Morgunblaðið - 09.05.2000, Side 27

Morgunblaðið - 09.05.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 2'i ERLENT Yfirlýsing IRA um afvopnun markar tímamót á Norður-frlandi Staðfesting á því að IRA vilji binda enda á ógnaröldina Irski lýðveldisherinn hefur fallist á sam- komulag það um framkvæmd afvopnun- ar er forsætisráðherrar Bretlands og Ir- lands legg;]a til. Davíð Logi Sigurðsson fjallar um málið. Ó AÐ það væru ýkjur að segja að gleði hafi ríkt á Norður-írlandi um helgina er óhætt að segja að flestir átti sig á því að yfirlýsing Irska lýðveldishersins (IRA) á laugardag markar tíma- mót og veldur því að líklegra er en áður að leysa megi hina lang- vinnu deilu um afvopnun IRA. Nú ræðst framhald mála af því hvort David Trimble, leiðtoga stærsta flokks sambandssinna (UUP), takist að sannfæra flokk sinn um að tilboð IRA frá því á laugardag gangi nægilega langt, og að rétt sé að fallast á endur- reisn heimastjórnarinnar með aðild Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA. Richard English, prófessor í stjórnmálasögu við Queens-há- skóla í Belfast, sagði í samtali við Morgunblaðið, að atburðir helg- arinnar hefðu komið ánægjulega á óvart. „Þessi yfirlýsing IRA er afar mikilvæg því með henni er IRA að gefa til kynna að samtök- in séu reiðubúin til að taka vopn sín úr umferð, og jafnframt leggja þau fram tillögu um hvernig fara megi að því.“ Sagði English að yfirlýsingin væri eins konar staðfesting á því að lýðveldissinnar vildu sannar- lega binda enda á það „stríð“ sem þeir hafa háð undanfarna áratugi á N-írlandi en að þeir vildu finna til þess leið sem gæfi þeim tæki- færi til að halda andlitinu, þ.e. að ekki verði hægt að túlka niður- stöðuna sem ósigur fyrir IRA. English, sem vinnur að bók um IRA, sagði að nú væri spurning hvernig sambandssinnar brygð- ust við tilboði IRA en harðlínu- menn í þeirra röðum hafa lýst þeirri skoðun að tilboð IRA gangi ekki nægilega langt. Segja harðlínumennirnir að í yfirlýs- ingunni sé ekki að finna nein bein loforð um hvernig og hvenær samtökin hyggist eyða vopnum sínum eða láta þau af hendi. Harðlínumenn eru fjölmennir í UUP (að ekki sé talað um aðra ílokka sambandssinna sem bein- línis eru andvígir friðarsam- komulaginu) og þeirra fremstur fer nú Jeffrey nokkur Dona- ldson. Er Donaldson sagður bíða tækifæris til að steypa Trimble af stóli en Trimble hefur satt best að segja ekki verið ýkja traustur í sessi sem leiðtogi UUP síðan hann hlaut heldur hraklega útreið í leiðtogakjöri í mars. Staða Trimbles ku þó vera öllu sterkari núna og á það ber aukin- heldur að líta að erfitt er að sjá hvernig sambandssinnar geta neitað þessu tilboði frá IRA. English segist gera ráð fyrir að Trimble muni takast að telja flokksbræður sina á að sam- þykkja það, þeir viti sem er að betra tilboð sé ekki væntanlegt. Hafni sambandssinnar að ganga aftur til samstjórnar allra ílokka á N-írlandi nú sé valkosturinn að N-írlandi verði í framtíðinni stjórnað í sameiningu frá Dublin og London en sá kostur er ekki eftirsóknarverður í hugum sam- bandssinna - óhætt er að segja að það versta sem þeir geta hugsað sér er að Dublin fái beina hlutdeild í stjórnun N-írlands. Ramaphosa og Ahtisaari sannreyni að vopnin hafí ekki verið hreyfð í yfirlýsingu IRA er talað um að öll vopn verði „tekin úr um- ferð“ og að samtökin muni sanna ásetning sinn í þeim efnum á næstu vikum með því að leyfa eftirlit óháðra útsendara breskra og írskra stjórnvalda. Þetta orðalag er engin tilviljun. Það hefur aldrei verið líklegt að IRA myndi einfaldlega segja ,já takk og amen, þið megið hirða vopnin okkar". Slíkt er óhugsandi í hug- um lýðveldissinna og samtökin myndu án efa klofna reyndi for- ysta þeirra að beita sér fyrir slíku. Bresk og írsk stjórnvöld gerðu sér þetta ljóst fyrir margt löngu og niðurstaðan er að IRA verði í raun gefið eftir sjálfdæmi í mál- inu. Því er það svo að fyrst um sinn verða sambandssinnar lík- lega að sætta sig við þá mála- miðlun að þeir Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, og Cyril Ramaphosa, fyrrverandi aðalritari Afríska þjóðarráðsins (ANC), taki að sér það verkefni að skoða vopnageymslur IRA reglulega. Þessar vopnageymsl- ur eru flestar staðsettar á írlandi en ekki á N-írlandi en megnið af vopnum sínum fengu samtökin annars frá Muammar Gaddafi á árunum 1984-1987 þegar Líbýu- forseta var sem mest uppsigað við vestræn ríki. Á þessum árum komst IRA yf- ir um 100 tonn vopna, þ.