Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 55
UMRÆÐAN
ÆTTLEIÐINGAR
samkynhneigðra hafa
verið í umræðunni, m.a.
vegna lagasetningar
sem nú liggur fyrir Al-
þingi.
A síðustu árum hafa
komið fram upplýsing-
ar varðandi Nýja testa-
mentið (William
Countryman), hefðina
(John Boswell), vís-
indalegar niðurstöður
(Dean Hammer) og of-
sóknir á hendur sam-
kynhneigðum, m.a. í
fjölmiðlum, sem kalla á
endurmat siðferðisvið-
horfa af hálfu kristinna
manna gagnvart samkynhneigðum.
Siðfræðiprófessorarnir Göran
Bexel, við guðfræðideild háskólans í
Lundi og Carl Heins Grenholm í
Uppsölum, hafa nýverið tekið saman
yfirgripsmikla kennslu-
bók í guðfræðilegri sið-
fræði sem verið er að
þýða á íslensku (Theo-
logisk Etik. En intro-
duktion, Stokkhólmur
1997, bls. 309). Þeir
benda á að skipta megi
þeim, sem taka afstöðu
til samkynhneigðra, í
fjóra hópa.
Fyrsta hópinn fylla
þau sem lýsa siðferði-
legri andstöðu bæði
gegn samkynhneigð og
enn frekar gegn samúð
fólks af sama kyni. I
öðrum flokki eru þau
sem dæma sambúð
samkynhneigðra sem siðferðilega
ranga, en láta vera að dæma sam-
kynhneigð sem slíka. Þriðja flokkinn
skipa þau sem meta sambúð samkyn-
hneigðra sem siðferðilega réttláta að
Lagasetning
Réttur samkynhneigðra
til ættleiðinga ætti, að
mati Ólafs Odds Jóns-
sonar, að tengjast þessu
skilyrði um ást, tryggð
og ábyrgð, þar sem
vakað er yfir þörfum
barnanna.
uppfylltum vissum skilyrðum.
Fjórði hópurinn telur þau sem ál-
íta sambúð samkynhneigðrarétt-
mæta án nokkurra skilyrða.
Ég er sammála prófessorunum í
því að viðhorf fyrsta og fjórða hóps-
ins samrýmist ekki sjónarmiðum
kristinnar siðfræði. í fyrsta hópnum
eru einstaklingar dæmdir sekir
(syndarar) vegna kynhneigðar
þeirra. Afstaða fjórða hópsins er
ófullnægjandi, þar sem á vantar að
skilyrðum um ást, tryggð og ábyrgð í
sambúðinni sé fullnægt. í öðrum
hópnum er að finna fulltrúa íhalds-
samra siðferðisviðhorfa, en sá þriðji
á sér málsvara meðal ýmissa hópa
sem taka frjálslyndari afstöðu til má-
lefna samkynhneigðra og viðurkenna
staðfesta samvist að uppfylltum skil-
yrðum um ást, tryggð og ábyrgð. Það
er mitt viðhorf að réttur samkyn-
hneigðra til ættleiðinga tengist þessu
skilyrði um ást, tryggð og ábyrgð,
þar sem vakað er yfir þörfum barn-
anna. Mér sýnist að stjórnvöld á ís-
landi séu reiðubúin að fara þá leið.
Ættleiðingar samkynhneigðra eiga
að mínu mati að snúast um þarfir
barna íyrir heimili. Hollendingar
tóku inn ákvæði um samskipti barna
við bæði kyn, ef ég man rétt. Einhver
úr fjölskyldu hinna samkynhneigðu
sá fyrir því.
í Gallup könnun frá 1978-1979
kemur fram að 84 % fólks sem sækir
kirkju í Bandaríkjunum svaraði
þeirri spurningu neitandi hvort sam-
kynhneigðir ættu að fá leyfi til að
ættleiða börn. Sama könnun birti þá
staðreynd að 87 % alls almennings í
Bandaríkjunum svaraði spurning-
unni játandi (Princeton Religious
Research Center 1979, bls. 103f).
Þessar tölur geta aðeins þýtt að
kirkjunnar fólk í Bandaríkjunum
trúir fremur að samkynhneigð sé af
hinu illa en að það sé slæmt að heim-
ilislaus böm eignist ekki heimili og
njóti ekki réttinda til jafns við önnur
böm. Dr. Tom Driver, sagði um þetta
á sínum tíma: „Ef samkynhneigður
einstaklingur eignast bam kemur
þetta atriði aftur á móti ekki inn4?^"
myndina. Það að upphefja fjölskyldu
blóðbanda í gagnkynhneigðu sam-
bandi hvetur til viðhorfa sem fela í
sér kynþáttahatur, kynjamisrétti,
fælni (hómófóbíu), eignarréttarhug-
myndir og grimmd" (Christ in a
Changing World, Crossroad, New
York, 1981, bls. 139).
Það er himinhrópandi ranglæti að
mismuna samkynhneigðum með því
að ætla þeim meiri lesti í samskiptum
við sína nánustu en gagnkynhneigðu
fólki.
Maður, líttu þér nær! Það hefur^
verið sýnt fram á það með haldgóð-
um rannsóknum að samkynhneigðir
misnota ekki börn. Þeim skuggum er
varpað yfir þá úr samfélagi hinna
gangkynhneigðu.
Ætla má að 2/3 hlutar íslensku
þjóðarinnar séu fylgjandi því að sam-
kynhneigðir ættleiði börn maka síns
og mér býður í grun að sá hópur sem
sé fylgjandi blessun samkynhneigðra
para sé álíka stór, ef ekki stærri.
Höfundur er prestur.
