Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps um stjórn
Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn
Fór út fyrir hlutverk sitt og
verði því leyst frá störfum
SVEITARST JÓRN Skútustaða-
hrepps samþykkti á fundi fyrir helgi
samhljóða tillögu Leifs Hallgríms-
sonar oddvita þar sem fram kemur
að sveitarstjómin hafi verulegar
áhyggjur af stöðu Náttúrurannsókn-
arstöðvarinnar við Mývatn 1 kjölfar
kæru meirihluta stjómar stöðvarinn-
ar á úrskurði skipulagsstjóra um kís-
ilgúmám úr Mývatni.
Fram kemur í tillögunni að hlut-
verk stjómar stöðvarinnar sé sam-
kvæmt reglugerð einkum rannsóknir
á svæði því sem friðlýst er sam-
kvæmt lögum frá árinu 1974. Einnig
sér stjómin um framkvæmdir og
rekstur og þá á hún að vera stjóm-
völdum til ráðuneytis um allt það er
lýtur að framkvæmd laga um vemd-
un Laxár og Mývatns.
„Það er mat sveitarstjómar Skútu-
staðahrepps að með kæm meirihluta
stjómar Náttúrurannsóknarstöðvar-
innar á íyrrgreindum úrskurði hafi
stjómin farið út fyrir hlutverk það
sem henni er sett með lögum og
reglugerð og geti ekki lengur sinnt
því hutverki sem henni er ætlað, þ.e.
að vera stjórnvöldum til ráðuneytis,“
segir í tillögunni. Sveitarstjórn
Skútustaðahrepps telur því brýna
nauðsyn til að núverandi stjóm Nátt-
úrurannsóknarstöðvarinnar við Mý-
vatn verði leyst frá störfum.
Þá telur sveitarstjóm jafnframt
tímabært að nema lög nr. 36/1974,
lög um vemdun Mývatns og Laxár,
úr gildi þar sem heildstæð náttúru-
vemdarlög hafi verið sett. „í kjölfar-
ið telur sveitarstjóm nauðsyn bera til
að endurskipuleggja starfsemi Nátt-
úrurannsóknarstöðvarinnar við
Mývatn þannig að hún megi á trú-
verðugan hátt sinna því hlutverki
sem henni er ætlað eins og segir í til-
lögunni sem samþykkt var á fundi
sveitarstjómar.
Stjórnin tók pólitíska afstöðu
„Við teljum að meirihluti stjómar
Náttúruvemdarstöðvarinnar við
Mývatn hafi með kæru sinni tekið
pólitíska afstöðu og það er alls ekki
hennar hlutverk. Stjóm stöðvarinnar
á að sjá um starfsemi hennar og ann-
ast rannsóknir auk þess að vera
stjómvöldum til ráðuneytis, en með
þessari kæm teljum við að farið hafi
verið út íyrir eðlileg mörk, verið of
langt gengið,“ sagði Sigbjöm Gunn-
arsson, sveitarstjóri Skútustaða-
hrepps.
Sigbjöm sagði löngu tímabært að
endurskoða lögin um verndun Mý-
vatns og Laxár. Nú væm í gildi heild-
stæð náttúruvemdarlög, en þau
hefðu síðast verið endurskoðuð á síð-
asta ári og því fullkomlega óþarft að
hafa einnig í gildi sérlög um Mývatn
og Laxársvæðið. Þau væm úr takt
við tímann og því bæri að afnema
þau. Kvaðst sveitarstjóri telja að fyr-
ir því væri meiri vilji nú en áður.
Nefndi hann að í 3. grein laganna
kæmi fram að hvers konar mann-
virkjagerð og jarðrask væri óheimilt
nema með leyfi Náttúmverndar rík-
isins, en spurning væri hvort slíkt
stæðist stjómskipunarlög.
„Það pirrar marga óskaplega að
hér megi ekkert gera nema með leyfi
Náttúmvemdar ríkisins. Það er eng-
um Ijósara en okkur sem hér búum, í
náttúm Mývatnssveitar og með
henni, hvílíkur gullmoli hún er og ég
er sannfærður um að ef menn teldu
hluti stefna á verri veg yrði gripið inn
í,“ sagði Sigbjöm.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
$ ELTAK„
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
S • v Morgunblaðið/Kristján
morgunsanð
ungu nemendur í Glerárskóla höfðu gert. Okumenn
þurftu hins vegar margir hverjir að grípa til snjó-
sköfunnar. Þá var víða töluverð hálka á heiðum og
fjallvegum á Norðurlandi.
Fjölmenni á opnu
húsi hjá Leikfélagi
Akureyrar
Verkefni
vetrarins
kynnt
FJÖLDI fólks lagði leið sína í Sam-
komuhúsið sl. laugardag þar sem
Leikfélag Akureyrar stóð fyrir
opnu húsi. Starfsfólk LA kynnti
verkefni vetrarins, boðið var upp á
skoðunarferðir um Samkomuhúsið,
börnin fengu andlitsmálun og
Skralli trúður heiisaði upp á gesti.
Þá voru sýnd atriði úr Stjömum á
morgunhimni og Sæma sirkus-
slöngu og lesið úr Gleðigjöfunum.
Yngstu gestimir höfðu hins vegar
mestan áhuga á andiitsmáluninni,
eins og sést vei á myndinni.
Kuldalegt í
ÞAÐ var heldur hráslagalegt um að litast er Akur-
eyringar risu úr rekkju í gærmorgun, snjómugga
og frekar kalt í veðri. Því var betra að klæða sig
vel áður en haldið var út í daginn, eins og þessir
Vetrarstarf
Skákfélags
Akureyrar hafíð
Enn
sigrar
Ólafur
VETRARSTARF Skákfélags
Akureyrar er hafið í nýjum
húsakynnum félagsins í
íþróttahöllinni á Akureyri.
Fyrsta mótið í skákstofunni í
Höllinni fór fram sl. fimmtu-
dag. Þátttaka var góð en
tefldar voru sjö umferðir eftir
monrad-kerfi.
Ólafur Kristjánsson, sem
verið hefur sigursæll á mót-
um félagsins að undanförnu,
fór með sigur af hólmi, hlaut
5,5 vinninga af 7 mögulegum.
Ólafur sigraði Stefán Bergs-
son í hreinni úrslitaskák í síð-
ustu umferð. Smári, sonur Ól-
afs, hafnaði í öðru sæti með 5
vinninga en Stefán hafnaði í
þriðja sæti með 4,5 vinninga.
Gylfi Þórhallsson fékk jafn-
marga vinninga og Stefán en
varð lægri á stigum en síðan
komu sex keppendur með
fjóra vinninga.
Veitingastaðir
á Akureyri
Frjáls
afgreiðslu-
tími
afnuminn
FRJÁLS afgreiðslutími veit-
ingastaða á Akureyri var af-
numinn um liðna helgi, eða
föstudaginn 15. september síð-
astliðinn, en afgreiðslutíminn
hefur verið frjáls síðustu miss-
eri.
Bæjarstjóm ákvað í júlímán-
uði í sumar að afgrreiðslutím-
inn yrði frá kl. 7 til 4 aðfaranótt
laugardags og sunnudags eða
almenns frídags, en frá kl. 7 til
1 alla aðra daga.
Veitingatími áfengis er sam-
kvæmt nýjum afgreiðslutíma
frá kl. 11 alla daga, en fylgir að
öðru leyti heimiluðum af-
greiðslutíma veitingastaða á
hverjum tíma, þó með þeim
takmörkunum sem felast í
ákvæðum laga um helgidaga-
frið.