Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 21
LANDIÐ
Myndir: Karl Sigurgeirsson
Viðurkenningar fyriri námsárangur: F.v. Sóley Ólafsdóttir, móðir Sig-
urðar Þórs, Rafn Benediktsson, Brynjólfur Gi'slason sveitarstjóri, Hall-
fríður Ósk Ólafsdóttir og Sigurjón Þorsteinsson.
Viðurkenningar veittar
Hvammstanga - Sveitarsljórn
Húnaþings vestra boðaði til sam-
sætis á Hótel Seli á Hvammstanga
fyrir skömmu og veitti þar viður-
kenningar fyrir snyrtimennsku í
héraðinu. Guðmundur Haukur Sig-
urðsson oddviti sagði sveitarsljórn
vinna markvisst að umhverfismál-
um í sveitarfélaginu og nefndi til
nokkur atriði.
Sveitarfélagið hefði í tvö ár ver-
ið aðili að umhverfísverkefninu
„Staðardagskrá 21“ og einnig
verkefninu Fegurri sveitir. Sau-
tján heimili taka nú þátt í að flokka
og jarðgera heimilissorp. Yfir-
gripsmikið verk er nú unnið í
könnun á vatnsbólum í héraðinu og
einnig er átak í frárennslismálum,
bæði í þéttbýli og til sveita.
Sveitarfélagið hefur skipað
nefnd sem m.a. vinnur að tilnefn-
ingu til viðurkenningar fyrir
snyrtilegt umhverfí. Sigríður
Hjaltadóttir hafði framsögu fyrir
niðurstöðunum og sagði frá störf-
um nefndarinnar. Viðurkenningu
hlutu ábúendur á Akurbrekku í
Hrútafirði, Hestamannafélagið
Þytur fyrir hestaíþróttasvæði í
Kirkjuhvammi, en það var form-
lega tekið í notkun í sumar, og Sig-
urlaug Jóhannesdóttir og Hringur
Guðmannsson fyrir garð við hús
sitt á Höfðabraut 7 á Hvamm-
stanga. Rafn Benediktsson, for-
maður Búnaðarsambands Vestur-
Húnvetninga, veitti ásamt Húna-
þingi vestra þremur ungmennum
viðurkenningu fyrir mjög góðan
árangur í námi, en þau út-
skrifuðust frá Landbúnaðarháskól-
anum á Hvanneyri á liðnu vori.
Ungmennin eru Hallfríður Ósk
Óskarsdóttir í Víðidalstungu, Sig-
urður Þór Guðmundsson á
Hvammstanga og Sigurjón Þor-
steinsson á Reykjum í Hrútafírði.
Sagði Rafn það afar ánægjulegt að
ungt fólk úr dreifbýlinu sækti
skóla sem Hvanneyri og sagði sjálf-
ur hafa sterkar taugar til skólans.
Myndir: Karl Sigurgeirsson
Frá v. Sigríður Hjaltadóttir, Hringur Guðmannsson, Sigurlaug Jóhann-
esdóttir, Brynjólfur Gíslason sveitarsljóri, Guðmundur H. Sigurðsson,
Gunnar Þórarinsson, formaður Þyts, og Böðvar Þorvaldsson.
- • '
Máestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
Þin g KFUM og KFUK
í Yestmannaeyjum
Vestmanaeyjum - Þing Lands-
sambands KFUM og KFUK var
haldið laugardaginn 9. september í
húsi KFUM og KFUK í Vest-
mannaeyjum og óhætt er að segja
að veðurguðirnir hafa tekið vel á
móti þingfulltrúum. Vestmannaeyj-
ar skörtuðu sínu fegursta þingdag-
inn sem jók mjög á ánægju þing-
fulltrúa í útsýnisferð sem farin var
um Heimaey að þingi loknu.
Voru samankomnir 32 fulltrúar
víða að af landinu og tóku þeir þátt
í þingstörfum sem stóðu lungann úr
laugardeginum, frá því snemma
morguns fram eftir degi. Á þinginu
fóru fram venjuleg aðalfundarstörf
auk þess sem ýmis mál tengd fé-
lagsstarfinu voru rædd. Rætt var
um vanda landsbyggðarfélaganna
og kynntu Akurnesingar námskeið
sem átt hefur sinn þátt í eflingu
starfsins á Akranesi.
