Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 25
Sjávarútvegssýningin í Brussel
Milli 30 og 40
íslensk fyrirtæki
eru á sýningunni
MILLI 30 og 40 íslensk fyrirtæki
taka þátt í Sjávarútvegssýningunni
í Brussel, sem hefst í dag.
Sýningin hefur skapað sér sess
sem stærsta sýning er tengist sjáv-
arútvegi í heiminum en gert er ráð
fyrir um 10.000 gestum. Sýningar-
svæðið er um 14.000 fermetrar en
rúmlega þrjátíu íslensk fyrirtæki
verða á bás Útflutningsráðs íslands
á rúmlega 500 fermetra gólffleti.
Þetta er heldur stærri bás en í
fyrra, sem skýrist af þátttöku fleiri
íslenskra fyrirtækja nú en þá.
Nýsköpunarsjóður styrkir þátt-
töku íslensku fyrirtækjanna og í
tengslum við sýninguna bjóða
sendiráð íslands í Brussel, sjávar-
útvegsráðuneytið og Útflutningsráð
Islands til fundar um sjávarútvegs-
mál eins og gert hefur verið undan-
farin ár. Fundurinn verður haldinn
á Hotel Metropole í Amb-
assadeur-salnum og hefst kl. 19.30
þriðjudaginn 9. maí en hann er op-
inn öllum_ íslenskum gestum á sýn-
ingunni. Árni M. Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra ávarpar fundinn en
framsögumenn verða Hjörleifur
Einarsson, forstjóri Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins, og Kristó-
fer Már Kristinsson, forstöðumaður
Evrópuskrifstofu atvinnulífsins í
Brussel. Fundarstjóri verður Gunn-
ar Snorri Gunnarsson, sendiherra
íslands í Brussel.
Morgunblaðið/Helgi Mar Ámason
Kristín Pálsdóttir, eiginkona Guðmundar Inga Guðmundssonar útgerðarmanns Hugins, gaf skipinu nafn við
sjósetninguna.
Huginn VE sjó-
settur í Chile
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra
Morgunblaðið/Þorkell
Árni Mathiesen ávarpar ráðstefnu Argentínumanna úr landssimahúsinu.
Flutti erindi fyrir
Argentínumenn
Erindið flutt um fjarskiptanet
Landssimans
ÁRNI Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra ávarpaði í gær ráðstefnu um
verndun fiskistofna, sem haldin er í
Argentínu. Hún er haldin á tveimur
stöðum, í Mar del Palta og í Ushua-
ia og flytur Árni erindið að nýju á
fimmtudag. Ráðherrann flutti er-
indið um fjarskiptanet Landssím-
ans úr Landssímahúsinu og birtist
mynd af honum á skjá í ráðstefnu-
salnum í Argentínu. Flutningur er-
indisins tók um hálfan tíma og síð-
an svaraði ráðherrann fyrirspurn-
um í jafnlangan tíma.
Erindið var fyrst og fremst lýs-
ing á fiskveiðistjórnun við Island
og yfirlit yfir gang mála frá því
kvótakerfið var tekið upp. Ai-gen-
tínumenn eru að íhuga breytta fisk-
veiðistjórnun hjá sér og hafa meðal
annars verið að velta fyrir sér
kvótakerfi með svipuðum hætti og
hér er. Árni segir að þeir hafi verið
mjög áhugasamir og spurt um
margt. „Þeir spurðu um samsetn-
ingu á vinnslunni, hver viðmiðunar-
árin hefðu verið. Þeir spurðu um
styrki og hvort atvinnuleysi hefði
tengzt breytingunum, hvort hér
væru ónýttir fiskistofnar. Þeir
spurðu um brottkast og hvernig
frystiskipin stæðu í samanburði við
vinnsluna í landi út frá heilbrigðis-
kröfum. Þeir spurðu hvaða áhrif
kvótakerfið hefði á skipaflokka og
ýmislegt fleira."
Hagnast á lágu gengi
NORSKIR útflytjendur sjávar-
afurða hafa hagnazt mikið á þessu
ári á lágu gengi norsku krónunnar.
Hún hefur fallið um 14% gagnvart
dollar og 9% gagnvart pundi. Hún
hefur einnig lækkað gagnvart evr-
unni en þó mun minna, en norska
krónan hefur á hinn bógist styrkzt
gagnvart jeninu.
