Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 70

Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 70
70 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Opnast þú, bakdyr. tit með þig, kvöldmatur. Í' COMMANP YOU'Í BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Mannamyndir út á Netið Frá Steingrími Kristinssyni: MIKIL umræða hefur orðið í al- mennu tali og úti á „Netinu“, varð- andi hugdettu tölvunefndar um bann við birtingu mannamynda á Netinu. Og nú hafa fjölmiðlar blandast inn í þessa umræðu. Undirritaður hefur ekki tekið mikinn þátt í þessari um- ræðu, en ég hefi haldið úti ljósmynda- síðu með mannamyndum, Ljós- myndasafn Steingríms, frá byijun ársins 1998, þar eru nokkur hundruð (þúsund? Ég er hættur að telja). og tel því ástæðu til að láta skoðun mína í ljós. Fyrstu Ijósmyndirnar sem ég sá á safni, þá unglingur, var á Minjasafn- inu Glaumbæ í Skagafirði en þar héngu uppi nokkrir tugir ef ekki hundruð ljósmynda af fólki og er ég ekki frá því að þar hafi ég fengið „bakteríuna" hvað varðar áráttuna á söfnun ljósmynda. Síðan hefi ég hald- ið ijölda sýninga á Ijósmyndum sem að stofni til hafa verið mannamyndir, í heimabyggð minni Siglufirði og einn- ig eina sýningu í öðru byggðarlagi. Ég sjálfur er lítið peð í þeirri flóru ljósmyndara og safnara sem komið hafa myndum sínum á framfæri opin- berlaga án þess að einhverri „nefnd“ launaðri af stóra bróður hafi dottið í hug að hugsanlega væri „ólöglegt" að sýna mannamyndir opinberlega. Ef tá vill dettur þessum sömu speking- um í hug að fyrst nefnd þeirra heitir „tölvunefnd" þá komi þeim opinber birting við þar sem tölva kemur við sögu vegna birtinganna. Hefur þess- um mönnum ekki hlotnast vitneskja þess efiiis að nánast öll myndvinnsla í dag er gerð með aðstoð eða að öllu leyti með tölvu? Kannski stóri bróðir fari að takmarka aðgengi tölva vegna þessara möguleika? Mér finnst þessi hugmynd um að birting mannamynda-ljósmynda sé ólögleg, bæði fáránleg og heimskuleg. Einn kunningi minn, sem er lögfræð- ingur og heimsótti eina af sýningum mínum (áður en netvæðing hófst), svaraði mér aðspm'ður vegna forvitni minnar, hvort mér bæri skylda til að fjarlægja ljósmynd af sýningu minni ef einhver á viðkomandi mynd færi fram á það. Hann svaraði mér eitt- hvað á þá leið að það væri siðferðisleg skylda mín en ekki lagaleg, en lögin væru frekar óljós á þessu sviði, en ef myndin væri á einhvem hátt meið- andi bæri mér tafarlaust skylda til að fjarlægja viðkomandi mynd. En sam- kvæmt lögum væri framfilma eign viðkomandi ljósmyndara eða rétthafa og hefði hann því fullan rétt til að hagnýta sér hana að vild ef viðkom- andi Ijósmynd væri tekin á opinber- um vettvangi, (ljósmyndastofa væri opinber vettvangur) en ekki inni á heimili viðkomandi og gegn vilja hans. Og hvað mínar sýningar snerti þá teldi hann þær fyrst og fremst menningarlegs eðlis og leið tíl að afla upplýsinga um nöfn fólks sem væri „óþekkt“ á myndum mínum. En ætíð hefur íegið frammi beiðni til fólks sem heimsótt hefúr sýningar mínar í söl- um og nú á Netinu, að segja mér frá nöfnum fólks á myndum mínum. Og viðbrögð fólks ætíð verið jákvæð. Og til fróðleiks kemur hér 3.gr. höf- undarlaga: „Höfundur hefur einkarétt til að gera eintök af verki sínu og til að birta það í upphaflegri mynd eða breyttri, í þýðingu og öðrum aðlögun- um.