Morgunblaðið - 09.05.2000, Side 29

Morgunblaðið - 09.05.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 29 Enn ágrein- ingur um leiðtogafund FULLTRÚUM stjórnvalda í Norður- og Suður-Kóreu mis- tókst enn í gær að ná sam- komulagi um ýmis formsatriði varðandi væntanlegan og sögu- legan leiðtogafund ríkjanna í Pyongyang í N-Kóreu í næsta mánuði. Greindi þá á um hve margir blaðamenn fengju að fylgjast með fundinum og hvernig orða skyldi dagskrána. Fyrirhugaður fundur þeirra Kims Dae-jungs, forseta S-Kóreu, og Kim Jong-ils, leið- toga N-Kóreu, 12.-14. júní yrði sá fyrsti með leiðtogum ríkj- anna frá lokum Kóreustríðsins 1953 en undir júnflok verður þess minnst, að 50 ár eru liðin frá upphafi stríðsins. Eðalvín á Netinu VIÐSKIPTI með eðalvín, sem velta um 117 milljörðum ísl. kr. árlega, voru færð inn á Netið í gær. Gerði það Christopher Burr, sem áður stýrði uppboð- um á eðalvínum hjá Christie’s. Kvaðst hann viss um, að fram- tíð þessara viðskipta væri á Netinu og hjá uppboðsfyrir- tækjunum yrði aðeins um að ræða uppboð á einstökum flöskum eða kössum. Á Netinu verður nú verslað með kassa, sem kosta allt að þremur mil- ljónum ísl. kr. Munu kaupendur skipta beint við framleiðendur en netþjónustan mun taka til sín 3,5% þóknun. Slóðin er uvine.com. Sekkja- pípupopp í Kosovo SKOSK hersveit í Kosovo hef- ur ákveðið að efna þar til mik- illa tónleika með alþjóðlegum poppstjörnum og sekkjapíput- ónlist. Telja Skotarnir, að þetta framtak sé ekki síðra en annað til að stuðla að bjartsýni og friði í héraðinu. Hafa þeir þegar haft samband við menn eins og Robbie Williams og Geri Hall- iwell en tónleikarnir eiga að vera 11. júní nk. en 12. júní fyr- ir ári komu fyrstu NATO-her- mennirnir til Kosovo. Her- fræðilegt nafn tónleikanna verður „Endurreisnaraðgerð- in“ en einkunnarorð þeirra „Fönix yftr Kosovo". Skrifræðið ekkert gamanmál MIKILL skortur er á fólki með tölvukunnáttu í Þýskalandi og þess vegna fékk atvinnulífið ríkisstjórnina til að gefa þús- undum útlendinga atvinnuleyfi í landinu í nokkur ár. Eru margir Þjóðverjar því andvígir en það er ekki það, sem gerir þessu fólki erfitt fyrir, heldur þýska skriffinnskan. Sem dæmi um það má nefna Joshi Matsui, japanskan tölvusérfræðing. Hann getur ekki fengið síma fyrr en hann hefur eignast bankareikning og reikning get- ur hann ekki fengið fyrr en hann hefur fengið fast heimilis- fang. Hann er að vísu búinn að finna íbúð en getur ekki skrifað undir leigusamning fyrr en hann er kominn með dvalar- leyfi og það verður hann að sækja til Japans. Poul Hartling látinn Kaupmannahöfn. AFP. POUL Hartling, fyrrver- andi forsætisráðherra Danmerkur og yfirmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, lést um helgina 85 ára að aldri. Hartling var leiðtogi Venstre og stýrði minni- hlutastjórn hans á árun- um 1973 til 1975. Yfirmaður Flótta- mannastofnunarinnar varð hann 1978 og gegndi því embætti til 1985. Stofnunin var sæmd friðarverðlaunum Nóbels 1981. Hartling var fæddur 1914, lagði stund á guðfræði og var prestur áður en hann sneri sér að stjórnmálum. Hann var menntamálaráð- herra í eftirstríðsárastjórn Knuds Kristensens 1945- 1947 og utanríkisráðherra 1968 til 1971 í samstjórn Venstre og Ihaldsflokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.