Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 1 5
NORÐURÁL Á GRUNDARTANGA
Hagnaður í tíu mánuði á fyrsta árinu frá því að Norðurál tók formlega til starfa
Bjöm Högdahl, forstjóri Norðuráls á Grundartanga, er ánægður með starfsemi álversins og
er bjartsýnn á framtíðarmöguleika Norðuráls.
Starfsmenn Istaks að störfum í grunni nýrrar viðbyggingar kerskála Norðuráls á Grundar-
tanga. I baksýn sér í kerskálana sem verið er að lengja en til vinstri er stcypuskálinn.
s
Morgunblaðið/Jim Smart
Horft inn eftir öðrum kerskála Norðuráls en í hvorum skála eru 60 ker.
Framkvæmdir við
stækkun í fullum gangi
FRAMKVÆMDIR við stækkun
verksmiðju Norðuráls á Grundar-
tanga eru nú í fullum gangi, en
rúmt ár er liðið frá því að álverið
tók formlega til starfa. Að sögn
Björns Högdahl, forstjóra Norður-
áls, hefur framleiðslan gengið afar
vel á þessu eina ári, þrátt fyrir að
óvæntir tæknilegir örðugleikar hafí
sett strik í reikninginn. Hagnaður
hefur verið á framleiðslunni undan-
farna tíu mánuði og er Högdahl
bjartsýnn á framtíðarmöguleika
Norðuráls.
Arsframleiðsla Norðuráls í dag
er 60.000 tonn af áli sem framleitt
er í 120 kerjum. I framleiðsluna
fara árlega 120.000 tonn af súráli
sem flutt er inn til framleiðslunnar.
Við framleiðsluna eru notuð 30.000
tonn af rafskautum sem framleidd
eru í verksmiðjunni og notuð eru í
rafgreiningu hlaðins súráls, eins og
það nefnist þegar það hefur tekið í
sig ryk og flúor. Til þess að knýja
áfram 60.000 tonna álver eru ár-
lega notaðar 900 GWst af raforku.
Verksmiðjan var komin í full af-
köst í apríl í fyrra og segir Hög-
dahl að framleiðslan hafi skilað
hagnaði frá og með júní, aðeins
tveimur mánuðum eftir að fram-
leiðslan var komin í fullan gang.
Hann segir að menn séu mjög
ánægðir með þá niðurstöðu, sem
þó má einnig rekja til þess að
verð á áli var fremur hagstætt á
síðasta ári. Verðið hefur hins veg-
ar fallið nokkuð aftur og talsverð-
ar sveiflur verið í verðinu undan-
farna mánuði.
Erfitt vandamál setti strik
í reikninginn
„Verðið virðist fara upp og niður
án þess að menn sjái ástæðuna. En
við höfum trú á því að þetta sé arð-
söm verksmiðja og hér er margt
sem lofar góðu. Framleiðslan er
mjög einföld en jafnframt arðsöm
og ég er bjartsýnn á hag verk-
smiðjunnar í framtíðinni."
Þó að starfsemin gangi núna vel
og reyndar betur en búist var við
hefur eitt vandamál verið erfitt
viðureignar sem ekki var reiknað
með í upphafi, að sögn Högdahl.
Þegar nýtt álver er gangsett er
venjulegur endingartími hvers
kers fimm til sex ár en galli hefur
leitt til þess að 12 ker hafa einung-
is enzt í rúmt ár. í fyrstu vissu
menn ekki hvert vandamálið væri
en eftir ítarlegar rannsóknir hefur
fundist ástæða í tveimur smáatrið-
um.