“ (Áhersla á „birta það“ er mín.) Lögfróður get ég tæpast kallast en skilningur minn er eftir orðanna hljóðan: Engin takmörkun er á birt- ingu, og ekki orði minnst á „intemet- ið“ sem sennilega var ekki til þegar þetta var samið. Undirritaður hefur unnið að því undanfama áratugi að skrá safn sitt í tölvutækt form auk þess að skanna inn filmumar sem hafa að geyma marga tugþúsunda mannamynda auk annarra heimUda allt frá áranum 1930, myndir teknar vítt um landið m.a. á Alþingishátíðinni á Þingvöllum, þó mest frá Siglufirði og þar með fólkinu og h'finu á síldar- áranum. Megnið af myndunum hefúr Kristfinnur Guðjónsson, ljósmyndari á Siglufirði, tekið en einnig myndir eftir mig sjálfan o.fl. A síðustu 2 áram hefi ég fengið fleiri hundruð bréf frá fólki á öllum aldri, fólki sem skoðað hefur Ljós- myndasíður mínar, fólk sem hefur séð á síðunum sjálft sig, ættingja og vini sína og fólk sem er að láta ánægju sína í ljós með framtak mitt. Þúsund- um nafna hefi ég getað bætt í skrán- ingu mína við myndir mínar fyrir at- beina þessa fólks, ómetanlegar upp- lýsingar sem ekki er hægt að nálgast með öðra móti. Staðreyndin er sú, hvað sem skoðunum tölvunefndar hð- ur. Ljósmyndir án upplýsinga og nafna era lítils virði, án upplýsinga er umhirða gamalla ljósmynda tilgangs- laus. Og spyrja mætti í sambandi við gömul gögn: Hvaða gagn væri að varðveislu þjóðargersema okkar ís- lendinga, handritunum, ef þar væri ekkert letur, aðeins kálfaskinnið? Og einnig mætti spyrja. Ef afmenningur á ekki að hafa rétt til að skoða manna- myndir á Netinu, hverjir eiga hinir útvöldu þá að vera og til hvers eiga hinir „útvöldu" að skoða myndirnar? Varla til að sýna þær almenningi ef taka ætti eitthvert mark á „tölvu- nefndarhugmyndum". Hver einstakhngur sem lætur taka af sér ljósmynd gerir það í þeim til- gangi að viðkomandi augnablik verði varðveitt handa honum og komandi kynslóðum. Það hlýtur að teljast af- brigði ef einhver fer til ljósmyndara í þefin eina tilgangi að sjá til þess að viðkomandi ljósmyndir verði eyðila- gðar og engum sýndar, þó svo að ein- staka mynd finnist ekki hkjast mótíf- inu sem ekki er óalgengt, sjálfur hefi ég tekið mikið af mannamyndum að beiðni fólks og einu sinni hefi ég verið beðinn að eyðileggja filmuna í slíku tilfelli, en var beðinn að endurtaka myndatökuna nokkram dögum seinna og var að sjálfsögðu orðið við þeim óskum. En það er staðreynd að þegar ljósmynd er valin til birtingar, hvar sem er, þá reynir viðkomandi, hvort heldur er ljósmyndarinn, sá sem velur mynd með efni sem hann ætlar að birta að velja þá mynd sem „best“ þykir, því flestir fáta taka af sér fleiri en eina Ijósmynd í hvert sinn, flestir 6 myndir hjá ljósmynd- ara. Bestu óskii- um góðan endi á þess- ari umræðu. Nánari upplýsingar um undirritað- an er að fá á Ljósmyndasíðu Stein- gríms: http://ww'w2.islandia.is/ba(idy STEINGRÍMUR KRISTINSSON, lagermaður, Hvanneyrarbraut80, Siglufirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.