Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 15
>2000 Litningalækningar (genalækningar) 1997 Orlístat vekur nýjar vonir varðandi meðferð offitusjúkdóma. 1998 Ný sérhæfð gigtarlyf, svokölluð koxíb- lyf koma fram. 1988 Sýruhemjandi lyfið ómeprazól veldur þáttaskilum í meðferð magasýrutengdra sjúkdóma. Útrýmir nær magaskurðaðgerðum. 1990 Súmatríptan, lyf sem stórbætir mígrenimeðferð, kemur til sögunnar. 1985 Fyrsta blóðfitulækkandi statín-lyfið veldur mikilli framþróun í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma, eitt stærsta heilbrigðisvandamál nútímans. 1987 Fyrsta lyfið við HIV sjúkdómnum, zídóvúdín, kemur á markað. 1980 Ónæmisbælandi lyfið ciklosporín gjörbreytir meðferð eftir líffæraflutninga með því að koma í veg fyrir höfnun á nýja líffærinu. 1985 Fram kemur lyfið flúoxetín sem veldur straumhvörfum í meðferð á geðdeyfð. 1972 Fenýtóín gjörbreytir meðhöndlun á flogaveiki. 1978 Cimetidín, lyf sem dregur úr myndun saltsýru í maga, er tekið í notkun. Lyfið byltir meðferð sýrutengdra sjúkdóma. 1965 Levódópa umbyltir meðferð á Parkinsonsveikinni. Hefur einnig ákveðin áhrif á stjarfa eins og fjallað er um í frægri kvikmynd. 1965 Hjartalyfið própranólól og fleiri svokallaðir betablokkarar koma fram og stórbæta meðferð á háþrýstingi. 1960 Azathíópín, ný tegund af krabbameins- og ónæmisbælandi lyfjum. 1957 Geðhvarfalyfið litíum umbyltir lyfjameðferð við geðhvarfasýki. 1955 Pillan, getnaðarvörnin öfluga, kemurfram. 1941 Penisillín fyrst gefið sjúklingi, en 1938 hafði A. Fleming uppgötvað virkni myglusveppsins Penicilium notatum. Lyfið olli þáttaskilum í meðferð margra sjúkdóma, s.s. lungnabólgu. 1922 Hinn 11. janúar fær 14 ára sykursýkissjúklingur, Leonard Thomson, insúlín sem Fredrik Banting gefur honum. Banting tekst fyrstum manna að hreinsa insúlín það vel að unnt sé að gefa það mönnum. 1884 Koller uppgötvar að kókaín verkar sem staðdeyfingarlyf og læknar gátu nú í fyrsta sinn staðdeyft þau svæði líkamans sem þörfnuðust meðhöndlunar. 1871 Fyrsta hjartalyfið, digoxín, einangrað frá efni úr fingurbjargarblómi. Lyfið dregur úr hjartsláttaróreglu og eykur samdráttaitiæfni hjartans. 1847 Þrjú undursamleg svæfingar- og deyfilyf komin í notkun: eter, klóróform og hláturgas. Áður var skurðlæknaformálinn þessi: „Þú hellir manninn fullan og lætur halda honum föstum, bítur á jaxlinn og drífur aðgerðina af.“ 1805 Fredric Sertumer einangrar morfín úr ópíum. Þetta var fyrsta hreina lyfið sem var einangrað. 1960 Berkjuvíkkandi lyfið ísóprenalín kemurfram og stórbætir astmameðferð. 1957 Tíazíð þvagræsilyf bæta meðferð við háþrýstingi. 1955 Sannanir fyrir verkun reserpíns á miðtaugakerfið marka tímamót í meðferð geðsjúkdóma og þróun lyfja innan þessa lyfjaflokks. 1943 Waksman og samstarfsmönnum tekst að þróa lyfið streptómysín við hinum skæða sjúkdómi berklum, sem fram að þessu hafði verið talinn nærri ólæknanlegur. 1932 í leit sinni að vopni í baráttunni við keðjusýkla (streptókokka) kemur Gerrhard Domagk fram með súlfalyfin og tekst þar með að sigra þá sýkla sem nefndir höfðu verið „foringjar í liði dauðans" 1903 Fischer og von Mering birta skýrslu um uppgötvun sína á barbitol-lyfjum. Nú var hægt að veita þeim sem þjást af svefnleysi, t.d. af völdum sársauka eða óróa, líkn svefnsins. 1877 Dr. William Murrel notar nítróglýserín við hjartaöng í fyrsta sinn. 1853 Franski efnafræðingurinn Gerhardt sigrar sótthitann er hann finnur upp acetylsalicylic sýru (aspirín), kvalastillandi sótthitalyf sem einnig verkaði á gigtarsjúkdóma. 1820 Pelletier kemst að því að klnín, efni unnið úr berki quinaquina- trésins, læknar malaríu. Nokkrir merkir áfangar í sögu lyflækninga Mannvitgegn sjúkdómum 1800-2000 Tilkoma lækningarlyfja hefur gerbreytt mannlífi á 200 árum. Lyf veita líkn í þjáningu, bata þar sem vonleysi grúfði yfir og auka lífsgæði og möguleika nútímamannsins. Baráttan við sjúkdóma heldur þó áfram og víst er að ný stórvirki verða unnin á 21. öld. Lyf skipta sköpum! Austurbakki hf. Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910 Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja > Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf. • Lyfjaverslun íslands hf. NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf. Medlco ehf. EFLIR / HNOTSKÓOUR LF 300-00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.