Oddmund Olsen í West Fish
Aarsæther segir í samtali við
norska blaðið Fiskaren, að lágt
gengi norsku krónunnar komi sér
mjög vel við útflutninginn, sem
skili fleiri krónum í kassann fyrir
vikið. Á hinn bóginn flytur fyrir-
tækið inn töluvert af rússaþorski,
sem greitt er fyrir í dollurum og
verður hann dýrari fyrir vikið.
„Flestir útflytjendur tryggja sig
gegn gengisbreytingum, þegar
þeir gera sölusamninga. þess
vegna er ekki um hreinan hagnað
að ræða, þegar gengið lækkar.
Jafnframt fygljast kaupendur
mjög vel með gengisþróun og
reyna að stemma verðið af í sam-
ræmi við hana. En hvað sem því
líður er þetta hagstæð þróun,“ seg-
ir Olsen.
Morgunblaðið/Helgi Mar Amason
Frá sjósetningu Hugins í Asmar-skipasmíðastöðinni í Talcovano í Chile.
HUGINN VE, nýtt nóta- og tog-
veiðiskip útgerðarfélagsins Hugins
ehf. í Vestmannaeyjum, var sjósett
í Asmar-skipasmíðastöðinni í
Talcovano í Chile á laugardag.
Fjöldi íslendinga var viðstaddur
sjósetninguna, sem fór fram með
mikilli viðhöfn.
Guðmundur Ingi Guðmundsson,
útgerðarmaður og eigandi Hugins
VE, var að vonum ánægður með
þennan áfanga í smíði skipsins.
„Skipið er glæsilegt og mér sýnist
handbragðið gott. Nú er áætlað að
við fáum skipið afhent í lok ágúst og
ég er vongóður um að sú áætlun
standist," sagði Guðmundur í sam-
tali við Morgunblaðið.
Huginn VE er 68,30 metra lang-
ur og um 14 metra breiður. Skipið
getur borið um 1.100 tonn af kældu
hráefni. Samningur um smíði skips-
ins var undirritaður í desember
1998. Grímur Gíslason, eftirlitsmað-
ur með smíði skipsins, sagði verkið
að mestu hafa gengið vel þótt það
væri talsvert á eftir þeim tímaáætl-
unum sem upphaflega voru gerðar.
„Ég er sannfærður um að þetta
verður gott, öflugt, fengsælt og far-
sælt skip þegar það hefur veiðar við
íslandsstrendur síðar á þessu ári,“
sagði Grímur.
Huginn VE er þriðja skipið sem
Asmar-skipasmíðastöðin sjósetur
fyrir Islendinga á skömmum tíma.
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriks-
son var sjósett í apríl á síðasta ári
og nóta- og togveiðiskipið Ingunn
AK í október sl., en skipið er í eigu
Haraldar Böðvarssonar hf. og verð-
ur formlega afhent félaginu innan
skamms. Þar að auki er stöðin að
smíða nóta- og togveiðiskip fyrir
Gjögur hf. og áætlað að skipið verði
sjósett í sumar.
Juan Patricio Basili, aðmíráll og
yfirmaður Asmar, sagði við sjósetn-
inguna að þrátt fyrir að íslenska
þjóðin væri tiltölulega fámenn væri
íslenski fiskiskipaflotinn einn sá öfl-
ugasti í heimi. Það væri Asmar-
skipasmíðastöðinni mikill heiður að
fá tækifæri til að taka þátt í frekari
uppbyggingu flotans. „Fáar þjóðir
hafa jafn mikinn skilning á nýtingu
auðlinda hafsins og Islendingar.
Við erum því ánægðir með að
leggja okkar af mörkum í enn frek-
ari þróun flotans og aðstoða þannig
íslendinga til enn betri árangurs á
þessu sviði,“ sagði hann.
Fótadagar í
verslunum
Lyfju
20%
afsláttur
eða
kaupauki
ef keypt er fótakrem
og fótasalt
Þá raest fótabali
í kaupauka.
Kynningarkl. 14~18 i lyffu, Légmúla i ríag og föstudag
, Hsfttr&hQftt á mormm. mi ó vikudaa
, Setberxji á fímmtutlðg
03LYFJA
LVF Á LÁGMARKSVERtX