra að skoða nýju bók- ina með tveimur ungum skátum sem afhentu henni hana. anna, segir í fréttatilkynningu. Umhverfisráðuneytið hefur með fjárhagsstuðningi gert skátahreyf- ingunni mögulegt að taka saman eftii bókarinnar og Umhverflssjóð- ur verslunarinnar sá til þess með myndarlegu framlagi að hægt var að prenta þessa bók. Útskriftarnemar úr IATA-UFTAA-námi frá Ferðamálaskólanum ásamt kennurum og sljórnendum skólans. títskrifuðust úr ferðaskrifstofunámi NÝLEGA luku 22 nemendur ferðamálanámi frá Ferðamálaskól- anum í Kópavogi, MK. Þetta er í fjórða sinn sem Ferðamálaskólinn í MK útskrifar nema úr IATA- UFTAA námi en skólinn býður einnig upp á nám í almennum ferðafræðum og leiðsögunám. IATA-UFTAA námið felst í fargjaldaútreikningi og notkun farbókunarkerfisins AMADEUS auk hefðbundinna ferðagreina s.s. ferðafræði, ferðalandafræði út- landa, ferðalandafræði íslands, markaðsfræði, þjónustusamskipti og sölutækni. Námið tekur 7 mán- uði auk þess sem nemendur fara í starfsþjálfun á ferðaskrifstofu eða á flugfélag í eina viku. Inntak námsins og námsgögn eru að stórum hluta frá Alþjóðlegu flugmálasamtökunum (IATA) en skipulagning og framkvæmd námsins eru í höndum Ferðamála- skólans. Námið er gjaldgengt og viðurkennt erlendis en á sama tíma sérsniðið að íslenskum að- stæðum. Af þeim þremur námslín- um sem boðið er upp á í Ferða- málaskólanum í MK er IATA-UFTAA námið að mörgu leyti nokkuð sérstakt og sérhæft en markmið námsins er fyrst og fremst að þjálfa einstaklinga til sölu- og markaðsstarfa hjá flugfé- lögum og á ferðaskrifstofum. Innritun hafín í sum- arbúðirnar + við Astjörn INNRITUN er hafin vegna dvalar í sumarbúðirnar við Ástjöm í Keldu- hverfi skammt frá Ásbyrgi. Þar hafa verið reknar kristilegar sumarbúðir í meira en 50 ár á vegum Sjónarhæð- arsafnaðar á Akureyri. Stofnendur þess voru Arthur Gook og Sæmund- ur G. Jóhannesson. Frá 18. júní-18. ágúst munu 6-12 '“ ára drengir og stúlkur dvelja þar. Flest börnin dvelja í einn flokk (13 daga) en hægt er að vera lengur. 19- 25. ágúst verður unglingavika fyrir 13—16 ára. I fréttatilkynningu segir: „Skóg- urinn, sem umlykur tjörnina og svæðið, veitir fjölmarga möguleika til útiveru og leikja. Vatnið er sívin- sælt enda eru meira en 25 bátar af ýmsum gerðum á staðnum og hom- sílaveiðar em löngu sígild íþrótt. Þegar hlýtt er í veðri og sólin skín þá er synt í tjörninni. Á kvöldstundum er mikið sungið, börnin heyra sögur úr Biblíunni og þeim er kennt Guðs orð og góðir siðir. Af og til er farið í göngu- og skoðunarferðir í Ásbyrgi, Hljóðakletta og fleiri staði og stutt frá Ástjörn er hestaleiga. Við Ás- tjörn er körfubolta-, knattspymu- og blakvöllur. Keppt er í ýmsum íþrótt- um og leikjum og einnig em ýmis leiktæki í húsunum." Á hverju ári koma fjölmörg börn frá höfuðborgarsvæðinu og Flugfé- lag íslands býður sérstakt sumar- búðafargjald frá Reykjavík. Nánari upplýsingar em veittar á skrifstofu Ástjamar á Akureyri. Kvikmyndin Val sýnd í bíósal MÍR KVIKMYNDIN Val eða „Vybor“ verður sýnd sunnudaginn 30. apríl kl. 15 í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Mynd þessi var gerð af Mosfilm árið 1989 í samvinnu við bandarísk kvik- myndafyrirtæki og er byggð á skáld- sögu eftir rússneska rithöfunduinn Júrí Bondarév. Leikstjóri er Vladi- mír Naumov en meðal leikenda em Mikhafl Úljanov, Natalía Belok- hvostikova, Algis Matulenis og Él- enaFadejeva. Myndlistarmaðurinn Vasilijev og Masha eiginkona hans em stödd í Feneyjum á Ítalíu. Hann hefur kom- ið þangað áður og hrifist af róman- tískri fegurð borgarinnar og hlakkar til að sýna konu sinni hallirnar í borginni, síki og torg. Allt fer þetta þó á annan veg en til stóð. Málarinn fær þær fréttir að vinur hans úr skóla og her, Uja Ramzin, sem hann taldi sig hafa séð falla á vígvellinum í stríðinu, sé enn á lífí og vilji hitta hann. Þegar þeir hittast þekkir Vas- ilijev ekki bernskuvin sinn fyrir sama mann í þessum þyrkingslega og kuldalega útlendingi. Hvað kom fyrir Ilja á vígstöðvunum? Af hverju þagði hann þunnu hljóði öll þessi ár r og skrifaði aldrei, ekki einu sinni móður sinni? Svör fást ekki við þess- um spurningum nema horft sé til for- tíðar, segir í fréttatilkynningu. Skýringartal með myndinni er á ensku. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill. -----»-M------- Formannsskipti hjá FEF NÝR formaður hefur tekið við hjá Félagi einstæðra foreldra; Alberðf Snorrason tekur við af Þóm Guð- mundsdóttur er lét af formennsku í janúar. Aðrir í nýrri stjórn em: Sigrún Steingrímsdóttir, Þórdís Guðjóns- dóttir, Margrét Berndsen, Halldóra Einarsdóttir, Einar V. Ingvason, Ingibjörg Hjartardóttir, Matthildur ., Eiríksdóttir og Gunnar Þórðarson. -.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.