Morgunblaðið - 16.06.2000, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000
FUJITSU
Fujitsu Siemens sameinar kosti glæsilegrar hönnunar,
áreiðanleika og vinnsluhraða. Veldu Fujitsu Siemens
ef gæði, hraði og öryggi gagna skiptir máli.
Það er ekki að ástæðulausu að Fujitsu Siemens eru
einhveijar mest seldu tölvur í heiminum í dag og þær
eru á ótrúlega hagstæðu verði.
Fujitsu Siemens - óbeislað afl sem stendur uppúr!
Tæknival
Skeifunni 17 • Reykjavík • Sími 550 4000
Furuvöllum 5 • Akureyri • Sími 461 5000
FRÉTTIR
Arsfundur
*
Háskóla Islands
ÁRSFUNDUR Háskóla íslands
verður haldinn í hátíðasal á 2. hæð
í aðalbyggingu í dag, föstudaginn
16. júní kl. 10.30-12.
Dagskrá ársfundarins verður
sem hér segir: Páll Skúlason, há-
skólarektor, setur fundinn, fer yfir
starfsemi síðasta árs og fjallar um
meginatriði í starfi skólans. Ingj-
aldur Hannibalsson, formaður
fjármálanefndar Háskóla Islands,
gerir grein fyrir reikningum ársins
1999 og fjárhag Háskólans. Rektor
svarar fyrirspurnum.
Að loknum ársfundi verður boð-
ið upp á kaffiveitingar. Fundurinn
er öllum opinn.
Frá afhendingu tölvubúnaðar til Krabbameinsfélagsins. Bjarni Krist-
jánsson frá Softu, Pétur Bauer frá Opnum kerfum, Guðrún Agnarsdótt-
ir, forstjóri Krabbameinsfélags íslands, Hólmfríður Einarsdóttir frá
Kaupþingi, Sigurður Friðriksson frá Tölvuskóla Suðurnesja og Sigurð-
ur Björnsson, formaður Krabbameinsfélags Islands.
Krabbameinsfélaginii
gefínn tölvubúnaður
SEX fyrirtæki hafa gefið Krabba-
meinsfélaginu fullkominn Hitachi-
skjávarpa, HP-fartölvu, litaprent-
ara og stafræna myndavél ásamt
námskeiði í notkun búnaðarins.
Gjöfin var afhent á aðalfundi fé-
lagsins 6. maí og er metin á um
800 þúsund krónur. Gefendur eru
Kaupþing, Opin kerfi, Softa, Spari-
sjóðurinn í Keflavík og Tölvuskóli
Suðurnesja.
Gjöf þessi kemur sér mjög vel í
fjölþættu starfi Krabbameinsfé-
lagsins. Mikið er um fræðslufundi,
ekki síst fyrir stuðningshópa sjúkl-
inga og vísindamenn, og brýn þörf
á að geta sett myndefni fram á
skýran hátt. Krabbameinsfélagið
kann gefendum bestu þakkir fyrir
mjög gagnlega og rausnarlega
gjöf, segir í frétt frá félaginu.
Göngudagur
Ferðafélags
Islands
GLYMUR, hæsti foss landsins, er
áfangastaður á göngudegi Ferðafé-
lags Islands 2000, sem að þessu sinni
er haldinn sunnudaginn 18. júní.
„Glymur er í Botnsá í Hvalfirði og
gljúfrið utan og neðan við fossinn er
hrikafagurt. Peim, sem vilja leggja
meira á sig er boðið upp á göngu yfir
Leggjabrjót, gamla leið frá Þingvöll-
um til Hvalfjarðar. Þessi forna leið
var fyrrum fjölfarin og þar má víða
sjá vörðubrot. Enn á hún miklum vin-
sældum að fagna, nú hjá þeim, sem
vilja rækta líkama og sál og njóta
náttúruskoðunar og fersks útilofts,
segir í fréttatilkynningu.
Brottfor í Leggjabrjótsgöngu er kl.
10:30 á sunnudagsmorgun frá BSÍ og
Mörkinni 6 en þeir sem ætla að líta á
Glym leggja af stað kl. 13 frá BSÍ með
viðkomu í Mörkinni 6. Hópamir tveir
hittast í Botnsdal að göngu lokinni og
þar verða léttar veitingar í boði F.í.
Þátttökugjald í þessum göngum er
1.200 krónur og allir eru velkomnir.
Skonnortur
til sýnis
SKONNORTUR franska sjóhers-
ins „Bella Poule“ og „Etoile" koma
til Reykjavíkur laugardaginn 17.
júní kl. 9. Þær verða í Reykjavík-
urhöfn, Faxagarði, til 24. júní.
Þessar skonnortur eru smíðaðar
árið 1932 og eru nákvæmar eftir-
líkingar frönsku dugganna sem
voru á veiðum við íslandsstrendur
fram til ársins 1935. Skonnorturn-
ar verða opnar almenningi til sýnis
frá sunnudegi til föstudags.
Kaffisala
Hjálpræðis-
hersins
HJÁLPRÆÐISHERINN verður
með sína árlegu kaffisölu á þjóðhá-
tíðardaginn, 17. júní, í Herkasta-
lanum, Kirkjustræti 2. Kaffisalan
verður frá kl. 12-18. Stutt söng- og
hugvekjustund verður kl. 17. Allir
eru velkomnir.
^Cí ðkaupsveislur — Crtisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og fl. og fl. og fl.
-X
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta á veárið þegar
á eftirminnilegan viðburð -
jið ykkur og leigið stórt tjald
Inn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700 m2
Einnig: Borð, stólar, lialdgólf
og tjalahitarar.
sfml 5621390 • fax 552 6377 • bis@scou».ls