Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGL UNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Snjókoma og hálka á heiðum ANJÓKOMA, skafrenningur og hálka var víða á fjallvegum landsins í gær, einkum á austanverðu Norður- landi og Austfjörðum. Samkvæmt samtölum við lögreglumenn víðs vegar um land í gærkvöld höfðu eng- in óhöpp verið tilkynnt og virðist sem ökumenn hafi verið undir þetta búnir og ekið vai’lega á sumardekkjunum. Lögreglan á Húsavík sagði þó að fáeinir ökumenn hefðu runnið út í kanta á vegum í Þingeyjarsýslum en bílar ekki oltið út af. Lögreglan á Egilsstöðum komst svo að orði um ástand fjallveEa í arenndinni í gær- kvöldi að þar ríkti „snjókoma og brjálað veður“. _ Veðurstofan spáir slydduéljum við austurströndina í dag en að öðru leyti léttskýjuðu sunnan og vestan til. Þó er búist við frosti víða um land en það dregur verulega úr vindi. --------------- Suðurlandsvegur Rúta á 125 km hraða ^j^ÖGREGLAN á Hvolsvelli stöðvaði rútubifreið í áætlunarakstri á 125 kíló- metra hraða á Suðurlandsvegi milli Hellu og Hvolsvallar um miðjan dag á sunnudag. Nokkrir farþegar voni um borð. Skýrsla var tekin af bílstjóran- um og ökuskífa gerð upptæk áður en áætlunarakstri var fram haldið. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er þetta í annað sinn sem bílstjóri áætlunarbifreiðar er stöðvaður á þessum slóðum vegna hraðakstur en í fyrra tilvikinu mældist ökuhraðinn 111 kílómetrar. Taka má undir orð lögreglunnar um að hraðakstur sem þessi sé vítaverður. Ættarmót í kartöflugarðinum Morgunblaðið/Kristj án ÞAÐ rikti sannkölluð ættarmótsstemmning í kartöflugarðinum í landi Ystu-Víkur á Svalbarðsströnd sl. laugardag. Þar var samankominn hópur fólks á ýmsum aldri, systkinin frá Nesi í Fnjóskadal, Bryndís, Hjördís, Vignir, Haukur, Vilhjálmur, Karl og Gunnar Valtýsbörn, ásamt mökum og börnum í kartöfluupptekt með gamla góða laginu. Hafði fólk á orði að þessi árlegi viðburður væri hálfgert ættarmót, enda voru um 30 manns í garðinum er ljósmyndari Morgunblaðsins var þarna á ferð. Árstíðabundin virkni við Kötlu SKJALFTAVIRKNI á Kötlu- svæðinu hefur að sögn Páls Ein- arssonar, prófessors í jarðeðlis- fræði við Háskóla Islands, verið í meira lagi undanfarnar vikur. Páll segir þó ekkert óvenjulegt við þessa skjálftavirkni, ávallt beri nokkuð á henni á sumrin og á haustin og líklegast sé að þar valdi vatnsþrýstingur undir Mýrdals- jökli mestu. Undanfamar vikur hefur jörð 4 skolfið nokkrum sinnum á dag á Kötlusvæðinu, einkum undir suð- vesturhorni Mýrdalsjökuls, undir því sem kallað er Goðabunga. Hafa skjálftamir gjaman verið upp á 2,5 á Richter, en þeir stærstu hafa þó farið upp undir 3 á Richter, að sögn Páls. Hér sé um árstíðabundna skjálftavirkni að ræða sem standi gjaman frá júlí og til áramóta. Skýringin á þessari virkni er sennilega tengd vökvaþrýstingi undir jöklinum, að sögn Páls. Þeg- ar bráðnun jökulsins verði sem mest fari bræðsluvatnið niður í gegnum jökulinn og niður í jarð- skorpuna en þar vaxi þrýstingur í berginu. Þetta ferli valdi að vísu ekki skjálftum, eftir sem áður sé það eldstöðin sjálf sem geri það, en það hleypi þó að öllum líkindum skjálftunum af