Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 31 World Press Photo Vændiskonan Hasina baðar sig í hóruhúsi í Rambagan. Er líkari grískri gyðju úr timalausri fortíð. MYIVÐLIST K r i n í>l iin HEIMSL JÓSMYNDIR - BLAÐALJÓSMYNDARAR Opið á sama tíma og Kringlan. Til 10. maí. Aðgangur ókeypis. ENN er World Press Photo á ferðinni í Kringlunni, og sem að lík- um lætur virðist jafnaðarlega styttra frá síðustu sýningu sem situr enn á nethimnunni, ásamt ótal einstökum ógleymanlegum myndum frá fyrri sýningum. Og þótt húsnæði Kringl- unnar sé ekki vænlegasti kosturinn fyrir ljósmyndasýningar sem þessar, sem njóta sín best á hólfuðum veggj- um í björtum salarkynnum, ná þær til mun fleiri og vekja óskipta athygli í mannmergð stórmarkaðarins, sum- ar meira en aðrar og veldur ýmsu, jafnt yfirgengilegur hryllingur sem sláandi fegurð. Það sem þessar sýn- ingar hafa helst verið að segja okkur allt frá árinu 1955, þá hinni fyrstu var komið á laggirnar í Hollandi, er hve við lifum í hættulegum heimi, hve manndýrið er grimmt og misk- unnarlaust. Að sumu leyti vondum heimi en mörgu leyti fögrum, ber þar hæst dýralífið úti í frjálsri náttúr- unni og hún sjálf, móðir okkar allra. Fjölmiðlar lifa á fréttagildi mynda og enn er það svo í þróunarsögu mannsins að hryllingurinn og við- bjóðurinn hafa mesta aðdráttaraflið hjá hinum breiða fjölda. Omissandi ef dagblöð eiga á annað borð að ganga út en þetta er smám saman að breytast því í menguðum heimi og sundurtættri jörð verður fegurðin fátíðari og miskunnsemin verðmæt- ari. Sitthvað sem fyrir einni öld gat tekið mánuði að berast hingað á út- skerið, jafnvel ár færi atburðarásin fram hinum megin á hnettinum, berst er svo er komið inn í stofu á M-2000 Þriðjudagur 9. maí. Tónlistarskólinn Akranesi. Nemendatónleikar. I tengslum við verkefnið Sjávar- list á Akranesi munu nemendui’ tónlistar- skólans koma fram á tónleikum í Tónlistarskól- anum 9., 17. og 7 22. maí klukkan ^ 20:00. Sjávarlist er eitt af samvinnuverkefnum Menningarborgar og sveitarfélaga. K-bygging Landspítalans. Kl. 16. Sjúkdómar og dánarmein ís- lenskra fornmanna. Á sýningunni er fjallað um lækn- ingaaðferðir til forna, sýnd gömul lækningaáhöld, gerð grein fyrir átrúnaði og hjátrú o.fl. Ráðgert er að farið verði með sýninguna í heilsu- gæslustöðvar víðsvegar um landið. Sýningin stendur til 30. júní. Dagskráin er liður í menningar- borgarárinu. www.reykjavik2000.is - wap.olis.is ------------------ Leikskólabörn sýna í Mjódd ÁRLEG myndlistarsýning á verkum leikskólabarna í Bakkahverfi, sem haldin er í göngugötunni í Mjódd, verður opnuð í dag, þriðjudag, kl. 14. Sýningin er liður í samstarfi leik- skólanna í Bakkahverfi. Myndlistarsýningin er sýnishorn af afrakstri vetrarstarfsins í leik- skólunum. Á opnunarhátíðinni syngja leikskólabörn nokkur lög og töframaður kemur í heimsókn. Sýningin stendur til 29. maí. augabragði ef vill. Og þó er það svo að í öllu fréttakraðakinu vill ýmislegt gleymast, er ekki á oddinum, segir þó mikla harmsögu og þótt neyðar- lega sé að orði komist, ekki í móð í augnablikinu, eða að þeir skara ekki hagsmuni réttra aðila í sama mæli. Einn hryllingurinn er þetta árið öll- um öðrum æsilegra fréttaefni, en horfinn af síðum heimspressunnar hið næsta, úreltur eins og snið á flík þótt þjáningarnar séu enn á fullu á staðnum og nýtigildi flíkurinnar samt. Á söfnum og