Tvær ungar stúlkur frá Reykja-
vík kynntu hugmyndir frá KFUM
og KFUK í Danmörku en þær
höfðu tekið þátt í landsþingi
KFUM og KFIJK í Danmörku sem
haldið var í maí sl. I kjölfar erindis
þeirra voru umræður í hópnum um
ýmsa þætti í starfi KFUM og
KFUK á íslandi sem vöktu þátt-
takendur þingsins til umhugsunar
enda margar mjög athyglisverðar
tillögur á ferð.
Á þinginu komu tveir nýir félag-
ar inn í stjórn Landssambandsins
en Stella Skarphéðinsdóttir fulltrúi
Reykjavíkur hætti stjórnarstörfum.
Voru þeim þökkuð vel unnin storf í
þágu félaganna. Stjórn Lands-
sambandsins skipa nú Björgvin
Þórðarson, Böðvar Björgvinsson,
Hafdís Hannesdóttir, Jóhanna S.
MAGNUS V. Jóhannsson hefur ver-
ið ráðinn umdæmisstjóri Vegagerð-
arinnar á Vesturlandi frá 1. október
næstkomandi. Birgir Guðmundsson,
sem verið hefur umdæmisstjóri í
Borgarnesi um árabil, tók við starfi
umdæmisstjóra á Akureyri.
Erludóttir, Jón Oddgeir Guðmun-
dsson, Kristján Sigurðsson og Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson. Þinginu
lauk með helgistund og altaris-
göngu í nýju Stafkirkjunni á Skans-
inum í Vestmannaeyjum, sá séra
Bára Friðriksdóttir um athöfnina.
Mun þetta vera fyrsta altarisgang-
an í Stafkirkjunni sem var vígð 29.
júlí sl. að viðstöddum konungi Nor-
egs, drottningu hans, forseta ís-
lands, biskupum o.fl. fyrirmönnum.
Að loknu þingi var Vestmannaey-
ingum þökkuð gestrisni og góð
skipulagning.
Magnús er 45 ára byggingaverk-
fræðingur. Hann var verkfræðingur
hjá Vegagerðinni frá árinu 1981,
tækniforstjóri rekstrardeildar frá
1990 en hefur að undanfórnu verið í
launalausu leyfi og starfað hjá sam-
gönguráðuneytinu.
Vegagerðin á Vesturlandi
Ráðinn umdæmisstjóri
' Túnis býður ekki aðeins upp á góða golfvelli. '
Saga og menning, loftslag og staðsetning
landsins við Miðjarðarhafsströndina gera
v Túnis ákaflega spennandi til heimsóknar. y
► Hvernig væri að framlengja golfsumarið við kjöraðstæður?
► Búa á fyrsta flokks strandhótelum f þægilegum hita,
► borða góðan mat,
► leika golf á 4 góðum golfvöllum.
Feröaskrifstofa Vesturlands býður upp á 10 daga golfferö til Túnis,
þar sem ekkert ertil sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.
Sagt eftir seinustu ferð:
Gestur Sæmundsson, Golfklúbbi Ólafsfjarðar:
Hafliði Þórsson, Golfklúbbnum Odda:
Haukur Þórisson, Golfklúbbnum Leyni:
Hörður Þórleifsson, Golfklúbbi Akureyrar:
Vilhjálmur Hjálmarsson, Golfklúbbi Reykjavíkur:
Golfvellirnir einstaklega skemmtilegir.
Öll þjónusta til fyrirmyndar.
Loftslagið ákaflega þægilegt.
Maturinn bæði góður og ríkulegur.
Sérlega áhugaverður menningarheimur.
Brottför 16. febrúar. Fararstjóri er Sigurður Pétursson, golfkennari.
Brottför 27. apríl. Fararstjóri er Sigurður Pétursson, golfkennari.
Verð kr. 113.800 á mann í tvíbýli að viðbættum flugvallarsköttum, innifelur:
Flug, fararstjórn, akstur, gistingu á fyrsta flokks hótelum,
hálft fæði, 7 vallargjöld og skoðunarferð til Karþagó.
Bókanir og nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Vesturlands í síma 437 2323.
FERÐASKRIFSTOFA
VESTURLANDS
Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang travest@simnet.is