Morgunblaðið - 09.05.2000, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Sumarblómin
launa áburðar-
gjöf ríkulega
Senn líður að því blómstrandi garðar
o g blómabeð fegri landið með litadýrð og
fjölbreytileika. María Hrönn Gunnarsdóttir
ræddi við garðyrkjufólk um sumarblóm
og fjölær blóm og um það að hverju þurfí
að hyggja svo jurtirnar blómstri bæði vel
og lengi.
Morgunblaðið/Kristj án
Ekki líður á löngu þar til sumarblómin fara að springa út, landsmönnum
til yndisauka. Flauelsblómin í Garðyrkjustöðinni Grísará í Eyjafjarðar-
sveit eru vinsæl blóm nyrðra, enda litskrúðug og falleg.
EF TÍÐIN helst góð eins og und-
anfarna daga getur fólk farið að
huga að sumarblómunum um
næstu helgi, segir Magnús Stef-
ánsson, deildarstjóri plöntu-
deildar Garðheima í Reykjavík.
Ef ekki, má nota tímann til að
undirbúa jarðveginn, þrífa rusl
eftir veturinn úr blómabeðum og
taka blómapottana fram. Ágætt
er að bera áburð á blómabeðin,
t.d. blákorn eða lífrænan áburð,
og bæta jafnvel mold í ef þurfa
þykir.
Magnús segir að flest sumar-
blómin séu komin í verslun Garð-
heima og að úrvalið aukist með degi
hverjum. Hann á von á því að
stjúpublómin fáist bráðlega enda sé
hún dugleg planta sem byrji
snemma að blómstra. Hann býst
ekki við mörgum nýjum tegundum
sumarblóma í ár „en þó skýtur allt-
af eitthvað nýtt upp kollinum," seg-
ir hann.
Ágætt að umpotta
Sumarblóm eru alla jafna við-
kvæm fyrir þurrki og því verður
fólk að fylgjst vel með rakanum í
blómapottunum, segir Magnús. Ef
ætlunin er að hafa blómin í pottum
er ágætt að umpotta þegar heim er
komið og velja þá svolítið stærri
pott en blómið var keypt í. Ef
blómakerið er stórt er ráð að setja
vikur, smásteina eða leirkúlur í
botninn, bæði til að þyngja kerið og
til að búa til dren.
„Sala á plöntum í garðinn, svo
sem sígrænum plöntum og trjám og
runnum sem og plöntum í garð-
skála nær hámarki upp úr miðjum
maí. Þessum plöntum sem og rós-
um, svo sem dornrós og hansarós,
er hægt að planta út nú þegar,“
segir Magnús enn fremur. Magnús
minnir einnig á að ekki er of seint
að huga að kartöflurækt því enn sé
útsæði fáanlegt og ekki of seint að
láta útsæðið spíra.
Þá segir hann að fólk geti farið að
huga að því að eyða mosa ef hann er
í garðinum. Ágætt sé að rífa hann
eða tæta upp, annaðhvort með
mosatætara eða „gömlu, góðu hríf-
unni,“ bera síðan kalk á blettinn og
jafnvel blákorn eða graskorn. „Með
því að bera blákom á fær maður
sprettu í grasið, sem nær þá yfír-
höndinni," svarar hann þegar hann
er inntur eftir því hvort það sé
rangt að áburður auki mosavöxtinn.
Enn er von á næturfrosti
Fjölær blóm og plöntur þurfa
umhirðu og grænar hendur eins og
sumarblómin.
„Það borgar sig ekki að hreinsa
rusl og laufblöð ofan af viðkvæmum
fjölærum blómum fyrr en eftir
miðjan mánuðinn þar sem við get-
um enn átt von á næturfrosti,"
segir Guðríður Helgadóttir, garð-
yrkjufræðingur í Gróðrarstöðinni
Grænuhlíð í Reykjavík. Hún segir
að að mörgu sé að hyggja þegar
fólk ákveður að gróðursetja fjölær-
ar jurtir í garðinum hjá sér. Plönt-
urnar eru misharðgerar og því þarf
að huga vel að staðsetningu þeirra,
hversu háar og breiðar þær mega
vera og hvort þær þurfi sólríkan
stað eða skuggsælan.
„Fyrstu 2-3 árin þarf ekki að hafa
mikið fyrir fjölærum jurtum. En
þær vaxa og verða bústnari og með
tímanum deyr miðjan. Þá verður
blómið eins og karfa og þá þarf að
fara að skipta henni.“ Töluverð
vinna getur verið fólgin í því að eiga
fjölær blóm en þegar upp er stað-
ið,“ segir Guðríður, „er það líklegra
hagkvæmara."
