Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDÁGUR 19. SEPTEMBER 2000 69
I DAG
BRIDS
llmsjiíii (íiiilniiiiiilui' l’áll
Arnarson
SVEIT Subaru varð bikar-
meistari á sunnudaginn eftir
sigur á sveit Hlyns Garðar-
ssonar í 64 spila úrslitaleik.
Aður hafði Subarusveitin
lagt að velli sveit Sparisjóðs
Keflavíkur í undanúrslitum,
en Hlynur og félagar unnu
sveit Hjördísar Sigurjóns-
dóttur. í liði bikarmeista-
ranna eru Jón Baldursson,
Sigurður Sverrisson, Sverr-
ir Armannsson, Aðalsteinn
Jörgensen og Matthías Þor-
valdsson. Með Hlyni spiluðu
Kjartan Ásmundsson,
Kjartan Ingvarsson, Kjart-
an Aðalbjörnsson, Vignir
Hauksson og Helgi Boga-
son. Hér er spil úr síðustu
lotunni, þar sem Sigurður
Sverrisson og Jón Baldurs-
son komust í fallega lauf-
slemmu þrátt fyrir sagnir
beggja mótherja:
Austur gefur; AV á hættu.
Noj-ður
♦ AD72
» -
♦ Á54
♦ AG5432
Vestur Austur
* 109843 * G6
* D85 V ÁKG103
* DG87 ♦ K632
+ 8 * D7
Suður
♦ K5
»97642
♦ 109
+ K1096
Jón og Sigurður voru í
NS, en Kjartan Ingvarsson
og Kjartan Aðaibjörnsson í
AV:
Norður Austur Suður
Sigurður Kjartan I. Jón
- lhjarta Pass
Dobl Pass 31auf
4 hjörtu Pass 4spaðar
5 tíglar Pass 61auf
Pass Pass
Mörg pör nota sögnina tvö
grönd sem afmeldingu við
opnunardobli norðurs í þess-
ari stöðu, sem er svokölluð
„Lebensohl-sagnvenja", en
Jón og Sigurður kjósa frekar
að melda eðlilega. Jón lofar
þvi engu í punktum talið
þegar hann segir þrjú lauf.
En hann dettur inn í sexlit
Sigurðar, sem sér að lítið
þarf í slemmu. Hann stekkur
í fjögur hjörtu til að lýsa yflr
slemmuáhuga í laufi og
stuttu hjarta. Jón sér á sín-
um spilum að makker er með
hjartaeyðu og veit sem er að
svörtu kóngamir eru gulls
ígildi. Hann sýnir því áhuga
á móti og spaðafyrirstöðu
með fjórum spöðum. Sigurð-
ur sýnir þá áhuga á al-
slemmu með fimm tíglum,
en Jón telur nóg að gert.
Sem reyndist rétt mat, því
þrátt fyrir mjög góða sam-
legu fást ekki nema tólf slag-
ir. Fyrir það tóku NS 920, en
á hinu borðinu höfðu Sverrir
Ármannsson og Aðalsteinn
Jörgensen keyrt á eigin vél-
arafli í fjögur hjörtu, sem
þeir Hlynur og Kjartan Ás-
mundsson dobluðu. Heilleg-
an í trompi fór illa með þann
samning og Aðalsteinn fór
þrjá niður: 800 í NS, en 3
IMPar til Subaru.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga fyrir-
vara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja afmælis-
lilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúm-
er. Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Arnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Arnað heilla
HA ÁRA afmæli. í dag,
I v/ þriðjudaginn 19.
september, verður sjötugur
Friðrik Friðriksson, Ilátúni
10, Reykjavik. Hann tekur á
móti ættingjum og vinum í
samkomusal Samhjálpar,
Hverfisgötu 42, Reykjavik,
laugardaginn 23. september
frá kl. 15.
r A ÁRA afmæli. I dag
Ovl þriðjudaginn 19.
september verður fimmtug
Svala Birgisdóttir, Álfta-
hólum 2, Reykjavík. Sam-
býlismaður hennar er Hörð-
ur Sigurðsson. Þau eru að
heiman í dag en taka á móti
gestum síðar.
Brúðkaup
Lj ósmynd/Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 24. júní sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Sigurði Helga
Guðmundssyni Kolbrún
Björnsdóttir og Gísli Birgis-
Ljósmynd/Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 29. júlí sl. í Vídalíns-
kirkju af sr. Önundi Björns-
syni Steinunn Huld
Gunnarsdóttir og Ymir
Jónsson.
SKAK
limsjón llelgi Áss
(irétarsson
FYRIR um áratug var al-
þjóðlegt skákmótahald á
Bretlandi líflegt. Það dalaði
síðan allverulega, en hefur á
síðustu árum aftur tekið
fjörkipp. Til að mynda eru
nú haldnir árlega „Ólympíu-
leikar hugans“ í London og
skipar skákin þar stærstan
sess. Staðan kemur frá leik-
unum í ár og var á milli stór-
meistarans Julian Hogdson
(2640), svart, og Simon
Williams (2353). 32...Hxf3!
ASTA
og hvítur gafst upp enda
mun svartur fá 6 peð upp í
skiptamun! Það gæti gerst
t.d. svona: 33.Bxf3 Hxf3
34.Dxf3 Dxel+ 35.Kh2
Dxh4+ 36.Kgl Dxe4 og
svartur hefur auðunnið tafl.