á m. um 1.000 AK47 árásarriffla, flug- skeyti, rússneskar hríðskota- byssur, sex tonn af semtex- sprengiefni og ýmislegt fleira. Er næsta víst að engum vopnum verður eytt fyrr en lýðveldissinn- ar eru sannfærðir um að heim- astjórnin sé komin til að vera, sem og aðrar stofnanir sem ætl- að er að starfa samhliða henni. English segir fordæmi fyrir því að lýðveldissinnar standi þannig að verki. Svona hafi þeir t.d. komið vopnum sínum úr um- ferð 1923 eftir mikla vargöld á írlandi og sömuleiðis hafi IRA komið vopnum sínum fyrir í geymslum 1962 eftir stormasöm ár á N-Irlandi. Hann kveðst bera vonir til þess að tíðindi helgar- innar geri mönnum kleift að stýra friðarumleitunum á N-ír- landi í farsæla höfn, heimastjórn- in muni brátt taka til starfa á nýjan leik og ef síðan tekst að leysa vopnadeiluna farsællega sé björninn vonandi unninn. Bætt umferðarmenning - burt með mannfórnir! Ráðstefna í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 10. maí 2000 ■ Bætt umferðarmenning - burt með mannfórnir er ráðstefna, sem boðað er til af dómsmálaráðherra, til að fjalla um alvarlega aukningu umferðarslysa, orsök þeirra og versnandi umferðarmenningu jafnt í þéttbýli sem á vegum úti. Umferðarslys og afleiðingar þeirra eru þjóðinni dýr og eru ekki viðunandi. Manntjón sem hljótast af umferðarslysum eru með öllu óásættanleg. Allt of margir landsmenn i blóma lífsins bíða þess seint eða aldrei bætur að hafa lent í umferðarslysi. Þjóðin þarf að staldra við í þessum efnum, hugsa ráð sitt og snúa öfugþróuninni við með samhentu átaki. Hverium er ráðstefnan ætluð? Öllum þeim aðilum sem á einn eða annan hátt koma að umferðar-, slysa- og löggæslumálum, þ.m.t. forráðamenn sveitarfélaga og sveitarstjórna, opinberir embættismenn, yfirmenn sjúkrastofnana ásamt læknum og hjúkrunarfólki og endurhæfingaraðilum. Auk þess fulltrúar löggæslu, vegagerðar, björgunar- og slysavarnafélaga, sjúkraflutninga og slökkviliðs, tryggingafélaga og bílgreinarinnar. Einnig ökukennarar, vegaverkfræðingar, verktakar, bílasalar, forráðamenn skoðanastöðva og aðrir þeir aðilar sem láta sig umferðar-, öryggis- og slysavarnamál varða. Hvar verður ráðstefnan? Ráðstefnan verður haldin miðvikudaginn 10. maí nk. í Borgarleikhúsinu og hefst klukkan 13:15 og lýkur kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis. Ðag sk ráráðstef nunnar 13:15 Mæting 13:30 Bætt umferðarmenning Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra 13:45 Banaslys í umferðinni 1999 Símon Sigvaldason, formaður rannsóknarnefndar umferðarslysa 14:10 Ábyrgð við akstur Sigurður Guðmundsson, landlæknir 14:30 Slys og trygging Gunnar Felixson, varaformaður S(T - Sambands íslenskra tryggingafélaga 14:50 Kaffihlé 15:10 Umferðariöggæsia - staða og framtíðarsýn Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri 15:30 Developing the national road safety strategy and target for 2010 Kate McMahon, Research Coordinator and Economic Advisor in Road Safety Division, Department of the Environment, Transport & Regions í Bretlandi 16:00 Hringborðsumræður; umræður, spurningar og svör Þátttakendur eru frummælendur ásamt samgöngu- ráðherra, formanni umferðaráðs og fulltrúa Reykjavíkurborgar. 17:00 Ráðstefnulok ■ Ráðstefnustjóri: Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs ■ Stjórnandi hringborðs: Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður Öruggur akstur - okkar ábyrgð OLlUVERZLUN ÍSLANDS HF DÓMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.