„Þó að þetta séu smáatriði eru
þau samt mjög mikilvæg en þau
liggja í gangsetningarferli kerj-
anna og uppbyggingu á fóðrun
þeirra. Nú þegar orsakirnar eru
ljósar getum við gert viðeigandi
ráðstafanir til að leiðrétta þetta
þegar kerin eru endurfóðruð og
gangsett að nýju.“
Að sögn Högdahl voru menn
óviðbúnir því að þurfa að endur-
nýja svo mörg ker eftir stuttan
tíma og sérstakt verkstæði sem
sinna átti því verki var ennþá á
teikniborðinu, þar sem ekki var
búist við þessari endurnýjun fyrr
en eftir rúm fjögur ár. Byggingu
verkstæðisins verður því hraðað og
mun rísa við enda nýrrar viðbygg-
ingar álversins. Högdahl segir að
þetta hafi kostað talsverða fjár-
muni og ennþá eru 7 ker óstarf-
hæf, en reiknað er með að þau
verði öll komin í notkun eftir rúm-
an mánuð.
Tafir við fjármögnun
seinkuðu framkvæmdum
Framkvæmdir við viðbyggingu
kerskálanna eru nú í fullum gangi
en ætlunin er að auka afköst
verksmiðjunnar um 30.000 tonn á
ári. Stækkuninni hefur seinkað
nokkuð frá upphaflegum áætlunum
og segir Högdahl að helsta ástæð-
an fyrir því séu tafir við fjármögn-
un. Endurfjármagna þurfti fyrsta
áfanga verksmiðjunnar og tók það
lengri tíma en búist hafði verið við.
Einnig héldu fjármögnunaraðilar
að sér höndunum vegna þessara
galla í kerjunum, sérstaklega þar
sem ekki tókst í fyrstu að útskýra
fyrir þeim í hverju vandamálið
fólst. Því hefur ekki ennþá verið
gengið endanlega frá samningum
um fjármögnun við stækkunina, en
Högdahl segist hafa fengið upp-
lýsingar um að gengið verði frá
samningum innan tveggja vikna.
Aætlaður kostnaður við stækk-
unina er 70 milljónir dollara og er
Istak stærsti verktakinn. Fram-
kvæmdin felst í að kerskálar verða
lengdir til að bæta við 60 kerjum,
en ekki þarf að stækka skautskála
eða steypuskála. Þá verður bætt
við verkstæði til að endurnýja ker-
in þannig að hægt verði að skipta
þeim út á 3-4 dögum til að tapa
sem minnstum tíma, en stór hluti
þeirra hefur ennþá fyrrgreindan
framleiðslugalla.
Framfarir starfsmanna
ótrúlega miklar
I framtíðinni er síðan ýmislegt
sem bendir til þess að álverið verði
stækkað enn frekar og sú stækkun
verði mjög stór í sniðum. Gert er
ráð fyrir að tvöfalda afkastagetu
verksmiðjunnar í 180.000 tonn, fá-
ist til þess nægjanleg orka. Að
sögn Höghahl er raforkan lykillinn
að frekari stækkun og hafa þegar
farið fram viðræður við Lands-
virkjun um að útvega slíka orku
árið 2003 til 2004, en Landsvirkjun
telur óraunhæft að það geti orðið
fyrr en árið 2007 eða 2008. Slíkir
samningar um orkukaup eru einnig
háðir áætlunum og verkefnum
Landsvirkjunar vegna uppbygg-
ingar annarra álvera og orkuvera.
I dag starfa um 160 starfsmenn
hjá Norðuráli og eftir stækkunina
bætast um 60 starfsmenn við.
Verði álverið síðan stækkað í
180.000 tonn má búast við að
starfsmenn verði orðnir á fimmta
hundrað. Nokkur vandkvæði voru í
byrjun framleiðslunnar þar sem að
starfsmenn höfðu litla sem enga
þjálfun við slík störf, en framfarir
þeirra hafa verið ótrúlega miklar,
að sögn Högdahl.
„Um tíma vorum við í nokkrum
vandkvæðum varðandi gæði fram-
leiðslunnar, en núna hefur okkur
tekist að uppfylla hærri gæða-
staðal en ég vænti og ég er mjög
undrandi á því að okkur hafi tek-
ist að ná þessum árangri. Þannig
að nú fáum við hærra verð fyrir
hvert tonn, þó svo að það sé ekki
mikið. Eg er því mjög ánægður
með framleiðsluna eftir fyrsta ár-
ið og að okkur hafi tekist að finna
orsakir þessara vandamála og
gera ráðstafanir til að forðast
þau.“