Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 M---------------------- MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÁLMRÚN GUÐNADÓTTIR frá Lambhúshóli, Vestur Eyjafjöllum, Kríuhólum 2, lést á hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 7. maí. Jarðarför auglýst síðar. Magnea Andrésdóttir, Hannes Helgason, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur Konráðsson, Guðjón R. Andrésson, Margrét Björgólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför ástkeers eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, tengdasonar, tengdaföður og afa, ÓLA J. K. MAGNÚSSONAR, Álakvísl 64, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 3. maí fer fram frá Há- teigskirkju fimmtudaginn 11. maí kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landspítalann í Fossvogi. Guðný Hrönn Þórðardóttir, Steinunn Lovísa Óladóttir, Eiríkur Pétur Eiríksson, Þórður Ólason, Hrefna Sigríður Reynisdóttir, Ævar Ingi Ólason, Guðrún Lovísa Guðmundsdóttir, Friðrik Gunnar Magnússon, Halldóra Kristín Magnúsdóttir, Steinunn Guðnadóttir, Reynir Kristinn Þórðarson og ísak Árni Eiríksson. + Ástkær eiginmaður minn, bróðir okkar og mágur, BALDUR SIGURÐSSON, Fellsmúla 22, Reykjavík, sem lést á Landakotsspítala mánudaginn 1. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. maí kl. 13.30. Þeim, sem minnast hans, er bent á Krabba- meinsfélags íslands. Hulda Þorláksdóttir. Magnús Sigurðsson, Ólöf S. Brekkan, Ásmundur Brekkan, Hólmsteinn Sigurðsson, Guðný Pétursdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, SVAVAR KRISTINSSON, Þrúðvangi 24, Hellu, lést miðvikudaginn 26. apríl. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför. Sérstakar þakkir sendum við séra Sigurði Jónssyni, Gísla Stefánssyni og Kvenfélaginu Unni. Jóna Helgadóttir, Þórhallur Svavarsson, Agnes Ólöf Thorarensen, Sigurveig Þórhallsdóttir, Einar Kristinsson, Anna Helga Kristinsdóttir, Knútur Scheving. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR EINARSDÓTTUR, Stangarholti 6, Reykjavík. Jónas M. Lárusson og fjölskylda. BALDUR BALDURSSON + Baldur Baldurs- son fæddist í Keflavík 9. mars 1961. Hann lést af slysförum hinn 30. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 8. maí. Hvað er hægt að segja þegar maður fær þær fréttir að besti vinur okkar sé farinn? Hvað er hægt að segja við vinkonu sína sem er orðin ekkja í blóma lífsins og hefur misst sinn besta vin, eða dóttur sem er að stíga sín fyrstu skref inn í unglingsárin og hefur misst föður sinn? Eða móður sem hefur misst sinn góða son? Maður verður orðlaus og missir all- an mátt. Yfir okkur hjónin flæða minning- ar um góðar stundir í gegnum árin. Um góðan vin sem var alltaf til staðar fyrir okkur og okkar fjöl- skyldu. Elsku Iða, Bergný og fjöl- skylda, megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Gunnar, Bergljót og synir. Það er ekki auðvelt að setjast niður og skrifa minningargrein um mann sem kippt er í burtu á svo vo- veiflegan hátt, mann sem var í fullu fjöri og hafði svo mörg markmið. Ég kynntist Baldri fyrst er ég hóf störf við Tölvuskóla Suður- nesja, haustið 1997. Maður sá strax að þar var á ferð maður fullur af orku og sífellt að stefna að ein- hverju, alltaf með svo margt á prjónunum. Fyrir utan fjölskyldu og vini, skilur hann eftir sig skörð á svo mörgum stöðum sem erfítt verður að fylla nema með mörgum mönnum. Fyrir aðeins örfáum dögum sát- um við og spjölluðum um köfun, þar sem hann lýsti fyrir mér dásemdum undirdjúpanna. Hann sannfærði mann um að þetta væri í raun ekki svo erfitt og það var ekki laust við að það hvarfiaði að manni að þetta væri kannski nokkuð sem gaman væri að reyna. Þrátt fyrir að Baldur skilji eftir sig mörg skörð, er án efa dýpst skarðið sem hann skilur eftir sig hjá litlu fjölskyldunni sinni, Iðu Brá Vilhjálmsdóttur, sem hann hefði fagnað 20 ára brúðkaupsafmæli með í haust, og Bergnýju, 16 ára dóttur þeirra. Megi drottinn al- máttugur leiða þær með styrkri hendi sinni um vegi sorgarinnar. Þeim votta ég hina dýpstu samúð mína. Lárus Rúnar Ástvaldsson. Þegar Hrannar bróðir kom til mín og sagði mér og Eygló minni að þú værir dá- inn gat ég ekki trúað því. Þetta gat ekki ver- ið satt og ég trúi því varla enn að þú sért farinn frá okkur, það getur ekki verið; þú sem varst ódauðlegur í mínum augum, Baldurinn sem gat allt og gerði allt fyrir alla, hvað sem það var. Baldurinn sem var í sjúkraflutningum, Baldurinn sem var í slökkviliðinu og Baldurinn sem var til í að hjálpa öllum á hvaða tíma sem var og Balduiinn sem gat allt, hvort sem það væri við tölvuna eða smíðarnar. Þú gerðir allt, þú gast allt og þú varst vinur allra. Þegar ég kynntist þér var það í gegnum Hólmar frænda þinn, nú var kominn tími til að gera átak í því að halda snókerstofunni gang- andi. Hólmar kom til mín og spurði hvort ég vildi vera með í hópi sem ætlaði að gera allt til þess að snók- erinn mætti lifa áfram, og sagði mér einnig að Baldur frændi sinn ætlaði að vera með. „Hvaða Bald- ur?