stað. Vörugjaldi af bensíni breytt í krónutölu Ríkið verður af um 700 milljónum MEÐ þeirri ákvörðun Alþingis að breyta vöragjaldi af bensíni í fasta krónutölu á hvern lítra í stað prósentutölu af tollverði í lok októ- ber sl. hefur ríkissjóður orðið af tekjum upp á um 700 milljónir króna á níu mánaða tímabili eða frá og með nóvember sl. til og með júlímánaðar á þessu ári. Björn Rúnar Guðmunds- son, hagfræðingur hjá efnahags- skrifstofu fjármálaráðuneytisins, segir í samtali við Morgunblaðið að gera megi ráð fyrir því að ríkissjóður verði af tekjum upp á samtals um 900 milljónir króna á þessu ári vegna þeirrar ákvörðunar að hverfa frá prósentutölu yfir í fasta krónutölu. Breytingarnar sem hér um ræðir tóku gildi í byrjun nóvember sl. en þá varð vörugjald af bensíni 10,5 krónur af hverjum lítra af bensíni í stað þess að vera 97% af tollverði bensíns. Vora breytingarnar sam- þykktar samhljóða á Alþingi en í máli Geirs H. Haarde fjármálaráð- herra, sem mælti fyrir breytingun- um, kom m.a. fram að markmiðið væri að draga úr áhrifum mikilla sveiflna á bensínverði á neytendur. Hér á landi er bensín annars vegar skattlagt með almennu vörugjaldi því sem hér hefur verið nefnt en hins vegar með sérstöku vöragjaldi, bensíngjaldi, sem rennur til Vega- gerðarinnar. Síðarnefnda gjaldið hefur haldist óbreytt síðustu ár en það er nú 28,60 krónur af hverjum lítra af blýlausu bensíni og 30,43 krónur af hverjum lítra af öðra bens- íni. Að sögn Björns Rúnars vora tekjur n'kisins af almennu vörugjaldi á bensíni á síðasta ári tæpir tveir milljarðar, eða um 1,93 milljarðar, og tekjur ríkisins af sérstöku vöragjaldi eða bensíngjaldi um 5,4 milljarðar. Samanlagðar voru þessar telgur því um 7,3 milljarðar á síðasta ári. Tekjur ríkissjóðs af almennu vörugjaldi fyrstu sjö mánuði þessa árs vora tæpir tveir milljarðar króna, eða um 1,97 milljarðar króna, og tekjur ríkissjóðs af sérstöku vöru- gjaldi fyrstu sjö mánuði ársins voru um það bil 3,1 milljarður króna. Samanlagt eru tekjur ríkissjóðs vegna þessara gjalda um það bil 5,1 milljarðar króna fyrstu sjö mánuði ársins. Lítill munur á almennu vöru- gjaldi allt árið í fyrra og fyrstu sjö mánuði þessa árs skýrist m.a. af lágu heimsmarkaðsverði á bensíni fyrstu mánuði ársins í fyrra. Vill skoða græna skatta Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra segir aðspurð að þegar skattar hafi upphaflega verið lagðir á bensín hér á landi hafi ekki verið litið á þá sem græna skatta, þ.e. þeir hafi hvorki verið lagðir á bensín í þeim tilgangi draga úr notkun á bensíni né í þeim tilgangi að ná í tekjur sem rynnu til umhverfismála. Bendir hún í því sambandi á að hluti skatttekna af bensíni renni nú til samgöngu- mála. Siv kveður þó æskilegt að íslend- ingar fari á næstunni í gegnum þá umræðu hvort leggja eigi aukna skatta á vörar sem séu íþyngjandi fyrir umhverfið. Tekur hún þó fram að hún sé fylgjandi því að komi til grænna skatta verði álögur á aðrar vörar að lækka á móti þannig að heildarálögur verði hinar sömu og áður. „Ég hef viljað skoða þetta mál og tel að við munum skoða það betur á næstu árum,“ segir umhverfisráð- herra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.