Morgunblaðið - 09.05.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 33
LISTIR
Glansfínn flutningur
TOJVLIST
Akureyrarkirkja
KÓRTÓNLEIKAR
Kór Akureyrarkirkju. Á efnis-
skránni voru söngvar eftir inn-
lenda og erlenda höfunda, en
stjórnandi kórsins er Björn Stein-
ar Sólbergsson. Orgelleikari með
kórnum var Kári Þormar og ein-
söngvari Björg Þórhallsdóttir
sópran. I kórnum eru um 50
manns og vel skipað í allar raddir.
Sunnudaginn 7. maí.
ÞAÐ er alkunna að kirkjur
landsins hafa löngum þjónað því
hlutverki að boða fólki fegurð tón-
listarinnar, bæði í guðsþjónustum
og á almennum tónleikum. Mai’gar
af kirkjum landsins hafa verið
helstu boðberar fagurtónlistar og
skapað henni bestu skilyrði lifandi
enduróms fyrir áheyrendur jafnt
sem flytjendur. Akureyrarkirkja er
tvímælalaust í röð þeirra húsa sem
hvað best taka undir failega mótað-
an tón. Þessi skilyrði ásamt góðum
tónlistarmönnum sem þar hafa leitt
söng og leikið á orgel hafa átt sinn
þátt í að sú kirkja hefur ekki aðeins
á að skipa vönduðu orgeli af bestu
gerð, því hljóðfæri mannsraddanna
þar, kórinn, hefur um áratugaskeið
verið einstaklega vel skipaður. Kór
Akureyrarkirkju hefur undir stjóm
Björns Steinars flutt nokkur stór-
virki kórbókmenntanna svo sem
Magnificat Johanns Sebastians
Bach og fleira mætti telja, auk
frumflutnings íslenskra verka. Að
þessu sinni var valin leið blandaðr-
ar efnisskrár, bæði verk sungin a
capella og einnig með einsöng og
orgelleik. Söngskráin var full metn-
aðar og um margt kröfuhörð. I upp-
hafi hljómaði íslenska gerð sálms-
ins „Jesú mín morgunstjarna“ í
fallegum kórbúningi Jóns Þórar-
inssonar. Karlaraddir voru aðeins
hikandi í byrjun en að öðru leyti
tókst flutningurinn vel. A eftir
komu svo fjórir kirkjusöngvar ís-
lenskra tónskálda, þeirra Páls ís-
ólfssonar, Áma Thorsteinssonar,
Þorkels Sigurbjörnssonar og Jóns
Nordal. Lagið „Friður á jörðu“ eft-
ir Árna var flutt í gullfallegri út-
setningu fyrir kór, einsöng og orgel
eftir Jakob Tryggvason, fyrrver-
andi orgelleikara kirkjunnar og
mikinn brautryðjanda í tónlistar-
málum á Akureyri. Flutningur
söngsins var áhrifamikill, en kórinn
söng fullsterkt í byrjun á móti
Björgu og hefðu áhrifin orðið enn
meiri með hófstillingu styrkleika
hjá kórnum. Einsöngur Bjargar
var hrífandi í flutningi hennar,
kórsins og organista á „Agnus dei“-
þætti úr verkinu Óttusöngvar á
vori eftir Jón Nordal, og túlkun í
samræmi við fegurð verksins. Að
loknum þætti íslenskra tónskálda
röðuðu jöfrar tónlistarsögunnar
sér niður í efnisskrána, þeir
Brahms, Bmckner, Mendelssohn,
César Franck, Saint-Saéns, Dur-
uflé og Gounod. Einstaklega glæsi-
lega fannst mér Helgisöngurinn
eftir Mendelssohn hljóma, en hann
er úr 55. Davíðssálmi og var fluttur
í söngvinri þýðingu Þorsteins heit-
ins Valdimarssonar. Þama fannst
mér Björg ná hvað glæstustum til-
þrifum og sýna það og sanna að
vonir um að hún nái langt er óhætt
að glæða. Eg var ósáttur við stað-
setningu tveggja verka í efnis-
ski’ánni, annars vegar orgelverks-
ins Piéce héroique eftir Franck og
hins vegar hinnar viðkvæmu en
stórkostlegu a capella-kórmótettu
Ubi Caritas eftir Dumflé. Kári
Þormar lék Franck mjög vel, en ég
hefði viljað heyra það verk að
stuttu hléi loknu. Ubi Caritas hefði
að mínum dómi átt að vera fyrr á
efnisskránni í hljóðlátara umhverfi.
Án þess að geta frekar um sér-
staka staði saknaði ég á stundum
meiri mýktar og veikari söngs hjá
kórnum. Slíkar kröfur geri ég til
kórsins því hann sýnir þegar best
tekst til, að ekkert nema það besta
sé nógu gott. í lokin hrifu kórinn,
Björg, Kári og Björn Steinar alla
áheyrendur upp úr sætum sínum
með glansfínum og kröftugum
flutningi á Sanctus úr „Messe sol-
enelle“ eftir Gounod. Glæsilegur
endir það.
Jón Hlöðver Áskelsson
Felix Bergsson í Hinum full-
komna jafningja.
Felix aftur
til London
London. Morgunblaðið.
FELIX Bergssyni hefur verið boðið
að koma aftur með leikrit sitt, Hinn
fullkomni jafningi, til London.
Felix sýndi leikritið á dögunum í
The Drill Hall í London og urðu þær
sýningar fimm talsins. Nú hefur ver-
ið gengið frá því að leikritið verði aft-
ur flutt í The Drill Hall í lok október
og byrjun nóvember og sagði Felix
að sýningar yrðu 10-15. „Þetta gekk
mjög vel um daginn og ég er mjög
spenntur að fara aftur með leikritið
til London í haust,“ sagði Felix.
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Laguna Nevada - meiri búnaður, meira pláss
í Renault Laguna Nevada cr meira pláss fyrir ökumann og farþcga en gengur og gcrist
í fólksbílum. Nevada er með 520 lítfa farangursrými og svo rtkulega búinn að það er hrein
unun að kcyra hann. Hann fæst líka í Evolution útgáfu mcð sjálfskiptingu, „cruise control“,
álfclgum o.fi. o.fl. Komdu og prófaðu meiri búnað og meira pláss í Renault Laguna Nevada.
RENAULT