Ættleiðingar
samkynhneig’ðra
Ólafur Oddur
Jónsson
Skynmat sem
skref í markaðs-
setningu matvöru
Þyrí Ása
Valdimarsdóttir Þorkelsdóttir
ÞEGAR ætlunin er
að þróa matvöru er
nauðsynlegt að vita eft-
fr hverju neytandinn
sækist. Hluti af vænt-
ingum neytandans
tengist skynrænum
eiginleikum þ.e. útliti,
lykt, bragði og áferð
vöru. Strax þegar við
veljum og kaupum
vöru notum við skyn-
færin til að meta ein-
kennandi eiginleika
vörunnar. Við notum
sjónina til að meta út-
lit, hendurnar til að
meta áferð og lyktum
jafnvel af vörunni.
Þegar við neytum hennar notum við
bragðlaukana í tungunni til að meta
bragð, tungu og tennur til að meta
áferð og nef til að meta lykt. Ef skyn-
rænu eiginleikar matvörurnar upp-
fylla þær væntingai’ sem við gerum
Vöruþróun
Möguleikar matvæla-
framleiðenda eru miklir,
segja Þyrí Valdimars-
ddttir og Ása Þorkels-
ddttir, við að markaðs-
setja afurð með aðstoð
skynmats.
til hennar eða að þær eru enn betri en
við mátti búast, munum við eflaust
kaupa hana aftur. Vara sem stenst
ekki þær væntingar mun eflaust
þurfa að víkja fyrir annarri sambæri-
legri vöru næst þegar keypt er inn.
Skynmat og vöruþróun
Skynmat er mikið notað við vöru-
þróun matvæla. Ein skynmatsaðferð
sem hentar einkar vel við vöruþróun
heitir myndræn aðferð en hún bygg-
ist á því að gera fullkomna lýsingu á
skynrænum eiginleikum vörunnar.
Myndræn próf eni framkvæmd af
þjálfuðum hópi manna sem hefur
reynslu af að meta með mikilli næmni
skynræna eiginleika matvöru. Hóp-
urinn ásamt hópstjóra finna þau hug-
tök og orð sem lýsa eiginleikum af-
urða og æfa sig í að meta styrkleika
þeirra. Hver þátttakandi metur vör-
una algjörlega óháð öðrum þátttak-
endum og síðan er meðaltal hópsins
notað. Á þennan hátt er hægt að
magngreina hvern eiginleika fyrir sig
og vinna úr niðurstöðum á tölfræði-
legan hátt. Stærstu kostir þessarar
aðferðar eru mikil endurtekningar-
hæfni og það að fram kemur mat á
öllum eiginleikum sem lýsa vörunni.
Spumingum er svarað eins og:
Er varan sambærileg annarri vöru
á markaði?
Hefur breyting á hráefni áhrif á
vöruna?
Hefur breyting á vinnsluferli áhrif
á vöruna?
Hvaða áhrif hefur geymsla á vör-
una?
Er matvaran nógu bragðmikil?
Sætuefni er bætt í vöru. Hefur það
einungis áhrif á það hversu sæt fólki
finnst varan? Hefur það einnig áhrif
á súra bragðið? Kemur fram eftir-
bragð?
Þetta eru aðeins dæmi um nokkrar
spumingar sem framleiðandi getur
spurt sjálfan sig áður en hann setur
nýja eða endurbætta matvöm á
markað.
Dæmi um vöruþróun
með skynmati
Dæmi um myndræn próf á mat-
vöra má sjá á mynd 1 sem sýnir á
skemmtilegan hátt muninn á Ijósum
og dökkum pilsner. Fram kemur í
myndinni að dökkur pilsner hefur
fleiri sterka bragðþætti heldur en
ljós pilsner enda era þessar vörar
frekar ólíkar þó að þær eigi það sam-
eiginlegt að heita pilsner. Ef við tök-
um dæmi um matvörar sem era mjög
líkar getur niðurstaðan sýnt fram á
hvað það er sem gerir þær ólíkar. í
mynd 2 sjáum við niðurstöður sam-
anburðar á kjöti A og B með mynd-
rænu prófi og fram kemur að kjöt-
gerðimar era mjög líkar nema hvað
varðar mýkt og grófleika trefja.
Möguleikar matvælaframleiðanda
eru miklir við að markaðssetja afurð
Skynrænir eiginleikar tveggja Skynrænir eiginleikar kjöts
ólíkra
með aðstoð skynmats. Hér hefur ein-
ungis verið minnst á eina aðferð,
myndræna aðferð en aðrar aðferðir
era til sem henta við markaðssetn-
ingu vöra. Þar má nefna könnun á
viðhorfum neytenda til ákveðinnar
vöra, neytendapróf og samanburðar-
próf sem mæla með mikilli næmi
mun milli matvæla (þríhymingspróf
og dúó tríó próf). Nánari umfjöllun
um þessar aðferðir era á heimasíðu
Rf www.rfisk.is (Rf-lausnir/skynmat)
og hjá sérfræðingum Rf. Markaðs-
setning vöra er langt og dýrt ferli. Til
að ná sem bestum árangri er þekking
á vöru, markaði og neytendum nauð-
synleg. Skynmat er ein aðferð til að
afla þeirra þekkingar.
Höfundar eru sérfræðingar og
starfsmenn hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins.
Notaðar vinnuvélar
á kostakjörum
Mikil verðlækkun
Mikið úrval
Ingvar
W
Helgason hf.
Véladeild - Sævarhöfba 2 - Sítni 525 8000 - Beinn sími 525 8070
Fax: 587 9577- www.ih.is - E-mail: veladeild@ih.is