1
á A i E 1
A i.
gjj
W A A
PIP A W
É. 11 1
| ;•.. £ ■S y?
Svartur á Ieik.
Ástkæra, ylhýra málið,
og allri rödd fegra,
blíð sem að barni kvað móðir
á brjósti svanhvítu,
móðurmálið mitt góða,
hið mjúka og ríka,
orð átt þú enn eins og forðum
mér yndið að veita.
Veiztu það, Ásta, að ástar
þig elur nú sólin?
Veiztu, að heimsaugað hreina
og helgasta stjarnan
skín þér í andlit og innar
albjört í hjarta,
vekur þér orð, sem þér verða
vel kunn á munni?
Veiztu, að lífið mitt, ljúfa,
þér liggur á vörum?
Fastbundin eru þar ástar
orðin blessuðu.
Losa þú, smámey, úr lási
lítinn bandingja.
Sannlega sá leysir hina
og sælu mér færir.
Jón as Hallgn'msson
STJORNUSPA
eftir Franoes llrake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur ríka réttlætis-
kennd og vilt beita þér ekki
bara fyrir sjáifa þig heldur
líka íþágu annarra.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú þarft að halda vei á spilun-
um ef þér á að takast að ná til
þín verkefni sem þú hefur
mikinn áhuga á. Og svo dugar
ekkert hangs þegar út í slag-
inn er komið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að beita ítrustu að-
gæslu í peningamálum og alis
ekki eyða meiru en þú aflar
og helst að hafa borð fyrir
báru.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) "Kn
Ef þú talar hreint út um hlut-
ina muntu fá fólk á þitt band
en ef þú reynir að slá ryki í
augu þess mun þér mistakast
liðsbónin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er eins og allt lífið í
kringum þig líði hjá sem kvik-
mynd væri. Hristu af þér
slenið og taktu þátt í ieiknum
af fullri alvöru.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur verið varasamt að
fara um ókunnar slóðir án
nokkurs undirbúnings. Leit-
aðu í smiðju til þeirra sem
hafa áður lagt þarna um leið
sína.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft á öllu þínu að halda
ef þér á að takast að skila
verkefnunum af þér í tæka
tíð. Þú mátt ekki linna látum
fyrr en allt er unnið.
(23. sept. - 22. okt.) m
Það er aldrei að vita hvenær
þú dettur ofaná réttu lausn-
ina svo þú skalt ekki örvænta
þótt þér finnist lítið ganga.
Aðaiatriðið er að halda sig við
efnið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Oft skýtur hlutum upp í hug-
ann án þess að maður sé beint
að hugsa um þá. Slík hugboð
eru til að taka mark á og
reyna að ráða í meiningu
þeirra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) AC/
Þú þarft að ieggja þitt af
mörkum tii þess að vináttan
dafni. Að öðrum kosti visnar
hún og deyr. Láttu það ekki
henda nema þú viljir slíta
sambandinu.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) Jk
Láttu ekki smámunasemi
annan-a setja þig út af laginu.
Einbeittu þér að þínu verki
og þá munu aðrir sjá að þú ert
á réttri ieið.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Forðastu öll tilfinningasam-
bönd á vinnustað. Þau flækja
bara málin og geta haldið aft-
ur af sköpunarhæfileikum
beggja aðila.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fátt jafnast á við lestur góðr-
ar bókar. Láttu því nútíma-
fjölmiðla lönd og leið og leit-
aðu þér athvarfs um sinn í
ævintýralandi sögunnar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægraih'öl. Spár a f þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
i i vísindalegra staðreynda.
gi’unni i
Tilboðs-
barnamyndatökur
í september
margir möguleikar
frá kr. 5.000
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
L0GSUÐUTÆKI
MARGAR GERÐIR
Argon- og propangasmalar
Súr- og gasmalar
Kvelkjur
Logsuðuglaraugu
Elnstraymlslokar
Logsuðutakl f ssttum
Gðð varahluta- og
vlðgerðarþjónusta
arvík
ÁRMÚLA1 • 8(MI 588 7222 • FAX S8B 7298
Landlæknisembættið
Ungur var eg forðum,
fór ég einn saman:
þá varð eg villur vega.
Auðigur þóttumst
er eg annan fann:
Maður er manns gaman
Maður er manns gaman
Vísdómur Hávamála er enn í fullu gildi og margt er þar
sagt um mannlegt eðli.
Gestrisni, vinátta, víðförli, hugrekki, hófsemi, glað-
lyndi, viska, siðgæði, orðstír og varúð er lofsvert.
Varast skyldi
áhyggju, kvíða, áleitni, ámæli, græðgi, ofdrykkju,
heimsku, ofmælgi og óvini.
Vinátta og félagsskapur er öllum mönnum nauðsyn og
mannrækt er einn mikilvægasti hluti heilsuræktar.
Einlægni, gleði og ánægja ætti að móta samskipti við
fjölskyldu, vini og vandamenn eins og allt samferða-
fólk okkar.
Höfum í huga í öllum samskiptum okkar að
„eitt bros getur dimmu
í dagsljós breytt“.
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
FOLK I FRETTUM
staf týrlr staf.