Blómaþyrpingar að
erlendri fyrirmynd
Vinsælt er að planta ólíkum teg-
undum blóma og jurta saman í ker
og hafa á dyraþrepum og svölum.
„Þá er aðalatriði að gott frárennsli
sé í pottinum," segir Ásdís Lilja
Ragnarsdóttir, garðyrkjufræðing-
ur í Blómavali í Reykjavík. „Ef ekki
er gott gat í botninum verður að
setja möl eða vikur sem tekur við
umfram vatni.“
Sérstaklega á þetta við ef pottur
stendur þar sem rignir ofan í hann,
segir hún, því engri plöntu er hollt
að standa í vatni.
„Mjög vinsælt er að nota sígræna
plöntu með í pottinum og raða síðan
sumarblómum í kring til að fá lit-
inn. Þegar tími sumarblómanna er
liðinn má setja erikur í stað þeirra,"
segir hún. Þannig má lengja tímann
sem blómapotturinn fegrar um-
hverfi sitt.
Þá segir Ásdís Lilja ágætt að
planta í potta, sem hægt er að
hreyfa úr stað. Snjallt er hafa suma
litla og aðra stóra og búa þannig til
blómaþyrpingu í líkingu við það
sem víða má sjá erlendis. I suma
potta má setja sumarblóm ein-
göngu, sígræna plöntu í aðra og
blanda tegundum í enn aðra.
„Síðan er gott að gefa sumar-
blómum blómaáburð af og til. Það
launa þau manni ríkulega með því
að blómstra betur og lengur.“
Ef fólk ætlar að planta blómum í
blómahengi er gott ráð að blanda
svokölluðum vatnskristöllum í
moldina. „Hengiplöntur vilja þorna
og þess vegna er sniðugt að setja
vatnskristallana saman við því þeir
geta haldið svo miklum raka í sér,“
segir Ásdís Lilja.
Nýtt
Lyktar-
gleypir
KOMINN er á markað svokallaður Air
Sponge lyktareyðir. Um er að ræðaí
umhverfisvænt efni sem í fréttatil-
kynningu fiá inn-
flytjanda vörunn-
ar, Islenskum aðli,
segir að vinni bug
á alls konar lykt og
loftmengun í
heimahúsum, á
skrifstofum eða í
bílum. Þar segir
jaínfi-amt að varan
eyði lykt sem sest
meðal annars í föt, gardínur og teppi
eins og tóbaksreykur og málningarlykt
svo dæmi séu tekin.
Air Sponge lyktargleypirinn er
þéttur hlaupmassi úr pólýeter, fleyti-
efnum, kolum og afeitrandi efnum.
Varan er seld í öllum verslunum
Húsasmiðjunnar.
--------------
Sokkar í Select-
verslanirnar
SKELJUNGUR hf. og Leistar ehf.
hafa tekið upp samstarf umsölu
á sokkum frá bresku
keðjunni Sock
Shop í Select-
verslunum Shell á
höfuðborgarsvæð-
inu.
Sock Shop-keðjan
rekur yfir 80 verslanir í
Bretlandi auk 11 verslana
í öðrum löndum. í frétta-
tilkynningu frá Skeljungi kemur
fram að á boðstólum verði sokkar,
sokkabuxur og húfur.
-----♦-♦-4----
Nýjung hjá SORPU
Skilagjald á
bankareikning
BREYTING hefur orðið á greiðslu
fyrir skilagjaldsskyldar drykkjar-
umbúðir hjá Endurvinnslustöðvum
SORPU. í fréttatilkynningu segir að
í stað þess að fá ávísun skráða á
móttakanda, sem aðeins er hægt að
skipta í bönkum eða sparisjóðum, er
nú hægt að fá skilagjaldið lagt inn á
bankareikning með því að framvísa
debetkorti. Það er því hægt að versla
fyrir endurgreiðsluna nánast strax. I
fréttatilkynningu segir að þetta sé
liður í bættri þjónustu á stöðvunum.
Valin
andoxunarefni
í einu öflugu hylki
Éh
náttúrulefeal
eilsuhúsið
Skólavörðustlg, Kringlunni & Smáratorgi
Allar
myndbandsspólur
á kr. 250
Höfdabakka 1 - Sími 567 2190
lUlaí-tilboð