“ spurði ég. „Það þekkja allir Baldur í Aðstoð," sagði hann á móti. Fyrstu kynni mín af þér, kæri Baldur, voru góð, ég sá fram á góða tíma fyrir snókerinn, þú varst svo ákveðinn að gera þetta vel og þú varst svo skipulagður, allt bókað og við gerðum þetta vel. Fengum hrós frá spilurum fyrir skipulagningu og mótin okkar voru einstök, það segir bara fyrsta Tölvuskólamótið sem við héldum, öll úrslit eftir hvern ramma skráð í tölvu sem allir gátu fylgst með á skjá sem var á stof- unni og spilarar og áhorfendur gátu fylgst með. Þetta gerðir þú af þinni alkunnu snilld. Vinátta okkar var mér svo mikils virði Baldur. Þegar ég fór að vinna hjá þér og kynntist þér ennþá betur sá ég hvernig maður þú varst. Þú varst svo ábyggilegur og mjög traustur vinur. Það voru góðir tím- ar þegar við fluttum í nýja húsnæð- ið sem þú keyptir á Hafnargötu 34, þá var unnið mikið og vel. Aðstoð í nýju og í eigin húsnæði var nokkuð sem þig hafði dreymt um lengi, nú var það orðið að veruleika. Þú átt dásamlega konu, hana Iðu, og dótturina Bergnýju sem er svo mikill sólargeisli. Ég veit það, elsku Baldur, að þú munt fylgjast með þeim og það munum við gera líka. Sumarbústaðaferðunum sem við fórum saman ásamt Iðu, Eygló og börnunum, öllum ferðunum með vinum og kunningjum hvort sem það var innanlands eða til útlanda mun ég aldrei gleyma. Þá skemmt- um við okkur heldur betur. Spinning var þitt uppáhald und- anfarið og Eygló mín, sem var hjá þér í tímum, saknar þín mikið og hún mun alltaf minnast lagsins ykk- ar sem þú spilaðir svo mikið fyrir hana. Þú hjálpaðir mér svo mikið, Baldur, og það var aldrei neitt mál með það sem ég bað þig um, hvort sem það var fyrir mig persónulega eða þegar ég stofnaði stuðnings- mannaklúbb á mínum vegum 1997. Þú bjóst til lög og reglur fyrir klúbbinn og vannst alla aðra vinnu sem tilheyrði honum. Eitt er víst að við eigum eftir að hittast aftur og þá klárum við ein- vígið sem við vorum byrjaðir á í snókernum og getum rifjað upp alla góðu dagana sem við og fjölskyldur okkar áttum saman. Þú hugsaðir vel um alla sem í kringum þig voru, hvort sem það var móðir þín sem þú annaðist mjög vel alla tíð, systkini þín eða ættingj- ar og vinir. Þú máttir aldrei neitt aumt sjá og varðst alltaf fyrstur að fara af stað ef eitthvað var að ger- ast hjá fólkinu þínu og fólkið þitt, það vorum við öll. Að kynnast þér, elsku Baldur, voru viss forréttindi, að vinna með þér og öllu samstarfsfólki okkar, kringum þig, alla ættingja og vini var nokkuð sem ég mun búa að alla tíð. Að endingu vil ég votta Iðu, Bergnýju og Önnu móður Baldurs mína dýpstu samúð og öllum ætt- ingjum og vinum. Minning um góðan dreng mun lifa. Jón Orvar. Elsku Baddi minn. Þú varst, ert og verður alltaf hetjan mín. Þessi stutta tíð sem við áttum saman var skemmtileg og mun ég aldrei gleyma því. Ég sakna þín. Guð vill greinilega þá skemmti- legu, fyndnu, stöðugu, þreinhjört- uðu og klárustu fyrst. Ég vildi nú samt ekki að hann hefði náð í þig svona fljótt. En ég fæ engu ráðið um það. Bless, Baddi minn, og takk fyrir allt sem þú hefur gefíð mér. Ég mun aldrei gleyma þér. Taktu frá pláss fyrir mig þarna uppi. Sé þig seinna. Ég vill biðja Guð um að senda fjölskyldu Baldurs sína bestu verndarengla. Arne Kristinn Arneson. + Hjartkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÞORBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 6. maí. Anna verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. maí kl. 13.30. Ingibjörg Þorkelsdóttir, Guðni Þorgeirsson, Salome Þorkelsdóttir, Jóel Kr. Jóelsson, Sigurður Þorkelsson, Jóhanna Guðbrandsdóttir, Kristín Þorkelsdóttir, Hörður Daníelsson, barnabörn og langömmubörn. Lokað Lokað verður eftir hádegi í dag vegna útfarar GUNNLAUGS KRISTJÁNSSONAR, kerfisfræðings. GSS Tölvur og net, Bíldshöfða 14. Skilafrest- ur minn- ingar- greina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.