sýningum er ekki síður áhugavert og lærdómsríkt að virða fyrir sér viðbrögð fólksins, fastagestir fara óhjákvæmilega að veita þeim athygli og rýnirinn í þeim hópi. Hefur tekið eftir því að jafnvel þótt framkvæmdaaðilar hafi mesta hryllinginn í afmörkuðum bási, síður ætluðum börnum og viðkvæmum sálum, menn bregða sér inn fyrir á eigin ábyrgð, liggui’ straumurinn ekki endilega þangað. Mun frekar að fólk hópist fyrir framan vel teknar og eftirminnilegar myndir sem höfða á einhvern hátt til þess og er hér slá- andi atburðarás úr hvunndeginum eða yfirburða fegurð einna efst á blaði. Hvað mig snerti orkuðu þrjár tök- ur einna sterkast á mig frá upphafi, mynd Johns Gays (US Navy/Sport Illustratet) sem hann tók af flugvél sem fer í gegnum hljóðmúrinn yfir Kyrrahafi 7. júlí sl. Arið 1947 urðu örlagarík kaflaskipti í lofti er banda- rísk flugvél rauf hljóðmúrinn, aldrei datt mér í hug að mögulegt væri að festa slíkt á mynd svona líkt og þeg- ar þeir ofurmennin Edmund Hillary og sherpinn Bhutai Tenzing Norgay klifu á hæsta tind jarðar 29. þessa mánaðar 1953, en þetta tvennt breytti á sínum tíma allri heims- myndinni. Róbótaandlitið sem Peter J. Menzel tók í vísindaháskólanum í Texas (Stern, Þýskaland), sem mai’kar líkast til nýjan áfanga í mannkynssögunni og loks af vændis- • VID tvö - um hjónaband og sam- biíð er eftir Benedikt Jóhannsson. í bókinni er fjallað um málefni kynj- anna, væntingar þeirra til hjóna- bandsins, um tálsýnir þegar stofnað er til sambúðar eða hjónabands, um tjáskipti og tengsl og hvernig æskuárin geta mótað sambúð- ina. Bent er á leiðir fyrir fólk til að þróa samband sitt í átt til ham- ingjuríkara lífs, segir í fréttatilkynn- ingu. Benedikt Jóhannsson er sálfræð- ingur með framhaldsmenntun í hjóna- og fjölskyldumeðferð og hef- ur unnið víða að þeim málaflokki. Hann hefur um nokkuiTa ára skeið starfað að ráðgjöf hjá fjölskyldu- þjónustu kirkjunnar. Útgefandi er Skálholtsútgáfan, útgáfufélagþjóðkirkjunnar. Bókin er47 bls. Skerpla annaðist hönnun konunni í baði í hóruhúsi í Rambag- an á Indlandi, tekin af Zana Briski, sem hefur firnasterka útgeislan ásamt því að vera afburða- og lista- vel tekin og unnin í svarthvítu. Menn taki einungis eftir hvemig droparnir merla á holdi konunnar og hve myrkvað andlitið ber mikla sögu í sér og gefur ímyndunarafli skoð- andans strax byr undir báða vængi. Þetta var ég búinn að gera upp við mig eftir snögga yfirferð í tímahraki og löngu áður en ég fór að lesa text- ana, og síst hefði mér dottið í hug að síðasttalda myndin, sem í reisn og tímaleysi minnir á gríska gyðju væri af vændiskonu! Hins vegar er ill- mögulegt að gera raunhæfan saman- burð á gæðum myndanna svona tvístruðum á tveim hæðum og vissu- lega sótti fjöldi annarra stíft á við endurteknar yfirferðir. Ekki síst myndir frá Kosovo í gömlu Júgó- slavíu, sem jafnaðarlega vekja upp þá spurn hvernig slíkur óhugnaður geti gerst í hinum siðmenntaða heimi, að auk þróuðustu álfu jarðar. Nema náttúran hafi skapað þessa tortímingarhvöt hjá mannskepnunni og umbrot en Steindórsprent - Gut- enbergprentaði. Verð: kr. 1.200. Bókin fæst í Kirkjuhúsinu Lauga- vegi 31 ogí öllum stærri bókaversl- unum. • SAGAN af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason er komin út á hljóðbók. Sagan er á tveimur diskum og er í lestri Hilmis Snæs Guðnasonar leikara. Sagan af bláa hnettinum er ævintýri um lífið á bláa hnettinum þar sem búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Sagan af bláa hnettinum hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999 og var fyrst barnabóka til að fá þá viðurkenningu. Einnig fékk verkið barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur og leik- gerð upp úr bókinni hlaut viður- kenningu Þjóðleikhússins og stend- ur til að setja hana á svið á næsta ári, segir í fréttatilkynningu. Útgefandi er Hljóðbókaklúbbur- inn. Lengd: um tvær og hálf klukkustund. Hljóðritun: Hljóð- bókagerð Blindrafélagsins. Verð: 1.980 kr. í ákveðnum tilgangi, hún sér fyrir sínu sem fyrri daginn og vei þeim sem hafa hér ekki sitt á hreinu. Minnir stöðugt á sig og aldrei meir en á tímum hinna svokölluðu fram- fara í mannheimi, því hér vill gleym- ast að það eru tvær hliðar á hverju máli og að hugtakið getur allt eins verið afstætt. Þetta landsvæði í Suðaustur-Evrópu telst ekki lengur til fjarlægra staða, frekar rétt við bæjardyrnar og eins gott að hafa hér varann á, hemaður gegn náttúrunni er ekki síður háskalegur og afdrifa- ríkur. Það sem meginmáli skiptir er hve sýningar sem slíkar megna að vekja upp mörg og sterk viðbröð hjá fólki til umhugsunar um mannlífið á jörð- inni, hver sé eiginlega tilgangurinn með þessu öllu. Mun vera helstur út- gangspunktur þetta árið, og hver spyr sig ekki hvaða tilgangi þjóni að lappa upp á skaðbrenndan mann og virkja til þess alla hátækni nútímans á sama tíma sem virðingin fyrir mannslífum virðist minni en engin ef hagsmunir eiga í hlut... Uppsetning sýningarinnar hefur tekist með ágætum og má greina að hér er reynsla og þjálfun að baki, mikið gagn að íslenzku textunum og mega hér margir draga dám af, því miður alltof alltof margir. Hlutur Morgunblaðsins er stór í fram- kvæmdinni og ekki telst bás ljós- myndara blaðsins lakari öðrum á sýningunni nema að síður sé, frekar til umhugsunar að engin mynd frá þeim skyldi rata á aðalsýninguna. Hér skal þó ekki sjást yfir að í ár höfðu menn úr 42.215 ljósmyndum að velja og voru 17,1% eða 7.213 þeirra rafrænar! Vísar til framtíðarinnar. Bragi Ásgeirsson Stökktu til Benidorm 30. maí frá kr. 29.955 &ti 28 Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Benidorm 30. mai á hreint ótrúlegum kjörum. Þú bókar núna og tryggir þér síðustu sætin í sólina í maí. 4 dögum fyrir brottfor hringjum við svo í þig og látum þig vita hvar þú gistir. Sumarið er komið á fulla ferð í lok maí, 30 stiga hiti alla daga, og þú getur valið um úrval spennandi kynnisferða með fararstjórum Heimsferða. Verð frá kr. 29.955 Verð frá kr. 39.990 M.v. hjón með 2 böm, 7 nætur, 30. maí M.v. 2 í studio/íbúð, vikuferð, 30. maí Verð frá kr. 39.955 Verð frá kr. 49.990 M.v. hjón mcð 2 böm, 2 vikur, 30. maí M.v. 2 í íbúð, 2 vikur, 30. maí HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is * Sinfóníuhljómsveit Islands Síbelíus selst vel GEISLAPLATA með flutningi Sinfóníuhljómsveitar Islands á fjórðu og fimmtu sinfóníu Síbel- íusar er í tuítugasta sæti yfir sölu- hæstu klassísku plöturnar á Bret- landseyjum. Þetta kemur fram í maí-hefti BBC Music Magazine. Listi þessi er óháður og unninn úr sölutölum frá plötuverslunum í landinu. Þetta er í annað sinn á skömm- um tíma sem Sinfónían kemur við sögu þessa lista. Nýjar bækur Benedikt Jóhannsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.